Morgunblaðið - 07.06.2019, Page 19

Morgunblaðið - 07.06.2019, Page 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. JÚNÍ 2019 ✝ Oddgeir Páls-son fæddist í Vestmannaeyjum 22. desember 1923. Hann lést á heimili sínu á Hrafnistu í Hafnarfirði 2. júní 2019. Foreldrar hans voru Páll Odd- geirsson, kaup- maður og útgerð- armaður, f. í Kálfholti, Holtum, Rang. 5. júní 1888, d. 24. júní 1971, og kona hans Matthildur Ísleifsdóttir húsfreyja, f. í Kirkjubæ í Vest- mannaeyjum 7. maí 1900, d. 29. ágúst 1945. Systkini Oddgeirs eru Rich- geir lauk námi frá Samvinnu- skólanum árið 1944. Eftir það vann hann aðallega við versl- unarstörf og ráku þeir feðgar saman verslun í herstöðinni í Keflavík. Oddgeir flutti til Bandaríkj- anna árið 1958. Þar vann hann áfram ýmis störf, s.s. við af- greiðslustörf, viðhald og við- gerðir fasteigna, nýbyggingar og útleigu eigin fasteigna. Odd- geir bjó lengst af í Los Angeles, kom heim nokkrum sínum í stuttar heimsóknir. Hann bjó með Corinne A. Baca, f. 1913, d. 1988, í hátt í þrjá áratugi. Hann flutti heim til Íslands haustið 2016 og bjó síðast á Hrafnistu í Hafnarfirði. Útför Oddgeirs fer fram frá Kapellunni í Fossvogi í dag, 7. júní 2019, og hefst athöfnin klukkan 11. ard Pálsson, f. 27. september 1920, d. 4. mars 1994, Ís- leifur Annas Páls- son, f. 27. febrúar 1922, d. 14. desem- ber 1996, Anna Regína Pálsdóttir, f. 16. maí 1928, og Bergljót Pálsdóttir, f. 19. janúar 1933, d. 28. nóvember 2017. Oddgeir ólst upp á foreldra- heimili sínu Miðgarði í Vest- mannaeyjum fram yfir 20 ára aldur og vann þar við ýmis störf, en aðallega við verslun, útgerð og landræktun Breiða- bakka með föður sínum. Odd- „Ég hef ekki yfir neinu að kvarta en fyrir margt að þakka.“ Oddgeir móðurbróðir minn sem nú hefur kvatt svaraði svona til þegar hann var aðspurður um hans hagi. Þetta lýsir honum vel. Hann var sjálfum sér nægur stóran hluta af lífinu en var bóngóður ef til hans var leitað. Það eru ófáir sem nutu gjafa og peningasend- inga frá honum. Gamansamur var hann og oft stutt í hláturinn. Síðan hann flutti aftur til Íslands 2016 hafa samskipti okkar verið mjög náin og aldrei bar skugga á. Ég lærði margt af honum og fyr- ir það vil ég þakka. Þótt hann byggi í Bandaríkjunum í 58 ár talaði hann íslenskuna óaðfinn- anlega og aldrei kom enskt orð inn í tal hans. Þegar hann var spurður hvernig hann hefði getað varð- veitt málið svona vel svarði hann því til að hann hefði farið reglu- lega með öll ljóðin sem hann lærði í æsku. Um leið og kveð hann hinstu kveðju bið ég guð og alla góða vætti að varðveita hann og læt ég hér fylgja með ljóð Gríms Thom- sen sem hann hét mikið uppá. Heyrið vella á heiðum hveri, heyrið álftir syngja í veri: Íslands er það lag. Heyrið fljót á flúðum duna, foss í klettaskorum bruna: Íslands er það lag. Eða fugl í eyjum kvaka, undir klöpp og skútar taka: Íslands er það lag. Heyrið brim á björgum svarra, bylja þjóta svipi snarra: Íslands er það lag. Og í sjálfs þín brjósti bundnar blunda raddir náttúrunnar: Íslands eigið lag. Innst í þínum eigin barmi, eins í gleði og eins í harmi ymur Íslands lag. Björn Hermannsson. Ég kveð nú kæran frænda, Oddgeir Pálsson, aldinn móður- bróðir. Í bernskuminningu drengs voru þeir þrír móðurbræður mín- ir úr Miðgarði í Vestmannaeyj- um hver á sinn hátt stærri en flest annað sem ég þekkti, glæsi- legir, barngóðir og heimsóknir þeirra alltaf tilhlökkunarefni. Oddgeir, þeirra yngstur, hélt á vit ævintýra vestur um haf við 35 ára aldur, hugrakkur og ferðin óráðin. Ég man enn glöggt, þá fimm ára, þegar stélljós flugvél- arinnar hurfu út fjörðinn í kvöld- myrkrið og fyrir þann sem ekki þekkti stærri heim en götuna sína og leikvöllinn var töfrum lík- ast að fylgjast með frænda í út- löndum þegar það tóku að berast póstkort frá Miklugljúfrum, bíla- þröng og hraðbrautafléttum í borg englanna, prýdd pálma- trjám í eilífu sólskini. Oddgeir fylgdist af áhuga með íslenskum málefnum og ættmenna, var ör- látur og rétti systkinum sínum hjálparhönd svo það skipti máli og ógleymdur er mér fótstiginn brunabíll, með bjöllu, kastara og stigum, sem án fyrirvara barst einn dag með póstinum. Ár Oddgeirs í Englaborginni urðu alls 58, þangað heimsóttur af systkinabörnum, og 18 ára var ég þar í þrjár vikur í vinnu með honum við viðgerð fasteigna. Það olli mér heilabrotum þá, og jafnan síðan, að aldrei í töluðu orði eða rituðu máli brá hann fyrir sig ensku vegna skorts á ís- lensku orði svo ég muni eftir. Jafnvel „OK“ heyrðist aldrei heldur „gott og vel“. Í samtali við Oddgeir í miðju efnahagshruni notaði hann ein- göngu íslensk orð og hugtök úr heimi banka og fjármála. Það er mér hulið hvaðan þau öll bárust honum því ekki hafði hann til- einkað sér nútímalegri tækni en símann. Hann sagði mér, þegar ég nefndi þetta við hann eftir heim- flutning til Íslands, að öll árin er- lendis las hann og lærði ljóð úr gömlum bókum og flutti þau fyr- ir sjálfan sig upphátt eða í hljóði til að viðhalda móðurmálinu. Það var honum kært. Eins átti Oddgeir það til í samræðum að grípa orð á lofti og spyrja um og velta merkingu þess fyrir sér. Með tímanum áttaði ég mig á að hann spurði ekki af vankunnáttu heldur til að vekja athygli og kenna gott mál. Bernskumyndir úr ævintýra- heimi póstkorta og lýsingar úr bréfum lifa enn. Farðu vel frændi og takk fyrir samfylgd- ina. Páll Tryggvason. Föðurbróðir minn Oddgeir Pálsson ólst upp við ástríki for- eldra sinna, Matthildar Ísleifs- dóttur og Páls Oddgeirssonar í Miðgarði í Vestmannaeyjum. Systkini hans eru Richard, Ís- leifur Annas, Anna Regína og Bergljót. Lifir Anna Regína bróður sinn. Hálfbróðir þeirra systkina er Rúdolf Pálsson. Að Oddgeiri stóðu sterkir stofnar. Sigurlaug Guðmunds- dóttir var dótturdóttir síra Páls prófasts Pálssonar í Hörgsdal af ættum Síðupresta. Hann var annar tveggja full- trúa Vestur-Skaftfellinga á Þjóðfundinum 1851, hinn var Jón Guðmundsson ritstjóri, nán- asti samverkamaður Jóns Sig- urðssonar forseta. Afi Oddgeirs, Ísleifur Guðnason bóndi á Kirkjubæ, bar nafn sem gengið hefur í ættir fram svo langt sem kirkjubækur ná og síðast bar faðir minn. Páll Oddgeirsson var útgerð- armaður og kaupmaður í Vest- mannaeyjum. Hann hafði for- göngu um að reisa minnisvarða við Landakirkju um drukknaða sjómenn og þá sem hrapað hafa í björgum. Síra Oddgeir Þórðarson Guð- mundsen, föðurafi Oddgeirs og þeirra systkina, var hinn síðasti gömlu Eyjaprestanna. Hann var prestur á Ofanleiti í aldarþriðj- ung þannig að engin þótti sam- koma í Vestmannaeyjum nema hann héldi ræðu. Kona hans var Anna Guð- mundsdóttir prófasts í Arnar- bæli Einarssonar. Séra Guð- mundur Einarsson var bróðir Ingibjargar konu Jóns forseta og bræðrungur við Jón. Faðir séra Oddgeirs var Þórður Guðmundsson, sýslu- maður, dómari við Landsyfir- réttinn, konungkjörinn alþingis- maður og kammerráð að nafnbót, nafnkunnur öndvegis- maður. Móðir séra Oddgeirs var Jó- hanna Andrea Knudsen, ein hinna glæsilegu systra í Landa- koti. Þær voru dætur Lárusar Mikaels Knudsens, ættföður Knudsensættar, en eldri systir Jóhönnu Andreu var Kristjana Dóróthea, ástin í lífi Jónasar Hallgrímssonar eftir því sem fram kemur í ævisögu Jónasar eftir Pál Valsson bókmennta- fræðing. Oddgeirsnafnið birtist ekki í framættum séra Oddgeirs. Þess er getið í í ævisögu séra Árna Þórarinssonar eftir Þórberg Þórðarson að þeir Þórður Guð- mundsson og Oddgeir Stephen- sen námu skólalærdóm hjá Árna stiftprófasti Helgasyni, biskupn- um í Görðum, móðurbróður Þórðar. Er það tilgáta mín að Þórður kammerráð Guðmundsson hafi sótt nafn sonarins til skóla- bróður síns og vinar. Oddgeir Stephensen var einn af nánustu samverkamönnum Jóns Sigurðssonar í Kaup- mannahöfn og í ritnefnd Nýrra félagsrita fram að því að hann var skipaður forstöðumaður ís- lensku stjórnardeildarinnar eins og Guðjón Friðrikssona rekur í ævisögu Jóns Sigurðssonar. Hlutskipti Oddgeirs var að búa áratugum saman í Los Ang- eles í Kaliforníu á vesturströnd Bandaríkjanna. Aldrei týndi hann uppruna sínum og var Eyjamaður til hinsta dags. Oddgeiri kynntist ég eftir að hann var fluttur heim kominn á tíræðisaldur. Hann var viðræðu- góður, tók vel undir gamanyrði og var áhugasamur um marga hluti. Minnist ég samverustunda með honum með ánægju. Ég kveð Oddgeir föðurbróður minn með alúð og færi fyrir hönd okkar bræðra, Jóhanns og Arnar, Önnu Regínu föður- systur okkar og frændfólki inni- legar samúðarkveðjur. Guð blessi minningu Oddgeirs Páls- sonar. Ólafur Ísleifsson. Oddgeir Pálsson ✝ Magnús Hall-dórsson fædd- ist 9. september 1976 á Landspít- alanum. Hann lést á heimili sínu Svölu- ási 40, Hafnarfirði, 24. maí 2019. Hann var sonur hjónanna Halldórs N. Valde- marssonar, f. 1. júlí 1954, d. 3. mars 1987, og Bryndísar Magnúsdóttur, f. 2. janúar 1959. Systur: 1) Guðrún Valdís, f. 3. febrúar 1979, maki Krist- ján Guðbjartsson, f. 13. sept- ember 1976, synir þeirra eru, Benedikt Davíð, f. 2006 og Ant- on Davíð, f. 2010. 2) Helga Kristín, f. 14. ágúst 1980, maki Gauti Sigurpálsson, f. 15. ágúst 1977, börn þeirra eru Halldór Óskar, f. 2004, Snædís Guðrún, f. 2007, og Emil Snær, f. 2016. Sammæðra, Fann- ar Már Arnarson, f. 16. mars 1991, maki Sigríður Jónsdóttir, f. 21. júlí 1992. Sandra Hrönn Arnar- dóttir, f. 24. júlí 1994. Faðir þeirra, Örn Agnarsson, f. 5. ágúst 1949, d. 10. janúar 2017. Magnús ólst upp á Akureyri. Árið 1995 flutti hann á sambýli í Kópavogi, bjó þar um tíma og flutti svo að Tjaldanesi í Mos- fellsdal. Árið 2003 flutti hann á sambýlið Svöluási 40, Hafnar- firði, og bjó þar til æviloka. Magnús verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju í dag, 7. júní 2019, klukkan 13. Elsku Maggi minn, nú er komið að kveðjustund. Mikið hefur þú gefið mér. Þú varst fal- legur, ljúfur, glaður og heillaðir alla sem þú kynntist. Fyrstu ár- in voru þó erfið en þegar komið var jafnvægi áttir þú mjög gott líf. Þú heillaðir alla sem unnu með þér og studdu á allan hátt. Þú gast verið mjög ákveðinn og vanafastur. Það var nú ekki sama í hvaða föt var farið eða hvaða sænguver voruð notuð. Ekki má nú gleyma því að þú áttir þitt sæti við eldhúsborðið og ef því var að skipta var sá sem settist í þitt sæti svo sannarlega rekinn úr því. Alltaf vildir þú að skórnir í forstofunni væru í röð og reglu, þú raðaðir þeim alltaf í röð. Þú varst yndis- legur drengur og fullorðinn maður, varstu hvers manns hug- ljúfi og bræddir hjörtu allra sem kynntust þér. Elsku Maggi minn, í framtíðinni mun ég rifja upp allt það skemmtilega sem þú gerðir og veitti mér ánægju. Fyrir ári var vitað að nýrun voru að bila en þú komst mér og öll- um á óvart með þrautseigju þinni. Það voru síðustu tvær vik- urnar í þínu lífi sem einkennin fóru að gera vart við sig og fyrir það er ég ævinlega þakklát. Elsku Maggi minn, ég veit að pabbi þinn tekur vel á móti þér ásamt öllum hinum sem eru farnir og sérstaklega hún amma Helga sem var þér alltaf svo góð. Þú áttir fallegt og gott heimili á Svöluási 40 frá árinu 2003. Ég vil þakka öllum sem þar búa og starfa kærlega fyrir hlýju og kærleik á liðnum árum. Takk starfsfólk á Svöluási fyrir að Maggi fékk að vera heima til loka þessa lífs. Guð blessi ykkur. Englar eins og þú: Þú tekur þig svo vel út hvar sem þú ert. Ótrúlega dýrmætt eintak, sólin sem yljar og umhverfið vermir. Þú glæðir tilveruna gleði með gefandi nærveru og færir bros á brá svo það birtir til í sálinni. Sólin sem bræðir hjörtun. Í mannhafinu er gott að vita af englum eins og þér. Því að þú ert sólin mín sem aldrei dregur fyrir. (Sigurbjörn Þorkelsson) Mamma. Elsku Maggi bróðir. Nú er komið að leiðarlokum í bili og margar minningar koma upp í hugann. Við systur eigum margar minningar frá því við vorum litlar og munum við vel eftir því þegar þú fékkst þitt fyrsta hjól. Það var risastórt þríhjól og fengum við að nota það þegar þú varst ekki að hjóla á því og urðum fyrir vikið mjög vinsælar í hverfinu. Það var hægt að komast alveg ótrúlega hratt á þessum fák og oft vorum við með hjólareiðakeppni út götuna og þá var yfirleitt sigur- vegarinn sem var á þríhjólinu. Í herberginu þínu í Flötu- síðunni vorum við duglegar að leika okkur og þá sérstaklega í rúminu þínu sem var mjög óhefðbundið. Það var í raun ein risastór dýna sem við settum upp á rönd og notuðum hana sem rennibraut mömmu ekki til mikillar gleði. Á sunnudögum voru fastir liðir að fara í Akureyrarlaug en þá var laugin ekki opin fyrir al- menning. Okkur fannst við því- líkt heppnar að fá bara einka- sundlaug og það var þér að þakka. Þegar kom að því að flytja suður ákvað mamma að við myndum bara dvelja í eitt ár til að byrja með en það sem var þér fyrir bestu var að vera fyrir norðan á Sólborg. Eftir árið var ákveðið að við myndum ekki fara aftur norður og því var far- ið að vinna í því að fá þig líka suður. Síðustu 16 árin hefur þú búið á yndislegu heimili í Hafn- arfirði. Það var alltaf ánægju- legt að koma í heimsókn til þín í Svöluás, þú tókst alltaf á móti okkur með því að sitja úti við glugga í stólnum þínum. Þar leið þér vel og það var svo gam- an að fylgjast með þér spila á orgelið þitt. Það var alveg ómet- anlegt að koma til þín á mæðra- daginn síðasta, þar sem við öll systkinin og mamma komum til þín og tókum fína hópmynd af okkur. Það besta við þessa heimsókn, þó að þú hafir verið orðinn mjög veikur var að þú vildir alls ekki leyfa okkur að draga gardínu fyrir gluggann eða snúa stólnum þínum til að ná góðri mynd, það sýndi okkur hvað þú varst sterkur og vildir hafa hlutina alveg eins og þér hentaði. Við vitum að þú ert kominn á betri stað og þér líður vel. Pabbi hefur tekið vel á móti þér og amma með volgum pönnukökum og kaffi. Hvíl í friði, elsku bróðir. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. Grátnir til grafar göngum vér nú héðan, fylgjum þér, vinur. Far vel á braut. Guð oss það gefi, glaðir vér megum þér síðar fylgja’ í friðarskaut. (Valdimar Briem) Guðrún Valdís og Helga Kristín. Elsku Maggi okkar, Nú ert þú farinn að heiman í ferðalagið langa sem bíður okk- ar allra. Við erum svo þakklát fyrir að hafa verið hjá þér þeg- ar þú lagðir af stað og að við gátum kvatt þig hér heima. Þú varst einstakur maður. Hjartahlýr, ákveðinn, oft á tíð- um erfiður og vildir hafa allt eftir þínu höfði. Fallega og ein- læga brosið þitt gerði það þó að verkum að sjálfsagt var að fyr- irgefa og gleyma. Þú varst fyndinn og skemmtilegur karakter og allt- af stutt í söng og hlátur, enda yfirleitt í miklu stuði og til í að grínast. Þú varst umhyggjusamur og þér þótti vænt um vini þína. Þú varst sjarmerandi og hikaðir ekki við að smella kossi á kinn, glottandi og ánægður með þig. Þér fannst fátt betra en að borða góðan mat og þá ber helst að nefna lambakjöt, svo hægt væri að naga utan af beinunum. Þú gladdir okkur á hverjum degi með því að spila lög á orgelið þitt og varst hæst ánægður þegar þú náðir að plata einhvern með þér í þvottahúsið að þvo. Toppurinn á tilverunni var svo að fá sér kaffibollann góða. Þín verður sárt saknað. Öll eigum við yndislegar minningar um þig sem við munum geyma um ókomna tíð. Sorg okkar er mikil en við gleðjumst yfir því að þú sért laus undan veikindum þínum. Nú ert þú kominn í faðm föður þíns sem hjálpar þér að fóta þig í nýjum heimkynnum. Þegar ég leystur verð þrautunum frá, þegar ég sólfagra landinu á lifi og verð mínum lausnara hjá – það verður dásamleg dýrð handa mér. Ástvini sé ég, sem unni ég hér, árstraumar fagnaðar berast að mér, blessaði frelsari, brosið frá þér, það verður dásamleg dýrð handa mér. (Þýð. Lárus Halldórsson) Þú munt alltaf eiga stað í hjörtum okkar, við vorum lán- söm að þekkja þig. Hvíl í friði, elsku vinur. Fyrir hönd allra í Svöluási 40, Birna Guðmundsdóttir. Magnús Halldórsson Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.