Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.05.2019, Side 10
VIÐTAL
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5.5. 2019
Þ
að er ekki á hverjum degi sem mað-
ur kemst í beina snertingu við
knattspyrnusöguna en það gerði
þessi penni svo sannarlega í vik-
unni þegar hann settist niður með
Johan Neeskens, einum af burðarásunum úr
gullaldarliði Hollendinga á áttunda áratugnum,
á hóteli í miðborg Reykjavíkur. Auk þess að
leika í tvígang til úrslita um sjálfan heimsbik-
arinn með landsliðinu varð Neeskens þrefaldur
Evrópumeistari með Ajax og lék um skeið með
Barcelona. Hann var hér staddur í tengslum
við tímabundið sendiráð Hollands í Reykjavík
og tók þátt í málþingi og hélt námskeið fyrir
unga knattspyrnumenn í tengslum við starf sitt
sem svokallaður heimsþjálfari en það er eins-
konar sendiherra knattspyrnunnar.
Neeskens er frjálslegur í fasi, klæddur í
íþróttagalla merktan „heimsþjálfarar“ þegar
hann kemur til móts við okkur Ragnar Ax-
elsson ljósmyndara. Hann er léttur í spori og
augljóslega í góðu líkamlegu formi enda þótt
árin séu orðin 67. Maður sér hann auðveldlega
fyrir sér hoppa án áreynslu inn á knatt-
spyrnuvöll. Hann er nýkominn af fundi forseta
Íslands og dagskráin er þétt, þannig að Nee-
skens kemur sé beint að efninu: „Hvað þurfið
þið langan tíma, strákar?“ spyr hann. „Hálf-
tíma? Þið eruð aldeilis brattir!“
Hann glottir.
Draumi líkast
Við hjólum beint í grunninn en Neeskens átti
aðild að liði Ajax í upphafi áttunda áratugarins
sem flestir eru sammála um að hafi verið eitt
besta félagslið sögunnar; auk Evróputitlanna
þriggja varð hann í tvígang hollenskur meistari
og vann bikarinn einnig tvisvar. Þá vann Ajax
álfubikarinn einu sinni og leikinn um ofurbikar
Evrópu tvisvar. Samtals tíu titlar á þremur ár-
um. Geri aðrir betur!
„Það var vitaskuld draumi líkast að spila með
þessu liði,“ útskýrir Neeskens. „Ég byrjaði
sextán ára með heimaliðinu mínu í Heemstede,
RCH, en Rinus Michels keypti mig til Ajax
þegar ég var átján ára. Hann var klárlega einn
af bestu þjálfurum heims á þessum tíma; þann-
ig að ég var strax í góðum höndum. Liðið var
skipað frábærum leikmönnum á þessum tíma;
blanda af yngri og eldri mönnum og reyndari.
Fremstur meðal jafningja var auðvitað Johan
Cruyff,“ bætir hann við og ég hegg eftir því að
hann segir „Kræf“ en ekki „Krojf“, eins og
maður á að venjast. Þegar hugsað er út í það
fer „Kræf“ þeim ágæta manni auðvitað miklu
betur. Blessuð sé minning hans!
Af öðrum köppum sem klæddust Ajax-
treyjunni á þessum árum má nefna Arie Haan,
Ruud Krol og Johnny Rep, sem einnig voru í
lykilhlutverkum með landsliðinu.
Neeskens hóf ferilinn sem bakvörður en var
fljótt færður inn á miðjuna, þar sem hann hélt
sig eftir það. Var þekktur fyrir baráttugleði
sína, mikla yfirferð og ósérhlífni en jafnframt
góða tækni og prýðilega markheppni af mið-
vellingi að vera. „Ég var svona leikmaður sem
óð vítateiga á milli,“ segir hann, beðinn um
hnitmiðaða sjálfslýsingu.
Vinnan var þess virði
Ekki dugði Ajax að vinna titla; liðið varð líka að
leika áferðarfallega knattspyrnu. „Við lögðum
áherslu á að halda boltanum innan liðsins,
stjórna leiknum, hreyfa okkur hratt og pressa
andstæðinginn framarlega á vellinum þegar við
vorum ekki með boltann,“ útskýrir Neeskens
og er hér að sjálfsögðu að lýsa því sem á ís-
lensku mætti kalla „alspark“ eða „totaalvoet-
bal“, eins og það heitir á frummálinu. „Þetta
var mikil vinna; bæði fyrir okkur leikmennina
og þjálfarann en algjörlega þess virði.“
Hann brosir.
„Lykillinn að velgengni okkar var sá að við
spiluðum allir sem einn fyrir liðið; egóið bar
liðsheildina aldrei ofurliði. Það spillti heldur
ekki fyrir að við héldum sama mannskapnum
allan þennan tíma, í þrjú til fjögur ár, og þekkt-
umst því mjög vel. Það væri illmögulegt í dag.“
Spurður um hápunktinn á ferlinum hjá Ajax
svarar Neeskens: „Það má með góðum rökum
segja að þetta hafi verið einn samfelldur há-
punktur en eigi ég að taka eitthvað eitt út úr þá
nefni ég fyrsta úrslitaleikinn í Evrópukeppni
meistaraliða, gegn Panathinaikos á Wembley.
Þeim leik mun ég aldrei gleyma né heldur til-
finningunni í leikslok.“
Sama hugmyndafræðin
Neeskens er mjög stoltur af því að Ajax hafi
haldið sig við sömu hugmyndafræðina allar
götur síðan sem hefur skilað félaginu fjölmörg-
um Hollandstitlum og Evrópubikarnum í
fjórða sinn árið 1995. Þá er liðið eftir langt hlé
komið í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu á
þessu vori. „Ajax hefur ekki alltaf haft úr miklu
fé að moða; alltént ekki í samanburði við
stærstu félög Evrópu, en félagið hefur þrátt
fyrir það haldið sig lengst af við hugmynda-
fræðina. Starfið í akademíunni er markvisst og
það er að skila sér núna, auk þess sem fengnir
hafa verið til félagsins sterkir eldri leikmenn á
allra síðustu árum, eins og Dušan Tadić og Da-
ley Blind. Því miður leysist þetta lið þó líklega
upp í sumar; ætli fimm til sex leikmenn verði
ekki keyptir annað. Frenkie de Jong er þegar
búinn að semja við Barcelona og mér kæmi
ekki á óvart þótt Matthijs de Ligt og Donny
van de Beek færu líka. En er á meðan er og um
að gera að njóta meðan vel gengur. Það er mjög
gaman að sjá Ajax í undanúrslitunum meðan
milljónalið eins og Manchester City, Paris Sa-
int Germain, Juventus og Bayern München
hafa verið slegin út.“
Fylgdi Cruyff til Barcelona
Rinus Michels fór til Barcelona eftir fyrsta
Evróputitilinn sumarið 1971 og Johan Cruyff
fylgdi honum þangað tveimur árum síðar. Sum-
arið 1974 var röðin svo komin að Neeskens að
stefna takkaskónum til Katalóníu. Eins und-
arlega og það hljómar í dag var það skref niður
á við. Á fimm árum á Camp Nou varð hann
aldrei spænskur meistari, vann þó spænska
bikarinn einu sinni og Evrópukeppni bikarhafa
í eitt skipti.
„Ajax var betra lið en Barcelona á þessum
tíma; gæðin voru meiri. Michels var þó byrj-
aður að innleiða hugmyndafræði sína þegar ég
kom þangað og leggja grunn að leikstíl og sigr-
um Barcelona allt til þessa dags. Liðið lék allt
öðruvísi fótbolta áður en Michels kom þangað.
Cruyff tók seinna við keflinu og sparklega upp-
eldissyni hans er víða að finna. Þeirra fræg-
astur er líklega Pep Guardiola hjá Manchester
City. Hann er bein framlenging af Cruyff.“
Þrátt fyrir frekar rýra uppskeru hafði Nee-
skens mikið yndi af því að spila fyrir Börsunga.
„Heima í Hollandi spilaði maður fyrir 30 þús-
und áhorfendur, 60 þúsund í allra stærstu leikj-
unum. Á Camp Nou voru alltaf yfir 90 þúsund
manns á vellinum og með knattspyrnusýki á
hæsta stigi. Fyrir þessu fólki er knattspyrna
lífið sjálft og andrúmsloftið var geggjað á
hverjum einasta leik. Það var mikil lífsreynsla
að kynnast þessu viðhorfi. Þessari menningu.
Þessu félagi,“ segir Neeskens, sem snemma
hlaut viðurnefnið Johan II meðal stuðnings-
manna Barcelona, og bætir við að samkeppnin
hafi líka verið meiri á Spáni en í Hollandi, þar
sem Ajax bar ægishjálm yfir önnur félög.
Besta liðið sem aldrei vann HM?
Hollenska landsliðið var einskonar framleng-
ing á Ajax á áttunda áratugnum; mikið til sömu
leikmenn og sama nálgun. Alspark út í gegn.
Neeskens lék sinn fyrsta landsleik árið 1970 og
þegar kom að HM í Vestur-Þýskalandi sumarið
1974 var hann orðinn einn af lykilmönnum liðs-
ins. Þar varð hann næstmarkahæstur allra og
kórónaði frábært mót með því að skora úr víta-
spyrnu strax á annarri mínútu í sjálfum úrslita-
leiknum gegn heimamönnum í München. Það
dugði þó ekki til því Vestur-Þjóðverjar unnu
leikinn, 2:1.
Neeskens var aðeins 22 ára þegar leikurinn
fór fram og því vekur athygli að hann hafi verið
orðinn vítaskytta í svo sterku liði. „Já, eftir á að
hyggja er það örugglega merkilegt. Ég hafði
hins vegar byrjað að taka vítin með góðum ár-
angri fyrir Ajax um veturinn og Rinus Michels
treysti mér fyrir þessu verkefni með landslið-
inu en hann stjórnaði liðinu á HM 1974.“
Fjórum árum síðar í Argentínu endurtók
leikurinn sig; Holland tapaði úrslitaleiknum
gegn heimaliðinu; 3:1. Þá var Austurríkismað-
urinn Ernst Happel tekinn við liðinu. Spurður
hvort tapið hafi verið sárara blæs Neeskens í
kinnar sér:
„Auðvitað var sárt að tapa báðum þessum
leikjum en þegar ég horfi um öxl stendur upp
úr að það var frábært afrek að leika tvívegis til
úrslita á HM. Við lékum án efa bestu knatt-
spyrnuna, sérstaklega 1974, og unnum hug og
hjarta heimsbyggðarinnar. Það er gömul saga
og ný að í knattspyrnu vinna bestu liðin ekki
alltaf.“
– Eruð þið jafnvel besta liðið sem aldrei varð
heimsmeistari?
„Hugsanlega. Fólk naut þess alltént að horfa
á okkur spila og núna, meira en fjörutíu árum
síðar, muna margir eftir okkur. Það segir sína
sögu. Það á kannski sérstaklega við um liðið
1974; tveir lykilmenn, Cruyff og Willem van
Hanegem, voru báðir hættir með landsliðinu
1978.“
Cruyff var bestur í heimi
Þess má geta að Neeskens lék fjóra síðustu
leikina í Argentínu með brákað rifbein eftir að
hafa orðið fyrir hnjaski í leik gegn Skotum.
„Það gleymdist meðan á leikjunum stóð en var
mjög sárt á eftir,“ rifjar hann upp og brosir.
Neeskens segir það hafa verið mikil forrétt-
indi að leika með nafna sínum Cruyff öll þessi
ár. „Við vorum mjög gott lið en hann gerði okk-
ur að stórkostlegu liði; hafði þessi aukagæði til
að fleyta okkur ennþá lengra. Cruyff var leið-
toginn í liðinu og brennipunkturinn í öllu okkar
spili. Ég var mjög heppinn að fá tækifæri til að
spila með Cruyff og er ekki í nokkrum vafa um
að hann hafi verið besti knattspyrnumaður í
heimi á þessum tíma – og einn sá besti í sög-
unni.“
Og Neeskens lék ekki aðeins með goðsögn-
um, heldur líka á móti þeim. Hann nefnir Þjóð-
verjann Franz Beckenbauer og Portúgalann
Eusébio sérstaklega í því sambandi.
Holland og Ísland mættust nokkrum sinnum
á áttunda áratugnum og Neeskens kveðst
Sendiherra
„alsparksins“
Johan Neeskens er goðsögn í sparkheimum. Hann varð
þrefaldur Evrópumeistari með Ajax og lék tvo úrslitaleiki á
HM með hollenska landsliðinu á áttunda áratugnum og
skoraði í öðrum þeirra. Neeskens var staddur hér á landi í
vikunni og gaf sér tíma til að ræða um fótmenntir fyrr og nú,
hugmyndafræði „alsparksins“, eða totaalvoetbal, sigra og
ósigra og Eið Smára sem hann þjálfaði hjá Barcelona.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
„Lykillinn að velgengni okkar var sá að við spil-
uðum allir sem einn fyrir liðið; egóið bar liðsheild-
ina aldrei ofurliði. Það spillti heldur ekki fyrir að
við héldum sama mannskapnum allan þennan
tíma, í þrjú til fjögur ár, og þekktumst því mjög vel.
Það væri illmögulegt í dag,“ segir Johan Neeskens
um Ajax-liðið í byrjun áttunda áratugarins.