Morgunblaðið - 27.05.2019, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 27.05.2019, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. MAÍ 2019 Bezt áflest er gæðakrydd sem hentar vel með flestummat. Kryddið inniheldur meðal annars hvítlaukspipar, sítrónupipar, papriku og salt. Kryddblandan er án allra aukaefna. BEZTÁFLEST Hvítlaukskryddblanda Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Nauðsynlegt er að gera heildstætt áhættumat í Öræfasveit og á nær- liggjandi slóðum með tilliti til slysahættu og náttúruhamfara. Rútuslys sem varð nærri Skafta- felli á dögunum hvetur til þessa. Einnig sá fjöldi slysa og óhappa sem orðið hefur á þessum slóðum á síðustu árum, það er óvant fólk er á ferð í framandi aðstæðum. Þetta segir Helga Árnadóttir á Höfn í Hornafirði, þjóðgarðsvörð- ur á suðusvæði Vatnajökuls- þjóðgarðs. „Keðja þeirra sem aðstoð veita á þessu svæði er sterk, það er björgunarsveita, lögreglu, hjúkrunarfólks og eins kemur starfsfólk þjóðgarðsins að mörg- um útköllum. Við sem á svæðinu störfum erum í samtali um hvern- ig má gera betur í þessum efnum og ég held að engum dyljist að í Skaftafelli þarf að vera stöðug við- vera lögreglu, hjúkrunarliðs og annars björgunarfólks.“ Brýn uppbygging Skaftafell er einn vinsælasti ferðamannastaður landsins. Ný- legar tölur um gestakomur á svæðið eru þó umhugsunarverðar. Á staðinn komu í mars síðast- liðnum 37.020 manns samanborið við 50.296 í mars í fyrra, sem er fækkun um ríflega fjórðung milli ára. Fækkun bíla sem ekið er inn á svæðið er í sama takti. Þeim sem koma að Jökulsárlóni á Breiða- merkursandi fer hins vegar fjölg- andi yfir veturinn og þar ræður meðal annars að margir leggja nú leið sína að jökulhellunum á svæð- inu sem þykja áhugaverðir. „Hér á suðursvæði bíða brýn verkefni,“ segir Helga Árnadóttir. Þar tiltekur hún að bæta þurfi inn- viði í Skaftafelli, stækka þjón- ustubyggingar, breyta tjald- svæðum, bæta gönguleiðir og aðstöðu starfsmanna og koma frá- rennslismálum í lag. Við Jökuls- árlón, sem varð hluti af Vatnajök- ulsþjóðgarði fyrir tveimur árum, þurfi sömuleiðis að fara í upp- byggingu sem nú sé verið að und- irbúa með gerð deiliskipulags og stjórnunar- og verndaráætlunar fyrir Breiðamerkursand. Starfsfólki fjölgað Fjárveitingar til Vatnajökuls- þjóðgarðs hafa verið auknar á síð- ustu misserum, sem Helga segir að mikil þörf hafi verið á. Í ár verði ársverkin á suðursvæði þjóð- garðsins 27 en þau voru 18 í fyrra. Er meðal annars verið að fjölga heilsársstörfum landvarða. „Landverðir vinna að því að koma fræðslu um náttúru og sögu til skila. Svo er líka mjög áhuga- vert að í sumar verður boðið upp á þrjár fræðslugöngur á dag í Skaftafelli. Fræðsla er einn af lyk- ilþáttum í öllu starfi þjóðgarða,“ tilgreinir Helga sem segir náttúru og umhverfi við sunnanverðan Vatnajökul breytast hratt þessi ár- in með undanhald jöklanna. Rannsaka stóra samhengið „Fyrir vísindamenn er áhuga- vert að fylgjast með þessari fram- vindu og væntanlega kemst þjóð- garðurinn enn betur á kortið fái hann samþykki á heimsminjaskrá UNESCO, eins og vonir standa til. Í umsókninni er sérstaklega vikið að samspili elds og íss og rann- sóknir á slíku eru áhugaverðar. Þegar er til staðar verkefnið Hop- andi jöklar, sem er samstarf þjóð- garðsins, Veðurstofu Íslands, Náttúrustofu Suðausturlands og fleiri,“ segir Helga og að lokum: „Nú þegar eru komnar ýmsar afurðir af þessu verkefni svo sem aðgengilegt fræðsluefni um jökla á vefsíðu þjóðgarðins, kynningar- bæklingur, fræðsluefni fyrir leið- sögumenn, hönnun nýrra göngu- leiða og fleira. Þá er ótalin sú þekking sem vísindamenn afla og nýta sér til að rannsaka hið stóra samhengi í náttúrunni.“ Öryggismál í brennidepli í starfi á suðursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs Morgunblaðið/Sigurður Bogi Þjóðgarðsvörður Fræðsla um náttúru og sögu, segir Helga Árnadóttir Áhugaverð framvinda  Helga Árnadóttir er fædd 1979. Hún nam við HÍ og lauk meistaranámi í líf- og lækna- vísindum árið 2006.  Hefur starfað hjá Vatnajök- ulsþjóðgarði frá 2008, fyrst á norðursvæði með aðsetur í Ás- byrgi en síðari árin á suð- ursvæði, sem nær frá Lóni í Skaftafell. Þjóðgarðsvörður frá síðasta ári. Hver er hún? Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Umhverfis- og samgöngunefnd Al- þingis leggur til að fallið verði frá áformum um að lækka leyfilegt há- marksmagn vínanda í blóði öku- manns og gera það refsivert ef magn vínanda í blóði mælist meira en 0,2 prómill. Mælt er með því að núverandi verklag lögreglu gildi áfram. Í stjórnarfrumvarpi til nýrra um- ferðarlaga er lagt til að leyfilegt hámarksmagn vínanda í blóði öku- manns verði lækkað úr 0,5 í 0,2 prómill. Þó þannig að ökumaður verði ekki sviptur ökurétti við fyrsta brot þótt áfengismagn mælist minna en 0,25 prómill. Brotin yrðu tvöfalt fleiri Í nefndaráliti umhverfis- og sam- göngunefndar sem allir nefndar- menn standa að kemur fram að allt að helmingur þeirra ökumanna sem lögregla hefur afskipti af vegna ölv- unaraksturs sé með minna en 0,5 prómilla áfengismagn í blóði. Breytingin myndi því auka vinnu fyrir lögregluna vegna væntan- legrar fjölgunar brota og hærra flækjustigs. Bent er á að sam- kvæmt núverandi verklagi lögreglu væri ökumanni sem mældist með yfir 0,29 prómilla áfengismagn en undir 0,45 gert að hætta akstri en ekki aðhafst frekar. Þeir sem mældust með 0,29 prómill eða minna fengju að halda för sinni áfram. Nefndin tekur undir það mark- mið sem lá að baki frumvarpsins að breyta hegðun ökumanna og leggja áherslu á að áfengi og akstur fari undir engum kringumstæðum sam- an. Nefndin bendir þó á að gæta þurfi meðalhófs við refsingar og að ganga ekki lengra en þörf sé á. Niðurstaðan nefndarinnar er sú að rétt sé að halda framkvæmd lög- reglu vegna þessara brota óbreyttri, það er að segja að brot á þessu bili séu skráð í málaskrá lög- reglu og ökumanni gert að hætta akstri og hámarksmörkin verði áfram við 0,5 prómill. Fleirum skylt að nota hjálm Nefndin leggur til ýmsar fleiri breytingar. Nefna má að í frum- varpinu er ákvæði um skyldu barna yngri en 15 ára til að nota hjálm við hjólreiðar. Er þar verið að lög- festa gildandi reglu sem sett var með reglugerð fyrir 20 árum. Í áliti nefndarinnar er fjallað um þetta öryggismál og hvort slík skylda gæti orðið til að draga úr hjólreiðum. Ekki eru taldar liggja fyrir afgerandi rannsóknir um að svo sé en aftur á móti hafi verið sýnt fram á að hjálmar veiti vernd gegn höfuðáverkum. Niðurstaðan var að herða á reglunum og láta hjálmaskylduna ná til allra ein- staklinga undir lögaldri, það er að segja til 18 ára aldurs. Í frumvarpinu er lagt til að létt bifhjól í flokki I verði undanþegin skráningarskyldu. Þar er átt við bifhjól sem komast einungis í 25 km hraða á klukkustund og heimilt er að aka á gangstéttum. Nefndin leggur til að þessi hjól verði skrán- ingarskyld, eins og önnur létt bif- hjól og raunar öll ökutæki. Því er jafnframt beint til Samgöngustofu að framfylgja skyldu um skráningu sem hún hefur ekki treyst sér til. Viðmið ölvunar verði óbreytt  Hámarksmagn vínanda ekki lækkað Eftirlit Vinna lögreglu við minni brot hefði að óbreyttu aukist mjög. Mikil fundahöld hafa verið að und- anförnu í húsnæði Ríkissáttasemj- ara, bæði í kjaradeilum sem vísað hefur verið til sáttameðferðar og í deilum sem ekki eru komnar á það stig. Þannig hafa samninganefndir ríkisins og sveit- arfélaga fundað með sínum við- semjendum og Samtök atvinnu- lífsins með fé- lögum flug- umferðarstjóra, flugmanna, flug- freyja og mjólk- urfræðinga. „Við höfum átt í góðu samtali við alla okkar viðsemjendur á síð- ustu dögum og vikum og því miðar vel áfram,“ segir Sverrir Jónsson, formaður samninganefndar rík- isins. Stærstu hóparnir eru innan samflots BHM, BSRB, Félags ís- lenskra hjúkrunarfræðinga og Fé- lags íslenskra framhaldsskólakenn- ara en Sverrir segir að einnig hafi verið rætt við félög sem eru utan þessara bandalaga, svo sem sam- tök lækna. „Okkur miðar hægt en miðar samt áfram,“ segir Þórunn Svein- bjarnardóttir, formaður BHM. Hún segir að þeir samningar sem gerðir voru á almennum vinnu- markaði henti félagsmönnum BHM illa. Þeir þjappi saman launatöflum og séu illsamrým- anlegir þeim markmiðum BHM að meta menntun til launa. Því hafi hugmyndum samninganefndar rík- isins um launalið væntanlegra samninga á þeim grunni verið hafnað. Viðræður hafi eigi að síður haldið áfram. Tekur lengri tíma Sverrir segir að samninganefnd ríkisins sé vongóð um að það sjái fyrir lokin á samningum við ríkis- starfsmenn áður en mjög langt um líður, nánar tiltekið áður en langt er komið fram á sumarið. „Samninganefnd ríkisins hafði þær væntingar þegar viðræður hófust að hægt væri að ljúka þeim á mjög skömmum tíma. Ég get ekki séð að það gangi eftir. Það þarf örugglega að ræða málin fram á sumar og jafnvel lengur. Við not- um þann tíma sem við þurfum til að fá almennilega samninga,“ segir Þórunn. helgi@mbl.is Reiknað með við- ræðum í sumar  Fundað um kjör ríkisstarfsmanna Þórunn Sveinbjarnardóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.