Morgunblaðið - 07.06.2019, Qupperneq 25
MINNINGAR 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. JÚNÍ 2019
✝ Drengur HelgiSamúelsson
fæddist í Reykjavík
21. febrúar 1960.
Hann lést á krabba-
meinsdeild Land-
spítalans 3. júní
2019.
Foreldrar hans
eru Samúel Þórir
Haraldsson, f. 12.
apríl 1932, d. 6. apr-
íl 1969, og Kristín
Sigríður Guðjónsdóttir, f. 25.
september 1930. Systkini hans
Samúelsdóttir og Jón Finnur
Kjartansson, látinn.
Eiginkona Drengs Helga er
Sóley Ósk Stefánsdóttir, f. 25.12.
1959. Börn þeirra eru Guðjón
Finnur Drengsson, f. 1979, Stef-
án Aðalsteinn Drengsson, f.
1980, og Samúel Þórir Drengs-
son, f. 1981. Barnabörnin eru sjö.
Drengur vann ýmis verka-
mannastörf auk þess að stunda
sjómennsku um árabil. Hann
vann hjá Gámastöðinni til fjölda
ára og sinnti þar akstri og við-
gerðum á vörubílum. Starfsferil-
inn endaði hann hjá Héðni í
Hafnarfirði. Drengur var meðal
stofnenda Jeppaklúbbs Reykja-
víkur.
Útför hans fer fram frá Frí-
kirkjunni í Reykjavík í dag, 7.
júní 2019, klukkan 15.
eru Haraldur Guð-
jón Samúelsson,
óskírður drengur,
látinn, Guðrún
Ólafía Samúels-
dóttir, Borgný Sam-
úelsdóttir, Kristín
Björk Samúels-
dóttir, Arnlaugur
Kristján Samúels-
son, Samúel Krist-
inn Samúelsson, lát-
inn, Gísli Sigurjón
Samúelsson, Kristján Gaukur
Kristjánsson, Jónína Ingibjörg
Baráttujaxl og vinur í raun.
Á fögrum sumardegi í sumar-
bústaðnum heyrast vélhjóla-
drunur sem færast nær. Þar er
kominn Drengur Helgi á mótor-
hjólinu til okkar í Borgarfjörð-
inn með stóran blómvönd í tilefni
af brúðkaupsafmæli okkar
hjóna. Þannig var Drengur,
fylgdist með úr fjarska og kom
færandi hendi með eitthvað
skemmtilegt og dreif sig í vinnu-
gallann ef það var eitthvað sem
þurfti að gera. Kom hann þegar
Addi bróðir hans var að mála
þakið og ekkert hangs, Drengur
var mættur upp á þak að hjálpa
til og þeir bræður tautuðu og
hlógu meðan ég beið niðri eftir
að þurfa að grípa þá, þeir bræð-
ur gátu nefnilega verið svolítið
djarfir fyrir þá viðkvæmu.
Sumarið 2017 rættist draum-
ur þeirra bræðra og þeir fóru
hringinn í kringum landið ásamt
Vestfjörðum á mótorhjólum.
Í tvær vikur var sofið í tjaldi,
eldað á gasi eða borðað úti. Farið
snemma upp alla daga, pakkað
saman dótinu og brunað á hjól-
unum allt upp í 14 tíma á dag
með vindinn í fangið í rigningu
eða sól og sælu í algjöru frelsi
með Deep Purple í eyrunum. Svo
eftir langan dag voru eldaðar
kótelettur og bakaðar baunir og
eftir mat var skriðið inn í tjald.
Þeir bræður nutu frelsisins,
hittu margt skemmtilegt fólk og
upplifðu landið í sinni breytilegu
mynd.
Það var alltaf gaman að koma
í Sílakvíslina til Drengs og Sól-
eyjar og heyra söng sonanna
þriggja Gaua, Stebba og Samma.
Pabbinn söng ekki með en sat
stoltur og fylgdist með.
Svo kom Stelpa í fjölskylduna
af Irish Setter-kyni. Stelpa gaf
sterklega til kynna að henni lík-
aði ekki þurrmatur og það skildi
Drengur vel og hunsaði allt
hundamatsfræðingatal og bland-
aði einhverju bragðgóðu í mat-
inn og Stelpa horfði á hann með
mikilli aðdáun og varð ekki
meint af.
Drengur afi naut þess að vera
með barnabörnunum og eyddi
með þeim ófáum stundum. Fyrir
sl. jól vorum við ásamt Dreng
stödd í IKEA. Drengur var þá
töluvert veikur, en viti menn, ég
leit við og sá að það voru kominn
sjö piparkökuhús, litir og nammi
í körfuna hjá honum. Það skyldi
takast að gera piparkökuhús
með krökkunum, það þyrfti bara
smá kraft og gleði sem tókst eins
og svo margt sem hann gerði og
lét sín erfiðu veikindi sl. þrjú ár
ekki stoppa það. Drengur var
baráttujaxl sem vissi að baráttan
skilar meiru en uppgjöfin.
Árbæjarlaug kl. 10.30. Þessi
boð sá Drengur um að senda til
fjölskyldunnar á hverjum
laugardegi í nokkur ár.
Þú varst ósérhlífinn fjöl-
skyldumaður sem sást oft litlu
hlutina sem skipta miklu máli.
Eitt dæmi af mörgum. Veisla í
fjölskyldunni, Drengur mættur
beðinn eða óumbeðinn með stórt
fat af upprúlluðum volgum
pönnukökum. Þær hurfu fljótt af
fatinu og hefði í flestum tilfellum
ekki þurft neitt annað meðlæti
fyrir börnin. Minningin um
pönnukökudrenginn með stóra
hjartað mun örugglega ylja
mörgum um ókomin ár.
Þú vildir fá lengri tíma og
barðist til síðustu stundar, en
endalokin voru ófrávíkjanleg.
Þú varst góður ferðafélagi og
þín verður sárt saknað.
Vertu sæll, bróðir kær.
Baráttunni er lokið, bróðir kær.
Brostu því nú ertu kominn í heiminn
þinn.
Friðurinn kom og bar þig fjær.
Fljúgðu því þú ert fullkominn.
(Birgitta Birgisdóttir)
Elsku mamma, Sóley og fjöl-
skylda, megi góður Guð vera
með ykkur.
Kær kveðja,
Arnlaugur og Jana.
Ég þakka allt frá okkar fyrstu kynnum
það yrði margt, ef telja skyldi það.
Í lífsins bók það lifir samt í minnum
er letrað skýrt á eitthvert hennar blað.
Ég fann í þínu heita stóra hjarta,
þá helstu tryggð og vináttunnar ljós.
Er gerir jafnvel dimma vetur bjarta
úr dufti lætur spretta lífsins rós.
(Margrét Jónsdóttir)
Í dag er erfið kveðjustund er
ég fylgi Dreng Helga, kærum
bróður, hinsta spölinn í þessari
jarðvist. Ég var aðeins sex ára
þegar hann kom í heiminn en
samt varð hann fyrsta barnið
sem ég gætti og það var ekki erf-
itt verk. Hann var mér þægur,
hefur sjálfsagt litið upp til stóru
systur sinnar, enda sótti ég eftir
því að hafa hann með mér hvert
sem ég fór. Ljúfur í lund og glað-
vær en þó fastur fyrir og þrjósk-
ur en alsæll ef hann fékk rúsínur
og lýsi, en það var uppáhaldið.
Systkinahópurinn var stór en
Drengur var sjötta barn foreldra
okkar og síðar áttu fimm eftir að
bætast í hópinn, enda lærðum
við fljótt að bera ábyrgð og gæta
hvert að öðru og finna lausnir í
daglegu streði. Margar minning-
ar hafa sótt á hugann undan-
farna daga og er ein frá því er
við vorum börn. Ég sennilega
um níu ára og Drengur þriggja
ára. Ég fór með yngri bræður
mína í strætó niður að Tjörn að
veiða síli. Ekkert þótti athuga-
vert við það á þessum tíma þó
níu ára barn bæri ábyrgð á sér
yngri börnum. Drengur var í
pollagalla og eitthvað fór hann
óvarlega við sílaveiðina því hann
féll út í Tjörnina á bólakaf. Ég
náði að draga hann upp og koma
honum í strætó heim. Alla leið-
ina heim lak vatnið úr stígvélum
og pollagalla og var ég mest
hrædd um að strætóbílstjórinn
ræki okkur út úr vagninum fyrir
sóðaskapinn, en þá gekk strætó
aðeins á klukkutíma fresti í
Fossvoginn þar sem við bjugg-
um. Drengur var alsæll og upp-
lifði þetta sem mikið ævintýri
enda með nokkur síli í gler-
krukku. Drengur var alla tíð
mikill fjölskyldumaður og ein-
staklega trygglyndur. Hann var
óþreytandi við að draga okkur
systkinin með sér í útilegur,
gönguferðir, í sund eða til út-
landa, vildi alltaf hafa alla með,
unga og gamla. Þegar þau hjónin
áttu afmæli þá oftar en ekki hó-
aði hann í alla fjölskylduna í súpu
og pönnukökur sem hann hristi
fram úr erminni. Hann bakaði
nokkrar sortir af smákökum fyrir
jólin og þótti nauðsynlegt að
sjóða góðan slatta af rabarbar-
asultu á haustin. Ungur kynntist
hann Sóleyju sinni og saman eiga
þau þrjá uppkomna syni og sjö
barnabörn. Barnabörnin hans
voru einstaklega hænd að afa sín-
um enda sinnti hann þeim vel og
er því missir þeirra mikill. Strák-
arnir hans voru nánir pabba sín-
um og miklir vinir. Addi bróðir
var aðeins tveimur árum eldri en
Drengur en frá barnsaldri voru
þeir yfirleitt nefndir í sömu setn-
ingu. Þeir voru einstaklega nánir,
áttu sömu áhugamál og brölluðu
margt saman. Addi hefur staðið
með Dreng og stutt í gegnum
þessi erfiðu veikindi og vonandi
finnur hann styrk í sorginni.
Mamma fylgir nú sínum fjórða
syni yfir í eilífðina og veit ég að
hennar sorg er mikil.
Elsku Sóley, Gaui, Stebbi,
Sammi og fjölskyldur, samúðar-
kveðjur frá okkur Mumma.
Guðrún Ólafía Samúelsdóttir.
Sporin eru búin að vera þung
síðustu daga, vikur, mánuði og ár
við að horfa á litla bróður berjast
við það sem enginn ætti að þurfa
að gera. En svo kom að því að
hann gat ekki meir og hvarf inn í
sumarlandið þar sem pabbi og
bræður okkar þrír ásamt öllum
þeim sem á undan eru gengnir
hafa eflaust tekið vel á móti þess-
um sterka kletti sem Drengur
bróðir var. Hann var kletturinn í
lífi okkar allra sem fengum að
njóta samvista við þennan góða
mann. En mestur er missir Sól-
eyjar og strákanna þriggja,
tengdadætranna og sjö barna-
barna. Móðir hans horfir á eftir
fjórða syninum hverfa inn í sum-
arlandið og Arnlaugur bróðir
hans sem vék ekki frá bróður sín-
um og besta vin. Stórfjölskyldu-
rnar syrgja góðan Dreng. Ég er
full þakklætis fyrir að hafa alist
upp í þessum stóra og flotta
systkinahóp. Við deilum með
okkur minningum um gleði og
sorg sem kennir manni að lífið er
ekki sjálfgefið, það er stundum
harkalegt en að sama skapi lær-
dómsríkt. En minningarnar tek-
ur enginn frá okkur, njótum
þeirra, tölum saman um allar
stundirnar sem höfum átt saman.
Við vottum Sóleyju og fjölskyldu
okkar innilegustu samúðar-
kveðjur.
Þökkum þér, Drengur, fyrir
allt sem þú varst okkur.
Farðu í friði, elsku bróðir, og
Guð gæti þín.
Borgný og Halldór.
Elsku Drengur. Kveðju-
stundin er runninn upp, ég sem
hélt að við myndum hafa þig
lengur og að þú myndir útskrif-
ast af spítalanum eins og í öll hin
skiptin, ganga út beinn í baki og
sterkur að vanda. Í síðasta sam-
talinu okkar varstu ekki viss um
hvort þú kæmir heim eftir
nokkra daga „eða kannski bara
á morgun“. Sú varð ekki raunin
og eftir sitjum við sorgmædd og
reynum að halda áfram því
þannig er víst lífið. Þó svo að við
höfum öll vitað að þessi dagur
kæmi er ekkert sem undirbýr
mann fyrir hann. Mér þykir ég
heppin að hafa fengið að eiga þig
að. Að stelpurnar mínar fengu
báðar að kynnast þér vel og það
segir mikið að þrátt fyrir að síð-
ustu tvö ár hafi úthaldið þitt og
þrek minnkað til muna vildi
Freydís Sóley samt eyða öllum
sínum frítíma niðri hjá „afa“,
enda var gott að vera þar.
Rólegur, yfirvegaður og þolin-
móður afi var alltaf til staðar
fyrir dísina sína og faðmurinn
hlýr að vanda. Elddís Helgey
var líka mikil afastelpa og fékk
ár af daglegu samneyti við þig
og þar vorum við líka heppinn að
fá að eiga þó þann tíma.
Nú ert þú afi Drengur engill
og Freydís syngur fyrir þig áður
en hún fer að sofa og lokar aug-
unum glöð því við segjum henni
að þú passir hana þegar hún
sefur.
Ég kann svo að meta að það
var ekkert óþarfa blaður um allt
og ekkert hjá þér, enda hrein-
skilnin alltaf best og þá veit
maður hvar maður hefur fólk.
Þú varst alltaf til staðar, en
passaðir þig að halda þinni fjar-
lægð síðustu tvö árin enda ná-
býlið mikið á milli okkar. Ég
hugsaði oft um það hvort þetta
krabbamein væri ekki bara
kjaftæði því þú varst alltaf að.
Þú hafðir mikið verksvit sem
kom með reynslunni sem fylgir
því að hafa alltaf gert allt sjálfur
og dugnaðurinn alltaf til staðar.
Það var að sjálfsögðu engan bil-
bug á þér að finna alveg fram á
síðasta daginn sem þú lifðir. Þú
varst með þeim sterkari mönn-
um andlega og líkamlega sem ég
hef kynnst og það kom eflaust
líka með reynslunni sem hefur
mótað þig í gegnum árin. Svo
ertu líka sonur móður þinnar
sem er mesti dugnaðarforkur
sem til er. Þú tókst þessum veik-
indum með æðruleysi sem kom
mér og þínum ekkert á óvart.
Ég verð svo óskaplega sorg-
mædd þegar ég hugsa um það að
framtíð stelpnanna minna og
allra þinna barnabarna sem
elskuðu þig skilyrðislaust verði
án þín því þú varst þeim svo
óskaplega mikið. Það eru erfiðir
tímar fram undan fyrir þau og
okkur öll. Ég vona að þú sért nú
á góðum stað, keyrir um á fákn-
um þínum í sól og sælu og njótir
þín verkjalaus. Við söknum þín
mikið, meistari. Takk fyrir allt
og það voru forréttindi að fá að
hafa þig í lífi mínu og okkar
allra, þín tengdadóttir.
Guðlaug Ósk.
Drengur Helgi
Samúelsson
✝ Lára Hannes-dóttir Schram
fæddist 1. október
1959 í Kópavogi.
Hún andaðist í Ven-
nesla í Noregi 23.
maí 2019.
Foreldrar Láru
voru Berta Her-
bertsdóttir, f. 18.
júlí 1926, d. 5. sept-
ember 2005, og
Hannes Helgason,
f. 10. ágúst 1929, d. 23. apríl
2006. Systkini Láru eru: Guð-
laug Maggý, f. 20. janúar 1950,
gift Jóni Pétri Jónssyni; Hafdís,
f. 19. október 1953, gift Stefáni
Gunnari Stefánssyni; Helgi, f.
21. ágúst 1955, kvæntur Guð-
mundu Huldu Eyjólfsdóttur;
Sigmundur, f. 5. september
1961.
Lára giftist 27. desember
1981 Hilmari Önfjörð Magnús-
syni, f. 30. september 1948, d. 4.
desember 2001. Þau skildu 1989.
Synir þeirra eru Magnús Helgi
Schram, f. 24. september 1982,
og Davíð Örn, f. 9. september
1987.
Lára ólst upp í Kópavogi,
gekk í Kársnesskóla og Þing-
hólsskóla. Hún flutti ung til Sví-
þjóðar, stofnaði sitt fyrsta heim-
ili og eignaðist þar báða syni
sína. Þar vann hún ýmis störf,
m.a. við sjúkrahús
og við gróðurhús
sem þau hjónin
ráku saman. Eftir
skilnað árið 1989
flutti Lára til Ís-
lands með syni sína.
Næstu tvö árin bjó
hún og starfaði sem
dagmamma með
Maggý systur sinni
í Mosfellsbæ. Lára
keypti sína fyrstu
íbúð við Engihjalla í Kópavogi
og starfaði næstu árin við ýmis
þjónustustörf og veisluþjónustu,
lengst af hjá Múlakaffi. Seinni
árin sem hún bjó á Íslandi vann
hún sem sölumaður hjá Íspan
glerverksmiðju í Kópavogi. Hún
flutti til Danmerkur árið 1995
þar sem hún vann hjá bílaleig-
unni Hertz. Í febrúar 1996 flutti
Lára með syni sína til Vennesla í
Noregi. Þar hóf hún störf hjá
Kvarstein gartneri við garð-
yrkju og að loknu námi við garð-
yrkjuskóla vann hún sem versl-
unarstjóri í blómaversluninni
sem garðyrkjustöðin rak. Árið
2008 hóf hún störf hjá trygg-
ingafélaginu IF í Kristiansand
og starfaði þar á meðan heilsan
leyfði.
Útför hennar fór fram frá
Vennesla-kirkju í Noregi 29.
maí 2019.
Elsku Lára systir okkar er lát-
in, langt um aldur fram, eftir erf-
ið veikindi. Lára var fjórða í röð-
inni af okkur systkinum. Við
ólumst upp í stórri fjölskyldu auk
okkar og foreldra okkar voru
Lauga amma og Lára systir
hennar á heimilinu. Til aðgrein-
ingar var Lára systir alltaf kölluð
Lára litla. Við bjuggum þröngt
fyrstu árin í tveggja herbergja
íbúð á Kópavogsbraut, síðan
byggðu foreldrar okkar hús á
Mánabraut og við fluttum þangað
1965.
Lára fór ung að heiman til
starfa í Keflavík og á Hótel
Geysi. Hún flutti til Svíþjóðar 19
ára gömul og vann þar við ýmis
störf við sjúkrahús og fleira. Þar
kynntist hún Hilmari, þau giftust
og eignuðust synina Magnús og
Davíð. Saman ráku þau gróður-
hús í Lundi.
Árið 1989 skildu Lára og Hilm-
ar og hún flutti til Íslands með
drengina. Fyrstu tvö árin á Ís-
landi bjó Lára hjá Maggý og
Nonna og voru systurnar dag-
mömmur. Hún keypti sína fyrstu
íbúð í Engihjalla í Kópavogi og
vann við ýmis þjónustustörf og
veisluþjónustu. Síðar hóf hún
störf hjá Íspan glerverksmiðju
þar var hún fyrsti kvensölumað-
urinn, ekki höfðu allir mikla trú á
því að það gengi en hún varð
fljótt vinsæll sölumaður sem
margir leituðu til.
Enn tók Lára sig upp og nú lá
leiðin til Danmerkur. Þar átti hún
aðeins stutt stopp því hún flutti
til Vennesla í Noregi 1996 þar
sem fyrir voru Simmi, Maggý og
fjölskyldur þeirra.
Þar festi hún rætur og var það
mikið gæfuspor fyrir hana og
drengina. Fyrstu árin bjó hún í
leiguhúsnæði en keypti árið 2001
hús við hliðina á Maggý og
Nonna á Saga 26 í Vennesla. Það
hús endurnýjaði hún að mestu
leyti með góðri hjálp fjölskyld-
unnar. Það gladdi Láru mjög á
seinustu dögum ævinnar að synir
hennar voru sammála um að
Magnús mundi yfirtaka húsið og
búa þar.
Lára var mjög hjálpsöm, mátti
ekkert aumt sjá og var fyrst á
vettvang þegar eitthvað þurfti að
gera. Hún setti sjálfa sig aldrei í
fyrsta sæti, ekkert var svo erfitt
að ekki væri hægt að vinda sér í
verkið og ljúka því, eða þrusa því
af eins og hún sagði alltaf. Meðan
hún lifði varð hún ekki svo lán-
söm að eignast eigin barnabörn,
en tók ástfóstri við börn og
barnabörn okkar systkinanna og
var þeim sem allra besta amma.
Vilma, St.Bernhards hundurinn
hans Magnúsar, var henni mjög
kær og talaði hún um hana eins
og barnabarn. Lára var mikill
gleðigjafi og naut þess að vera
með fólki og aðstoða á allan hátt
og var því vinamörg. Helstu
áhugamálin voru garðyrkja og
prjónaskapur, það eru margar
peysurnar sem hún prjónaði og
gaf bæði á jólamarkaði í Vennesla
og til vina og vandamanna. Láru
verður sárt saknað af allri stór-
fjölskyldunni og mun hún áfram
lifa í hugum og hjörtum okkar.
Svæfillinn minn og sængin mín
sé önnur mjúka höndin þín,
en aðra breið þú ofan á mig,
er mér þá værðin rósamlig.
(Sigurður Jónsson frá Presthólum)
Kær kveðja frá okkur systkin-
unum,
Maggý, Hafdís, Helgi og
Sigmundur.
Lára Hannesdóttir
Schram
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
ADAM ÞÓR ÞORGEIRSSON,
Háholti 5, Akranesi,
lést 5. júní á Sjúkrahúsi Akraness.
Útförin verður frá Akraneskirkju
miðvikudaginn 12. júní klukkan 13.
Ólöf Erna Adamsdóttir Hreinn Haraldsson
Friðrik Adamsson Lise Dandanell
Auður Adamsdóttir Gunnlaugur V. Snævarr
Þorgeir Adamsson Hrönn Hilmarsdóttir
barnabörn og langafabörn
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við
andlát og útför móður okkkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
EDDU MAGNÚSDÓTTUR,
Hjallalundi 20,
Akureyri,
sem lést 16. maí.
Vilborg Gautadóttir Hlynur Jónasson
Magnús Gauti Gautason Hrefna G. Torfadóttir
Elín Gautadóttir Steinþór Ólafsson
barnabörn og barnabarnabörn