Morgunblaðið - 06.06.2019, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 06.06.2019, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. JÚNÍ 2019 Bir tm eð fyr irv ar au m pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé rr étt til lei ðr étt ing aá slí ku .A th. að ve rð ge tur br ey st án fyr irv ar a. 595 1000 Almería Frábært verð! 2. júlí í 7 nætur Verð frá kr. 112.595 Frá kr. 98.095 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Fimm heppnir áskrifendur Morgunblaðsins voru dregnir út í áskrifendahappdrætti Morgunblaðsins í út- varpsþættinum „Ísland vaknar“ á K100 í gær, en í vinn- ing var úrvals Landmann-grill frá Grillbúðinni, að verðmæti 99.900 krónur. Vinningurinn kom sér vel Hjördís Ýr Johnson, kynningarstjóri Árvakurs, heimsótti þáttarstjórnendur í morgunsárið og dró úr hópi áskrifenda, en hinir heppnu voru að þessu sinni þau Einar Hjálmar Jónsson, íbúi í Reykjavík, Frosti L. Meldal, íbúi á Akureyri, Gunnar Gísli Guðlaugsson, íbúi í Reykjanesbæ, Elísabet Gestsdóttir, íbúi á Akureyri og Oddný Guðbjörg Leifsdóttir, íbúi í Reykjanesbæ. Hjördís Ýr segir það ávallt skemmtilegt verkefni að hringja í vinningshafa í áskriftarleikjum Morgunblaðs- ins, en eins og áskrifendur vita eru slíkir leikir haldnir reglulega. „Það voru allir virkilega kátir þegar þeir heyrðu að þeir hefðu unnið. Einn hafði á orði að hann hefði ein- mitt verið að fara í að endurnýja, þannig að vinning- urinn kom sér sérstaklega vel,“ segir hún. Tíu dregnir út í viðbót Útdrátturinn í gærmorgun var sá fyrsti af þremur í sumar, en alls munu fimmtán áskrifendur fá grill í happdrættinu. Næst verður dregið miðvikudaginn 12. júní. Lokaútdráttur verður svo 19. júní nk. Í áskrifendahappdrættinu er dregið úr hópi áskrif- enda Morgunblaðsins af handahófi, en allir þeir sem gerast áskrifendur að blaðinu fara sjálfkrafa í pottinn. Fengu glæsileg gasgrill  Dregið var í áskriftarleik Morgunblaðsins í gær Morgunblaðið/Eggert Happdrætti Hjördís Ýr Johnson, kynningarstjóri Árvakurs. Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Á fundi formanna stjórnmálaflokka á Alþingi upp úr hádegi í gær náð- ist engin niðurstaða um þinglok og var þingfundi framhaldið klukkan þrjú. Í gærkvöldi stóð enn yfir um- ræða í þingsal um þriðja orkupakk- ann sem hófst síðdegis í gær. Segja má að stjórnarandstaðan sé klofin hvað varðar samkomulag um þinglok og fyrir dyrum stendur hjá ríkisstjórninni að ná lendingu gagnvart Miðflokknum hvað þriðja orkupakkann varðar annars vegar og hins vegar við aðra stjórnarand- stöðuflokka um önnur mál, þ.á m. sameiningu Seðlabankans og Fjár- málaeftirlitsins og afgreiðslu frum- varps um þjóðarsjóð. Á fyrrnefndum fundi flokksfor- mannanna lagði Katrín Jakobs- dóttir forsætisráðherra fram til- lögu um þinglok sem ekki fékk brautargengi. „Ég var þar með tillögu um það hvort ljúka mætti öllum málum og við myndum síðan semja um að þingið kæmi saman í ágúst til að ræða Seðlabankann og orkupakk- ann. Þetta var mín tillaga af því það var mín tilfinning að þetta væru þannig mál. Þá fengju „stjórnarandstöðurnar“ tíma til að kynna sér málin,“ segir Katrín sem útilokar þó ekki að samkomulag náist. „En það náðist alla vega ekki í dag. Ég sagði það í lok fundar að ég teldi eðlilegt að þinghald héldi þá áfram,“ segir hún, en á dag- skrá þingins í gær voru alls yfir fjörutíu mál. „Það eru mjög mörg mál sem eru tilbúin til umræðu og það er í hönd- um forseta hvernig hann heldur áfram umræðunum,“ segir Katrín. Grundvöllur að samkomulagi „Það var mat forseta Alþingis að upp úr hefði slitnað. Það er svo sem misjafnt mat manna á þeirri stöðu, en úr því forsetinn vildi hefja umræðuna aftur, þá vorum við klárir í það og tókum til við þar sem frá var horfið þegar hlé var gert á umræðum um málið fyrir nokkrum dögum síðan,“ segir Bergþór Ólason, varaformaður þingflokks Miðflokksins. „Ég reikna með að þetta verði fyrsta mál á dagskrá í fyrramálið,“ segir hann. Spurður út í afstöðu Miðflokks- manna til hugmynda forsætisráð- herra segir hann að þær gefi tilefni til bjartsýni um að samkomulag sé í nánd. „Það er ánægjulegt að það sé komin fram sú afstaða forsætis- ráðherra að vandalítið sé að fresta umræðu um orkupakkann fram á haust. Það getur vafalaust orðið grundvöllur að samkomulagi um málið hvað okkur varðar,“ segir Bergþór. „Þetta gefur mönnum tíma í sumar til að skoða ákveðna þætti málsins,“ segir hann. Hall- dóra Mogensen, varaformaður þingflokks Pírata, segir að þunga- miðjan liggi í samkomulagi ríkis- stjórnarinnar við Miðflokkinn. „Flækjan er að það eru tveir aðilar sem er verið að semja við og það náðist ekki í dag. Ég myndi ekki segja að það strandaði á okkur endilega,“ segir Halldóra. „Ríkis- stjórnin virðist ekki tilbúin að horf- ast í augu við það að þetta eru tveir aðilar sem þarf að semja við. Það er uppi fordæmalaus staða á þinginu, átta flokkar, fimm stjórn- arandstöðuflokkar. Þetta er upp- skrift að flóknum aðstæðum. Einn flokkur hefur staðið í málþófi út af þriðja orkupakkanum í langan tíma og við hin í stjórnarandstöðunni er- um ekki sammála nálgun Mið- flokksins í því máli. Það er ekki verkefni stjórnarandstöðunar að leiða það mál til lykta, það er alfar- ið á ábyrgð ríkisstjórnarinnar,“ segir hún. Ekkert samkomulag enn í þinginu  Þriðji orkupakkinn til umræðu í þingsal á ný  Fundarhöld formanna skiluðu ekki samkomulagi  Miðflokksmönnum hugnast hugmynd Katrínar  Á ábyrgð ríkisstjórnar að semja við Miðflokkinn Katrín Jakobsdóttir Halldóra Mogensen Bergþór Ólason Framkvæmdir standa nú yfir við endurnýjun Reykjaæðarinnar svo- nefndu, hitaveitulagnar sem nær frá dælustöðinni við Reykjalund í Mosfellsbæ og niður í vatnsgeymi í Öskjuhlíð. Veitur fara með fram- kvæmdirnar sem eru hluti stærra verks, en þær stóðu einnig yfir síð- asta sumar, að sögn Eiríks Hjálm- arssonar, upplýsingafulltrúa Veitna. Samhliða framkvæmdunum við hitaveituna er unnið að endur- nýjun á aðalkaldavatnsæð á um 800 metra kafla. Endurnýjun hitaveitu- lagnarinnar stendur nú yfir á 200- 300 metra löngum kafla. „Þetta er verkefni sem hefur ver- ið unnið í áföngum síðustu árin. Við höfum farið gegnum Ártúnsholtið, verið uppi við Grafarholt, farið meðfram Bústaðaveginum. Eftir er leggurinn frá Kringlumýrarbraut og upp að Perlunni, en um þessar æðar fara um 40% af öllu heitu vatni sem nýtt er í hitaveituna í bænum,“ segir Eiríkur, en lagn- irnar voru síðast endurnýjaðar á árunum 1975-1985, u.þ.b. Nýjar pípur eru lagðar samhliða þeim eldri, en upphaflega voru stál- pípurnar lagðar í stokk og einangr- aðar með torfi og síðar steinull. Upprunalegu lagnirnar voru lagðar undir lok seinna stríðs. Í dag heyra stokkarnir sögunni til og nú eru lagnirnar foreinangr- aðar með plastkápu. Að loknum veituframkvæmdum verður um- hverfinu á svæðinu breytt og þar lagðir hjóla- og göngustígar með svipuðum hætti og gert var milli Stigahlíðar og Kringlumýrar- brautar á síðasta ári. Stokkurinn við Veðurstofuna verður því aflagð- ur, en um hann lá leið margra sem leið áttu um svæðið. Framkvæmd- unum við Veðurstofuna lýkur í sumar, en áætlað er að verkið í heild verði klárað á þessu ári og því næsta. jbe@mbl.is Stór lögn í end- urnýjun lífdaga  Stokkur á Veðurstofuhæð aflagður Morgunblaðið/Kristján Johannessen Veðurstofuhæð Nýja hitaveitulögnin á Veðurstofuhæð er talsvert stærri en sú eldri sem sjá má til hægri í stokki.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.