Morgunblaðið - 27.05.2019, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 27.05.2019, Blaðsíða 24
24 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. MAÍ 2019 á heimasíðu Hreyfils: hreyfill.is eða í App Store og Google Play SÆKTU APPIÐ Sæktu appið frítt á AppStore eða Google Play Hreyfils appið Pantaðu leigubíl á einfaldan og þægilegan hátt Þú pantar bíl1 3 og færð SMS skilaboðað bíllinn sé kominn. 2 fylgist með bílnum í appinu HANDBOLTI Þýskaland Kiel – Minden ....................................... 39:19  Alfreð Gíslason þjálfar Kiel. Gísli Þor- geir Kristjánsson er frá keppni vegna meiðsla Füchse Berlín – RN Löwen ................ 34:33  Bjarki Már Elísson skoraði 3 mörk fyrir Füchse.  Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 7 mörk fyrir Löwen. Alexander Petersson er frá keppni vegna meiðsla.. Ludwigshafen – Bergischer .............. 23:22  Arnór Þór Gunnarsson skoraði 1 mark fyrir Bergischer. Bietigheim – Lemgo............................ 25:23  Hannes Jón Jónsson þjálfar Bietigheim.  Staðan: Flensburg 60, Kiel 58, Magde- burg 50, RN-Löwen 50, F.Berlin 38, Mel- sungen 38, Bergischer 36, Göppingen 34, Erlangen 28, Lemgo 26, Leipzig 25, Wetzl- ar 25, Minden 25, H-Burgdorf 24, Stuttgart 23, Gummersbach 13, Bietigheim 13, Lud- wigshafen 10. Tvær umferðir eru eftir. B-deild: Hüttenberg – N-Lübbecke ................. 27:29  Ragnar Jóhannsson skoraði 1 mark fyrir Hüttenberg. Spánn Huesca – Barcelona............................. 27:47  Aron Pálmarsson skoraði 4 mörk fyrir Barcelona sem tapaði ekki leik og fékk 59 stig af 60 mögulegum. Bidasoa varð í öðru sæti með 45 stig. Alcobendas – Valladolid..................... 27:38  Stefán Darri Þórsson skoraði 1 mark fyrir Alcobendas sem varð neðst í deildinni með 9 stig og féll. Danmörk Undanúrslit, annar leikur: Bjerringbro/Silkeborg – Aalborg .... 32:34  Janus Daði Smárason skoraði 10 mörk fyrir Aalborg og Ómar Ingi Magnússon 6. Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari.  Aalborg vann, 2:0. Skjern – GOG ....................................... 31:30  Björgvin Páll Gústavsson varði ekki skot marki Skjern. Tandri Már Konráðsson skoraði ekki mark fyrir liðið.  Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði 1 mark fyrir GOG.  Staðan er jöfn, 1:1. Ungverjaland Seinni úrslitaleikur: Pick Szeged – Veszprém .................... 27:27  Stefán Rafn Sigurmannsson skoraði 2 mörk fyrir Pick Szeged.  Veszprém er ungverskur meistari 2019, 62:51 samanlagt. KNATTSPYRNA Úrvalsdeild kvenna, Pepsi Max-deildin: Hásteinsvöllur: ÍBV – Stjarnan ............... 18 Origo-völlur: Valur – Selfoss ............... 19.15 Würth-völlur: Fylkir – HK/Víkingur . 19.15 Í KVÖLD! HANDBOLTI Ívar Benediktsson iben@mbl.is „Það er mikill léttir að sæti í efstu deild á næstu leiktíð er í höfn. Við ætlum ekki að láta þar við sitja held- ur vinna deildina. Til þess verðum við að sigra í tveimur síðustu leikjunum. Þannig að við erum ekkert að fara að slaka á strax,“ sagði handknattleiks- maðurinn Oddur Gretarsson léttur í bragði í samtali við Morgunblaðið í gær. Balingen, lið hans, tryggði sér um helgina sæti í 1. deildinni á næsta keppnistímabili eftir tveggja ára dvöl í 2. deild. „Ég hlakka til að leika í deild þeirra bestu á næsta vetri. Þar vil ég vera og var ástæðan fyrir að ég yf- irgaf Emsdetten á sínum tíma og samdi við Balingen, það er að leik í efstu deild. En því miður þá féll Bal- ingen úr fyrstu deildinni vorið áður en ég kom til félagsins,“ sagði Oddur sem lék með Emsdetten í 1.deildinni veturinn 2013/2014. Emsdetten staldraði aðeins eitt tímabil í deild- inni. „Þess utan er gaman að upplifa þá stemningu sem ríkir í kringum Bal- ingen nú þegar okkur vegnar vel. Mikil handboltahefð ríkir í Balingen og góð aðsókn á leiki okkar. Ég því alveg viss um að það verður stemn- ing á heimaleikjum á næsta keppn- istímabili í efstu deild,“ sagði Oddur. Balingen hefur nánast verið í efsta sæti deildarinnar frá því að keppni hófst í haust en verið í harðri baráttu við Nordhorn, Coburg og Hamm um efstu tvo sætin. Tvö síðarnefndu liðin hafa gefið eftir þess vegna er nú leið- in greið fyrir Balingen og Norhorn. „Við höfum setið í efsta sæti frá í desember en aldrei náð að hrista hin liðin almennilega af okkur, ekki síst vegna þess að við höfum tapað stig- um af og til á útivelli,“ sagði Oddur. Meðal markahæstu Oddi hefur gengið afar vel með Balingen-liðinu á tímabilinu og markahæsti leikmaður þess með 201 mark, þar af 100 úr vítaköstum. Hann er í sjötta sæti á lista yfir markahæstu leikmenn 2. deildar og um leið markahæsti leikmaður síns liðs. „Ég nýt mín afar vel hjá Bal- ingen-liðinu þar sem ég hef stórt hlutverk og er einn af reyndari mönnum liðsins,“ sagði Oddur sem framlengdi samning sinn við Bal- ingen í vetur fram til vorsins 2021. Að minnsta kosti átta íslenskir handknattleiksmenn munu leika í þýsku 1. deildinni á næsta keppn- istímabili í stað fimm á þeirri sem nú stendur yfir. Auk Odds munu Bjarki Már Elísson, Alexander Petersson, Arnór Þór Gunnarsson, Gísli Þorgeir Kristjánsson, Ragnar Jóhannsson, Elvar Ásgeirsson og Viggó Krist- jánsson leika með liðum í deildinni. „Það er gaman að Íslendingum fjölg- ar í deildinni,“ sagði Oddur Gret- arsson við Morgunblaðið. Mikill léttir að sæti er í höfn  Oddur hlakkar til næsta tímabils  Átta Íslendingar í efstu deild Ljósmynd/Balingen Markaskorari Oddur Gretarsson hefur skorað yfir 200 mörk á leiktíðinni og er á meðal markahæstu leikmanna 2. deildar í Þýskalandi. Emil Hallfreðsson lauk erfiðu keppnistímabili á jákvæðum nótum í gær þegar hann skoraði annað mark Udinese í sigurleik á Cagliari á útivelli, 2:1, í lokaumferð ítölsku A-deildarinnar í knattspyrnu. Emil misst af stórum hluta tíma- bilsins vegna meiðsla. Emil kom til Udinese í byrjun árs lék samtals aðeins níu deildarleiki á tímabilinu með Udinese og áður Frosinone. Udinese endaði í 12. sæti með 43 stig, en liðið gat enn fallið fyrir umferðina í gær, hefði allt farið á versta veg. Lauk tímabilinu á jákvæðum nótum Morgunblaðið/Eggert Mark Emil Hallfreðsson reimaði á sig skotskóna fyrir lokaleikinn. Finnar urðu í gærkvöldi heims- meistarar í íshokkíi karla í þriðja sinn í sögunni eftir að þeir unnu Kanadamenn, 3:1, í úrslitaleik heimsmeistaramótsins í Slóvakíu. Sigur Finna á mótinu þykir óvænt- ur þótt vitað væri að þeir væru með eitt af betri liðum mótsins. Rússar hrepptu bronsið á mótinu. Þeir unnu Tékka í vítakeppni eftir að staðan var jöfn, 2:2, að loknum venjulegum leiktíma og marka- lausri framlengingu. Rússar skor- uðu úr tveimur vítum en Tékkar ekki. iben@mbl.is Finnar óvæntir sigurvegarar AFP Meistarar Glaðbeittir landsliðs- menn Finna með sigurlaunin á HM. Dagbjartur Sigurbrandsson úr GR bar sigur úr býtum á Egils Gull mótinu í golfi, en leikið var á Þorláks- hafnarvelli. Dagbjartur lék á átta höggum undir pari. Fyrir lokahringinn var Sigurður Arnar Garðarsson úr GKG í forystu en hann fékk tvöfaldan skolla þegar sex holur voru eftir. Þeir Dagbjartur voru því jafnir fyrir 18. og síðustu holuna en þar fékk Sigurður skolla og par tryggði því Dagbjarti sigurinn. Þess ber að nefna að þeir eru báðir fæddir árið 2002. Þetta var fyrsti sigur Dagbjarts á GSÍ mótaröðinni. Ragnar Már Ríkarðsson úr GM endaði mótið á fjórum fuglum á síð- ustu átta holunum og varð hann því jafn Sigurði í öðru sæti á sjö höggum undir pari. Heiðrún Anna Hlynsdóttir úr Golfklúbbi Selfoss sigraði í kvenna- flokki en hún lék á alls fjórum höggum undir pari. Þetta er hennar fyrsti sigur á ferlinum á mótaröðinni. Hulda Clara Gestsdóttir úr GKG og Helga Kristín Einarsdóttir úr GK voru í 2.-3. sæti, báðar á pari. sport@mbl.is Dagbjartur og Heiðrún efst Dagbjartur Sigurbrandsson Stefán Rafn Sigurmannsson og fé- lagar hans í Pick Szeged máttu gera sér að góðu silfurverðlaunin í ungversku 1. deildinni í handknatt- leik. Jafntefli, 27:27, í síðari úrslita- leiknum við Veszprém í gær dugði skammt eftir 11 marka tap í fyrri viðureigninni á dögunum á heima- velli Veszprém. Stefán Rafn skoraði tvö mörk fyrir Szeged í gær. Szeged var ríkjandi meistari. Liðið vann bik- arkeppnina á leiktíðinni og varð deildarmeistari. iben@mbl.is Silfur í Ung- verjalandi Ljósmynd/pickhandball.hu Silfur Stefán Rafn og samherjar náðu ekki að verja titilinn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.