Morgunblaðið - 27.05.2019, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 27.05.2019, Blaðsíða 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. MAÍ 2019 Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 - Opin vinnustofa kl.9-12.30 - ATH SÍÐASTI TÍMINN FYRIR SUMAFRÍ í Kraftur í KR kl.10.30, rúta fer frá Vesturgötu kl.10.10 og frá Aflagranda kl.10.20 - Félagsvist kl.13. - Kaffi kl.14.30-15.20 - Árskógar 4 Opin smíðastofa kl. 9-16. Opin handavinnustofa kl. 9 -12. Handavinnuhópur kl. 12-16. Félagsvist með vinningum kl. 12.45. Myndlist með Elsu kl. 16-19. Opið fyrir innipútt og 18 holur útipúttvöll. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl. 14:45-15.30. Heitt á könnunni. Allir velkomnir. s: 535-2700. Boðinn Mánudagur: Félagsvist kl. 13. Vatnsleifimi kl. 14.30. Spjallhópur kl. 15. Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa kl. 9-16. Morgunkaffi kl. 10- 10.30. Leikfimi kl. 12.50-13.30. Samprjón kl. 13.30-14.30. Bútasaumshópur kl. 13-16. Opið kaffihús kl. 14.30-15.15. Dalbraut 18-20 Brids kl.13. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffispjall og blöðin við hring- borðið kl. 8:50. Frjáls tími í Listasmiðju kl. 9-16. Línudans kl. 10. Ganga kl. 10. Hádegismatur kl. 11:30. Félagsvist kl. 13. Handavinnuhornið kl. 13. Gáfumannakaffi kl. 14:30. Hugmyndabankinn er alltaf opin kl. 9-16. Allir velkomnir óháð aldri. Nánari upplýsingar í síma 411-2790. Furugerði 1 Mánudagur: Bókmenntahópur kl. 10, leikfimi kl. 11, hádegismatur kl. 11.30-12.30, ganga kl. 13, botsía kl. 14, kaffisala kl. 14.30-15.30. Annan hvern mánudag sirka: Helgistund í staðinn fyrir botsía. Annan hvern mánudag: Opin fjöliðja með leiðbeinanda / opin fjöliðja frá kl. 10-16. Garðabæ Vatnsleikf. Sjál. kl.7.30 /8.15 /15. Kvennaleikf. Sjál. kl. 9.30. Liðstyrkur. Sjál kl. 10.15. Kvennaleikf. Ásg. Kl.11.15. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Stólajóga kl. 11. Bridge í Jónshúsi kl. 13. Zumba í Kirkjuhv kl. 16.15 síðasti tíminn fyrir sumarfrí. Garðabæ Vatnsleikf. Sjál. kl.7.30 /8:15 /15. Kvennaleikf. Sjál. kl. 9.30. Liðstyrkur. Sjál kl. 10.15. Kvennaleikf. Ásg. Kl.11.15. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Stólajóga kl. 11. Bridge í Jónshúsi kl. 13. Zumba í Kirkjuhv kl. 16.15. Gerðuberg 3-5 Mánudagur Opin Handavinnustofan kl 8.30-16. Útskurður m/leiðb. kl. 9-16. Leikfimi maríu kl. 10-10.45. Leikfimi Helgu Ben 11-11.30. Kóræfing kl. 13-15. Allir velkomnir. Gjábakki kl. 9 handavinna, kl. 9. Boccia, kl. 10.50 Jóga, kl. 13.15 Canasta. Gullsmári Mánudagur: Postulínshópur kl. 9, jóga kl. 9.30, handavinna/ Bridge kl. 13, jóga kl. 17, félagsvist kl. 20. Hraunsel Kl. 9 myndmennt, kl. 11 Gaflarakórinn, kl. 13. félagsvist Hjallabraut, kl. 10-16 Fjölstofan. Korpúlfar Ganga kl. 10. gengið frá Grafarvogskirkju og Borgum, prjónað til góðs og gefið til líknarmála kl. 13. í dag í Borgum allir vel- komnir og félagsvist kl. 13. í dag í Borgum. Við minnum á vorsýningu Fjölnis á Uppstigningardag 30. maí í Egilshöll, Korpúlfar taka þátt í sýningunni kl. 12. miðar seldir hjá Fjölni, á netinu og við innganginn, allir velkomnir. Seltjarnarnes Billjard í Selinu kl. 10. Krossgátur og kaffi í króknum kl. 10.30. Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 18.30. Athugið að engin dagskrá verður í salnum á Skólabraut þessa viku vegna uppsetningu á handverkssýningunni sem hefst nk. fimmtudag 30. maí, uppstig- ningardag kl. 13. Sýninginn verður opin til laugardags milli kl. 13. og 17. Á morgun þriðjudag verður púttað úti á golfvelli kl. 13.30. Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10–16. Heitt á könnunni frá kl. 10–11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá kl. 11.30–12.15, panta þarf matinn daginn áður. Spiluð er félagsvist sem byrjar kl. 13.15. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl. 14.30–15.30. Al- lir velkomnir. Síminn í Selinu er 568-2586. Stangarhylur 4 Spænska-námskeið kl. 13.30. Kennarar frá Spænskuskólanum Háblame Smáauglýsingar Antík Víðissett frá 1960 Bólstrað með vönduðu efni árið 2013. Mjög vel með farið. Verð 190.000 kr. Nánari upplýsingar í síma 893 7875. Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Ýmislegt ER ATVINNUAUGLÝSINGIN ÞÍN Á BESTA STAÐ? ✝ GuðmundurÖrn Njálsson fæddist á Ak- ureyri 31. mars 1955. Hann lést á heimili sínu á Akureyri 19. maí 2019. Foreldrar hans voru Sjöfn Ósk- arsdóttir hús- móðir, f. 25. mars 1937, d. 3. sept- ember 2008, og Njáll Friðrik Bergsson sjómaður, f. 12. mars 1935, d. 29. október 2006. Systkini Guðmundar eru: Haf- dís, f. 2. janúar 1958, Guðný Sif, f. 29. janúar 1963, Hulda, f. 20. mars 1965, Haukur, f. 20. mars 1965, Bergþóra, f. 28. júlí 1966 og Linda, f. 19. des- ember 1968, d. 25. janúar 1969. Guðmundur trúlofaðist Hönnu Halldóru Karlsdóttur, f. 10. desember 1958. Þau slitu samvistum. Dóttir þeirra er 1) Katrín Lind, f. 22. september 1975. Maður hennar var Jó- hann Guðmundur Eyþórsson, f. 8. október 1977. Þau slitu samvistum. Þau eiga tvo syni. Guðmundur kvæntist Krist- jönu Kristjánsdóttur, f. 14. janúar 1958. Þau slitu sam- vistum. Dætur þeirra eru: 2) Sjöfn, f. 16. maí 1978, maður henn- ar Sigurður Áki Eðvaldsson, f. 19. maí 1973. Þau eiga fjögur börn. 3) Anný Rós, f. 14. júlí 1982, maður hennar Birkir Freyr Stefánsson, f. 11. ágúst 1982. Þau eiga tvær dætur. 4) Lilja, f. 20. september 1984, d. 1. maí 2006. Guðmundur kvæntist 30. júlí 1997 Guðrúnu Birnu Jóhanns- dóttur, f. 28. september 1962. Dætur þeirra eru: 5) Sigríður Ásta, f. 10. maí 1988 og 6) Dagný, f. 14. janúar 1998. Guðmundur fór ungur á sjó, lærði síðar vélstjórn og starf- aði á sjó í 41 ár. Hann stund- aði sjómennsku meðal annars hjá G.Ben á Árskógssandi, á eigin bátum á Flateyri, hjá Vísi í Grindavík og á Frosta frá Grenivík. Árið 2011 stofn- aði Guðmundur eigið fyrir- tæki, Kæliþjónustu Akureyrar ehf., þar sem hann starfaði út árið 2018. Útför Guðmundar verður gerð frá Akureyrarkirkju í dag, 27. maí 2019, og hefst at- höfnin klukkan 13.30. Elsku hjartans vinurinn minn, Sólin brennir nóttina, og nóttin slökkvir dag; þú ert athvarf mitt fyrir og eftir sólarlag. Þú ert yndið mitt áður og eftir að dagur rís, svölun í sumarins eldi og sólbráð á vetrarins ís. Svali á sumardögum og sólskin um vetrarnótt, þögn í seiðandi solli, og söngur, ef allt er hljótt. Söngur í þöglum skógum og þögn í borganna dyn, þú gafst mér jörðina og grasið og guð á himnum að vin. Þú gafst mér skýin og fjöllin og guð til að styrkja mig. Ég fann ei hvað lífið var fagurt, fyrr en ég elskaði þig. Ég fæddist til ljóssins og lífsins, er lærði ég að unna þér og ást mín fær ekki fölnað fyrr en með sjálfri mér. Ást mín fær aldrei fölnað, því eilíft líf mér hún gaf. Aldirnar hrynja sem öldur um endalaust tímans haf. Aldir og andartök hrynja með undursamlegum nið; það er ekkert í heiminum öllum nema eilífðin, guð – og við. (Sigurður Nordal) Þín Guðrún. Elsku pabbi minn. Kenndu mér klökkum að gráta, kynntu mér lífið í svip. Færðu mér friðsæld í huga, finndu mér leiðir á ný. Veittu mér vonir um daga, vertu mér hlýja og sól. Láttu mig læra af reynslu, leyfðu mér áttum að ná. Gefðu mér gullin í svefni, gættu að óskum og þrám. Minntu á máttinn í sálu, minning er fegurri en tár. Og sjáðu hvar himinn heiður, handan við þyngstu ský er dagur sem dugar á ný. (Sigmundur Ernir Rúnarsson) Þín dóttir, Dagný. Guðmundur Örn Njálsson ✝ Ólöf Haralds-dóttir fæddist í Hafnarfirði 10. janúar 1923. Hún lést á hjúkrunar- heimilinu Skjóli 13. maí 2019. Foreldrar henn- ar voru Haraldur Þórðarson sjómað- ur, f. 11.3. 1897, d. 2.12. 1941, og Guðmundína Sigurborg Guðmundsdóttir húsmóðir, 21.7. 1899, d. 14.6. 1981. Systkini Ólafar eru Ragnhildur, f. 10.1. 1923, d. 19.9. 2013, Ingveldur, f. 25.6. 1924, d. 17.3. 1988, Helga, f. 6.1. 1927, d. 25.6. 2008, Guð- 1946, maki Ingibergur Gunn- ar Jónsson. Börn þeirra eru Magnús, Þráinn og Elvar. 4) Guðmunda Sæunn Magnús- dóttir, f. 1948, maki Har- aldur Sigurðsson. Börn þeirra eru Jóhann Lúðvík, Hafsteinn Þórir, Ólöf og Jón- as Randver. 5) Bjarni Magn- ússon, f. 1949, kona Ólína Helgadóttir. Barn Víðir Arn- ar. Barnabörnin eru 13, barnabarnabörn 32 og lang- ömmubörn eru 9. Ólöf vann margvísleg störf um ævina, t.d. fiskvinnslu og í íþróttahúsi Víðistaðaskóla. Hún var mikil hannyrðakona, hafði einnig yndi af blóma- og trjárækt. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 27. maí 2019, klukkan 13. björg, f. 5.12. 1928, d. 27.9. 1992, og Guð- bjartur, f. 5.9. 1930, d. 23.3. 2015. Eiginmaður Ólafar var Magn- ús Bjarnason, f. 17.1. 1928, d. 9.1. 2019. Börn Ólafar eru: 1) Sigurborg Skjaldberg, f. 1941, maki Bald- ur Snæhólm. Börn þeirra eru Katrín Snæhólm, Ólöf Snæ- hólm og Davíð Snæhólm. 2) Garðar Olgeirsson, f. 1944, maki Anna Ipsen. Börn þeirra eru Karl Olgeir og Ásgeir Ey- þór. 3) Júlía Magnúsdóttir, f. Það var í janúar á þessu ári að afi Magnús kvaddi og það tók virkilega á ömmu. Þau voru búin að vera saman í yfir 70 ár, höfðu gengið í gegnum súrt og sætt. Þau voru búin að vera trú hvort öðru, höfðu elskað, staðið saman, barist fyrir og séð fyrir þeim sem þeim þótti vænst um. Amma Lóa er nú farin heim, hún var í raun tilbúin að fara. Hún kvaddi með frið í hjarta, var sátt við guð og menn. Þegar ég hugsa til ömmu Lóu þá koma upp minningar frá Suð- urgötunni í Hafnarfirði og einnig úr sumarbústaðnum við Apavatn. Afi og amma bjuggu lengst af á Suðurgötu 64 og þaðan minnist ég jólanna. Amma var í eldhúsinu að undirbúa jólamatinn, og hún hafði greinilega lagt mikla vinnu í und- irbúninginn, það var vel hugsað fyrir öllu, nægur matur ásamt meðlæti. Amma var handlagin, hún var góð saumakona og stundaði út- saum og mátti sjá verk hennar stór og smá prýða heimili þeirra. Þær voru ófáar ferðirnar aust- ur í sumarbústaðinn. Þar áttu afi og amma sínar bestu stundir og var tekið vel á móti öllum sem komu í heimsókn. Amma spurði alltaf frétta af sínu fólki, hún vildi fylgjast með og það var ljóst að henni þótti vænt um börnin sín. Hún kom hreint fram, var hreinskilin og óhrædd við að koma sinni skoðun á framfæri. Amma Lóa, ég mun sakna þín, takk fyrir allar þær góðu stundir sem við áttum saman. Nú ert þú komin heim til Drottins. Drottinn blessi minningu þína. Þinn Magnús Gunnarsson. Ólöf Haraldsdóttir, elskuleg amma okkar, er látin. Hún hefur alltaf verið stór hluti af lífi okkar systkinanna, gætti okkar alla tíð og fylgdist með lífi okkar af áhuga. Við fengum líka að vera virkir þátttakendur í lífi hennar og afa. Við tókum upp kartöflur með henni, tíndum rifsber í garð- inum og bláber í sveitinni og amma gerði sultu. Við tíndum líka fjallagrös og fengum fjallagrasa- mjólk. Hún tók slátur og við hreinsuðum lambaspörð úr görn- um og grettum okkur yfir fullum bala af blóði og mör. Amma var alltaf að. Hún var saumakona og saumaði glæsikjóla og dragtir fyrir konur úti í bæ, jólakjóla og skinnhúfur á okkur og dúkkurnar okkar voru reglu- lega dressaðar upp í heimasaum- uð föt úr efnisafgöngum sem féllu til í saumaskapnum. Og úr prjónavélinni komu peysur og alls kyns annað fínerí. Hún bakaði líka bestu brúnterturnar og hélt stór jólaboð. Heimili hennar og afa var alltaf hreint og fínt; hún vildi hafa fallegt í kringum sig og lagði líka áherslu á að vera sjálf alltaf vel til fara og vel tilhöfð. Amma var náttúrubarn. Hún hlustaði eftir vindinum í trjánum, horfði á „túllið“ eins og hún kall- aði tunglið, elskaði trén, fuglana, blómin, lækinn og ljósin frá Laug- arvatni sem spegluðust í vatninu. Hún var fyndin og elskaði skemmtilegar sögur. Ef sá gállinn var á henni hló hún svo tárin láku niður kinnarnar og þá var ekki annað hægt en að hlæja með. Og hún elskaði tónlist. Hún raulaði með útvarpinu við heimilisverkin og tók danssporin með afa fyrir framan sjónvarpið í holinu á Suð- urgötunni þegar spilað var síð- asta lag fyrir fréttir. Allt í kringum ömmu var gróska. Blómin sem hún gróður- setti í garðinum og gróðurhúsinu á Suðurgötunni, trén sem hún og afi settu niður sem græðlinga í kringum sumarbústaðinn við Apavatn, kartöflurnar í kartöflu- garðinum í Hafnarfirði og svo allt grænmetið sem þau ræktuðu fyr- ir austan. Hún hlúði að og gerði sitt til að skapa góðar aðstæður fyrir vöxt og þroska, hvort sem um var að ræða tré, blóm eða fólk; ættbogann stóra sem hún skilur eftir sig. Amma var ættmóðirin og það er stórt skarð höggvið nú þegar amma og afi eru bæði farin. Afi dó í janúar á þessu ári og amma var verulega sorgmædd vegna þess, enda voru þau búin að fylgjast að í meira en sjö áratugi. Það var eng- in amma án afa og enginn afi án ömmu. Þau voru eitt. Og það er gott að vita að nú er hún komin til hans eftir nokkurra mánaða að- skilnað. Reyndar trúum við að þau hafi farið á besta staðinn sinn, upp í sumarbústaðinn við Apa- vatn sem þau elskuðu af öllu hjarta og þar sem þau áttu sínar bestu stundir. Söknuðurinn er sár en eftir stendur þakklæti fyrir allt sem elsku besta amma Ólöf gaf okkur; velviljann, hlýjuna og umhyggju hennar fyrir okkur öllum. Það sem hún gaf okkur lifir áfram. Við kveðjum hana með þessari litlu vísu sem hún kenndi okkur og við rauluðum oft saman á Suðurgöt- unni. Æ, amma, hvar ertu? Æ, ansaðu mér. Því ég er að gráta og kalla eftir þér. Fórstu út úr bænum eða fórstu út á hlað? Eða fórstu til Jesú í sælunnar stað? (Höf. ók.) Katrín, Ólöf og Davíð. Ólöf Haraldsdóttir Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felli- glugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dög- um fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað get- ur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda ör- stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síð- una. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu að- standendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minning- argreinunum. Undirskrift | Minningargreina- höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stutt- nefni undir greinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.