Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.05.2019, Síða 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.05.2019, Síða 6
HEIMURINN 6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.5. 2019 Nafnið Archie kom flestum á óvart enda hafði því verið spáð að hinn konungborni drengur bæri hefðbundnara nafn eins og Alexander, Albert eða James. Síðara nafn hins stutta, Harri- son, kom jafnvel meira á óvart. Archie þykir afar breskt nafn en Harrison vísun í bandarískar rætur móðurinnar. Harrison þýðir vitanlega sonur Harry’s og því má velta fyrir sér hvort for- eldrar Archies litla sæki fyrir- mynd í íslenska nafnahefð. Eftirnafnið Mountbatten- Windsor er myndað er úr eftir- nöfnum Elísabetar II. (Windsor) og Philips prins (Mountbatten) og hefð er fyrir að karlkyns af- komendur beri þótt þeir noti það ekki allir. Harry, faðir Arch- ies, notar t.d. sjaldan eftirnafn. Í hernum kallaði hann sig þó Harry Wales, með vísan í að fað- ir hans er prinsinn af Wales. Það þykir virðingarvottur fyrir lang- ömmu og langafa að Archie litli beri eftirnöfn þeirra. Fyrirmyndin íslensk? Archie litli veit ekki enn að hann er fæddur inn í konungsfjölskyldu. Heitir hann ekki örugglegaArchibald en ekki baraArchie? Ég trúi ekki að þau hafi nefnt hann gælunafni!“ Svona einhvern veginn hljómar ein af at- hugasemdunum sem fylgjandi her- togahjónanna af Sussex á Instagram skrifaði undir mynd sem fylgdi til- kynningu um að sonur þeirra hefði verið nefndur. Drengurinn ber nafn- ið Archie Harrison Mountbatten- Windsor en instagram-fylgjendum foreldranna þykir við hæfi að hafa sína skoðun á nafninu, myndunum, titlinum og flestu sem viðkemur litlu fjölskyldunni í Frogmore. Harry prins, hertoginn af Sussex, hitti fjölmiðla hinn 6. maí síðastliðinn og tilkynnti að sonur hans og Meg- han Markle hertogaynju væri kom- inn í heiminn og að móður og barni heilsaðist vel. Tveimur dögum síðar tilkynntu þau svo í sameiningu nafn drengsins, Archie Harrison Mount- batten-Windsor, og þá var birt mynd af því þegar drottningin leit hann augum fyrst. Hann hreyfir sig ekki Eintóm gleði fylgdi þessum tilkynn- ingum eins og jafnan þegar nýtt líf kviknar. Fylgjendur hjónanna á Instagram tóku við sér og létu rigna yfir þau hamingjuóskum. En þó fór það ekki svo að gleðin ein væri ríkjandi í athugasemdum. „Hvort er hann eiginlega hvítur eða svartur á litinn?“ eru meðal spurninga sem komu undir myndina af hinum ný- fædda syni. „Hið konunglega barn hreyfði sig ekki neitt! Ég velti fyrir mér hvort þetta er alvörubarn eða dúkka? Við munum víst aldrei vita það því þau vilja halda öllu leyndu!“ segir önnur mannvitsbrekkan sem fylgist með fjölskyldunni á Insta- gram. Foreldrarnir hafa tilkynnt að hinn nýfæddi sonur komi ekki til með að bera konunglegan titil á borð við jarl eða hertoga heldur verði einfaldlega kallaður Archie en skeyta megi „master“ fyrir framan. Sumir fylgj- endur eru ósáttir og segir einn aðdá- andi konunglegra titla: „Þau ættu að hugsa um hvað okkur finnst, ekki bara um sig sjálf!“ Hertogahjónin, sem halda úti instagram-reikningi sem yfir 7,5 milljónir manna fylgja undir nafninu Sussexroyals, þurfa sannarlega að hafa þykkari skráp en flestir nýbak- aðir foreldrar. Nettröllum er víst ekkert heilagt og nýfædd börn eru því miður ekki undanþegin gagn- rýni. Langstærstur hluti fylgjenda hjónanna hefur þó aðeins jákvæðar athugasemdir um soninn og foreldr- ana og ber flestum saman um að myndin fræga, þar sem langamma drottning ber drenginn augum í fyrsta sinn, sé einstaklega falleg. Líklegt verður þó að teljast að Arch- ie litli þurfi að koma sér upp álíka þykkum skráp og foreldrar hans þegar fram líða stundir. „Er þetta barn eða dúkka?“ Um fáa er meira rætt á Bretlandseyjum en nýjasta meðlim konungsfjölskyldunnar, Archie Harrison Mountbatten-Windsor. Ekki eru það þó aðeins hamingjuóskir sem dynja á foreldrunum. Eyrún Magnúsdóttir eyrun@mbl.is Langamma og langafi, Elísabet drottning og Philip prins, virðast alsæl með nýjasta afkomandann og móðuramman, Doria Ragland, horfir hugfangin á dóttursoninn. Harry og Meghan völdu að kynna drenginn vafinn í hvítt og með húfu. AFP Harry prins kannar hvort gjöfin frá Margréti prinsessu í Hollandi passar. Meghan og Harry geisluðu af gleði og ást þegar þau kynntu Archie litla. Komu konunglega barnsins er víða fagn- að. Karl prins og Kamilla voru á ferð um Þýskaland og þar vildu vegfarendur heiðra hinn nýfædda Archie. Ný vefverslun: www.donna.is Erum nú á Facebook: donna ehf Sími 555 3100 www.donna.is fyrir heimilið VifturHitarar LofthreinsitækiRakatæki ARCHIE HARRISON MOUNTBATTEN-WINDSOR

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.