Morgunblaðið - 27.05.2019, Síða 22
22 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. MAÍ 2019
DALVEGI 10-14 | 201 KÓPAVOGI | SÍMI 540 7000 | FALKINN.IS
Veldu öryggi
SACHS – demparar
ÞAÐ BORGAR SIG AÐ NOTA ÞAÐ BESTA
40 ára Pálmi er
fæddur á Akureyri,
ólst upp á Ólafsfirði
en býr á Akureyri.
Hann er afleysinga-
skipstjóri á Björgúlfi
hjá Samherja.
Maki: Hugrún
Hauksdóttir, f. 1979, heimilislæknir á
Heislugæslunni á Akureyri.
Börn: Hilmar Gauti Pálmason, f.
2011, Hákon Gauti Pálmason, f.
2013, og Hjörvar Gauti Pálmason, f.
2017.
Foreldrar: Hjörleifur Þórhallsson, f.
1953, fv. sjómaður á Ólafsfirði, og
Guðfinna Hólmfríður Pálmadóttir, f.
1958, vinnur við umönnun á dag-
heimilinu Hlíð á Ólafsfirði.
Pálmi Gauti
Hjörleifsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þetta er góður tími til að leysa
deilur sem tengjast sameiginlegri ábyrgð
á börnum. Nýttu þér byrinn til hins ýtr-
asta.
20. apríl - 20. maí
Naut Sköpunarmætti þínum er best beint
að því sem þú gerir vel nú þegar: Láttu
þér ekki koma á óvart öfund og illkvittni í
þinn garð.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú ert svo önnum kafin/n að þú
hefur varla tíma fyrir aðra þessar vik-
urnar. Veldu verkefni af kostgæfni og
hafðu til hliðsjónar það gagn sem þau
gera.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Undirbúðu þig undir flóð af verk-
efnum. Styrkur þinn mun leiða þig áfram
og ryðja öllum hindrunum úr vegi. Ástin
sigrar allt.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Félagslífið flækist þar sem vinum
þínum kemur ekki saman. Búðu þig undir
að ferðast mikið í sumar.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú munt leysa gátu sem þú hefur
glímt við vikum saman. Góð heilsa er öðru
dýrmætari og því skaltu vinna að henni.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú hefur þurft að láta í minni pokann
og sleppa hendinni af ýmsu. Ekki neyða
skoðunum þínum upp á aðra.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Betri er krókur en kelda og
þess vegna skaltu taka þér allan þann
tíma sem þú þarft til þess að ganga frá
hlutunum.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Láttu ekki áhyggjurnar ná tök-
um á þér í dag. Gættu þess að sækjast
ekki bara eftir viðurkenningu frá öðrum.
Gefðu eitthvað af þér líka.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Reyndu að komast hjá því að
kaupa hluti í stað þess að búa þá til. Ekki
láta neikvæðnina ná tangarhaldi á þér.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Vertu kát/ur því þú mátt eiga
von á því að eitthvað nýtt og framandi
skjóti upp kollinum í lífi þínu. Kurteisleg
neitun á að koma öðrum í skilning um
sjálfstæði þitt.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Nú er ekki rétti tíminn til þess að
taka einhverja áhættu. Ef menn geta ekki
tekið þér eins og þú ert, er það þeirra
vandamál.
störf að félagsmálum. Hann skrifaði
tvær greinar um íslensk sakamál í
Norræn sakamál, Hendur sem
Ragnar hlaut bronsmerki Lands-
sambands lögreglumanna árið 2007
og silfurmerki 2018 fyrir þátttöku og
R
agnar Jónsson fæddist
27. maí 1969 í Reykja-
vík en bjó fyrstu ævi-
árin í Stykkishólmi,
1969-1972. Fjölskyldan
fluttist síðan í Vesturbæ Reykjavík-
ur og bjó fyrst á Hjarðarhaga, síðar
Kvisthaga og Tómasarhaga, frá
1972-1994.
Ragnar stundaði körfubolta með
KR á barna- og unglingsárunum og
gekk í Melaskóla og Hagaskóla.
Leiðin lá í Verzlunarskólann og lauk
Ragnar verslunarmenntaprófi það-
an. „Í Versló var ég duglegri við að
stunda félagslífið en að líta í náms-
bækur, en það var ekki síður mikil-
vægt að taka þátt í félagsmálunum
og ræðumennskunni og það var
góður skóli út í lífið.
Eftir Versló 1990 fékk ég sumar-
starf í lögreglunni og þá varð ekki
aftur snúið. Það heillaði mig að engir
tveir dagar voru eins í vinnunni og
átti fjölbreytni starfsins vel við mig.“
Ragnar gekk í Lögregluskóla ríkis-
ins og útskrifaðist þaðan vorið 1993.
Hann fékk viðurkenningu sem ræðu-
maður skólans þar sem reynslan úr
ræðumennsku frá menntaskóla-
árunum skilaði sér.
Ragnar hefur starfað í lögreglunni
óslitið frá vorinu 1991. Hann var
skipaður rannsóknarlögreglumaður
sumarið 1997, vann fyrst við rann-
sóknir auðgunarbrota en síðan í rúm
tvö ár við rannsóknir kynferðisbrota.
Hann hóf störf í tæknideild lögreglu
sumarið 2001 og hefur starfað þar
óslitið síðan. Hann sérhæfði sig og
menntaði í blóðferlarannsóknum í
Bandaríkjunum, 2001, 2002 og 2007.
Hann hefur setið í stjórn norrænna
blóðferlasérfræðinga síðan 2013.
Ragnar var stundakennari við
Lögregluskóla ríkisins á árunum
2005-2016, er viðurkenndur sérfræð-
ingur af CEPOL, sem er Evrópski
lögregluháskólinn, frá 2015. Hann
hefur verið meðlimur í kennslanefnd
ríkislögreglustjóra frá 2014, en sú
nefnd snýst um að bera kennsl á
óþekkt lík eða líkamsleifar. Hann
var leiðbeinandi við Háskólann á
Akureyri í lögreglufræðum, sem
sagt vettvangsrannsóknum, 2018-
2019.
meiða, 2003 og Sannleikurinn í blóði,
2006. Hann var einn af stofnendum
Löggubandsins 1996. „Það var
skemmtilegt forvarnaverkefni í
nokkur ár en þá vorum við nokkrar
löggur sem vorum að spila rokk-
tónlist og eiga samtal við ungt fólk.“
Ragnar hefur sinnt trúnaðar-
störfum fyrir íbúa Seltjarnarness,
hann hefur setið í fjölskyldunefnd
bæjarins og var m.a. formaður þeirr-
ar nefndar á árunum 2008-2014.
Hann sat enn fremur í jafnréttis-
nefnd bæjarins 2010-2014.
Ragnar hefur verið ráðgjafi við
gerð kvikmynda og sakamálasjón-
varpsþátta frá árinu 2006. „Ég er
kominn með ferilskrá á kvikmynda-
vefsíðunni imdb.com, vegna þeirra
mörgu starfa og verkefna sem hafa
tengst þeim skemmtilega iðnaði. Það
er gaman að fá að vinna að mínu
uppáhaldsáhugamáli sem eru kvik-
myndir og kvikmyndasagan. Það eru
nokkur mjög spennandi verk í
vinnslu þessa dagana sem koma í
dagsljósið með haustinu.
Ragnar Jónsson lögreglufulltrúi – 50 ára
Í vinnunni Ragnar hefur starfað í tæknideild lögreglunnar frá 2001 og sérhæft sig í blóðferlarannsóknum.
Ráðgjafi við gerð kvikmynda
Hjónin Ragnar og Dóra í útilegu á Bíldudal.
30 ára Arna er Seyð-
firðingur, menntaður
grunnskólakennari en
er deildarstjóri á leik-
skólanum Sólvöllum á
Seyðisfirði. Hún er
bæjarfulltrúi á Seyðis-
firði og formaður vel-
ferðarnefndar og er í stjórn knattspyrnu-
deildar Hugins og leikfélagsins.
Maki: Ágúst T. Magnússon, f. 1980,
verslunarstjóri í kjörbúðinni.
Börn: Lilja Bryndís Ágústsdóttir, f. 2017,
og stjúpsonur er Sindri Robert Ágústs-
son, f. 2004.
Foreldrar: Magnús Svavarsson, f. 1964,
sjómaður á Seyðisfirði, og Bryndís Ara-
dóttir, f. 1963, sjúkraliði á Heilbrigðis-
stofnun Austurlands á Seyðisfirði.
Arna
Magnúsdóttir
Til hamingju með daginn
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is