Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.05.2019, Blaðsíða 28
Hvað tekur maður til bragðsef maður ekur óvart yfirmann og verður honum að
bana? Jú, vingast strax að útför
lokinni við ekkjuna og flytur svo
inn til hennar til að liðsinna henni
og veita henni sáluhjálp. Án þess
að hana gruni nokkurn skapaðan
hlut. Tja, alltént ef veruleikinn er
bandaríska spédramað Dead to Me,
sem kom inn á efnisveituna Netflix
fyrr í mánuðinum.
Judy verður fyrir þeirri ógæfu á
biksvörtu síðkvöldi að aka yfir blá-
ókunnugan mann. Hann deyr en í
stað þess að gera lögreglu viðvart
láta Judy og unnusti hennar, Steve,
sig hverfa af vettvangi og koma
löskuðum bílnum fyrir í geymslu.
Samband þeirra þolir ekki álagið
og samviskan nagar Judy með
þeim afleiðingum að hún sólgler-
augar sig upp og mætir í útför
fórnarlambsins. Því næst nálgast
hún ekkjuna; Jen, í gegnum stuðn-
ingshóp fyrir syrgjendur. Villir
raunar á sér heimildir til að byrja
með; kveðst líka hafa misst eigin-
mann sinn fyrir skemmstu. Jen af-
hjúpar þá lygi fljótt en er áfram í
myrkrinu varðandi dauða ástkærs
eiginmanns síns. Judy á hins vegar
nokkur fósturlát að baki og fyrir
vikið kennir Jen í brjósti um hana.
Þrátt fyrir að bjóða sinni nýju vin-
konu að búa hjá sér, en hún er á
hrakhólum eftir að lagaspaðinn
Steve henti henni út, er Jen kald-
hæðin og hrjúf á yfirborðinu og
þráir ekkert heitar en að ganga
milli bols og höfuðs á manneskj-
unni sem varð bónda hennar að
bana. Hann reynist þó ekki hafa
verið allur þar sem hann var séður
sem er vatn á myllu Judy enda
býður henni í grun að farið hafi fé
betra.
Inn í söguna fléttast líka tveir
ungir synir Jen, téður Steve, sam-
kynhneigður samstarfsmaður Jen í
fasteignabransanum og tengdamóð-
ir hennar en eins og lög gera ráð
fyrir eiga þær alls ekki skap sam-
an. Vægt til orða tekið.
Höfundur þáttanna er Liz Feld-
man, sem meðal annars er þekkt
fyrir gamanleik og uppistand, og
hún framleiðir þá einnig, ásamt
Will Ferrell og fleirum.
Samband sem
hreyfir við manni
Með aðalhlutverkin fara Christina
Applegate, sem leikur Jen, og
Linda Cardellini, sem leikur Judy.
James Marsden leikur Steve, Val-
erie Mahaffey túlkar tengdamóð-
urina og gamla kempan Ed Asner
Christina Applegate og Linda
Cardellini eiga í óvenjulegu vin-
konusambandi í Dead to Me.
Þegar ekið er
yfir mann
Í hinu biksvarta spédrama Dead to Me stofna
tvær konur til vináttu á óvenjulegum og stór-
hættulegum forsendum. Önnur veit svolítið
voðalegt sem hin má alls ekki komast að.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
LEIKLIST Fransk/enska leikkonan Stacy Martin
viðurkennir í viðtali við breska blaðið The Indep-
endent að hún hafi aldrei fengið greidd sam-
bærileg laun og karlleikarar í þeim kvikmyndum
sem hún hefur komið fram í. Martin er líklega
þekktust fyrir hlutverk sitt í mynd Lars von
Triers, Nymphomaniac. Að hennar sögn stafar
þetta af því að framleiðendur kvikmynda telji
almennt að græða megi meira á því að tefla
fram körlum en konum í kvikmyndum. Martin
segir þetta smám saman að breytast en þó sé
ennþá mikið verk að vinna. „Borgið mér
meira!“ lætur hún svo hafa eftir sér í
viðtalinu.
Stacy Martin
er ung og
upprennandi
leikkona.
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.5. 2019
LESBÓK
MÁLMUR Einhver hatrammasta deila málmsögunnar
snýr að Seattle-bandinu Queensryche en fyrir fimm ár-
um tókst söngvarinn Geoff Tate, sem þá hafði verið rek-
inn úr bandinu, á við Michael Wilton gítarleikara, Eddie
Jackson bassaleikara og Scott Rockenfield trymbil fyrir
dómstólum um réttinn á notkun nafnsins. Þremenning-
arnir fóru með sigur af hólmi. Í samtali við tímaritið
Metal Wani kveðst Tate ekki sjá fyrir sér að hann komi
til með að troða upp með sínum gömlu félögum á ný.
Hann segir Queensryche hafa átt sitt gullaldarskeið en
því hafi lokið fyrir um tveimur áratugum og nú hafi leið-
ir skilið. Tate yljar sér við minningarnar en saknar ekki
hinna úr bandinu enda hafi þeir alla tíð verið meiri við-
skiptafélagar en bræður í málmi.
Ekki bræður í málmi Geoff gamli
Tate.
Octavia Spencer er eftirsótt.
Kynþáttadrama
KVIKMYNDIR Alþekkt er að
myndir sem óvænt slá í gegn plægi
akurinn fyrir aðrar myndir í svip-
uðum anda. Þannig er von á tveim-
ur spennumyndum seinna í mánuð-
inum sem taka á sambærilegum
málum og hin feikivinsæla Get Out;
það er kynþáttafordómum og
menningarpólitík. Önnur er The
Intruder með Dennis Quaid í aðal-
hlutverki og hin kallast Ma en þar
fer Octavia Spencer fyrir mann-
skapnum. Í The Intruder eru svört
hjón, sem flytja inn í nýtt húsnæði,
áreitt af hvítum nágranna sínum og
í Ma býður svört kona nokkrum
unglingum að nota kjallarann hjá
sér en mögulega eru þeir ekki allir
þar sem þeir eru séðir.
Vill fá sömu laun og karlarnir
Íslensk hönnun - Íslenskt handverk
Skinnhúfa kr. 19.800
Vargur kr. 37.000
Vesturgötu 4, 101 Reykjavík, s. 562 8990
www.kirs.is,
Kirsuberjatréð Íslensk Hönnun
Opið: Mán.-fös. 10-18, lau. 10-17, sun 10-17
Hálsmen kr. 13.900
fyrir heimilið
Sendum
um
land allt
Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is
Fallegar vörur
Stóll á snúningsfæti
í ítölsku nautsleðri
75 cm á breidd
Verð frá 120.000 kr.