Morgunblaðið - 06.06.2019, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 06.06.2019, Blaðsíða 35
FRÉTTIR 35Erlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. JÚNÍ 2019 Xi Jinping, forseti Kína, hóf í gær þriggja daga opinbera heimsókn sína til Rússlands. Þar var honum tekið með opnum örmum af Vladimír Pútín Rússlandsforseta, en forset- arnir undirrituðu meðal annars nýja viðskiptasamninga auk þess sem Xi færði dýragarðinum í Moskvu tvær risapöndur í gjöf. „Pútín forseti er fyrir mér eins og besti vinur,“ sagði Xi við fjölmiðla eftir fund forsetanna tveggja. Sögð- ust þeir báðir mjög ánægðir með góð samskipti ríkjanna tveggja. „Við ákváðum að við myndum færa tvíhliða samband okkar á nýtt og hærra plan,“ sagði Xi jafnframt og bætti við að í því fælist að ríkin myndu veita hvort öðru gagnkvæm- an stuðning á nýjum tímum. Til merkis um það undirrituðu for- setarnir einnig sameiginlega yfirlýs- ingu ríkjanna tveggja um samstarf og samvinnu á sviði öryggis- og varnarmála. Þá undirrituðu fulltrúar kínverskra og rússneskra fyrirtækja ýmsa samstarfssamninga í tilefni af heimsókninni. Sneru sér til austurs Heimsókn Xis vakti athygli ekki síst þar sem hún kemur á sama tíma og leiðtogar vesturveldanna minnast innrásarinnar í Normandí, en Pútín tók þátt í hátíðahöldunum fyrir fimm árum, þrátt fyrir að Úkraínudeilan væri þá í hámæli. Sérfræðingar í málefnum Rúss- lands tjáðu AFP-fréttastofunni, að á þeim fimm árum sem liðin væru hefðu Rússar „snúið sér að“ Kína þar sem refsiaðgerðir vegna innlim- unar Krímskagans hefðu neytt þá til þess. Nú væri svo komið, að Kínverj- ar væru mikilvægasta viðskiptaþjóð Rússa. sgs@mbl.is Stefna að auknum tengslum milli Rússa og Kínverja  Xi heimsækir Pútín, sinn „besta vin“, til Moskvu AFP Heimsókn Vel fór á með þeim Xi og Pútín á fundi þeirra í Moskvu gær. Uppfinningamaðurinn Aidan Meller ræðir hér við upp- finningu sína, myndlistarvélmennið Ai-du, á meðan hún teiknar mynd af honum. Ai-da nýtir gervigreind til þess að skapa listaverk og eru verk hennar nú til sýnis í Oxford. Ai-da er nefnd eftir Adu Lovelace, enskum stærðfræðingi og frumkvöðli í tölvufræðum. AFP Myndlistarþjarki sýnir listir sínar Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Leiðtogar mótmælenda í Súdan höfnuðu í gær boði herforingja- stjórnarinnar um að hefja á ný við- ræður um framtíð landsins og kröfðust þess að þeir sem bæru ábyrgð á aðgerðum hersins á mánu- daginn, þegar hersveitir ruddu þau svæði sem mótmælendur höfðu tek- ið sér stöðu á í höfuðborginni Khartoum, yrðu látnir svara til saka. Samtök súdanskra lækna, sem starfað hafa með mótmælendum, héldu því fram í gær að tala fallinna eftir atburði mánudagsins hefði enn hækkað, og að minnsta kosti 101 maður hefði fallið þegar herinn hóf skothríð á mótmælendur. Sagði í yf- irlýsingu læknanna að um fjörutíu lík hefðu fundist á floti í ánni Níl. Læknir sem tjáði sig nafnlaust við AFP-fréttastofuna í gær sagði að ástandið á sjúkrahúsum Kharto- um væri mjög erfitt, og að þau væru flest yfirfull eftir aðgerðir hersins. Þá væri skortur á bæði mannafla og blóði til blóðgjafa og líklegt að tala fallinna myndi enn hækka á næstu dögum. Hershöfðinginn Abdel Fattah al- Burhan, leiðtogi herforingjastjórn- arinnar, sagði í gær að stjórn sín myndi taka „opnum örmum“ á móti fulltrúum mótmælenda til viðræðna og að engin skilyrði yrðu sett áður en þær hæfust. Amjad Farid, talsmaður fyrir SPA, ein helstu samtök mótmæl- enda, hafnaði hins vegar boði Bur- hans um viðræður. „Súdanska þjóð- in er ekki opin fyrir þessu herforingjaráði sem drepur fólk og við þurfum réttlæti og ábyrgð áður en hægt er að ræða um nokkra þró- un stjórnmálanna,“ sagði Farid við AFP-fréttastofuna. Boðaði hann jafnframt frekari friðsamar mót- mælaaðgerðir þar til hlustað yrði á kröfur mótmælenda um réttlæti. Komu í veg fyrir ályktun Ástandið í Súdan var rætt á lok- uðum fundi öryggisráðsins í fyrra- kvöld. Kínverjar beittu neitunar- valdi sínu til að koma í veg fyrir að ráðið fordæmdi aðgerðir hersins, og nutu þeir einnig stuðnings Rússa. Átta Evrópuríki sendu hins vegar frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem ofbeldi súdanskra öryggissveita gegn óbreyttum borgurum var for- dæmt. Þá lagði Bandaríkjastjórn áherslu á það að koma yrði aftur á borgaralegri stjórn í landinu, og ræddi David Hale, aðstoðarutanrík- isráðherra Bandaríkjanna, við Kha- lid bin Salman, aðstoðarvarnarmála- ráðherra Sádí-Arabíu um ástandið símleiðis í gær. Sádí-Arabar og Egyptar hafa verið á meðal helstu stuðningsmanna herforingjastjórn- arinnar, og hafa báðar þjóðir kallað eftir því að viðræður hæfust á ný á milli stjórnarinnar og mótmælenda. Hafna boði um viðræður við herforingjana  Meira en hundrað manns sagðir hafa látist í aðgerðum hersins á mánudag AFP Súdan Hátíðarhöld vegna Eid-al-fitr, síðasta dags Ramadan, fóru fram undir vökulu auga öryggissveita. Hershöfðinginn Prayut Chan-O-Cha, leiðtogi herfor- ingjastjórnarinnar í Taílandi, var í gær kjörinn fyrsti forsætisráðherra landsins frá því herinn tók völd árið 2014. Fyrstu þingkosningarnar frá þeim tíma voru haldnar í mars og naut flokkur Prayuts þar mikils fylgis. Helsti keppinautur Prayuts um embættið var hinn fer- tugi Thanathorn Juangroongruangkit. Sigur Prayuts þótti hins vegar vís, þar sem herinn hafði skipað megnið af þingmönnum efri deildarinnar, en 325 atkvæði þarf til að skipa meirihluta beggja deilda. Kjörinn í embætti forsætisráðherra Prayut Chan-O-Cha & 585 8800 Áratuga reynsla og þekking í fasteignaviðskiptum Kringlunni 4-6 | 103 Reykjavík | híbýli.is Ingibjörg Þórðardóttir löggiltur fasteignasali s. 864 8800 Þórður S. Ólafsson löggiltur fasteignasali Ólafur Már Ólafsson löggiltur fasteignasali s. 865 8515 ERTU Í SÖLU- HUGLEIÐINGUM Hafðu samband og við aðstoðum þig Bílaviðgerðir Almennar bílaviðgerðir fyrir tegundir bíla Opið mánudaga til fimmtudaga kl. 7.45-17.00, föstudaga kl. 7.45-16.00 Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is SAMEINUÐ GÆÐI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.