Morgunblaðið - 06.06.2019, Side 59
ÍÞRÓTTIR 59
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. JÚNÍ 2019
Ég get ekki annað sagt en
að meðferðin sem Björgvin
Stefánsson hefur fengið hjá
knattspyrnuyfirvöldum hér á
landi sé ómannúðleg. Rasísk
ummæli hans voru skelfileg, það
dylst engum, og við blasir að
þau kalli á refsingu í formi leik-
banns, en Björgvin á ekki skilið
að þurfa að bíða svona lengi í
nagandi óvissu um framhaldið.
Björgvin var ekki upp á sitt
besta í fyrstu tveimur leikjunum
eftir að málið kom upp, og spil-
aði ekki í leiknum við KA á
sunnudag. Þarna eru komnir
þrír leikir sem best væri auðvit-
að að hefðu verið hluti af leik-
banni hans, verði það fimm
leikja bann eins og mér finnst
hann algjörlega verðskulda.
Auðvitað þarf aganefnd
einhvern tíma til að komast að
niðurstöðu. Ég geri mér grein
fyrir því að málið er um margt
einstakt hér á landi og regl-
urnar kannski ekki nægilega
skýrar. Ef Björgvin hefði orðið
uppvís að sínum rasískum um-
mælum í leik með KR virðist
skýrt að hann ætti yfir höfði sér
að minnsta kosti 5 leikja bann.
En ummælin féllu í vefvarpslýs-
ingu í sjálfboðavinnu fyrir
Hauka. Skiptir það máli? Ber að
refsa Haukum? Var Björgvin
áhorfandi og ætti hann þar með
að sæta tveggja ára leikvallab-
anni?
En hver svo sem ástæðan
er fyrir seinaganginum þá er
biðin orðin of löng fyrir Björg-
vin. Þetta gengur ekki og það
hljóta allir að sjá. Málið hlýtur
að kalla á breytt verklag aga-
nefndar í framtíðinni. Leikur
Hauka og Þróttar fór fram 23.
maí. Sama kvöld baðst Björgvin
innilega afsökunar á ummælum
sínum, þó það nú væri, og hlut-
aðeigandi félög brugðust við.
Síðan hafa liðið tvær vikur. Það
er einfaldlega of langur tími.
BAKVÖRÐUR
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
þá er þetta mjög rútínerað lið og það
skiptir ekki öllu máli hvaða leikmenn
koma og fara þarna. Þær eru mjög
sterkar og það má auðvitað ekki
gleyma því.“
Minnir á 31 marks sigurinn
Í vangaveltum um möguleika Ís-
lands í kvöld nefnir Helena sigurinn
á Aserbaídsjan í undankeppninni
fyrir umspilið, þegar Ísland þurfti 27
marka sigur og vann 49:18.
„Í Makedóníu [þar sem und-
ankeppnin fór fram] unnum við stór-
sigur þegar við þurftum á því að
halda. Það var mjög erfitt verkefni
en við kláruðum það og komum okk-
ur í þessa leiki við Spán. Munurinn
er núna níu mörk, eftir að við unnum
seinni hálfleikinn með fimm marka
mun. Ef við vinnum hvorn hálfleik
með fimm marka mun núna þá kom-
umst við á HM. Þetta er ekki
ómögulegt. Við þurfum að hafa trú
og vera einbeittar,“ segir Helena.
Krefjandi en góð dvöl í Dijon
Helena, sem er 25 ára gömul, lék
með Dijon í efstu deild Frakklands
frá áramótum eftir að hafa verið hjá
Byåsen í Noregi og Stjörnunni áður.
„Ég er mjög ánægð með að hafa
tekið þetta skref. Staðan var erfið
hjá Byåsen þar sem ég var að fá
minn þriðja þjálfara á einu og hálfu
tímabili, svo það var skemmtilegt að
fá þetta tækifæri. Franska deildin er
skemmtileg, ólík bæði norsku og ís-
lensku deildinni, og ég hef lært heil-
mikið af að vera í þessu umhverfi og
í annars konar æfingum. Auðvitað
var líka krefjandi að vera þarna
vegna tungumálsins, ég var eini út-
lendingurinn í liðinu og stelpurnar
misgóðar í ensku, en þær voru ótrú-
lega fínar og ég lærði heilmikið,“
segir Helena.
Dijon var eitt fjögurra liða sem
þurftu að fara í sérstakt fallumspil
en lék vel þar og vann fyrstu fjóra
leiki sína, og þar með var sætið í
efstu deild tryggt. Helena kveður
liðið því á svipuðum stað og þegar
hún kom til þess í janúar:
„Ég verð ekki þarna áfram en það
er svolítið óljóst hvar ég verð á
næstu leiktíð. Þetta fer vonandi á
fullt eftir landsleikina. Mig langar að
vera áfram úti svo að það er á dag-
skránni.“
Ekki ómögulegt en komum
okkur í mjög erfiða stöðu
Ísland þarf tíu marka sigur í kvöld til að ná á HM Helena hætt hjá Dijon
Ljósmynd/Robert Spasovski
Undankeppnin Helena Rut Örvarsdóttir fagnar marki fyrir Ísland í undankeppni HM í Skopje fyrr í vetur.
HM 2019
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
Íslenska kvennalandsliðið í hand-
bolta þarf á hálfgerðu kraftaverki að
halda til að komast áfram í loka-
keppni HM. Reyndar er það þannig
með kraftaverkin að þau gerast
reglulega í heimi íþróttanna en í
kvöld þarf Ísland að vinna upp níu
marka forskot Spánverja eftir 35:26-
sigur í Málaga. Liðin mætast í Laug-
ardalshöll kl. 19:45.
„Þetta verður gríðarlega erfiður
leikur og við settum okkur í mjög
erfiða stöðu með síðasta leik, sér-
staklega fyrri hálfleiknum. Fyrst og
fremst þurfum við núna að koma inn
í leikinn bara til þess að vinna hann.
Við vinnum svo bara úr þeirri stöðu
sem upp kemur,“ segir Helena Rut
Örvarsdóttir landsliðskona. Útlitið
er raunar skárra nú en eftir fyrri
hálfleikinn í Málaga því þá var stað-
an 21:7.
„Fyrri hálfleikurinn er í hálf-
gerðri móðu. Mér fannst við mjög
vel undirbúnar, við vissum hvað þær
kæmu með og höfum verið að taka
skref upp á við bæði í vörn og sókn.
Við byrjuðum mjög illa en vissum að
Spánverjar eru mjög öflugir á fyrstu
mínútunum, og þó að við lentum 7:1
undir náðum við að laga stöðuna í 8:5
sem er bara þokkalegt. En seinni
hlutann í fyrri hálfleik keyrðu þær
bara yfir okkur. Þær fengu allt of
mörg auðveld mörk og þessi fyrri
hálfleikur var klárlega mjög léleg-
ur,“ segir Helena, en ekki má gleym-
ast að þó að tapið síðasta föstudag
líti út eins og skref aftur á bak fyrir
Ísland þá er Spánn með sterkt lið:
„[Nerea] Pena er einn albesti leik-
maður heims og Spánverjar hafa
alltaf verið með gott lið. Þetta er
mjög „rútínerað“ lið, sem er alltaf á
stórmótum og er í algjörum heims-
klassa. Þó að þær rokki upp og niður
www.gilbert.is
SJÓN ER SÖGU RÍKARI Ada Hegerberg, sem útnefnd var knattspyrnukona árs-
ins 2018, hefur opnað sig enn frekar um ástæðu þess að
hún er hætt að gefa kost á sér í norska landsliðið og
verður ekki með á HM sem hefst í Frakklandi á morgun.
Hegerberg hefur verið gagnrýnin á norska knatt-
spyrnusambandið fyrir metnaðarleysi í garð kvenna-
landsliðsins og ítrekar það, en í nýju viðtali við norska
tímaritið Josimar segir hún álag einnig hafa átt stóran
þátt. Hún fór meðal annars 15 ára gömul með U19 ára
landsliðinu á EM 2011 og vakti fljótt athygli.
„Þetta var mjög erfitt andlega. Ég var farin að fá mar-
traðir eftir verkefni með landsliðinu. Það er ekki eðli-
legt og um leið og ég leiddi hugann að því að hætta í landsliðinu þá fór ég
aftur að sofa vel,“ segir Hegerberg, sem hætti með landsliðinu árið 2017.
Í stað þess að spila á HM verður hin 23 ára gamla Hegerberg, sem varð
Evrópumeistari með franska liðinu Lyon í vor, í hlutverki sérfræðings um
keppnina í sjónvarpi. yrkill@mbl.is
Martraðir fylgdu landsliðinu
Ada
Hegerberg
Aga- og úrskurðarnefnd KSÍ frestaði
því í gær að birta úrskurð sinn í máli
Björgvins Stefánssonar, leikmanns KR,
fyrir rasísk ummæli sem hann lét falla í
útsendingu Haukar TV í leik á dög-
unum.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins er úrskurðurinn nokkuð
flókinn og fordæmalaus þar sem Björg-
vin er leikmaður KR en hafi starfað fyr-
ir Hauka á umræddum leik. Brotið geti
náð yfir nokkrar reglugerðir og ekki sé
heldur augljóst hvort félagið skuli sekta
ef svo færi að niðurstaðan yrði á þá leið.
Hún verður opinber fyrir vikulok.
Seinka því að
birta úrskurð
Morgunblaðið/Hari
Aganefnd Björgvin Stefánsson
er enn að bíða eftir niðurstöðu.