Morgunblaðið - 06.06.2019, Page 34

Morgunblaðið - 06.06.2019, Page 34
34 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. JÚNÍ 2019 KRINGLAN – DUKA.IS 1. Salatvinda verð frá 6.490 kr. 2. Sósuhristari verð frá 2.790 kr. 3. Pizzaskeri verð 2.190 kr. 4. Y skrælari verð 1.990 kr. 5. Ísskeið verð 2.790 kr. 6. Dósaupptakari verð 3.690 kr. 7. Hvítlaukspressa verð 4.190 kr. 8. Avocadoskeri verð 2.190 kr. 9 Laukskeri verð 4.590 kr. 10. Green Saver geymslubox fyrir grænmeti verð frá 3.390 kr. 1 2 3 9 10 4 5 6 7 8 6. júní 2019 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 123.33 123.91 123.62 Sterlingspund 156.43 157.19 156.81 Kanadadalur 91.79 92.33 92.06 Dönsk króna 18.574 18.682 18.628 Norsk króna 14.169 14.253 14.211 Sænsk króna 13.063 13.139 13.101 Svissn. franki 124.12 124.82 124.47 Japanskt jen 1.1417 1.1483 1.145 SDR 170.6 171.62 171.11 Evra 138.71 139.49 139.1 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 168.5623 Hrávöruverð Gull 1323.6 ($/únsa) Ál 1763.0 ($/tonn) LME Hráolía 61.0 ($/fatið) Brent Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Icelandair Group hyggst 28. júní næstkomandi greiða eftirstöðvar skuldabréfaflokks sem upphaflega var upp á 190 milljónir dollara. Eftirstöðvar skuldabréfsins eru um þessar mundir 76 milljónir dollara. Félagið hefur unnið að því að greiða upp flokkinn í kjölfar þess að rekstur fé- lagsins þyngdist á árinu 2018. Við það komust skilmálar skuldabréfaútgáfunnar í uppnám. Þann 12. mars síðastliðinn sló Iceland- air 10 milljarða lán hjá Landsbanka Ís- lands og var hluti andvirðis þess nýttur til að greiða inn á skuldabréfið og nam síðasta innágreiðsla 56 milljónum doll- ara. Hluti lánsfjárins var nú nýttur til að gera bréfið upp en þá sótti félagið einnig 47 milljónir dollara nýverið með útgáfu nýs hlutafjár sem bandaríski fjárfest- ingasjóðurinn PAR Capital keypti. Icelandair greiðir upp stóran skuldabréfaflokk STUTT BAKSVIÐ Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Óli Björn Kárason, formaður efna- hags- og viðskiptanefndar Alþingis, segir að endurskoða þurfi allt gjalda- og álagningarkerfi á áfengi með það í huga að reyna að stuðla að verðsamkeppni, með hagsmuni ís- lenskra neytenda í huga. „Hins veg- ar er þetta að einhverju leyti líka spurning um samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar hér á landi. En það er á brattann að sækja í þessu,“ sagði Óli Björn er Morgunblaðið innti hann eftir viðbrögðum við fréttum gærdagsins um að verð á Stella Artois-bjór í 33 cl flöskum hefði hækkað um 59% um mánaða- mótin, sem tengist reglum ÁTVR um svokölluð verðboð. Lækkaði um 40% 1. mars Eins og sagði í frétt í Morgun- blaðinu og mbl.is fyrr á árinu lækk- aði verðið á vörunni skyndilega um tæplega 40% 1. mars sl. Verðlækk- unin kom til vegna fyrrnefnds verð- boðs, þegar heildverslunin Costco gerði tilraun til að fá umboð fyrir sölu á vörunni í Vínbúðunum. Fór svo að Vínnes, umboðsaðili Stella Artois, bauð lægra, en samkvæmt reglum ÁTVR varð að festa tilboðs- verðið í þrjá mánuði. Nú eru þeir þrír mánuðir liðnir, og varan því aft- ur orðin nær jafn dýr og áður og ekki verður efnt að nýju til verðboðs fyrr en 12 mánuðum frá hinu síð- asta. Þorsteinn Víglundsson alþingis- maður segir að sér finnist innkaupa- reglur ÁTVR „mjög áhugaverðar“. Hann segir að Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, hafi meðal annars fundið að núgildandi innkaupa- reglum ÁTVR, og sagt þær ekki uppfylla alveg skuldbindingar Ís- lands varðandi samkeppni á Evr- ópumarkaði. „Mér finnst þetta vera lýsandi dæmi um slíkt. Það er dálítið sérstakt þegar gerð er verðkönnun sem þessi og að lægstbjóðandi hljóti ekki einfaldlega samninginn, heldur snúi menn sér við og bjóði þeim sem ekki var lægstbjóðandi að gera bet- ur, af því að hann haldi á samn- ingnum. Það er sjaldnast þannig og mjög sérstakt að gera þá ekki meiri kröfur um að verð haldi sér að minnsta kosti út verðkönnunartíma- bilið,“ segir Þorsteinn í samtali við Morgunblaðið. Hagsmuni neytenda í forgrunn Þorsteinn segir að fyrirtæki í eðli- legu samkeppnisumhverfi myndu ekki láta bjóða sér þetta. „En grundvallaratriðið í þessu er, alveg sama hver varan er, og út frá al- mennu verðlagi hér þegar horft er til ríkisrekinna fyrirtækja, að við verðum alltaf að ýta undir sem mesta samkeppni. Sérstaklega þeg- ar horft er til ríkisrekinna fyrir- tækja í einokunarstöðu. Þau verða að hafa mjög skýra sýn á að hags- munir neytenda séu í forgrunni, og ýta því undir ávinning af samkeppni, í það minnsta á milli birgja.“ Endurskoða þurfi gjalda- og álagningarkerfi á áfengi Morgunblaðið/Eggert Samkeppni Costco vildi fá að selja Stella Artois-bjór í Vínbúðunum en Vínnes bauð betur í verðboði ÁTVR. Bjórsala » Stella Artois í 33 cl flöskum er nú 59% dýrari en hún var út maímánuð þegar hún kostaði 219 krónur. » Verð á bjórnum er 349 krón- ur en var 359 krónur í febrúar. » Sama vara kostar 213 krón- ur í Costco. » Costco má ekki bjóða aftur í bjórinn fyrr en í febrúar á næsta ári.  Spurning um samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar Ýta þarf undir samkeppni Óli Björn Kárason Þorsteinn Víglundsson Í nýrri þjóðhagsspá Íslandsbanka sem birt er í dag kemur fram að bankinn spáir 0,7% samdrætti vergrar landsframleiðslu á yfir- standandi ári. Bendir bankinn á að samdráttur í ferðaþjónustu og minnkandi fjárfesting atvinnuvega eigi þar stærstan hlut að máli. Hins vegar gerir bankinn ráð fyrir því að strax á næsta ári taki landið að rísa á ný og að þá verði hagvöxtur 1,5%, einkum drifinn áfram af einka- neyslu og fjárfestingu í íbúðarhús- næði og innviðum. Þá gerir bankinn ráð fyrir enn meiri krafti í hagkerf- inu á árinu 2021 þegar spáð er 2,7% hagvexti með auknum þrótti í fjár- festingu atvinnuvega og útflutningi. Samkvæmt spá bankans mun út- flutningur dragast saman um 5% í ár og að hann taki í raun ekki við sér að nýju fyrr en á árinu 2020. Þá er gert ráð fyrir að viðskiptaafgangur hverfi á spátímanum til 2021. Þannig verði afgangurinn um 2% af vergri lands- framleiðslu á þessu ári en aðeins 0,2% árið 2021. Bankinn segir að verðbólguþrýst- ingur hafi náð hámarki nú og að meðalverðbólga á árinu verði 3,2% en að í lok spátímans verði hún kom- in niður í 2,9%. Á komandi misserum má gera ráð fyrir auknu atvinnuleysi að mati bankans, það verði 3,6% í ár og að á næsta ári verði það um 4%.Við sjón- deildarhringinn sér bankinn frekari vaxtalækkanir og telur hann að stýrivextir muni því fara undir 4% fyrir lok þessa árs. ses@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Samdráttur Ferðaþjónustan dregst verulega saman á þessu ári. Spáir 0,7% sam- drætti á þessu ári  Íslandsbanki segir verðbólgu hafa náð hámarki

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.