Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.05.2019, Side 28
SJÓNVARP Síðasta atriðið í gam-
anþáttunum vinsælu Big Bang
Theory var tekið upp í vikunni. Vel
fór á því að Jim Parsons, Johnny
Galecki og Kaley Cuoco, sem leikið
hafa í þáttunum frá upphafi, eða
tólf ár, skyldu taka þátt í því. Sleg-
ist var um miða í myndverinu og
þegar upptökum var lokið ávarpaði
Galecki, sem leikið hefur eðlisfræð-
inginn knáa Leonard Hofstadter,
viðstadda með tárin í augunum.
Tár á hvarmi
Bang, búið, bless!
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5.5. 2019
LESBÓK
Stanley hefur marga fjöruna sopið.
Kiss án Stanleys?
ROKK Paul Stanley, annar for-
sprakka glysgoðanna í Kiss, segir í
nýlegu viðtali í tímaritinu Paste, að
hann yrði mjög stoltur ef bandið
héldi áfram eftir að hann leggur
rokkbomsunar á hilluna. „Það yrði
hinn endanlegi mælikvarði á trú-
verðugleika bandsins og hlutverkið
sem ég trúi að það hafi að gegna,“
segir hann. „Ég fann ekki upp hjól-
ið; er bara framlenging á fólkinu
sem ég leit upp til.“
G. Magni Ágústsson, ÍKS, bið-ur mig af afsaka raddleysiðen hann er með einhverja
kveflufsu þegar ég slæ á þráðinn til
hans vestur um haf. Nú jæja, fá menn
líka svoleiðis í blíðunni í Kaliforníu,
velti ég fyrir mér, og Magni svarar
játandi. „Ég var í vinnutörn innan-
dyra um daginn og loftræstingin er
víða svo öflug hérna að það getur auð-
veldlega slegið að manni. Það var ís-
kalt þarna meðan á vinnu okkar
stóð.“ Einmitt það, menn kvefast
sumsé frekar inni en úti í Los Angel-
es. Meikar svo sem sens.
Magni hefur um árabil starfað sem
kvikmyndatökumaður og flutti til Los
Angeles ásamt eiginkonu sinni og
fimm ára gömlum syni í byrjun síð-
asta árs. Áður hafði hann búið í um
áratug í Bretlandi með stuttri við-
komu heima á Íslandi áður en haldið
var vestur um haf. Magni hefur þó
minnst verið í þessu höfuðvígi kvik-
myndagerðarinnar í heiminum enda
fékk hann fljótlega stórt verkefni sem
skilaði honum til Vancouver í Kanada
í heila níu mánuði. Það var að stýra
tökum á nýjum framhaldsmynda-
flokki, A Million Little Things, sem
einmitt hefur verið sýndur hér heima
í Sjónvarpi Símans. „Ég var mjög
heppinn að fá þetta tækifæri og það
kom sér vel að tökur færu fram í Van-
couver. Ég hef verið með atvinnuleyfi
í mörg ár í Bandaríkjunum en var
ekki í verkalýðsfélaginu hérna í Los
Angeles, sem kom í veg fyrir að ég
gæti tekið að mér sjónvarpsverkefni.
En það er glufa í kerfinu hjá þeim ef
þetta er tekið utan Bandaríkjanna.
Smá flókið en það hjálpaði mér að fá
að taka upp A Million Little Things.“
Bretar fastir á sínu
Einn framleiðenda A Million Little
Things, Bretinn James Griffiths, fékk
Magna að verkefninu en þeir hafa
unnið mikið saman frá árinu 2006.
„Eins og við þekkjum þá eru Bretar
mjög fastir á sínu og þegar þeir hafa
fundið fólk sem þeim líkar við vilja
þeir helst ekki vinna með öðrum,“
segir Magni hlæjandi. „James er
frekar stór hérna hjá ABC, þar sem
hann er með fullt hús stiga þegar
kemur að „pilot-sjónvarpsþáttagerð“.
Allir „pilotar“ sem hann gerir hafa
farið í famleiðslu en hann hefur mjög
góða innsýn í hvað virkar og hvað
virkar ekki í sjónvarpi hérna vestra.
Það var gott að vinna með honum og
hann hefur sýnt mér mikið traust
með því að fá mig í verkefnin sín.“
Upphaflega voru tólf þættir pant-
aðir af A Million Little Things en í
miðjum klíðum var fjórum bætt við
og stjórnaði Magni kvikmyndatök-
unni á þeim öllum. Þættirnir hafa fall-
ið í frjóa jörð en að sögn Magna hafa
um tíu milljónir manna horft að jafn-
aði í Bandaríkjunum. „Það þykir
mjög gott en til samanburðar má
nefna að um átján milljónir horfa á
vinsælasta efnið í sjónvarpi hérna
vestra, ameríska fótboltann,“ segir
Magni.
Fyrir þá sem ekki hafa horft fjallar
A Million Little Things um vinahóp
sem verður fyrir því áfalli að einn úr
hópnum sviptir sig lífi; maður sem
virtist á yfirborðinu njóta velgengni í
leik og starfi og vera með allt sitt á
hreinu. Í þáttunum fylgjumst við
bæði með vinum hans og fjölskyldu
vinna úr sorginni, auk þess sem
reglulega er ferðast með okkur aftur í
tímann til að freista þess að varpa
ljósi á hvað varð til þess að maðurinn
greip til þessa örþrifaráðs. „Hinn
látni“ kemur því allnokkuð við sögu.
Snerti mig á vinanótum
„A Million Little Things snertir á
mörgum erfiðum málum, svo sem
sjálfsvígum, krabbameini, alkóhól-
isma og þunglyndi og mér hefur þótt
menn gera þetta af smekkvísi. Kona
sem ég hitti nýlega sagði við mig að
þættirnir hefðu snert sig á vinanótum
og það gladdi mig. Það þýðir að mað-
ur er að gera eitthvað rétt með nálg-
un sinni við orðin í handritinu og
koma sinni túlkun á því yfir í mynd-
rænt form. Það er alltaf sérstök til-
finning að verða var við viðbrögðin
hjá fólki. A Million Little Things er
stundum borið saman við annan vin-
sælan þátt hérna í Bandaríkjunum,
This Is Us, enda miklar tilfinningar í
báðum þáttum en síðarnefndi þátt-
urinn er meira fjölskyldu- en vina-
drama.“
A Million Little Things er sýnt á
ABC-sjónvarpsstöðinni og Magni
bendir á, að þar eins og hjá hinum
stóru sjónvarpsstöðvunum sé áhersl-
an ósjaldan á léttara efni, eða „happy
go lucky“-efni, eins og hann kallar
það. „Það er því stórt skref að takast
á við svona erfiða hluti og því er ekki
að neita að það kom smá bakslag eftir
fyrsta þáttinn, þar sem sjálfsmorðið á
sér stað. Ekki voru allir á eitt sáttir á
samfélagsmiðlum en við því var svo
sem alveg að búast þegar um svona
viðkvæmt mál er að ræða.“
Stóru sjónvarpsstöðvarnar vestra
eru vandar að virðingu sinni sem þýð-
ir að menn höfðu ekki alveg frjálsar
hendur við gerð A Million Little
Things. „Það má ekki blóta í „net-
work-þáttum“, blóð má helst ekki
sjást og alls ekki nekt. Það má varla
sjást í axlir,“ segir Magni og skellir
upp úr. „Þetta setur manni auðvitað
skorður en á móti kemur að áskor-
unin við að koma efninu frá sér var
líklega meiri en ella.“
Bara fólk eins og við
Hann segir stemninguna á tökustað
hafa verið mjög góða; „crew-ið“ hafi
staðið saman af úrvalsfólki og leik-
ararnir upp til hópa viðkunnanleg-
asta fólk. „Þessi hópur verður alltaf
svolítil fjölskylda, ekki síst þegar við
erum svona lengi saman. Ég held að
ég hafi komið mér vel við flesta
þarna, 7-9-13,“ segir hann og hlær.
„Annars skiptir alltaf mestu máli að
skila frá sér góðu efni. Einu sinni
vann ég með leikara sem var mjög
kuldalegur við mig þangað til hann
hafði séð útkomuna úr tökunum; þá
mýktist hann allur upp. Annars borg-
ar sig ekkert að pæla of mikið í stærð
og nöfnum leikaranna sem maður er
að vinna með. Þetta er bara fólk eins
og við.“
Það má varla
sjást í axlir
G. Magni Ágústsson kvikmyndatökumaður er
sestur að í Los Angeles og kann vel við sig. Und-
anfarna mánuði hefur hann þó að mestu verið í
Vancouver við tökur á sjónvarpsþáttunum vin-
sælu A Million Little Things. Hann segir verk-
efnið í senn hafa verið strembið og skemmtilegt.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Persónurnar í hinum dramatísku þáttum A Million Little Things lenda í ýmsu.