Morgunblaðið - 06.06.2019, Blaðsíða 61
ÍÞRÓTTIR 61
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. JÚNÍ 2019
Bezt áflest er gæðakrydd sem hentar vel með
flestummat. Kryddið inniheldur meðal annars
hvítlaukspipar, sítrónupipar, papriku og salt.
Kryddblandan er án allra aukaefna.
BEZTÁFLEST
Hvítlaukskryddblanda
HANDBOLTI
Danmörk
Annar úrslitaleikur um brons:
Skjern – Bjerringbro/Silkeborg ....... 32:28
Björgvin Páll Gústavsson var varamark-
vörður Skjern. Tandri Már Konráðsson
komst ekki á blað fyrir liðið.
Skjern vann einvígið 2:0 og þar með
bronsverðlaun.
Umspil HM kvenna
Noregur – Hvíta-Rússland ................. 31:28
Þórir Hergeirsson þjálfar Noreg.
Noregur á HM, 65:49 samanlagt.
Ungverjaland – Austurríki.................. 28:19
Ungverjaland á HM, 69:42 samanlagt.
Sviss – Danmörk................................... 14:26
Danmörk á HM, 61:36 samanlagt.
Þýskaland – Króatía............................. 25:21
Þýskaland á HM, 49:45 samanlagt.
Svartfjallaland – Tékkland.................. 25:23
Svartfjallaland á HM, 49:49 samanlagt.
Guðmundur Ágúst Kristjánsson er
í 2. sæti eftir fyrsta hring á Thisted
Forsikring-mótinu í golfi en það er
hluti af Nordic Tour-atvinnumótaröð-
inni. Guðmundur er einn þriggja sem
léku á -4 höggum í Álaborg í gær en
Norðmaðurinn Mats Heien er efstur
á -5 höggum. Guðmundur fékk sex
fugla en einn tvöfaldan skolla. Har-
aldur Franklín Magnús er á -3 högg-
um en Axel Bóasson í 82. sæti á +7.
Ítalski knattspyrnumarkvörðurinn
Gianluigi Buffon mun yfirgefa her-
búðir Paris SG þegar samningur hans
við félagið rennur út í lok mánaðar.
Hinn 41 árs gamli Buffon var í eitt ár
í París eftir 17 ár hjá Juventus, þar
sem hann varð ítalskur meistari níu
sinnum. Buffon hefur þó ekki tilkynnt
að hanskarnir séu komnir upp í hillu
þrátt fyrir að dvölin í París sé á
enda.
Eitt
ogannað
GOLF
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
Eftir vikur og mánuði á Symetra-
mótaröðinni, þar sem hún kveðst
ekki hafa notið sín, hefur Ólafía Þór-
unn Kristinsdóttir leikið á tveimur
síðustu mótunum á stóra sviðinu,
LPGA-mótaröðinni. Þar skemmti
hún sér mun betur og á US Open,
því golfmóti kvenna þar sem hæst
verðlaunafé er í boði, munaði litlu að
hún kæmist í gegnum niðurskurð.
Ólafía er nú mætt til New Jersey
á þriðja mót sitt í röð á LPGA-
mótaröðinni, ShopRite-mótið sem
hefst á morgun. Þessi 26 ára kylf-
ingur vonast eftir góðum árangri á
mótinu og horfir jafnframt til þess
að komast inn á næsta risamót,
KPMG-mótið 20. júní, sem yrði
hennar áttunda risamót. Þetta eru
mótin sem Ólafía vill spila á, en ár-
angur hennar í fyrra dugði ekki til
að fá fullan keppnisrétt á LPGA í ár
heldur aðeins takmarkaðan. Því hef-
ur hún til að mynda spilað á sex mót-
um á Symetra-mótaröðinni sem er
sú næststerkasta í Bandaríkjunum.
„Það er búið að vera mjög erfitt að
vera á Symetra-mótaröðinni. Ég er
ekki búin að finna mér gott hugarfar
þar. Það vantar einhvern eldmóð í
mig á þeim mótum og ég þarf að
finna eitthvað sem virkar. Það er
smá skellur að vera þar, og mér
finnst það ekki alveg jafngaman.
Þegar ég komst inn á Pure Silk-
mótið [á LPGA-mótaröðinni, 23.
maí] fann ég hvað allt var ótrúlega
skemmtilegt. Ég gleymdi mér alveg
við æfingar og var úti á vellinum í 11
klukkutíma, og það flæddi einhvern
veginn allt betur hjá mér. Þetta var
miklu skemmtilegra og mér fannst
ég vera að berjast fyrir einhverju,“
segir Ólafía við Morgunblaðið.
Hún var tveimur höggum frá því
að komast í gegnum niðurskurðinn á
US Open um síðustu helgi og
tryggja sér þar með verðlaunafé.
„Það gekk alveg mjög vel á
mótinu. Ég spilaði vel og fyrri dag-
inn féll meira með mér. Ég byrjaði
kannski ekkert rosalega vel en átti
svo miðkafla þar sem ég vann högg
til baka og á lokaholunni kom ég mér
aftur á parið. Seinni daginn spilaði
ég mjög svipað golf, en það var nátt-
úrlega búið að stilla „pinnanum“ upp
á erfiðum stöðum á flötunum, svo
það var aðeins erfiðara að setja nið-
ur púttin sem ég hafði verið að setja
niður daginn áður. Skorið var því
ekki eins gott seinni daginn.“
Góðar líkur á risamóti í júní
„Það var mjög erfitt að missa
svona af niðurskurðinum, þannig að
mér leið ekkert svakalega vel eftir
það. En spilamennskan er alveg að
fara í rétta átt og maður getur sætt
sig við þetta. Svona US Open-vellir
eru ekkert auðveldir. Það er nokkuð
gott að vera alveg við það að komast
í gegn á einu sterkasta móti ársins,
en það er ekki létt að sjá það frá því
sjónarhorni þegar maður er nýbúinn
að missa af því,“ segir Ólafía. Eins
og fyrr segir er hún með fleiri risa-
mót í sigtinu, en alls eru fimm risa-
mót á ári í golfi kvenna:
„Ég held að ég geti ekki komist á
Evian [25.-28. júlí] nema í gegnum
stöðu á stigalista og ég mun þurfa að
fara í úrtökumót fyrir Opna breska
[1.-4. ágúst]. En það eru svo góðar
líkur á að ég geti spilað á KPMG-
mótinu [20.-23. júní], annaðhvort
með því að fá boð eða með því að
standa mig vel á mótinu núna og
vinna mér inn sæti sjálf,“ segir
Ólafía, sem er því kannski ekki með
eins skýra dagskrá eins og í fyrra:
„Ég fékk til að mynda boðið á
þetta mót hér í New Jersey síðasta
föstudagsmorgun. Þetta fer bara
eftir því hversu margar ákveða að
taka þátt á hverju móti, og vikan eft-
ir US Open er frekar erfið svo fleiri
hætta við þátttöku. Það var líka yfir
38 gráða hiti á mótinu og því eðlilegt
að fólk vilji taka sér pásu. Þetta var
alveg klikkað. Ég var með blautt,
kalt handklæði utan um hálsinn á
mér, sólarhlíf, drakk nóg og reyndi
að gera allt rétt til að eiga við þetta
því hitinn var bara mjög brútal.“
Miklu skemmtilegri mót
Ólafía ekki fundið eldmóðinn á Symetra-mótaröðinni Nokkuð góð á US
Open en erfitt að missa af niðurskurðinum Mætt á sitt þriðja LPGA-mót í röð
Ljósmynd/@olafiakri
LPGA Ólafía Þórunn Kristinsdóttir hefur á morgun leik í New Jersey á sínu
þriðja LPGA-móti í röð. Hún fékk boð á mótið síðastliðinn föstudag.
Körfuknattleikskonan Auður Íris
Ólafsdóttir er snúin aftur „heim“ til
Hauka og hefur gert samning til
tveggja ára við félagið. Hún var síð-
ast hjá Stjörnunni en var einnig um
tíma hjá Skallagrími og Breiðabliki
eftir að hún fór frá Haukum 2016.
„Ég er spennt að fá spila með
litlu systur og spila í Ólafssal,“ seg-
ir Auður, en Sigrún systir hennar
leikur með Haukum og nýr heima-
völlur liðsins er nefndur í höfuðið á
föður þeirra, Ólafi E. Rafnssyni
heitnum. Auður var valin varn-
armaður ársins í vor.
Systurnar saman
í „pabbasal“
Morgunblaðið/Eggert
Öflug Auður Íris Ólafsdóttir átti
góða leiktíð með Stjörnunni í vetur.
Íslandsmeistarar Selfoss í hand-
knattleik karla hafa ákveðið að
skrá lið sitt til leiks í Meistaradeild
Evrópu á næstu leiktíð. Dregið
verður í keppninni 26. júní og þá
verður ljóst hvort Selfoss fer í for-
keppni eða beint í riðlakeppnina
þar sem liðið fengi að reyna sig við
afar erfiða andstæðinga. Ísland er í
17. sæti af 42 þjóðum á styrk-
leikalista EHF og því ekki útilokað
að Selfoss sleppi við forkeppni.
Selfoss er enn án þjálfara eftir að
Patrekur Jóhannesson tók við
Skjern í Danmörku.
Selfoss ætlar í
Meistaradeildina
Ljósmynd/Guðmundur Karl
Meistarar Grímur Hergeirsson,
fyrirliði, með verðlaunagripinn.
Handknattleiksmaðurinn Árni Bragi Eyjólfsson hefur
skrifað undir tveggja ára samning við danska úrvals-
deildarfélagið KIF Kolding og er genginn til liðs við það
frá Aftureldingu.
Árni Bragi er 24 ára gamall örvhentur hornmaður
sem einnig getur spilað í skyttustöðunni. Hann hittir fyr-
ir Ólaf Gústafsson hjá Kolding, en liðið rétt slapp við fall
úr dönsku úrvalsdeildinni í vor. „Ég mun gera allt sem í
mínu valdi stendur til að hjálpa liðinu að komast aftur á
meðal þeirra bestu þar sem það á heima,“ sagði Árni
Bragi við heimasíðu Kolding.
KIF Kolding er sigursælasta handknattleikslið Dan-
merkur og hefur 14 sinnum hampað meistaratitlinum. Það hefur þó gengið
í gegnum rekstrarerfiðleika og síðasta haust var meðal annars óskað eftir
því að félagið yrði tekið til gjaldþrotaskipta. Áður en til þess kom fengust
þó nýir eigendur að borðinu og björguðu félaginu frá þroti. yrkill@mbl.is
Árni Bragi á sigursælar slóðir
Árni Bragi
Eyjólfsson