Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.05.2019, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.05.2019, Blaðsíða 2
Í FÓKUS 2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.5. 2019 Langar þig í ný gleraugu! Smáralind – Sími 517 0317 – www.plusminus.is PLUSMINUS | OPTIC Það fyrsta sem Marilyn Monroe leikkona tók eftir þegar hún hitti Arthur Miller rithöfund, voru gleraugun! Í 131 árs sögu ensku knattspyrnunnar hafa margar vikur verið sögulegaren sú sem nú er að líða hlýtur að vera með þeim allra sögulegustu, ef ekkihreinlega sú sögulegasta. Eftir rússíbanareið sem ekki einu sinni meist- ari háspennunnar, Sir Alfred Hitchcock, hefði getað lagt á ráðin um eru fjög- ur ensk lið komin í úrslit á Evrópumótunum tveimur, í Meistaradeildinni og Evrópudeildinni. Það þýðir, fyrir ykkur sem eruð sæmileg í reikningi, að ekkert lið frá öðru landi kemst að í þessum risaleikjum að þessu sinni. Segið svo að Bretar kunni ekki að slíta sig frá Evrópu! Og það í miðjum maí! Réttið upp hönd ef þið náðuð þessum! Af liðunum fjórum kaus aðeins eitt, Arsenal, að fara öruggu leiðina. Vann andstæðing sinn, Valencia frá Spáni, 7:3 í tveimur leikjum. And- stæðingur Arsenal í úrslitaleik Evr- ópudeildarinnar, Chelsea, vildi meiri spennu og þvældist með spútniklið Eintracht Frankfurt alla leið í víta- spyrnukeppni. En lifði af. Hvar á maður síðan að byrja á undanúrslitaleikjunum í Meistara- deildinni? Ég kófsvitna bara við til- hugsunina. Liverpool vann auðvitað eitt fræknasta afrek sparksögunnar. Punktur, basta. Snéri við 0:3 stöðu gegn sjálfum Börsungum. Ég spilaði bumbubolta í gær við Púlara sem var nýkom- inn heim frá Anfield – og söng ennþá fullum hálsi. Á leið frá búningsklefa inn í sal lék hann fyrir okkur upptökur úr stúkunni úr snjallsíma sínum. Í fullum herklæðum. Það mega þeir eiga, Púlarar, að þeir eiga auðveldara með að gleðjast en annað fólk. Og að þessu sinni áttu þeir það svo sannarlega skilið. Maður lifandi! Sigurmarkið er svo auðvitað kapítuli út af fyrir sig; þurfa ekki vísinda- menn að bregða mælistikum sínum á þennan pilt, Trent Alexander-Arnold? Slíka sparkgreind kaupa menn ekki í Melabúðinni. Hafi maður haldið að leikir gætu ekki orðið meira spennandi en þetta und- ur á Anfield þá hlóð Tottenham Hotspur, af öllum liðum, í eina lygilegustu endurkomu sparksögunnar kvöldið eftir, á Kræfvöllum í Amsterdam. Jesús, María og Jósep! Og svo halda menn að „Mórar“ séu bara til í íslenskum þjóð- sögum. Þetta var Lúkasarguðpjall í sinni tærustu og fallegustu mynd. Þetta verður eitthvað í Madríd 1. júní. Uss! Og Guð veri með vini mínum sem heldur með tveimur liðum í þessu lífi, Tottenham Hotspur og liðinu sem hverju sinni er að spila gegn Liverpool. Mikið verður á hann lagt. Þegar Bretar slitu sig frá Evrópu Pistill Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is ’Ég spilaði bumbu-bolta í gær við Púlarasem var nýkominn heimfrá Anfield – og söng ennþá fullum hálsi. Birna Sigurðardóttir Ég hef eiginlega bara heyrt íslenska lagið. Þeir komast pottþétt áfram. SPURNING DAGSINS Hver vinnur Eurovision? Eyþór Jóhannsson Hatari. Þeir eru mjög góðir. Hildur Magnúsdóttir Ég hef lítið fylgst með þessu en ég vona að Hatari komist áfram svo maður geti haft gott grill. Hilmir Harðarson Er það ekki Hatari? Þeir eru helvíti flottir. Ritstjóri Davíð Oddsson Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal Umsjón Eyrún Magnúsdóttir, eyrun@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Útgáfufélag Árvakur hf., Reykjavík. Varstu að lenda í Ísrael? Já, ég er í leigubílnum á leiðinni frá flugvellinum. Þú hefur ákveðið að skella þér á Eurovision? Nei, nei, ég er að fara að syngja á Euro-café á sunnudaginn. Við erum hér þrjú, ég, Friðrik Ómar og Hera Björk. Ætliði að taka gömlu Eurovision-lögin? Já og eitthvað fleira. Við Friðrik erum með hálftíma syrpu af alls konar lögum. Þetta verður geggjað, þetta er tvö þúsund manna klúbbur sem opnar á sunnudaginn. Það er mikill heiður að vera boðin hingað og fá að syngja. Verðurðu aldrei leið á All out of luck? Nei, maður getur það ekki, þetta er svo mikil gleðisprengja. Ætlið þið svo á Eurovision? Við ætlum að vera í viku en erum ekki komin með miða en horf- um auðvitað. Svo ætlum við að njóta þess að vera til í sólinni og skoða okkur um. Hefurðu farið til Ísraels síðan 1999? Nei, ég er að koma hingað í fyrsta sinn í tuttugu ár. Hvernig er tilfinningin? Bara mögnuð. Ég á góðar minningar héðan. Ef þú hugsar til baka, hvað stendur upp úr? Góður árangur og gríðarlega spennandi stigagjöf. Hvaða sæti spáir þú Hatara? Þeir fljúga í gegnum undanúrslitin. Lagið er gott og vekur at- hygli. Ég ætla að segja að þeir endi í topp fimm. SELMA BJÖRNSDÓTTIR SITUR FYRIR SVÖRUM Gleðisprengja í Ísrael Forsíðumyndina tók Eggert Selma Björnsdóttir söngkona sló eftirminnilega í gegn á Eurovision í Ísrael árið 1999 en hún lenti þar í 2. sæti sem er besti árangur Íslands hingað til. Hún er nú stödd í Ísrael til að skemmta í Euro-klúbbi.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.