Morgunblaðið - 07.06.2019, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. JÚNÍ 2019
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Ónefnd frétta-stofa réð sérilla vegna
dönsku kosning-
anna. Hún endurtók
að flokkur jafn-
aðarmanna væri að
vinna þar sigur. Sá
flokkur var þá að
taka á móti úrslitum
upp úr kössum sem
danskir fréttaskýrendur sögðu að
yrðu þau næstverstu í meira en
öld. Og fréttastofan þessi fagnaði
því einnig sérstaklega að nú
brygði rauðum lit á Svíþjóð,
Finnland og Danmörku.
Ekki stendur hugur til að spilla
gleði þeirra sem ráða sér ekki
fyrir flokkselsku sinni og gleyma
jafnan öllum skyldum sínum
vegna þess. Í Svíþjóð þrásitur
vissulega forsætisráðherra úr
röðum krata eftir tvær verstu
kosningar flokks hans í röð um
hundrað ára skeið. Hann fær að
hokra í minnihlutastjórn þar sem
flokkar hægra megin við miðju
vildu útiloka flokk sem hefur
hvað mest fylgi með kjósendum.
Í Finnlandi náði flokkur sósíal-
demókrata því naumlega að verða
stærstur á meðal jafninga og
samkvæmt finnskri hefð fær sá
flokkur forsætisráðuneytið. En
flokkurinn myndaði stjórn yfir
miðjuna til hægri eins og segir í
norrænum fjölmiðlum.
Sá flokkur sem vann mest á í
kosningunum í Danmörku var
flokkur Lökkes forsætisráðherra
sem þykir nokkurt afrek hjá sitj-
andi forsætisráðherra. En frétta-
stofan þessi getur með pínulitlum
rétti, og meiri en hún telur sig að
jafnaði þurfa til að réttlæta vafa-
samar fullyrðingar, sagt að leið-
togi danskra krata
sé sigurvegari kosn-
inganna þótt hann
standi í stað. Ástæð-
an er sú að Fólka-
flokkurinn tapaði
miklu fylgi. Öllum
fréttaskýrendum í
Danmörku ber sam-
an um að það gerðist
vegna þess að krat-
arnir hefðu tekið upp innflytj-
endastefnu Fólkaflokksins! En
það var einmitt hin „ógeðslega“
innflytjendastefna, studd af „hat-
ursumræðu“ sem réttlætti að
enginn flokkur taldi sig af sið-
ferðisástæðum geta verið í stjórn
með flokknum. En kratarnir gátu
tekið upp hina ógeðslegu og hat-
ursfullu stefnu þyrfti það til svo
komast mætti í ríkisstjórn!
Stefnan fordæmda, sem syst-
urflokkur íslensku Samfylking-
arinnar hefur nú tekið upp, er
harðlega fordæmd af öllumeins-
flokkunum á Alþingi. Þessi nú-
verandi stefna systurflokksins í
Danmörku varð til þess að þing-
maður Samfylkingar þoldi ekki
við og fór með rassaköstum út af
þingpalli á Þingvöllum þar sem
látið var eins og fyrirmenni væru
að minnast fullveldis en enginn
Íslendingur mætti þó til að horfa
á, enda vitað að stuðnings við full-
veldið var ekki að vænta frá þeim
palli.
En nú er spurt: Þegar öllum
ber saman um það að flokkur
Danskra jafnaðarmanna hefur
fyrir allnokkru tekið upp innflytj-
endastefnu Piu Kjærsgaard og
félaga mun ekki Samfylkingin ís-
lenska höggva á öll tengsl við
þennan nýja flokk „haturs og ras-
isma“?
Fréttin úr dönsku
kosningunum er
samdóma fullyrð-
ingu um að Sósíal-
demókratar hafi
tekið upp fordæmda
innflytjendastefnu}
Verða ný rassaköst?
Vladimír PútínRússlands-
forseti ræddi við
alþjóðlega fjölmiðla
í gær í tilefni af sér-
stakri viðskipta-
ráðstefnu sem haldin var vegna
heimsóknar Xis Jinpings, forseta
Kína. Kom margt forvitnilegt
fram í máli forsetans, en eitt af
því sem vakti mikla athygli var
að Pútín sagðist reiðubúinn til
þess að draga Rússland úr nýja
START-samkomulaginu, sem
undirritað var árið 2010, en það
takmarkar fjölda þeirra kjarn-
orkuodda sem Bandaríkin og
Rússland mega eiga.
Samkomulagið er sem slíkt
ein arfleifð kalda stríðsins og
þeirra afvopnunarsamninga sem
gerðir voru á milli risaveldanna,
en þeir hafa átt undir högg að
sækja á síðustu misserum. Er
þar skemmst að minnast INF-
sáttmálans, sem féll óbeint úr
gildi fyrr á þessu ári, þar sem
hvorki Bandaríkjamenn né
Rússar vilja standa við hann að
óbreyttu.
Yfirlýsing Pútíns í gær átti
sér hins vegar aðrar rætur.
Bandaríkjastjórn hefur nefni-
lega ekki sýnt mikla
viðleitni til þess að
ræða við Rússa um
að framlengja sam-
komulagið fram til
ársins 2026, en það
á að renna út eftir tvö ár. Sagði
Pútín það ljóst að ef aðrir vildu
ekki halda lífi í samningnum, þá
myndu Rússar ekki sitja einir
eftir. Varaði hann jafnframt við
því að afleiðingarnar gætu orðið
skelfilegar fyrir alla heims-
byggðina, ef nýtt og óhamið víg-
búnaðarkapphlaup hæfist.
Rússlandsforseti hefur þar
nokkuð til síns máls. Það sem
helst virðist þó standa í veginum
fyrir frekari afvopnun er sú
staðreynd að bæði Bandaríkja-
menn og Rússar hafa horft til
Kínverja, sem hingað til hafa
ekki verið bundnir af neinu
samkomulagi í kjarnorkuvopna-
smíði sinni, og hafa jafnframt
þegar hafnað því að þeir muni
taka þátt í nokkru slíku
samkomulagi. Pútín ætti því að
beina orðum sínum að nýja besta
vini sínum, Xi, og hvetja hann til
að vinna með Bandaríkjunum og
Rússlandi að því að draga úr
fjölda kjarnorkuvopna.
Er nýtt vígbún-
aðarkapphlaup í
uppsiglingu?}
Kjarnorkusamkomulag í hættu
Þ
að stendur til að setja ný lög um
Seðlabankann sem veikja bæði
bankann og Fjármálaeftirlitið.
Það stendur til að fjölga vara-
bankastjórum Seðlabankans og
þá geta flokkarnir skipt með sér embætt-
unum.
Það stendur til að stofna þjóðarsjóð með
arði af orkufyrirtækjunum okkar sem einka-
aðilar eiga að ávaxta í útlöndum.
Það stendur til að selja hluti ríkisins í
bönkunum.
Það eru athafnamenn í viðskiptalífinu sem
eiga áhrifamikla fjölmiðla.
Það eru 10 ár frá hruni og gerendur í ís-
lensku efnahagslífi eru margir þeir sömu og
fyrir hrun.
Það er verið að búa í haginn.
SÍ og FME
Nú stendur til að sameina Seðlabankann og Fjármála-
eftirlitið. Frumvarpið um það bíður afgreiðslu Alþingis.
Verður sjálfstæður Seðlabanki með allt fjármálaeftirlit
sterkari til að takast á við framtíðaráföll? Ég efast stór-
lega um það.
Heildaryfirsýn á kerfisáhættu og sterkt eftirlit með
fjármálageiranum er nauðsynlegt en leiðin sem ríkis-
stjórnin vill fara er hins vegar afar líkleg til að veikja
fjármálaeftirlit og skapa vantraust á Seðlabanka Ís-
lands.
Allt eftirlit með fjármálastarfsemi verður hjá Seðla-
bankanum og auk þess á bankinn að framfylgja pen-
ingastefnu og stuðla að fjármálastöðugleika.
Þannig á að sameina stór og þjóðhagslega
mikilvæg verkefni undir einni stofnun.
Þetta er ekki sú leið sem mest hefur verið
rædd og mælt með, þ.e. að sameina þjóðhags-
varúð og eindarvarúð í Seðlabankanum en að
Fjármálaeftirlitið sinni áfram viðskiptahátta-
eftirliti og neytendavernd í sjálfstæðri stofn-
un.
Einn af lærdómum fjármálahrunsins var að
mikilvægt sé að skýr skil séu milli þeirra sem
fara með eftirlit og þeirra sem hafi tæki til
þess að tryggja fjármálastöðugleika.
Samþykki Alþingi frumvarpið um Seðla-
bankann yrði hann gríðarlega valdamikil
sjálfstæð stofnun og það er mjög líklegt að
stjórnmálamenn vilji hafa áhrif á starfsemi
slíkrar stofnunar. Verið er að bjóða upp á að flokks-
pólitískir hagsmunir ráði för frekar en faglegt mat við
ráðningu embættismanna enda á forsætisráðherra að
ráða tvo yfirmenn og fjármálaráðherra tvo. Slíkt fyrir-
komulag er fullkomið fyrir gamalkunn helmingaskipti.
Seðlabankastjórar verða að geta beitt sér og tekið
ákvarðanir sem gætu verið óvinsælar hjá stjórnmála-
mönnum, ákvarðanir sem varða hag almennings til langs
tíma en þjóna ekki skammtímahagsmunum stjórnmála-
manna eða flokka fyrir kosningar.
Í öllum hinum norrænu ríkjunum er fjármálaeftirlit í
sjálfstæðri stofnun.
Oddný G.
Harðardóttir
Pistill
Að búa í haginn
Höfundur er þingmaður Samfylkingarinnar.
oddnyh@althingi.is
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
SVIÐSLJÓS
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Fyrsta rannsóknin sem gerð hefur
verið á útbreiðslu plastagna í lík-
ömum fólks bendir til þess að með-
almaðurinn innbyrði að lágmarki 50
þúsund agnir af örplasti á ári hverju
og tvöfalt fleiri ef innöndun plastagna
er talin með. Þetta eru sannarlega
ekki uppörvandi tölur, en neyslan er
þó í reynd talin mun meiri, þar sem
enn hefur aðeins lítill hluti drykkjar-
vatns og matvæla verið rannsakaður.
Þeir sem rannsóknina gerðu segja að
þeir sem drekka oft vatn úr plast-
flöskum innbyrði mun fleiri plastagn-
ir en aðrir. Niðurstöðurnar er að
finna í tímaritinu Environmental
Science and Technology. Byggt er á
gögnum úr 26 eldri rannsóknum þar
sem er að finna upplýsingar um magn
örplasts í fiskum, skelfiski, sykri,
salti, bjór og vatni. Frá þessu er
greint á vef The Guardian.
Mikill mengunarvaldur
Plast er gríðarlegur mengunar-
valdur, er lengi að brotna niður, og
hefur þegar haft mikil áhrif á fæðu-
keðjuna í hafinu. Sameinuðu þjóð-
irnar vilja að hvert og eitt land skrifi
undir og heiti því þar með að draga
verulega úr framleiðslu á plasti sem
og að banna notkun einnota plasts í
skrefum til ársins 2030. Á hverju ári
eru framleidd yfir 300 milljón tonn af
plasti og í hafinu fljóta nú að minnsta
kosti fimm billjón (milljón milljónir)
plasthluta, að mati vísindamanna.
Enn er lítið vitað um heilsufarsleg
áhrif plastagna á líkamann, en þó er
talið að þær geti leitt til eituráhrifa og
skaðað vefi.
Meginástæðan fyrir því að plast-
agnir komast inn í líkama fólks er
mikil útbreiðsla einnota plasts og
plastúrgangs. Plastagnir er hvar-
vetna að finna í náttúrunni, í jarðvegi
og höfunum, vötnum, ám og lækjum.
Ráðið gegn þessum vágesti er helst
talið að stórminnka notkun einnota
plasts á öllum sviðum og gæta var-
úðar við förgun þess.
Í grein, sem birtist í apríl í vísinda-
tímaritinu Nature Geoscience, kom
fram að á fimm mánaða tímabili á ár-
unum 2017 og 2018 féllu að jafnaði
365 örplastagnir á hvern fermetra á
óbyggðu svæði í Pýreneafjöllum, í um
1.500 metra hæð, á landamærum
Frakklands og Spánar. Höfðu þær
borist þangað með vindum. Var
mengunin sögð svipuð og í stór-
borgum á borð við París.
Engin heildstæð rannsókn á ör-
plasti hefur verið birt hér á landi.
Fréttaskýringaþátturinn Kveikur
birti í desember í fyrra niðurstöður
sjálfstæðrar rannsóknar sem sýndi
að í drykkjarvatni á heimilum á höf-
uðborgarsvæðinu eru að meðaltali 27
örplastagnir í hverjum lítra. Viða-
mikil rannsókn á drykkjarvatni
stendur nú yfir á vegum Veitna, HS
Orku og Norðurorku og er niður-
staðna að vænta innan tíðar.
Á vegum Umhverfisstofnunar fór í
fyrra fram rannsókn á örplasti í
kræklingi og í maga fýla. Fannst
plast í um 70% fýla og voru um 16%
þeirra með meira en 0,1 gramm. Plast
fannst einnig í fjörukræklingi á öllum
stöðum sem voru kannaðir. Var fjöldi
örplastagna á bilinu 0 til 4 í hverjum
kræklingi og voru þær í 40-55%
kræklings á hverri stöð. Magnið er
samt minna en í ýmsum öðrum lönd-
um þar sem þetta hefur verið kannað.
Dregið úr plastnotkun
Eins og allur almenningur hefur
orðið var vinna nú bæði opinberir að-
ilar og fyrirtæki að því að draga úr
plastnotkun hér á landi. Margar
verslanir eru til dæmis hættar að
bjóða upp á plastpoka við afgreiðslu-
borðin og selja þess í stað pappírs-
poka og poka úr umhverfisvænum
efnum.
Í gær greindu forsvarsmenn
Dekkjahallarinnar frá því að fyrir-
tækið hefði hafið sölu á fjölnota
dekkjapokum og væri það liður í bar-
áttunni við einnota plastpoka. Segja
þeir að tugum tonna af dekkja-
plastpokum sé hent á hverju ári.
„Þetta er verkefni sem við höfum
verið að vinna að í talsverðan tíma.
Við leituðum eftir birgi sem myndi
bjóða upp á gæðavöru. Við seljum
pokana á kostnaðarverði en sömu
poka er t.d. hægt að fá á Amazon á
hærra verði en við seljum út og þá á
eftir að borga flutning til Íslands,
vörugjöld og virðisaukaskatt,“ var
haft eftir Jóhanni Jónssyni, markaðs-
stjóra Dekkjahallarinnar. Pokinn er
einfaldur í notkun, auðveldara er að
bera dekkin og auk þess verður öll
umgengni um bílinn snyrtilegri þegar
kemur að því að setja dekkin í bílinn.
Pokana er svo hægt að setja í þvotta-
vél til að halda þeim hreinum.
Þess má geta að lokum að Um-
hverfisstofnun auglýsir nú eftir til-
nefningum til nýrrar viðurkenningar
sem hlotið hefur heitið Bláskelin.
Verður hún veitt fyrirtæki, stofnun,
einstaklingi eða öðrum fyrir fram-
úrskarandi lausnir sem stuðla að
minni plastnotkun og plastúrgangi í
samfélaginu. Er þetta hluti af aðgerð-
um umhverfis- og auðlindaráðherra
til að draga úr neikvæðum áhrifum
plastnotkunar.
Innbyrðum 50 þús-
und plastagnir á ári
Örplast Plastagnir í sjávarsalti hafa verið kannaðar erlendis. Var 21 teg-
und borðsalts t.d. athuguð í fyrra og fannst plast í þeim öllum.