Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.05.2019, Qupperneq 2
Hvernig hefurðu það?
Ég hef það bara alveg dásamlega gott. Ég eign-
aðist mitt fyrsta barn fyrir um fjórum mánuðum
og lífið gæti bara ekki verið betra.
A Star is Born-tónleikarnir eru í
næstu viku, hvað er skemmtilegast
við þá?
Ég ákvað að ef það kæmi eitthvað sem mig virki-
lega langaði að gera myndi ég gera það. Mér
finnst músíkin svo skemmtileg og mér finnst
myndin æðisleg. Eftir að ég fór á myndina í bíó
voru strax nokkur lög sem ég fór að hlusta á
daginn út og daginn inn. Þetta eru skemmtileg
lög og krefjandi að syngja.
Það var svaka rómantík í myndinni,
verður hún einnig á tónleikunum?
Hún gerist allavega í músíkinni, það er lítil rómantík
milli mín og Svenna. Gestir geta samt búist við svaka
flottri tónlist, flottu sjói og frábæru bandi, bara mikilli
skemmtun og góðri kvöldstund.
Bíómyndin og lögin hafa verið mjög vin-
sæl. Stefnir í hópsöng?
Við endum alveg pottþétt á því. Shallow er vinsælasta
lag í heimi núna og er spilað á öllum árshátíðum, böllum
og í heimapartíum, bara út um allt. Að sjálfsögðu er það
þannig að ef maður kann lögin má syngja með.
Morgunblaðið/Eggert
STEFANÍA SVAVARSDÓTTIR
SITUR FYRIR SVÖRUM
Rómantík í
músíkinni
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5.5. 2019
SKRIFSTOFUHÚSGÖGN
Síðumúli 35 | 108 Reykjavík | S. 568 2828 | www.holmris.is
Bjóðum uppá húsgögn
eftir marga fræga
húsgagnahönnuði.
Mörg vörumerki.
Á baksíðu Sunnudagsblaðsins fyrir viku var greint frá leit íslensk/bandaríska ljósmyndarans George Valdimars Tiedemanns að far-þegum sem voru með honum um borð í síðustu siglingu Goðafoss frá
Reykjavík í september árið 1944 og eru enn á lífi. Skipinu var sem kunnugt
er sökkt á heimleiðinni frá New York. Í fréttinni var nafngreind ein kona,
Evelyn Ruth Anker, sem George hafði grennslast fyrir um í Bandaríkjunum
en án árangurs. Samkvæmt farþegaskránni, sem George hefur undir
höndum, var hún eins og hann á fyrsta árinu þegar lagt var af stað frá
Reykjavík.
Ekki stóð á viðbrögðum frá les-
endum blaðsins og meðal þeirra sem
höfðu samband var Guðrún S. Þor-
steinsdóttir, en þær Evelyn, sem nú
kallar sig Evelyn Anker Metts, eru
systkinabörn. Í tölvubréfi frá henni
kom fram að Evelyn byggi í Flórída
og bauðst Guðrún til að láta hana
vita að George hefði áhuga á að ná
tali af henni.
Guðrún hafði varla sleppt orðinu
að blaðinu barst tölvubréf frá Eve-
lyn sjálfri, þar sem hún staðfesti að
hún hefði verið um borð í Goðafossi
haustið 1944 og að hún myndi með
glöðu geði vilja heyra frá George.
Evelyn áréttaði að vísu að hún myndi ekkert eftir ferðalaginu, en haldið var
upp á eins árs afmæli hennar meðan á siglingunni stóð.
Sunnudagsblaðið tengdi þau Evelyn og George þegar í stað og þau hafa
rætt saman í vikunni og deilt minningum. Eins og George átti Evelyn ís-
lenska móður, Elínu Daníelsdóttur frá Guttormshaga í Holtahreppi í Rang-
árvallasýslu, faðir hennar var Richard Anker, þau eru bæði látin. Elín var um
borð í Goðafossi og þar var einnig móðir George, Magnúsína Brynjólfína
Valdimarsdóttir úr Aðalvík. Faðir hans, Robert L. Tiedemann, hafði farið
vestur um haf á undan. Þau eru bæði látin.
Sunnudagsblaðið hefur fengið staðfest að a.m.k. einn farþegi til viðbótar
sem var um borð í Goðafossi á leiðinni til New York haustið 1944 er á lífi. Það
er Guðmundur Jónsson, sem orðinn er 94 ára. Hann var nítján ára á þessum
tíma og er því mögulega sá eini sem man eftir siglingunni.
George, sem býr í Bandaríkjunum, er væntanlegur til Íslands í sumar og
hver veit nema þeir Guðmundur geti hist og borið saman bækur sínar.
Evelyn Anker er
komin í leitirnar
Pistill
Orri Páll
Ormarsson
orri@mbl.is
’Guðrún hafði varlasleppt orðinu aðblaðinu barst tölvubréffrá Evelyn sjálfri, þar sem
hún staðfesti að hún hefði
verið um borð í Goðafossi
haustið 1944 ...
Margrét Ósk Árnadóttir
Ég var þriggja ára og ég sat í fram-
sætinu á vörubíl og mamma sat með
systur mína vafða inn í sæng.
SPURNING
DAGSINS
Hver er þín
fyrsta
minning?
Eðvarð Már Eðvarðsson
Þegar ég var í flugvél á leið til Dan-
merkur fjögurra ára.
Anna Elínborg Gunnarsdóttir
Ég man eftir mér fyrst í rimla-
rúminu heima hjá mér.
Rafn Arnar Rafnkelsson (og
Særós)
Þegar ég var fjögurra ára í sveit og
pabbi var að setja saman dráttarvél.
Ritstjóri Davíð Oddsson
Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal
Umsjón
Eyrún Magnúsdóttir,
eyrun@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Forsíðumyndina tók
Ólafur Már
Björnsson
Tónleikar með lögunum úr myndinni A Star is Born
verða haldnir föstudaginn 10. maí í Gamla bíói. Stef-
anía mun syngja ásamt Svenna Þór. Myndin var tilnefnd
til 8 óskarsverðlauna og 4 Golden Globe-verðlauna.