Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.05.2019, Qupperneq 12

Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.05.2019, Qupperneq 12
Kristófer hefur íþróttagenin og stökkkraftinn frá föður sínum, Terry Acox, sem einnig lék körfubolta, meðal annars hér á Íslandi með ÍA. góðu sambandi í dag. Ætli við höfum ekki báð- ir haft gott af þessu. Þessi dvöl gerði alla vega helling fyrir mig; ég hefði ekki viljað hafa sleppt þessu.“ Stökkkrafturinn frá pabba Heima á Íslandi kláraði Kristófer Kvennaskól- ann og steig sín fyrstu skref með meistara- flokki KR. Spurður hvort hann hafi verið bor- inn saman við föður sinn á velli svarar Kristó- fer: „Margir vissu hver pabbi er og hvað hann var þekktur fyrir. Til að byrja með fannst mér ég stundum tekinn inn á þeim forsendum að ég væri sonur hans en það breyttist eftir því sem mér fór fram. Pabbi var svakalegur íþrótta- maður og ég er með öll íþróttagenin og stökk- kraftinn frá honum. Ég sá hann auðvitað aldr- ei spila en hef séð myndbönd og heyrt sögur og það er margt líkt með okkur; hvað líkamstján- ingu varðar er ég til dæmis eins og spegilmynd af pabba.“ – Eruð þið jafnháir? „Pabbi er aðeins hærri en ég. Annars er hann orðinn fimm- tugur, karlinn, og byrjaður að vaxa í vitlausa átt. Ég er mjög duglegur að minna hann á það.“ Hann hlær. Að stúdentsprófi loknu hélt Kristófer aftur vestur um haf í nám við Furman-háskóla í Suður- Karólínu, þar sem hann lék körfubolta og lagði stund á nám í heilsuvísindum. „Þetta var mjög skemmtilegur tími og ekki spillti fyr- ir að skólinn var ekki nema í klukkutíma fjar- lægð frá pabba og fjölskyldu hans. Við hitt- umst því oft og hann mætti á alla heimaleiki hjá mér. Það var mjög góð tilfinning að hafa hann á pöllunum.“ – Hefurðu alltaf litið öðrum þræði á þig sem Bandaríkjamann? „Ég hef alltaf verið meðvitaður um það að ég er hálfur Bandaríkjamaður og átt auðvelt með að laga mig að samfélaginu þar. Mér finnst ég vera heima bæði á Íslandi Kristófer er einkabarn móður sinnar og hvíldi uppeldið á henni og ömmu hans. „Samband okkar mömmu er ofboðslega náið og sama máli gegnir um ömmu sem bjó um tíma hjá okkur. Þær bera alla ábyrgð á uppeldi mínu. Ég hafði það mjög gott í æsku og er þeim óendanlega þakklátur.“ – Þannig að konur hafa haft mikil áhrif á þig? „Já, það er óhætt að segja það. Og það til góðs. Þegar ég var að byrja í fótboltanum hafði ég meira að segja kvenkyns þjálfara um tíma. Þannig að ég er mótaður heilmikið af konum.“ – Skorti þig aldrei föðurímynd? „Nei, ég get ekki sagt það. Ég man alla vega ekki eftir að hafa pælt sérstaklega í því fyrstu árin og svo kom pabbi auðvitað inn í líf mitt þegar ég var unglingur. Mér leið vel og fannst ekkert vanta.“ Stál í stál Kristófer var á fimmtánda ári þegar hann hitti föður sinn fyrst. Hann fór þá í körfuboltabúðir í Boston í Bandaríkjunum ásamt Matthíasi Orra vini sínum og hélt að því loknu til Norð- ur-Karólínu, þar sem fjölskylda Matthíasar ætlaði að dveljast í fríi „Pabbi býr í Suður- Karólínu og ákveðið var að hann kæmi að sækja mig. Hann mætti með alla familíuna og þau tóku á móti mér með blöðrum og látum. Ógleymanleg stund.“ Terry á fjórar dætur, tvær með núverandi eiginkonu sinni og tvær af fyrri samböndum; allar nema ein eru þær yngri en Kristófer. „Ég er ekki í miklu sambandi við systur mínar en hitti þær þegar ég er í Bandaríkjunum.“ Feðgarnir náðu strax vel saman og árið 2010 fór Kristófer utan og bjó í heilan vetur hjá föð- ur sínum og stundaði nám í „high school“. Það var athyglisverð reynsla. „Amma hafði svolitl- ar áhyggjur af þessu en mamma var rólegri; var mjög spennt fyrir því að ég fengi tækifæri til að kynnast pabba almennilega. Þetta byrj- aði svo sem ágætlega en fljótlega kom babb í bátinn. Við erum svipaðar týpur, feðgarnir, báðir þrjóskir og þetta varð eiginlega bara stál í stál. Pabbi hafði aðrar hugmyndir um uppeldi en mamma og amma og mér gekk illa að laga mig að því sem hann vildi. Ekki bætti úr skák að ég var þarna á erfiðum aldri, sautján ára. Ég kláraði veturinn úti en eftir það fór ég aftur heim til Íslands. Pabbi var ósáttur við það, vildi hafa mig áfram hjá sér, og í ein- hverja mánuði var lítið samband okkar á milli. Við tókum þó fljótlega upp þráðinn aftur og eigum í mjög Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Kristófer gerir sig líklegan til að skora í leik gegn Þór Þorlákshöfn í undan- úrslitum Íslandsmótsins. Morgunblaðið/Eggert Kristófer í landsleik gegn Búlgaríu í Laugardalshöllinni. Amma Kristófers, Magnhild Elísabeth Jacobsen, tók virkan þátt í uppeldi hans. Hún lést 2011. Helena Sverrisdóttir og Kristófer Acox voru valin körfuboltafólk ársins hjá KKÍ í gær. Ljósmynd/KKÍ Kristófer ásamt móður sinni, Ednu Maríu Jacobsen, en þau eru mjög náin. VIÐTAL 12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.5. 2019

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.