Morgunblaðið - 07.06.2019, Side 15

Morgunblaðið - 07.06.2019, Side 15
15 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. JÚNÍ 2019 Nýgift Sumarið er tími brúðkaupa. Þessi brúðhjón stilltu sér upp fyrir ljósmyndatöku í góða veðrinu við Hallgrímskirkju í Reykjavík í vikunni og brúðurin fékk aðstoð við að hagræða kjólnum. Eggert Fátt er betra en gott siðferði. Gamall skólameistari brýndi gott siðferði fyrir nemendum sínum með því að ávarpa þá á Sal í mergjuðum ávörpum. Voru ávörpin nem- endum til halds og trausts í lífinu. Þannig kom hann nemendum til nokkurs þroska. Einu sinni brá svo við að skóla- meistarinn heyrðist muldra fyrir munni sér, þá er hann gekk af Sal og framhjá einum kennara við skól- ann: „Graður maður Brynleifur.“ Það er svo að þegar tveir herra- menn standa andspænis öðrum og dæma hvor annan mega þeir vita að þeir eru báðir dæmdir. Klausturpostular Þegar herramenn ganga í Klaust- urbar, þá eru herramennirnir í al- mannarými. Þá dæmast þeir. Þegar herramenn ganga í klaustur ganga þeir í heim þagnar og íhugunar. Þar er allt geymt með sjálfum sér, sem heyrist. Þegar menn ganga í klaust- ur, þá fylgja þeim ekki konur. Hug- svik og blautlegar hugsanir eru ekki leyfðar í klaustrum. Á Klausturbar er konum jafnt sem körlum heimill aðgangur. Sum- ar konur ganga á Klausturbar til þess að votta mönnum virðingu sína og tjá lotningu vegna yfirburða gáfna karla. Maður, sem konan hafði þekkt lengi, hafði alltaf rétt fyrir sér! Konur geta einnig gengið á Klausturbar einar og sjálfar, án allra karla. Þær eru einar með sjálfum sér! Ef mikið ber við geta þær notið skemmtunar úr öðrum rýmum Klaust- urbarsins. Rétt eins og túlkun stjórnarskrár- innar tekur mið af hug- myndum samtímans nota konur þau tæki sem í boði eru í sam- tímanum. Í stað steno- grafíu er brúkuð upp- tökutækni snjallsíma. Auðvitað er meiri skemmtan af því að eiga frumeintök af snjallyrðum fremur en niðurrit- anir stenografíunnar. Orðræða greind Þegar orðræðan er greind kemur í ljós að Klausturbarspostular urðu viti sínu fjær af öli, en eins og segir í ljóðinu góða „öl birtir ört til sanns innræti sérhvers manns“. Þessir postular, sem sögðu það er þeir hugsuðu, urðu ekki hlægilegir í augum konu. Miklu fremur urðu þeir miklir menn um stund af orðum sín- um. Með postullegri athugun má greina að eigi færri en þrjú boðorð voru brotin, og farið frjálslega um „gullnu regluna“. Það er að borið var ljúgvitni gegn náunganum. Því var lýst hvernig drýgja skyldi hór. Því var lýst á hvern veg hjáguðir voru dýrkaðir. Þá var einnig farið frjálslega með hvað menn vildu gera öðru fólki en það er varla það sem Klausturpost- ular vildu að annað fólk gerði þeim. Því var hótað að hjóla í annað fólk, eins og mannýgir hrútar eða áfloga- seggir í réttum. Þegar angan draumsins á Klaust- urbar leið hjá var lífið aftur orðið sannleiki. Þá kom Persónuvernd Þar kom að Klausturpostular töldu að sér vegið þegar taut þeirra og karlagrobb með lofgjörðum kon- unnar varð á almannavitorði, að nú skyldu postularnir njóta sérstakrar verndar Persónuverndar. Tekið skal fram að allir eru post- ularnir „opinberar persónur“ í þeim skilningi, sem Persónuvernd hefur ályktað, án löggjafar en í framsæk- inni túlkun sinni á ímyndaðri lög- gjöf. Hugtakið „opinber persóna“ er ekki að finna í hegningarlögum eða öðrum verkum löggjafans. Nú skyldi frumeintakinu af hjali Klausturpostula eytt. Afritanir og eftirritanir fá að lifa með fagnaðar- erindi sitt. Alþingi hertekið of postulum Næst gerist það í afrekum Klaust- urpostula, til að efla vinsældir sínar, að þau hertaka Alþingi í nauðaein- földu máli, sem mun ekki hafa laga- gildi. Um margt er hegðun Klaustur- postula lík hegðun götustráka, sem taka gjald af öðrum fyrir að ganga um götu sína. Í þeim samkvæm- isleik, sem umræðan um orkumál er komin í, er orðbragðið að vonum smekklegra en á börum borgarinnar. En því miður, það kemur ekkert nýtt fram utan nýr útúrsnúningur, nýjar rangfærslur og bollaleggingar sem enga þýðingu hafa um eðli máls. Um margt minnir hegðun Klaust- urpostula og félaga þeirra á hegðan kenjóttra barna, sem vilja ekki borða þann mat sem er á boðstólum á venjulegum heimilum, en til að kaupa friðinn er börnunum boðið að fá SS-pylsur eða pítsu að eigin vali. Það er fyrir neðan virðingu Al- þingis að hegða sér með þessum hætti, þar sem siðuð hegðan er for- senda starfshátta. Þessi hegðan með málæði og munnræpu er ekki að hafa skoðun, en sennilega fljóta allsnægtir að mönnum, sem hafa ekki skoðun á neinu. Svo koma siðanefndir Alþingi hefur stofnað sér til halds og trausts siðanefnd, sem á að fjalla um siðbresti, sem kunna að koma fram í háttum Alþingis. Forseti Alþingis hefur agavald yfir þinghaldi og getur beitt alþingismenn vítum. Því miður er það allt of sjaldan gert. Siðanefnd er tilkomin vegna kjarkleysis alþingismanna sjálfra. Þeir telja sig ekki þess umkomna að fjalla um félaga sína, sem þeim ber samkvæmt þingsköpum, sem eru lögbundnar reglur um starfs- hætti Alþingis. Siðanefnd getur aðeins gert tvennt í úrskurðum sínum: Siðanefnd getur sagt „þú framdir siðbrest, skammastu þín, og þegiðu svo!“ eða „þú framdir ekki siðbrest og þú átt ekki að skammast þín!“ Annað hefur siðanefnd ekki í vopnabúrum sínum. Þó ber að hafa í huga að vinstrimenn og stjórn- leysingjar eru ávallt mjög siðprúðir. Siðbrestir til hægri og vinstri Siðareglur, sem vinstrimenn og stjórnleysingjar krefjast að settar verði, ná aðeins að þeim en ekki til þeirra. Siðbrestir eru ekki til hjá vinstrimönnum. Vinstrafólk er bet- ur af guði gert en annað fólk. Vinstrimenn og stjórnleysingjar eru ávallt með kröfur um hegningar og hegningarauka fyrir andstæð- inga sína, sérstaklega þá á hægri væng stjórnmála. Bjarmalands- ferðir til Landsdóms eru dæmi um slíkt. Sumir vinstriflokkar eru þó með siða- og siðferðisnefndir í eigin mál- um. Þær minna um margt á litlar kommúnistasellur eða kapelána á stúkufundum, sem gátu endurreist þá, sem fallið höfðu í freistni eða farið út af línunni. Eðli máls og tittlingaskítur Er ekki mál til komið að alþing- ismenn ræði efnislega þau mál sem eru á dagskrá Alþingis hverju sinni og hætti að stunda útúrsnúning og orðhengilshátt um það, sem ekki skiptir máli, og annan tittlingaskít. Og að alþingismenn séu sjálfum sér samkvæmir á þingi og til þings. Þá þverra siðbrestir. Þá geta alþingismenn sagt eins og Skáldið, „má ég bjóða þér dús mín elskulega þjóð!“ En eins og annað skáld sagði: Mikill er máttur vinsældanna og megn. Jú vinsæll verður óðara góður og gegn. Eftir Vilhjálmur Bjarnason » Þegar angan draumsins á Klaust- urbar leið hjá var lífið aftur orðið sannleiki. Vilhjálmur Bjarnason Höfundur var alþingismaður. Af siðbrestum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.