Morgunblaðið - 07.06.2019, Síða 12

Morgunblaðið - 07.06.2019, Síða 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. JÚNÍ 2019 Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á FRÉTTASKÝRING Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is „Það fyrsta sem maður hugsar þeg- ar stórar fréttir berast í viðskipta- lífinu er hvernig gengi krónunnar kemur til með að breytast,“ segir Ólafur Örn Niel- sen, eigandi vef- síðunnar Gengi.is og forstjóri Kol- ibri, um mikinn vöxt heimsókna á vefsíðuna Gengi- .is í marsmánuði fyrr á þessu ári. Líkt og sjá má á línuritinu hér til hliðar ríflega tvöfaldaðist fjöldi heimsókna á vefinn undir lok mán- aðarins. Að sögn Ólafs má rekja vöxtinn til fréttaflutnings af falli flugfélagsins WOW air. Alls voru heimsóknir á vefinn 1.609 talsins þann 27. mars, en til samanburðar voru heimsóknirnar ríflega 3.500 talsins þegar félagið féll degi síðar. Eðlilegt að spurningar vakni „Ég var að skoða grafið og sá al- veg svakalega aukningu daginn sem WOW air fer í þrot. Maður fór að skoða þetta nánar og velta upp hugmyndum um hvað gæti hafa gerst. Eftir að hafa kannað málið áttaði ég mig á því að WOW air var orsakavaldurinn. Í kringum gjald- þrotið bárust margar fréttir og óvíst var hvaða áhrif þetta gat haft,“ segir Ólafur og bætir við að eðlilegt sé að spurningar vakni hjá fólki þegar eins stórt fyrirtæki og WOW air verður gjaldþrota. Sjálf- ur hafi hann haft áhyggjur af því hvaða áhrif fall félagsins hefði á gengi krónunnar. „Fólk bregst við því sem það les í fjölmiðlum og fregnir sem þessar vekja strax spurningar um gengi krónunnar. Á þeim tíma sem WOW air féll var ég á leið erlendis með fjölskyldunni og við áttum eftir að borga gistinguna. Til að verja okk- ur gegn hugsanlegu gengisfalli ákváðum við að kaupa dollara. Það sem var athyglisvert var að sjá hversu margt fólk var í sömu erindagjörðum en útibúið var troð- fullt af fólki,“ segir Ólafur. Nú eru liðin um sex ár frá því að Gengi.is fór fyrst í loftið. Að sögn Ólafs hafa vinsældir vefsins aukist jafnt og þétt, en mánaðarlegar heimsóknir eru að meðaltali um 40 þúsund talsins. Þá var stofnun vefs- ins einskonar gæluverkefni sem sett var á laggirnir með það fyrir augum að auðvelda fólki aðgang að öflugum myntbreyti. Notkunin aukist jafnt og þétt „Þetta er orðinn sex ára gamall vefur sem er gæluverkefni á okkar vegum og ekki hluti af okkar kjarnastarfsemi. Ástæðan fyrir því að við fórum á stað með þetta verk- efni er sú að við sáum á sínum tíma tækifæri til að búa til skemmtilega vöru. Til marks um það má benda á að við höfum ekkert auglýst Gengi- .is og þrátt fyrir það hefur verið mikil stígandi í notkuninni. Vefur- inn er alltaf að stækka og nú eru í kringum 20 þúsund manns sem nota vefinn mánaðarlega,“ segir Ólafur og bætir við að vefurinn sé fyrst og fremst hugsaður sem skil- virk og einföld leið fyrir einstak- linga og fyrirtæki þegar kanna á gengi gjaldmiðla. „Gengi íslensku krónunnar gagn- vart öðrum myntum hefur áhrif á daglegt líf fólks og rekstur fyrir- tækja í útflutningsgreinum. Gengið hefur auðvitað áhrif á allt verðlag og með aðgengilegri gengisreikni- vél er hægt að nálgast gengi gjald- miðla á skjótan og einfaldan máta,“ segir Ólafur. Áhuginn aldrei verið meiri  Fjöldi einstaklinga og fyrirtækja sem nýtti sér myntbreyti Gengi.is ríflega tvö- faldaðist daginn sem WOW air féll  Um 40 þúsund mánaðarlegar heimsóknir Gengisáhugi » Ríflega 20 þúsund ein- staklingar nýta sér Gengi.is í hverjum mánuði. » Áhuginn aldrei verið meiri en eftir fall WOW air. » Gjaldþrotið olli áhyggjum meðal almennings sökum óvissu um gengisbreytingar. hún að meðaltali verið 6,8%. Á eftir honum í fimm ára mælingunni kem- ur svo Lífeyrissjóður Vest- mannaeyja með 5,0% og Gildi, Líf- eyrissjóður verslunarmanna og LSR þar á eftir með 4,8%. Þegar lit- ið er til 10 ára er Frjálsi lífeyris- sjóðurinn næstur á eftir sjóði starfsmanna Búnaðarbankans með 4,9% eins og Lífeyrissjóður Tann- læknafélags Íslands. LSR er í fjórða sætinu með 4,8%, Lífeyr- issjóður verslunarmanna með 4,6% í fimmta sætinu og Gildi í 14. sæti með 3,9%. Lökustu ávöxtunina til fimm ára hefur Lífeyrissjóður bankamanna (aldursdeild) eða 3,5% en litið til tíu ára rekur Stapi lífeyr- issjóður lestina með 2,7%. Á vefnum lifeyrismal.is hefur nú verið birt yfirlit yfir raunávöxtun íslenskra lífeyrissjóða. Annars veg- ar er horft til fimm ára og hins veg- ar 10 ára ávöxtunar. Ávöxtun milli sjóða er ekki fyllilega samanburð- arhæf þar sem sumir sjóðir gera upp skuldabréfaeign sína á svokall- aðri kaupkröfu en aðrir á gang- virði. Hins vegar gefa upplýsing- arnar grófa mynd af gengi sjóð- anna á síðustu árum. Sá sjóður sem kemur best út í fimm og 10 ára viðmiðum er Lífeyrissjóður starfsmanna Bún- aðarbanka Íslands, sem enn er starfræktur en er lokaður fyrir nýj- um sjóðfélögum. Fimm ára ávöxtun hans er 5,7% og síðustu 10 ár hefur Afar mismunandi raunávöxtun  Samtryggingardeildir lífeyrissjóða Morgunblaðið/Jim Smart Sjóðir Á lifeyrismal.is má skoða raunávöxtun fimm og 10 ár aftur í tímann. ● Í maí flutti Icelandair 419 þúsund far- þega eða 14% fleiri en í maí á síðasta ári. Á sama tíma jókst framboð félagsins um 7% og því hækkaði sætanýting félagsins úr 77,7% í 82,5%. Farþegum fjölgaði á öllum mörkuðum að sögn félagsins en mest á markaðnum til Íslands eða um 36 þúsund. Nemur fjölgunin í þeim flokki því 33%. Stærsti markaðurinn var þó sá sem lá um Norður-Atlantshafið eða 50% af heildarfarþegafjölda. Þar nam aukn- ingin aðeins 4%. Farþegum Air Iceland Connect fækk- aði um 8% milli ára og voru þeir 25 þús- und talsins. Sætanýtingin var 69,2% og jókst um 7,2 prósentustig milli ára. Farþegum Icelandair fjölgaði um 14% 7. júní 2019 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 123.5 124.08 123.79 Sterlingspund 157.02 157.78 157.4 Kanadadalur 92.28 92.82 92.55 Dönsk króna 18.624 18.732 18.678 Norsk króna 14.22 14.304 14.262 Sænsk króna 13.085 13.161 13.123 Svissn. franki 124.52 125.22 124.87 Japanskt jen 1.1399 1.1465 1.1432 SDR 170.91 171.93 171.42 Evra 139.11 139.89 139.5 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 168.9156 Hrávöruverð Gull 1337.75 ($/únsa) Ál 1751.0 ($/tonn) LME Hráolía 61.58 ($/fatið) Brent ● Harpa Jóns- dóttir, fram- kvæmdastjóri fjármálastöðug- leikasviðs Seðla- banka Íslands, hef- ur verið ráðin í starf fram- kvæmdastjóra Líf- eyrissjóðs starfs- manna ríkisins. Hún tekur við starfinu síðar í sumar þegar Haukur Hafsteinsson lætur af störfum en hann hefur verið fram- kvæmdastjóri sjóðsins frá árinu 1985. Harpa er með BS-gráðu í stærðfræði frá Háskóla Íslands og meistara- og doktorspróf í verkfræði frá Tækni- háskóla Danmerkur. Hrein eign LSR til greiðslu lífeyris í lok árs 2018 nam 872,8 milljörðum króna. Harpa yfir Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins Harpa Jónsdóttir STUTT Heimsóknir á vefsíðuna Gengi.is í mars 2019 3.500 3.000 2.500 2.000 1.500 1.000 500 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 Heimild: Gengi.is/Kolibri 47.842 heimsóknir í marsmánuði Ólafur Örn Nielsen BAKARÍ / KAFFIHÚS / SALATBAR Sunnumörk 2, Hveragerði, sími 483 1919, Almar bakari • Opið alla daga kl. 7-18 SÉRBAKAÐfyrir þig SALATBAR ferskur allan daginn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.