Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.05.2019, Side 29
5.5. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
Ég hef sérstaklega gaman af skáld-
sögum og ævisögum um sterkar
persónur og sérvitringa og líka bók-
um um andleg mál-
efni.
Mér fannst upplífg-
andi að lesa bókina
Becoming eftir Mic-
helle Obama, fyrr-
verandi forsetafrú
Bandaríkjanna, en í
bókinni segir hún frá uppvaxt-
arárum sínum, sambandinu við Bar-
ack Obama, móðurhlutverkinu, líf-
inu í Hvíta húsinu og sýn sinni á pól-
itík. Þrátt fyrir að hafa komist svona
langt í lífinu á hún, eins og svo marg-
ir aðrir, það til að efast um að hún
sé nógu góð. En hún sigrast alltaf á
óttanum. Hún minnir mann á að við
lærum, breytumst og þroskumst út
lífið og að það skilar
árangri að undirbúa
sig vel og leggja hart
að sér.
Ástin Texas eftir
Guðrúnu Evu Mín-
ervudóttur kláraði ég
í flugvél á leiðinni til
Vínar í byrjun mán-
aðarins. Hún samanstendur af fimm
smásögum og eftirminnilegum per-
sónum. Ein af þessum vel skrifuðu
bókum sem maður drekkur í sig.
Síðasta bókin sem ég las og klár-
aði í páskafríinu er mögnuð minn-
ingabók sem heitir Educated og er
eftir Töru Westover.
Tara var alin upp af
mormónum í Idaho í
Bandaríkjunum og er
yngst af sjö syst-
kinum. Pabbi hennar
fær reglulega par-
anoju-köst og er alltaf
að búa sig undir heimsendi. Hann er
tortrygginn út í ríkið, lækna, spítala
og almenningsskóla. Þar af leiðandi
er Tara fædd heima, menntuð að
mjög takmörkuðu leyti heima og
fer aldrei til læknis. Mamma hennar
gerist ljósmóðir án réttinda, verður
smám saman frægur heilari og býr
til alls kyns smyrsl úr jurtum. Tara
býr við hrottalegt ofbeldi bróður
síns sem foreldrar hennar neita að
viðurkenna. Þrátt fyrir þetta hefur
hún viljastyrk til að setjast á skóla-
bekk 17 ára í óþökk föður síns og er
í dag með doktorsgráðu frá Cam-
bridge. Þetta er bók sem ég held að
allir hafi gaman af að lesa.
ARNA BJÖRK ER AÐ LESA
Sterkar persónur
Arna Björk
Jónsdóttir,
verkefnastjóri
hjá Sál-
fræðideild Há-
skóla Íslands.
Svo gildir reglan „því stærri, því al-
mennilegri“ gjarnan þarna eins og
annars staðar. „Ég gerði einu sinni
mynd með sir Kenneth Branagh og
hann var alveg ótrúlega þægilegur í
samstarfi; draumur kvikmyndatöku-
mannsins. Svo mætti hann alltaf vel
undirbúinn og með handritið á hreinu
enda af gamla skólanum. Hann þurfti
aldrei að blaða í handritinu; var bara
með það á hreinu.“
Magni segir vinnuna við A Million
Little Things hafa verið mjög
skemmtilega en um leið erfiða.
„Vinnudagurinn var langur; við vor-
um yfirleitt að vinna á bilinu 70 til 80
stundir á viku. Það er nánast tvöföld
vinna. Það tekur líka á að vera svona
lengi frá fjölskyldunni. Ég náði að
skreppa aðeins heim og þau að koma
til mín en við sáumst eigi að síður
mjög lítið þessa níu mánuði. Og raun-
ar í þrjá mánuði þar á undan meðan
ég var heima að gera Flateyjargát-
una.“
Leggur upp úr fjölbreytni
Einmitt þess vegna hafnaði Magni
boði um að stýra tökum á annarri ser-
íu af A Million Little Things sem hefj-
ast eiga síðar á þessu ári. „Ég gat
ekki hugsað mér að verða aftur svona
lengi í burtu frá fjölskyldunni. Ef-
laust á ég eftir að sakna þess að vinna
með þessu fólki en á móti kemur að
ég hef alltaf lagt mikið upp úr fjöl-
breytni; vil ekki festast í sömu serí-
unni í fimm eða sex ár. Það var því
ágætt að segja þetta gott.“
Hann er bjartsýnn á að A Million
Little Things skili honum fleiri
spennandi tækifærum á næstunni.
„Mér fannst þetta alla vega ganga
ágætlega og bæði James Griffiths og
umboðsmaðurinn minn, Bill Dispoto,
halda því fram að þetta verkefni verði
mér til framdráttar.“
Næstu skref á ferlinum eru í skoð-
un um þessar mundir en verkefnið
sem Magni vann að þegar kvefið sótti
að honum var svokallaður „pilot“-
þáttur fyrir ABC-sjónvarpsstöðina.
„Ég get í raun ekki tjáð mig meira
um það verkefni í augnablikinu en
það ræðst væntanlega mjög bráðlega
hvort fleiri þættir verða gerðir,“ segir
Magni en venjan er sú að sjónvarps-
stöðvarnar meti það út frá „pilot“-
þættinum hvort efnið sé á vetur setj-
andi. Þá panta þær gjarnan heila ser-
íu sem getur svo undið upp á sig.
„Fari þessi þáttur í framleiðslu er
ekkert sjálfgefið að ég komi til með
að „skjóta“ hann; ég „skaut“ til dæm-
is ekki „pilot“-þáttinn fyrir A Million
Little Things. En við sjáum hvað set-
ur. Hlutirnir geta gengið hratt fyrir
sig í þessum bransa og maður veit
yfirleitt aldrei neitt fyrr en á síðustu
stundu.“
Ekkert ólíkt Íslandi
Magni kann vel við sig í Los Angeles.
„Okkur langaði að prófa eitthvað nýtt
og láta á það reyna hvort maður fengi
einhver áhugaverð verkefni hérna
vestra. Hér er allt mjög stórt í snið-
um en okkur gengur ágætlega að
laga okkur að aðstæðum. Líklega
helgast það af því að við erum á jaðr-
inum í norðurhluta borgarinnar og
hér fyrir ofan okkur er bara eyði-
mörk og fjöll. Ekkert ólíkt Íslandi.
Það hentar okkur vel.“
Hann finnur þó að lengra er til Ís-
lands frá Kaliforníu en Bretlandi.
„Ég kemst sjaldnar heim núna en
meðan ég bjó í Bretlandi. Þá gat ég
skroppið að jafnaði einu sinni í mán-
uði,“ segir Magni en hann á tvær ung-
lingsdætur frá fyrra hjónabandi hér
heima. „Ég kom heim í nokkra daga
um jólin og þær hafa komið hingað út
til okkar en ég finn samt að ég á erf-
iðara með að hitta dætur mínar og
fjölskyldu heima en áður.“
Spurður um framhaldið segist
Magni reikna með að taka eitt ár í
einu; sjá hvernig málin þróast. „Ég er
búinn að vera lengi á faraldsfæti og
íslenska taugin togar alltaf í mann.
Það jafnast ekkert á við Ísland og það
verður alltaf heimili manns. Hvenær
við komum til með að flytja heim er
hins vegar erfitt að segja til um; það
veltur á vinnu og líðan okkar hér úti
almennt. Annars er tíminn svo fljótur
að líða; mér finnst eins og við höfum
flutt til LA í gær.“
Hann hlær.
Allir hafa séð íslenskt efni
Magni hefur tekið þátt í fjölmörgum
verkefnum á Íslandi, nú síðast saka-
málaþáttunum Flateyjargátunni.
Hann segir engin verkefni í sjónmáli
heima en kveðst sem fyrr opinn fyrir
öllu séu verkefnin spennandi og tím-
inn hagstæður. „Verkefni sem ég hef
unnið að heima og í Bretlandi hafa
nýst mér vel hérna í LA. Það hjálpar
allt, hvort sem það var sjónvarps-
serían Dr. Who í Bretlandi eða kvik-
myndirnar Brim eða París norðurs-
ins. Ég er endalaust að rekast á fólk
sem hefur séð kvikmyndirnar eða
stuttmyndirnar sem ég hef kvik-
myndað, sem mér finnst alltaf ótrú-
legt og athyglisvert. Fólk fer mikið á
kvikmyndahátíðir og sér mikið af ís-
lenskum myndum þar. Eins og ég
finn mikið fyrir með myndir sem ég
hef „skotið“ eins og Heima með Sigur
Rós og stuttmyndina Síðasti Bærinn,
sem fékk Óskarstilnefningu 2005.“
Hann segir ofboðslega gott efni bú-
ið til heima á Íslandi. „Þá er ég bæði
að tala um kvikmyndir og sjónvarp.
Það er sama hvar maður kemur; alls
staðar er fólk sem hefur séð íslenskar
kvikmyndir eða sjónvarpsþætti. Það
á ekkert síður við hérna í Bandaríkj-
unum en í Evrópu. Maður finnur á
samtölum við fólk að litið er á Ísland
sem mikla kvikmyndaþjóð og menn-
ingarþjóð yfir höfuð. Þetta efni nær
alveg ótrúlega langt,“ segir Magni.
Hann segir það staðfesta styrk ís-
lenskrar menningar hversu margir
hafi lesið íslenskar bækur og séð ís-
lenskar kvikmyndir og heyrt íslenska
tónlist. „Hún fer ansi víða menningin
okkar, sem mér finnst ótrúlega
merkilegt og hvetjandi. Það sem
kemur fólki alltaf jafnt á óvart hvað
við framleiðum mikið af bókum, kvik-
myndum og tónlist miðað við hversu
smá þjóðin okkar er, það verður alltaf
aðalumræðuefnið mitt við fólk í út-
löndum.“
G. Magni Ágústsson, ÍKS,
segir mjög gott efni koma frá
Íslandi, bæði kvikmyndir og
þætti fyrir sjónvarp.
Hamraborg 10, Kópavogi
Sími: 554 3200 Opið: Virka daga 9.30–18
VERIÐ VELKOMIN
Í SJÓNMÆLINGU
———
BÓKSALA 24.-30. APRÍL
Listinn er tekinn saman af Eymundsson
1
Handbók fyrir ofurhetjur
4 – vargarnir koma
Elias/Agnes Vahlund
2 Barist í BarcelonaGunnar Helgason
3 GullbúriðCamilla Läckberg
4 BíóráðgátanMartin Widmark
5 KastaníumaðurinnSören Sveistrup
6 Ísköld augnablikViveca Sten
7
Kettlingurinn sem enginn
vildi eiga
Holly Webb
8 Ráðgátan Henri PickDavid Foenkinos
9 ÞakkarskuldGolnas Hashemzadeh Bonde
10 Húðflúrarinn í AuschwitzHeather Morris
1 SapiensYuval Noah Harari
2
All the Lives We Never
Lived
Arundhati Roy
3 EducatedTara Westover
4 Fever DreamSamanta Schweblin
5 Still MeJojo Moyes
6 Jokes for the GunmenMazen Maarouf
7 13-Minute MurderJames Patterson
8 FactfulnessHans Rosling
9 MisterEL James
10 OutsiderStephen King
Allar bækur
Erlendar bækur
Meðleigjandinn er ný bók eftir Berth O’Leary. Halla
Sverrisdóttir þýddi. Tiffy Moore þarf að finna sér
ódýra íbúð strax. Leon Twomey á íbúð, vinnur næt-
urvinnu og vantar peninga. Lausnin blasir við: Leon
er í íbúðinni á meðan Tiffy er í vinnunni og þegar
hún kemur heim er Leon farinn út. Vinir þeirra
halda að þau séu gengin af göflunum en þetta er frá-
bært fyrirkomulag – þar til stjórnsamur fyrrverandi
kærasti, kröfuharðir skjólstæðingar, fangelsaður bróðir og auðvit-
að sú staðreynd að þau hafa aldrei hist snýr öllu á hvolf í lífi þeirra.
JPV gefur út.
ÁHUGAVERÐAR BÆKUR