Morgunblaðið - 06.06.2019, Page 68

Morgunblaðið - 06.06.2019, Page 68
68 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. JÚNÍ 2019 Stereo Hypnosis hefur veriðtil í einhverri mynd frá þvíárið 2006 þegar sveitin varstofnuð í Flatey. Það er nokkur sérstaða sem þessi hljóm- sveit býr yfir, og fyrst má nefna að hún inniheldur feðga sem brúa jafn- framt bilið milli tveggja kynslóða til- raunakenndrar raftónlistar á Ís- landi. Óskar Thorarensen er einn liðsmanna hinnar stórmerkilegu sveitar Inferno 5 og sonur hans Pan Thorarensen bætir ambient-tónlist með náttúruhljóðum og -upptökum saman við tilraunakenndan vinkil Óskars, og útkoman er svo styrkt og byggð upp með gíturum og rafhljóð- um frá Þorkeli Atlasyni. Stereo Hypnosis ber einnig ábyrgð á fyrstu raftónlistarhátíð Íslands, Extreme Chill, sem hefur verið árlegur við- burður síðan árið 2009 þegar sveitin hélt útgáfutónleika sína á Hellis- sandi á Snæfellsnesi. Strax ári síðar, árið 2010, var fyrsta Extreme Chill- hátíðin haldin og hefur hún teygt anga sína út fyrir landsteinana og stendur meðan annars fyrir viðburð- um í Berlín. Þess má geta að tíunda hátíðin er á dagskrá í Reykjavík í haust. Christopher Chaplin er ekki síður merkilegur, en hann er yngsti sonur Charles Chaplin og fjórðu konu hans, fæddur í Sviss en flutti til Eng- lands til að einbeita sér að leiklist. Frá því árið 2005 hefur hann hins vegar fengist að mestu við tón- smíðar og hefur bæði gefið út sóló- plötur og unnið í samvinnu við hina og þessa merka tónlist- armenn um víða veröld. Þessi samvinna hans og Stereo Hypnosis er hans nýjasta og inniheldur plat- an Bjarmi lifandi upp- tökur frá því 6. júlí 2018 þegar Stereo Hypnosis og Chaplin ákváðu að koma upptökustúdíói fyrir á Hvamms- tanga og hljóðrita þar snarstefjaða plötu. Þegar sjálf tónlistin er skoðuð er um mikið flæði að ræða með draum- kenndum framvindum, sjávarhljóð- um, fuglahljóðum, óræðum töktum og flökti. Heildarhljómurinn stað- setur hlustandann með fæturna kirfilega á jörðinni í náttúrunni en höfuðið inni í öðrum heim- um eða jafnvel öðrum víddum. Lýsingarorðið „yfirnáttúrulegt“ hefur aldrei átt jafnvel við nokkra þá plötu sem ég hef hlustað á. „Klif“ (9:41) er ná- kvæmlega eins og nafnið bendir til, byrjun á einhverju og einnig á sama tíma sífelld end- urtekning. Þetta er listilega samin eilíf byrjun sem endurtekur sig en heldur samt áfram, ekkert ósvipað því að vera í fjallgöngu og hugsa með sér: „Urð og grjót, uppí mót, ekkert nema urð og grjót.“ Þegar endurtekningin er orðin markmiðið hættir hún að endurtaka sig og verð- ur leiðin. Við tekur „Heiði“ (8:45) sem færir okkur upp á lygnar sléttur þar sem hægt er að dvelja um stund og velta fyrir sér draumalandslaginu. Í þriðja laginu, „Heggur“ (9:53), kveð- ur við harðari tón í bland við hið draumkennda og þarna spilar gít- arinn stóra rullu í framvindunni. Það er jafnframt eitthvað yndislega breskt og heiðið við þetta lag, og detta mér í hug hljómsveitir á borð við Dead can dance, sem hafa fengist við þennan dularfulla og seremón- íska hljóðheim svo áratugum skiptir. Lokalagið er „Tangi“ (9:54) og þar er ferðalagið komið niður að sjó en jafnframt erum við einhvern veginn á ókunnum slóðum. Það er afar erfitt að greina mörk þess raunverulega og óraunverulega í hljóðheimi Bjarma, enda er Bjarmi ljósið sjálft og ef maður starir inn í það verður jafnvel hið skýrasta óskýrt. Þessi plata er í raun öll fjög- ur lögin saman og mér hefur gengið best að láta hana rúlla og búa til ákveðið andrúmsloft þegar ég er að vinna eitthvað skapandi, eða þegar ég er úti að labba með heyrnartól. Hún bætir heilmiklu við raunheim- inn og minnir mann á að það er mik- ilvægt að stoppa í andartakinu og leggja við hlustir. Náttúrulega yfirnáttúrulegt Morgunblaðið/Styrmir Kári Geisladiskur Stereo Hypnosis & Christopher Chaplin - Bjarmibbbbn Útgefið þann 12. apríl 2019 á Spotify, Bandcamp og á geisladiski. Inniheldur fjögur lög. Heildartími er 38.16 mínútur. Liðsmenn Stereo Hypnosis eru Óskar Thorarensen sem leikur á hljómborð, Pan Thorarensen sem sér um umhverf- isupptökur og rafeindahljóð, Þorkell Atlason leikur á gítara og sér um raf- eindahljóð. Breski raftónlistarmaðurinn Christopher Chaplin leikur á hljómborð og sér um rafeindahljóð. Þorkell Atla- son hljóðvinnur og hljóðblandar og Frosti Jónsson hljómjafnar. Austuríska útgáfufyrirtækið Fabrique gefur út. RAGNHEIÐUR EIRÍKSDÓTTIR TÓNLIST Feðgar Pan og Óskar Thorarensen einbeittir á tónleikum á Iceland Airwaves árið 2015. Z-brautir & gluggatjöld Opið mán.-fös. 10-18 Faxafeni 14 | 108 Reykjavík | S. 525 8200 | www.z.is | Mælum, sérsmíðum og setjum upp Úrval - gæði - þjónusta Falleg gluggatjöld fyrir falleg heimili Bandaríski kvikmyndagerðarmað- urinn Woody Allen er greinilega ekki á því að setjast í helgan stein þó orðinn sé 83 ára því nú liggur fyrir að þýsk-austurríski leikarinn Chri- stoph Waltz og bandaríska leik- konan Gina Gershon muni fara með aðalhlutverkin í næstu kvikmynd hans sem mun bera þann ein- kennilega titil WASP2019. Allen ætlar að taka myndina upp á Spáni og hefjast handa í næsta mán- uði, ef marka má umfjöllun The Hollywood Reporter. Mun í mynd- inni segja af hjónum sem skipu- leggja ferð á kvikmyndahátíðina í San Sebastian en þar fer ekki betur en svo að eiginkonan fer að halda við franskan kvikmyndaleikstjóra og eiginmaðurinn verður ástfanginn af spænskri fegurðardís. Síðasta kvikmynd Allen, A Rainy Day in New York, hefur ekki enn verið sýnd því Amazon hætti við sýningar á henni vegna ásakana á hendur Allen um kynferðislega mis- notkun á dóttur sinni, Dylan Far- row. Allen hefur neitað allri sök og höfðaði mál á hendur Amazon í febr- úar á þessu ári. Hann segir fyrir- tækið hafa brotið samning við hann sem fólst í því að streymisveita Ama- zon myndi framleiða fjórar kvik- myndir eftir hann. Hjón Gershon og Waltz fara með hlutverk hjóna í kvikmynd Allens. Waltz og Gershon leika í næstu í kvikmynd Allen

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.