Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.05.2019, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.05.2019, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.5. 2019 Þ að er ónotalegt að sjá hvernig sumir þeir, sem maður síst vildi, hafa hag- að sinni umræðu um hinn svokallaða orkupakka. Og það bætir ekki úr að erfitt er að sjá af málflutningi þeirra hver sé ástæðan. Þeir fullyrða að málið sé smátt í sniðum, það hafi nánast enga þýðingu og snúist í rauninni ekki um neitt. Og að því leyti sem það snúist um eitthvað þá sé í rauninni fyrir löngu búið að afgreiða þau atriði! Hvað gengur mönnum til En samt berjast þeir á hæl og hnakka og veitast jafnvel að gömlum vinum sínum við að koma þessum „orkupakka“ í gegn, og vísa ekki í aðra skýringu en sinn eigin ótta. Og þeim þykir ekkert að því að gefa tilefnislaust til kynna að einmitt þeir sem báru mesta pólitíska ábyrgð á að EES-samningur var samþykktur á sinni tíð séu í rauninni ekkert á móti þessu tiltekna máli. Það vaki það eitt fyrir þeim að eyðileggja EES- samninginn! Og því er bætt við að þeir geti varla haft áhyggjur af stjórnarskrárbrotum, því í fyrsta lagi sé alls ekki víst að verið sé að brjóta hana og þó svo væri, þá hafi verið búið að brjóta stjórnarskrána í smááföngum með afgreiðslu fyrri pakkanna og með því hafi sennilega skapast „lagaleg stjórnskipunar- venja“. Með því þykjast þeir í alvöru að vera að halda því fram að með vísun til slíkra kenninga megi fram- vegis gera hvaða breytingar sem menn vilji, með til- skipunum í nafni EES, sem lúsiðin vélmenni í Bruss- el unga út, hvað sem okkar eigin stjórnarskrá segi. Þeir hika varla við að gera sig að kjánum með því að skilgreina ESB sem „alþjóðastofnun“ í þessari ólánlegu leikfimi sinni. Seinast keypti utanríkis- ráðherrann sér erlendan ráðgjafa, ýmsum kostum búinn, sem leyfði sér þó að halda því fram, í boði ráð- herrans, að fyrst embættismenn héðan hefðu sam- þykkt meint afsal fullveldis með leynd á nefndar- fundi í Brussel árið 2017, þá hefði þjóðin í heild misst af þeim strætisvagni sem taka verður ætli menn að verja fullveldi lands síns. Þyngra en tárum taki Kannanir sýna nú að Sjálfstæðisflokkurinn er kom- inn niður undir 20 prósenta fylgi þótt hið ytra póli- tíska umhverfi ætti að vera hagstætt. Þótt hálfur áratugur sé liðinn frá óvæntri og óútskýrðri kúvend- ingu í Icesave, sem feykti burt fylginu, hefur það ekki skilað sér aftur. Hefur flokkurinn þó verið í ýmsum samsteypustjórnum síðan. Því er hampað að pakkamálið sé of flókið fyrir almenning og þess vegna sé áhuginn á því minni en látið sé í veðri vaka. Ekki vantaði að Icesave væri uppfullt af flóknum orðum og kynningin og offors yfirvalda var ámóta ógeðfellt og núna. Jóhanna lagði samninginn fyrir ríkisstjórn og þingflokka til samþykktar án þess að þýða hann. Það var ekki fyrir nema þaulvana að átta sig á um hvað var að ræða. Þingflokkur sjálfstæðismanna kyngdi þessu óláns- máli nú í krafti fyrirvara sem nú er ljóst að eru ekki til sem slíkir. Ekki vantaði þá að beitt væri ósvífnum fullyrð- ingum við Icesave-svikin þótt enginn hefði verið svo frumlegur þá að fagna þeim sem „lofsverðum blekk- ingum“. En almenningur reyndist ekki jafn vitlaus og stjórnmálamennirnir stóluðu á og virðast stóla á nú, eins og nýleg ummæli um að þeir sem (að eigin sögn í könnunum) hafi kynnt sér pakkamálið best séu jákvæðastir fyrir því! Þetta þótti fagnaðarefni þótt í þessum hópi vitringanna hafi meirihlutinn einnig verið á móti málinu eins og í hópi hinna sem minna vissu (deplorable kenningin). En kannski fólst það helst í því að sá hópur sem gaf sjálfum sér þá einkunn að vera vel upplýstur hafði „keypt“ hinar „lofsverðu blekkingar“. Innntómar hótanir Nauðsynlegt er að fara rækilega yfir það, hvort nokkur maður hafi sagt við umræður um EES- samninginn, að vildu Íslendingar einhverju sinni nota rétt sinn til að hafna innleiðingu tilskipana sem þeim hentaði ekki, þá myndi sá samningur riða til falls. Hér skal fullyrt að þessar hótanir og hræðslu- áróður eru ósannindi. Og þó er þessi hótun eina af- sökun ríkisstjórnarinnar fyrir því að keyra þetta varasama mál í gegn. Undirbúningur þess er í skötu- líki og engum til sóma sem að því kom. Í heilt ár hafa staðið mjög afgerandi yfirlýsingar formanns Sjálfstæðisflokksins á Alþingi um málið. Fyrir tveimur vikum eða svo kom önnur yfirlýsing eins og skrattinn úr sauðarleggnum án þess að út- skýrt væri hvað hefði breyst. Við svo búið getur ekki staðið. Varla hafa hinar „lofsverðu blekkingar“ sveiflað flokknum í heilan hring. Sætir tíðindum Í laugardagsblaðinu er birt grein eftir Sturlu Böðv- arsson, fyrrum ráðherra og einn af helstu forystu- mönnum flokksins í lands- og sveitarstjórnarmálum. Sú grein er prúðmannleg, en þunginn leynir sér ekki. Sturla segir í grein sinni: „Umræða á Alþingi og um allt samfélagið síðustu vikur um svokallaðan þriðja orkupakka hefur verið mögnuð. Þessi þriðji orku- pakki leggur tilteknar skyldur á okkar herðar og færir okkur vonandi einhver réttindi í samstarfi þjóðanna. En þessi umfjöllun hefur magnað upp óánægja sem ekki sér fyrir endann á. Það hefur ekki auðveldað jákvæða afstöðu til málsins af minni hálfu að verða þess var að forsvarsmenn Samfylkingar og Viðreisnar leggja ofuráherslu á að samþykkja þriðja orkupakkann án nokkurs fyrirvara. Þeir flokkar stefna bæði leynt og ljóst að inngöngu í Evrópusam- bandið gefist færi til þess. Það er því rík ástæða til þess að fara að öllu með gát og tryggja hagsmuni okkar svo sem var gert svo vel árið 1993 og þá ekki síst hvað varðar fiskveiðar og sjávarauðlindina sem við eigum og ráðum yfir. Nýting orkulinda okkar hefur gefist vel og er okk- ur mikilvæg. Orkupakkanum er ætlað að setja okkur reglur hvað varðar vinnslu og dreifingu raforku og þá væntanlega í þeim tilgangi að tryggja hagsmuni neytenda á grundvelli hins frjálsa markaðar. Ef okkur tekst að halda áfram að byggja upp orku- fyrirtækin og þá einkum hjá Landsvirkjun, Rarik og Orkubúi Vestfjarða með virkjun vatnsafls, virkjun jarðvarma, virkjun vindorku og virkjun sjávarfalla munu líkurnar aukast á því að það verði okkur hag- fellt að selja raforkuna um sæstreng til nálægra landa. Því er það mikilvægast fyrir okkur að tryggja hagsmuni okkar þegar sæstrengur hefur verið lagð- ur. Það er óforsvaranlegt að samþykkja þriðja orku- pakkann án þess að það liggi fyrir hvað gerist á orku- markaði á Íslandi þegar sæstrengur hefur verið lagður og orkusalan hefst. Það hefur eitt og sér eng- an tilgang að við ráðum því hvort sæstrengur verði lagður ef orkumarkaðsmálin verða um leið tekin úr okkar höndum þegar sala hefst um sæstreng. Þess- ari spurningu verða ráðherrar að svara áður en lengra verður haldið enda virðist Landsvirkjun gera ráð fyrir lagningu sæstrengs svo sem sjá má á heimasíðu félagsins.“ Seinni afmælisgjöfin Á sama tíma og flokkurinn engist út af ónýtum mála- tilbúnaði um orkupakka hefur hann óvænt stillt sér upp undir kjörorðinu „fram nú allir í röð“ fyrir aftan Svandísi Svavarsdóttur til að samþykkja að nú megi af nokkurri léttúð fremja fóstureyðingar þótt barn sé orðið 22 vikna gamalt í móðurkviði, sem er hið næsta því að geta lifað og þroskast eftir að hafa öðlast líf, án Það er ekki ókeypis að ulla á fólk Reykjavíkurbréf10.05.19

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.