Morgunblaðið - 06.06.2019, Qupperneq 6
Jón Magnús Kristjánsson, yfirlæknir
á slysa- og bráðadeild Landspítalans,
segir skráðar komur á deildina vegna
trampólínslysa 50 það sem af er þessu
ári.
Árið 2012 leituðu 232 á slysadeild
vegna trampólínslysa, 169 árið eftir,
163 árið 2014, einum færri 2015 og
170 árið 2016. Metár í komum var
2017, en þá komu 296 á slysadeild
vegna trampólínslysa og 159 í fyrra.
Að sögn Jóns Magnúsar eru beinbrot
og tognun algengustu meiðslin.
Fá slys á landsbyggðinni
Pálmi Óskarsson, forstöðulæknir
bráðamótttöku SAK, segir að ekki
séu skráð sérstaklega slys sem gerast
á trampólínum eða ærslabelgjum.
Hann segir fáar komur vegna slysa á
slíkum leiktækjum og að ekkert al-
varlegt slys hafi orðið. ge@mbl.is
Á annað hundrað
trampólínslys á ári
50 leitað á bráða- og slysadeild í ár
Fjör Hoppað og skoppað á trampólíni.
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. JÚNÍ 2019
sp
ör
eh
f.
Sumar 29
Þessi glæsilega ferð í Suður-Frakklandi er um héruð þar sem
landslag, menning og mannlíf leika aðalhlutverk í einstöku
samspili. Gamla virkisborgin Avignon er ein glæsilegasta
borg Frakklands og þaðan verður farið m.a. til borgarinnar
Arles þar sem Van Gogh heillaðist forðum og málaði margar
af sínum frægustu myndum. Ferðin endar í Annecy þar sem
farin verður ógleymanleg sigling á Annecy vatni.
1. - 9. september
Fararstjórn: Þórdís Erla Ágústsdóttir
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Verð: 249.900 kr. á mann í tvíbýli. ÖRFÁ SÆTI LAUS
Mjög mikið innifalið!
Avignon & Annecy
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
„Þetta gæti tafið björgunar-
aðgerðir okkar um marga klukku-
tíma, jafnvel hálfan eða heilan sól-
arhring,“ segir Jónas
Guðmundsson, verkefnastjóri hjá
Slysavarnafélaginu Landsbjörg,
um þær fréttir sem fluttar voru í
gær að ein aðalleiðin upp á Vatna-
jökul væri orðin ófær farartækjum
vegna aurbleytu sem orsakast af
hopi Tungnaárjökuls vegna lofts-
lagsbreytinga.
Jónas segir að á undanförnum
árum og áratugum hafi björgunar-
sveitirnar margsinnis lagt leið sína
á Vatnajökul til að leita að fólki og
aðstoða fólk sem lent hefur í vand-
ræðum þar. „Leiðin að vestan um
Jökulheima og Tungnaárjökul er
önnur algengasta leiðin sem sveit-
irnar fara,“ segir hann, enda verði
atvikin oft vestan megin á Vatna-
jökli þar sem mesta umferðin um
jökulinn sé. „Ferðafólk laðast að
Grímsvatni og Grímsfjalli, þar er
skáli og jarðhiti,“ segir Jónas.
„Þannig að þetta getur vissulega
sett strik í reikninginn verði þörf
fyrir viðamiklar björgunaraðgerðir
á þessum slóðum,“ segir hann.
Jónas segir að útlitið sé þó ekki
alsvart. Hann bendir á að öflugir
jöklabjörgunarmenn séu til dæmis
á Höfn í Hornafirði og þekki þeir
svæðið eins og lófann á sér og vinni
auk þess margir við ferðaþjónustu
við jökulinn.
Eins og fram kom í Morgun-
blaðinu í gær þurfti Jöklarann-
sóknarfélagið í vorrannsóknarleið-
angri sínum að þessu sinni að fara
upp á Vatnajökul að austanverðu
um Skálafellsjökul og Jöklasel. Það
er 510 kílómetra leið frá Reykjavík,
en leiðin um Tungnaárjökul sem nú
er lokuð er 270 km.
Miklar umhverfisbreytingar
Magnús Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Vatnajökulsþjóð-
garðs, segir að miklar umhverfis-
breytingar séu að verða innan
þjóðgarðsins og nýtt land að koma
undan ísnum. „Þetta er síbreytilegt
umhverfi,“ segir hann. Stjórnendur
þjóðgarðsins fylgist vel með og vilji
eiga samstarf og samtal við björg-
unarsveitirnar, ferðaþjónustufyrir-
tæki og aðra aðila sem láti sig þessi
mál varða um það hvernig bregðast
eigi við. Hann segir að ekki sé vitað
hversu margir leggi leið sína upp á
jökulinn árlega en með mótun at-
vinnustefnu fyrir þjóðgarðinn, sem
nú sé unnið að, ætti að fást yfirsýn
yfir fjölda ferðaþjónustufyrirtækja
og umfang starfseminnar.
Skálafellsjökulleið greið
Guðbrandur Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri Vatnajökull Travel á
Höfn í Hornafirði, hefur fjörutíu
ára reynslu af ferðaþjónustu upp á
Vatnajökul. Hann segir að gífur-
legar breytingar hafi orðið á um-
hverfinu á síðustu árum. Aftur á
móti sé leiðin upp á jökul frá Höfn
um Skálafellsjökul greið og hana
muni björgunarsveitir væntanlega
fara oftar eftir að leiðin um
Tungnaárjökul lokaðist. Einnig sé
leið upp á Vatnajökul um Breiða-
merkurjökul, en þar séu þó einnig
verða umhverfisbreytingar.
Guðbrandur segir að mikill fjöldi
fólks leggi leið sína upp á Vatna-
jökul í skipulögðum dagsferðum.
Þeir hópar fari þó ekki langt inn á
jökulinn. Það geri aftur á móti leið-
angrar erlendra ferðamanna og
það séu jafnframt þeir sem oftast
lendi í vandræðum á jöklinum.
„Eitt árið þurfum við að aðstoða
fjóra af fimm slíkum leiðöngrum
sem komið höfðu sér í ógöngur,“
segir hann.
Morgunblaðið/RAX
Vatnajökull Grímsvötn og þverhníptir hamrar Grímsfjalls en uppi á því eru skálar Jöklarannsóknafélagsins.
Gæti tafið ferðir björgun-
arsveita á Vatnajökul
Önnur aðalleiðin á jökulinn ófær farartækjum
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Endurreisn lífríkis Andakílsár í
Borgarfirði gengur vel að mati um-
hverfis- og landgræðslustjóra Orku
náttúrunnar (ON). Í sumar og næsta
sumar er sleppt laxaseiðum úr klaki
ársins 2017 í þeim tilgangi að mæta
afföllum sem urðu það ár. Kostnaður
ON við endurreisn lífríkis árinnar frá
árinu 2017 til dagsins í dag er orðinn
um 65 milljónir króna.
Lífríki árinnar varð fyrir skakka-
föllum þegar Orka náttúrunnar
tæmdi lón fyrir ofan Andakílsár-
virkjun vorið 2017 með þeim afleið-
ingum að set barst niður í ána og lok-
aði veiðihyljum og hrygningar-
stöðum laxfiska.
ON ber kostnaðinn
Orka náttúrunnar hefur tekið
ábyrgð á tjóninu og unnið að endur-
reisn lífríkisins í samvinnu við Veiði-
félag Andakílsár og sérfræðinga
Hafrannsóknastofnunar. Veiði hefur
verið bönnuð síðan atvikið varð en
stefnt er að því að veiði hefjist á ný
næsta sumar. ON keypti veiðileyfin í
ánni þessi þrjú ár til þess að draga úr
tjóni veiðiréttarhafa og leigutakans
sem er Stangveiðifélag Reykjavíkur.
Umhverfisslysið varð til þess að
engin seiði af 2017-árganginum skil-
uðu sér í ána og aðeins hluti af 2016-
árganginum. Til að bæta laxastofn-
inum þetta upp voru laxar teknir í
klak haustið 2017 og er seiðum úr því
klaki sleppt í ána í sumar og næsta
sumar, 30 þúsund hvort ár, að sögn
Magneu Magnúsdóttur, umhverfis-
og landgræðslustjóra ON.
Ganga úr sleppitjörnum
Útbúnar voru tvær sleppitjarnir
við ána og seiðin sett þar út í. Þau eru
fóðruð fyrst um sinn en síðan verður
opnuð rás út í ána til þess að þau geti
synt sína leið þegar þau verða tilbúin
að takast á við villta náttúru.
Magnea segir að athuganir Haf-
rannsóknastofnunar bendi til þess
að lífríki árinnar endurreisi sig hratt
en ekki sé hægt að segja til um það
nú hvenær það verði komið í samt
lag.
Endurreisn lífríkisins gengur vel
30 þúsund seiðum sleppt í Andakílsá til að bæta henni upp seiðadauðann eftir umhverfisslysið 2017
Kostnaður Orku náttúrunnar orðinn 65 milljónir Stefnt að því að veiðar geti hafist að nýju að ári
Ljósmynd/Magnea Magnúsdóttir
Í Andakíl Laxaseiðum dælt í sleppitjörn. Síðar verður opnuð rás út í ána og þau geta synt á vit ævintýranna.