Morgunblaðið - 06.06.2019, Blaðsíða 52
Þóra Kolbrá Sigurðardóttir
thora@mbl.is
Súkkulaðibitakökur
með grískri jógúrt
1½ dl kókosolía
2¼ dl púðursykur
1 dl döðlusykur frá Rapunzel
2 egg
1 tsk. vanilludropar
5 dl hveiti
1 tsk. lyftiduft
1 tsk. salt
1 dl grísk jógúrt frá Örnu Mjólkurvörum
100 g hvítt súkkulaði
100 g dökkt súkkulaði
Hrærið saman sykur og kókosolíu,
bætið svo einu eggi út í í einu og
hrærið vel á milli. Bætið því næst
vanilludropum út í.
Setjið hveiti, lyftidufti, salti saman
við ásamt grískri jógúrt, blandið var-
lega saman við.
Skerið súkkulaðið niður í grófa bita
og bætið úr í, blandið saman með
sleikju.
Setjið deigið inn í ísskáp og kælið
það í 2-3 tíma eða yfir nótt, eftir því
hvað hentar best.
Kveikið á ofninum og stillið á
190°C. Notið matskeið til að skammta
hverja köku, mótið kúlu með lófunum
og raðið á smjörpappír, passið að hafa
gott bil á milli þar sem kökurnar fletj-
ast út í ofninum. Bakið í 10-12 mín.
Súkkulaðibitakökur
með grískri jógúrt
Það er fátt betra á fögrum degi en nýbökuð
súkkulaðibitakaka. Hvað þá ef hún inniheldur
ekki alveg jafn mikinn sykur og maður á að
venjast. Þessar dásemdarkökur koma úr
smiðju Lindu Ben. og ættu því engan að svíkja.
Einstakt góðgæti Kökurnar
eru sérlega bragðgóðar og
renna ljúflega niður.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. JÚNÍ 2019
Progastro | Ögurhvarfi 2, Kópavogi | Sími 540 3550
progastro.is | Opið alla virka daga kl. 9–17.
JAPANSKIR HNÍFAR
Allt fyrir eldhúsið
Hágæða hnífar og töskur
Allir velkomnir
Einstaklingar og fyrirtæki
Vefverslunokkarprogastro.iser alltaf opin!
Þóra Kolbrá Sigurðardóttir
thora@mbl.is
„Við erum að vinna mikið með kóreskar bragðtegundir
og hráefni sem við leggjum upp með smá LA-snúningi.
Það er ekkert heilagt hjá okkur,“ segir matreiðslumað-
urinn Atli Snær sem á og rekur KORE.
Í upphafi þegar við opnuðum í Granda mathöll var
hugmyndin að þetta yrði lítið fjölskyldufyrirtæki. Ég
ætlaði að vera þar og „dunda mér með stráknum mínum.
Við sáum mjög fljótt að við þyrftum töluvert af fólki í
vinnu til að geta annað eftirspurninni. Í dag hefur því
„fjölskyldan“ stækkað til muna. Þetta er æðislegt lið sem
hefur unnið með okkur nánast frá upphafi,“ segir Atli.
Fjölskyldan stækkar
„Þegar við opnuðum KORE í Granda mathöll óraði
okkur ekki fyrir þessum móttökum. Móttökunar í
Granda mathöll voru ævintýri líkastar og dag erum við
með mjög stóran hóp af fastakúnum og við heyrum fólk
oft tala um hvað það væri gott ef við værum á fleiri stöð-
um. Þegar við sáum Kringluna auglýsa eftir þátttöku í
nýju matartorgi sáum við það sem kærkomið tækifæri til
þess stækka við okkur.“
Að sögn Atla hafa viðtökurnar verið afar góðar. „Það
hefur aukist mikið að fólk sé að skjótast inn á Kringlu-
torg til okkar og grípa mat með sér. Við sjáum mikið af
sömu andlitunum aftur aftur sem er alltaf mjög góðs viti.
Samsetning veitingastaða á Kringlutorginu er mjög flott
og skemmtileg viðbót við aðra staði sem eru fyrir í hús-
inu. Staðirnir sem eru á nýja Kringlutorginu eru Fjár-
húsið, KORE, JÖMM, Tókýó sushi og Halab Kebab.“
KORE opnar í Kringlunni
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Í alfaraleið Nýja matartorgið í Kringlunni er í alfaraleið og þar eru spennandi veitingastaðir.
Vinsælir vængir Kjúklingavængirnir á KORE hafa
verið einstaklega vinsælir.
Á dögunum var opnað nýtt matartorg í
Kringlunni en þar kennir ýmissa grasa
eins og við er að búast. Einn vinsælasti
staðurinn í Granda mathöll opnaði þar
sitt annað útibú en hann ber nafnið
KORE og er svokölluð „steet food“-
búlla undir kóreskum áhrifum.