Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.05.2019, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.05.2019, Blaðsíða 13
Reglurnar í deildinni sem Kristófer lék í kveða á um að menn megi ekki vera hærri en 198 cm á hæð og allir eru hæðarmældir í tví- gang til öryggis. „Það eru til allskonar aðferðir til að koma sér niður fyrir þessi mörk, svo sem að herða magavöðvana. Ég rétt slapp, held ég hafi mælst 197,7 cm í seinna skiptið,“ rifjar hann brosandi upp. Seinni dvölin í útlöndum var ekki eins ánægjuleg en síðasta haust samdi Kristófer við franska liðið Denain ásamt félaga sínum úr landsliðinu, Elvari Má Friðrikssyni. Honum líkaði ekki vistin og vildi losna frá félaginu áð- ur en félagaskiptaglugg- anum væri lokað á Íslandi í nóvember. Í samtali við Morgunblaðið gat Krist- ófer þess meðal annars að lítið væri um að vera í bænum sem hann bjó í og fáir töluðu ensku. „Þetta spurðist út til Frakklands og fór öfugt í forsvars- menn félagsins. Ég var alls ekki að tala niður til félagsins eða fólksins í bænum, heldur bara greina frá því hvernig mér leið. Ætli þeir hafi ekki sett þetta í Google translate og fengið þessa vitleysu út? Nema hvað, þeir voru tregir að sleppa mér og komu alls ekki nógu faglega fram í þessu máli. Þeir fundu loks leikmann í minn stað en það hafði þær afleiðingar að samningi við Elvar var einnig rift en hann gat alveg hugsað sér að vera áfram ytra. En málið leystist alla vega og við áttum báðir góðan vet- ur hér heima, ég með KR og hann í Njarðvík.“ Langar að spila aftur erlendis Þrátt fyrir þetta bakslag hefur Kristófer áhuga á því að fara aftur í atvinnumennsku í útlöndum. „Mig langar að spila aftur erlendis. Ég er opinn fyrir öllu en meira spenntur fyrir Asíu og Suður-Ameríku en Evrópu eins og staðan er núna. Í vikunni kom meira að segja fyrirspurn frá Kína sem ég hef áhuga á að skoða í rólegheitunum. Það er verst hvað ég flughræddur; er ekki þrettán tíma flug til Kína? Líti þetta vel út læt ég mig samt hafa það að fara og skoða aðstæður. Ég er mjög og í Bandaríkjunum. Það hjálpaði mér mikið meðan ég var í háskólanáminu. Þess utan hef ég mjög gaman af því að kynnast nýju fólki og ólíkum menningarheimum.“ Einu sinni orðið fyrir fordómum Talið berst að fordómum en mikla athygli vakti í vetur þegar Kristófer varð fyrir kyn- þáttaníði meðan hann var að spila leik með KR á Sauðárkróki. Ætli hann sé vanur slíku? „Nei, öðru nær. Þetta er í fyrsta og eina skiptið sem ég hef orðið fyrir kynþátta- fordómum. Einmitt þess vegna brá mér og sá ástæðu til að vekja athygli á þessu. Ég átti mjög góða vini og slapp við allt svona vesen í æsku og finnst við ekki eiga að sætta okkur við þetta. Forsvarsmenn Tindastóls tóku vel á málinu; gerðu allt sem í þeirra valdi stóð og það hvarflar ekki að mér að dæma heilt bæj- arfélag fyrir bullið í einum manni. Ég fékk líka mikinn stuðning frá Sauðárkróki í kjölfarið og er þakklátur fyrir það. Það er mjög mikilvægt að að kæfa níð af þessu tagi í fæðingu.“ Hitt er annað mál að fólk heldur stundum að hann sé útlendingur, þeirra á meðal forseti Ís- lands, Guðni Th. Jóhannesson, en fræg er „good luck“-kveðjan sem hann kastaði á Krist- ófer fyrir landsleik í Laugardalshöll. Hann hlær þegar þetta ber á góma. „Guðni varð alveg miður sín þegar hann áttaði sig á þessu og bað mig auðmjúklega afsökunar. Mig minnir að það hafi verið eitt af fyrstu embætt- isverkum hans að vera heiðursgestur á þessum landsleik og þetta vakti mikla athygli. Ég tók þetta alls ekki nærri mér og við Guðni eru góð- ir félagar í dag. Ég er svo sem alvanur því að vera ávarpaður á ensku, ekki síst þegar ég er að fljúga til og frá landinu. Það truflar mig ekki neitt.“ Mældist 197,7 sentimetrar Kristófer hefur í tvígang leikið erlendis. Haustið 2017 gerði hann skammtímasamning við Star Hotshots á Filippseyjum. „Þetta var beint eftir EM í Finnlandi; mér bauðst að vera þar í nokkrar vikur og klásúla í samningi mín- um við KR gerði mér það kleift. Þetta var mjög skemmtileg lífsreynsla,“ segir hann. þakklátur fyrir hvað körfuboltinn hefur leitt mig víða og vona að hann muni gera það áfram.“ Ef ekkert kemur út úr þessum þreifingum er Kristófer meira en sáttur við að vera áfram í KR. „Ég hef það mjög gott hérna heima og það yrði enginn heimsendir kæmist ég ekki í atvinnumennsku. Liðið er mjög gott og gæðin í deildinni alltaf að aukast; það voru alla vega fimm eða sex lið sem áttu raunhæfan mögu- leika á að verða Íslandsmeistari í vetur sem er mjög óvenjulegt.“ – Hafa menn ekki þegar sett stefnuna á sjö- unda titilinn? Sjö er falleg tala! „Já, sjö er mjög falleg tala,“ segir Kristófer dreyminn á svip. „Ég sagði í viðtali strax eftir úrslitaleikinn að við vær- um ekki hættir; ef til vill var það bara sigurvíman. Maður veit þó aldrei, núna er til dæmis orðrómur á kreiki þess efnis að til standi að styrkja liðið. Við getum því átt von á mjög sterku KR-liði næsta vetur.“ Kynslóðaskipti í landsliðinu Kristófer hefur leikið 40 landsleiki fyrir Ís- lands hönd frá árinu 2015 og segir spennandi tíma framundan hjá liðinu. „Það eru að verða kynslóðaskipti í landsliðinu. Menn sem borið hafa liðið uppi um langt árabil, Jón Arnór Stef- ánsson, Hlynur Bæringsson, Logi Gunnarsson og fleiri, eru hættir og við yngri mennirnir að taka að okkur stærra hlutverk. Við þurfum smá tíma til að fikra okkur áfram án eldri leik- mannanna og það verður líklega erfitt að kom- ast inn á næsta stórmót. Það er ekkert óeðli- legt enda tekur alltaf tíma að slípa nýtt lið saman. En við eigum marga góða og bráð- efnilega leikmenn og eigum vonandi eftir að taka þátt í fleiri stórmótum í framtíðinni.“ Að sögn Kristófers eru það forréttindi að hafa fengið tækifæri til að kynnast og spila með leikmönnunum sem nefndir voru hér að ofan. „Allt eru þetta frábærir leikmenn, í hópi þeirra allra bestu sem við höfum átt, og miklir leiðtogar – langt út fyrir völlinn. Ég þekki Jón Arnór auðvitað best, enda samherji minn í KR, og það er frábært að vera með honum, innan vallar sem utan. Það hefur alltaf verið gott að leita til Jóns og hann hefur kennt mér margt. Ég er mjög þakklátur fyrir hans leiðsögn og sama máli gegnir um Hlyn og Loga. Nú er komið að okkur, yngri mönnum, að taka við kyndlinum í landsliðinu og tíminn mun leiða í ljós hvort við komum til með að standast þess- um köppum snúning.“ Kristófer verður 26 ára á þessu ári og von- ast til að eiga mörg góð ár fyrir höndum í bolt- anum. „Ég verð eins lengi í körfubolta og lík- aminn leyfir. Ég æfi vel og hugsa vel um mig en þetta er líka spurning um heppni, þá er ég auðvitað fyrst og fremst að tala um meiðsli. Sleppi maður við þau er alveg raunhæft að spila langleiðina í fertugt. Það sanna dæmin.“ Fyrsta vinnan á ævinni Lífið er ekki bara körfubolti. Frá því að Krist- ófer kom heim frá Frakklandi í nóvember hef- ur hann unnið í hlutastarfi í World Class, Laugum. „Þegar ég kom heim úr háskólanámi var ég bara að spila körfubolta, ekkert að vinna. Það var fínt til að byrja með en þegar upp var staðið var frítíminn of mikill. Maður freistaðist til að sofa út og þar fram eftir göt- unum. Þess vegna vildi ég ráða mig í hlutastarf með boltanum þegar ég kom heim frá Frakk- landi. Það er mjög fínt að vinna í Laugum en þetta er fyrsta eiginlega starfið mitt á ævinni, fram að því var þetta bara karfa og nám. Það er mjög gaman að upplifa að vera á vinnu- markaði.“ Talandi um nám þá er Kristófer með BA- próf í heilsuvísindum frá Furman. Hann getur vel hugsað sér að fara í frekara nám í framtíð- inni enda þótt ekki séu áform um það alveg á næstunni. „Eins og staðan er núna einbeiti ég mér að körfuboltanum en fari ég í frekara nám myndi ég líklega fara í einhverja allt aðra átt; ég hef til dæmis mikinn áhuga á tölvunar- fræði.“ Svo mörg voru þau orð. Við kveðjumst og Kristófer setur aftur upp sólgleraugun og heldur út í vorið. Þar sem möguleikarnir búa. ’ Pabbi er aðeins hærrien ég. Annars er hannorðinn fimmtugur, karlinn,og byrjaður að vaxa í vit- lausa átt. Ég er mjög dug- legur að minna hann á það. „Ég er mjög þakklátur fyrir hvað körfuboltinn hefur leitt mig víða og vona að hann muni gera það áfram,“ segir Kristófer. Morgunblaðið/Eggert 12.5. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.