Morgunblaðið - 07.06.2019, Síða 27

Morgunblaðið - 07.06.2019, Síða 27
MINNINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. JÚNÍ 2019 Sálm. 16.1-2 biblian.is Varðveit mig, Guð, því að hjá þér leita ég hælis. Ég segi við Drottin: „Þú ert Drottinn minn, ég á engin gæði nema þig.” Ég var svo lánsöm að starfa við Borgarspítalann. Við hjúkrunar- fræðingarnir skiptumst svolítið í tvo hópa. Héldum tryggð við ann- að hvort Borgarspítalann eða Landspítalann. Ég hóf störf þar um 1970 og líkaði mjög vel. Það var gott skipulag og góður andi í þessu húsi. Hjúkrunarforstjóri var Sigurlín Gunnarsdóttir. Það var mikil virðing borin fyrir henni, en það var gagnkvæmt. Hún kom ætíð fram við fólk af virðingu og alúð. Hún gat verið ákveðin en réttsýn, þetta eru eðal-eiginleikar hjá stjórnanda. Ég vann með henni í hjúkrunarstjórn Borgar- spítalans í nokkur ár. Við nánara samstarf kynntumst við betur. Hún var framsýn, víðsýn og dugn- aðarforkur. Fylgdist vel með á öll- um sviðum. Þetta starf og um- gjörð hjúkrunar átti hug hennar allan. Þegar ég hugsa til baka þá man ég svo vel hvað hún gaf mikið af sér. Hún talaði hlutina upp en ekki niður, sem er ótrúlega gef- andi í dagsins önn. Hennar lund var glöð, bjartsýn og umhyggju- söm. Sigurlín hóf störf sem for- stöðukona Borgarspítalans árið 1965, þá var spítalinn í byggingu. Árið 1974 breyttist stöðuheitið í hjúkrunarforstjóri. Vann hún öt- ullega að uppbyggingu og ótelj- andi aðföngum innanhúss. Það má segja að spítali sé ríki í ríkinu. Það er svo margþætt starfsemi sem fylgir og er nauðsynleg. Frum- kvöðlastarfið var mikið. Í þá daga var ekki hægt að hafa samband við hönnunardeildir eða slíka aðila til að dreifa álaginu. Mönnun og hjúkrun þurfti að skipuleggja, ásamt öllu hinu. Hún byggði upp kennslu fyrir sjúkraliða. Höfðu tveir hópar sjúkraliða útskrifast þegar spítalinn tók til starfa árið 1969. Voru þá deildir opnaðar hver af annarri. Sjúkraliðaskóli Borgarspítalans brautskráði 162 sjúkraliða. Sjúkraliðaskóli Íslands tók til starfa 1975, útskrifuðust þá allir sjúkraliðar þaðan. Á þessu ári eru 100 ár síðan Hjúkrunar- félag Íslands var stofnað. Þegar nám í hjúkrunarfræði fór á há- skólastig þá varð til nýtt félag. Fljótlega sameinuðust þessi tvö félög í Félag íslenskra hjúkrunar- fræðinga eins og það heitir í dag. Nú á þessum tímamótum er skautað aftur og fram í tíma og rúmi. Sagt frá stofnunum, frá- sagnir og viðtöl við ýmsa aðila í ræðu og riti sem tengjast félaginu og hjúkrun. Eflaust hefur eitthvað farið fram hjá mér, en ég hef leit- að eftir ummælum um Sigurlín og hennar framlag til hjúkrunar. Ár- ið 2000 gaf hún út bókina „Sjúkra- hús verður til, upphaf og upp- bygging hjúkrunarþjónustu Borgarspítalans í Reykjavík“. Vitað er að Borgarspítalinn er ekki lengur til en hann átti samt sitt líf og sögu. Við getum öll verið sammála um það. Elsku Sigurlín. Nú er komið að leiðarlokum. Þú skilur eftir svo ótal margt í þessu lífi. Minning þín lifir. Ættingjum þínum sendi ég innilegar samúðarkveðjur. Elinborg Ingólfsdóttir. Kveðja frá Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga Sigurlín M. Gunnarsdóttir, heiðursfélagi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, er látin. Sig- urlín útskrifaðist frá Hjúkrunar- skóla Íslands 1951. Hún fór til frekara náms í skurðtækni, spít- alastjórn og heilsuvernd í Eng- landi og Danmörku 1962 til 1964 og lauk framhaldsnámi í hjúkrun- arfræði, kennslu og stjórnun við Sygeplejehöjskolen í Árósum. Sigurlín hóf starfsferilinn við sjúkrahúsið á Akureyri og starf- aði síðan víða bæði hérlendis og erlendis þar til hún flutti til Akra- ness og hóf störf við opnun Sjúkrahúss Akraness 1952. Haustið 1956 tók hún þar við stöðu yfirhjúkrunarkonu, sem hún sinnti til 1963. Þá tók hún við stöðu aðstoðarforstöðukonustöðu á Landspítalanum til 1965 er hún var ráðin hjúkrunarforstjóri Borgarspítala og starfaði Sigurlín þar til 1988. Sigurlín bjó spítalann undir framtíðarhlutverk hans og gerði hún m.a. tillögur um skipu- lag og vinnuhagræðingu. Starf hennar var yfirgripsmikið og gerði miklar kröfur um víðtæka þekkingu í hjúkrunarfræði, stjórnun og rekstri. Öll hjúkrun og aðhlynning var á hennar starfssviði, auk yfirstjórnar sótt- hreinsunar, saumastofu og ræst- inga. Hún vann að skipulagi og mót- un hjúkrunar við sjúkrahúsið og einsetti sér að veita góða og fag- lega hjúkrun og að starfsfólkinu liði vel til að tryggja sjúklingum spítalans góða og samfellda hjúkrun. Hæfileikar Sigurlínar nutu sín vel sem hjúkrunarforstjóri Borgarspítalans. Hún var yfir- veguð í framkomu og hafði sér- staklega góða nærveru. Faglegur metnaður og einstök yfirsýn yfir starfsemi spítalans gerðu hana að mikilsvirtum leið- toga hjúkrunar. Hún kom m.a. á og réð hjúkr- unarfræðing í stöðu fyrsta fræðslustjóra innan hjúkrunar- þjónustu á landinu 1972. Þá hóf Borgarspítalinn kennslu i sjúkra- hjálp 1966 sem var átta mánaða kennsla nýrrar aðstoðarstéttar í hjúkrun er hlaut starfsheitið sjúkraliði. Allt var gert til að auka gæði hjúkrunarþjónustunnar á spítalanum. Til að tryggja öryggi sjúklinga enn frekar voru sýkingavarnir spítalans efldar. Sigurlín réði hjúkrunarfræðing í hálft starf til þess og var síðan stofnuð sýk- ingavarnanefnd spítalans 1980. Að beiðni framkvæmdastjórn- ar Sjúkrahúss Reykjavíkur skrif- aði Sigurlín bók um upphaf og uppbyggingu hjúkrunarþjónustu á 25 ára afmæli spítalans og var bókin Sjúkrahús verður til gefin út árið 2000. Bókin er einstök heimild um undirbúning og upp- byggingu hjúkrunarþjónustu á nýjum spítala. Sigurlín sat í stjórn Hjúkrun- arfélags Íslands 1965 til 1970. Hún var fulltrúi félagsins í Al- þjóðaráði hjúkrunarfræðinga (ICN) og í Samstarfi hjúkrunar- fræðinga á Norðurlöndum (SSN) 1972-1976, fulltrúi í Samtökum heilbrigðisstétta 1969-1973 og formaður deildar hjúkrunarfor- stjóra og hjúkrunarfram- kvæmdastjóra innan félagsins 1968-1971. Sigurlín var gerð að heiðurs- félaga fyrir brautryðjendastarf hennar að hjúkrunarmálum og uppbyggingu hjúkrunar í landinu, í Hjúkrunarfélagi Íslands síðar Félagi íslenskra hjúkrunarfræð- inga 1989. Blessuð sé minning hennar. Guðbjörg Pálsdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Við fráfall Sigurlínar reikar hugurinn mörg ár aftur í tímann þegar við vorum samstarfsmenn á hinum nýja spítala í Fossvogi, Borgarspítalanum, sem tók til starfa í árslok 1967. Hann var þó ekki fullbyggður fyrr en síðar. Þegar bygging spítalans var langt komin var Sigurlín ráðin stjórnandi hjúkrunar. Í fyrstu var starfsheiti hennar forstöðukona en frá árinu 1974 var titill hennar hjúkrunarforstjóri. Áður en hún tók formlega til starfa fór hún í langa ferð til Norðurlanda til þess að kynna sér nýjungar í starfsemi sjúkrahúsa. Áður en sjúkradeildir voru til- búnar til að taka á móti sjúkling- unum var að mörgu að hyggja. Nefna má sjúkrarúm og sængur- fatnað, áhöld og muni, lyfja- geymslu, sótthreinsun, starfs- mannafatnað og aðbúnað starfsfólks en ekki síst mönnun og skipulag hjúkrunar. Allt þetta krafðist mikillar undirbúnings- vinnu en Sigurlín leysti öll þessi atriði með prýði. Hún segir frá framangreindu í mjög fróðlegri bók, „Sjúkrahús verður til“, sem hún ritaði eftir að hún lét af störfum. Þegar spítalinn hafði tekið til starfa var í mörg horn að líta fyrir hana og hún fylgdist vel með starfseminni. Hún klæddist alla tíð hvíta hjúkrunarbúningnum og bar hvítan kappa á höfði a.m.k. fyrstu árin. Í annarri hendi bar hún lítinn kladda eða minnisbók þar sem hún skrifaði athugasemdir sínar. Hún mun hafa komið daglega á allar sjúkradeildir til þess að fylgjast með og ræða við starfs- fólk, en aðbúnaður sjúklinganna var henni efst í huga. Sigurlín var sönn hæverska í blóð borin og viðmót hennar var hlýtt en ákveðið. Hvar sem hún kom virtist nærvera hennar hafa í för með sér einhvers konar frið- sæld og vellíðan viðstaddra. Því háttaði svo til að borgar- stjórn Reykjavíkur kaus stjórn spítalans en stjórnarfundi sátu auk kjörinna fulltrúa, fram- kvæmdastjóri spítalans, hjúkrun- arforstjóri og formaður lækna- ráðs. Minnisstætt er að þegar mál- efni sjúklinga voru til umræðu hélt hún málstað þeirra fram af einurð og brýndi þá gjarnan raustina þannig að vel var tekið eftir því sem hún lagði til mál- anna. Hennar er minnst með virð- ingu, en hún var öflugur málsvari hinna sjúku. Ólafur Jónsson. Það er mikill söknuður að henni Sillu frænku. Frá því ég man fyrst eftir mér hefur Silla verið stór hluti af lífi mínu og mikil fyrirmynd. Hún fór með foreldrum mínum á Alþingishátíðina 1974. Ég fékk að fljóta með, sex ára. Ég man enn ilminn af lynginu, sólina og hlýjuna í loftinu – og einmitt þann- ig var Silla. Alltaf hlý og alltum- lykjandi. Í febrúar það sama ár sendi hún mér – þá fimm ára – póstkort frá Árósum: „Elsku Bjarni minn, þakka þér fyrir allar ánægjustundirnar um jólin. Ég hugsa oft til ykkar. Ég hlakka mikið til að koma heim í sumar. Það er allt gott að frétta. Skilaðu kveðju til allra. Þín einlæg frænka, Silla.“ Silla var frænkan sem sendi póstkort á litla frændur og frænk- ur og sagði frá lífinu á framandi slóðum. Alltaf skyldi Silla koma með gjafir og sælgæti frá útlönd- um. Það var gleði í húsinu þegar Silla heimsótti foreldra sína á neðri hæðinni á Steinsstöðum. Það var gaman að fara í ísbíltúr í bjöllunni hennar. Oftast fullur bíll af börnum. Silla var sjálfstæða konan sem var í stjórnunarstöðu og ferðaðist um heiminn – langt á undan sinni samtíð. Sillu fylgdu ferskir vindar inn á hefðbundið sveitaheimili. Silla var ekki dóm- hörð, heldur hlustaði og spurði svo þroskandi spurninga. Hún sýndi raunverulegan áhuga á því sem ég, barnið, var að fást við. Þegar ég fékk heilahimnubólgu 14 ára hét Silla á mig að ef mér batnaði skyldi hún gefa mér Lax- nessbók á hverju ári. Næstu 25-30 árin kom hún á hverju ári með nýja bók eða bækur þar til allt safnið var komið upp í hillu hjá mér. Trygglynd var hún og stóð algjörlega við það sem hún sagði. Hún tók sjálfa sig alvarlega. Á háskólaárunum var gott að koma í mat til Sillu. Hún var fagurkeri og gerði allt vel sem hún tók sér fyrir hendur. Hún var fé- lagslynd og áhugasöm um sam- félagið allt. Ekki síst þá sem minna mega sín. Silla var góð fyrirmynd. Eftir lifa yndislegar minningar um Sillu frænku. Sérlega hug- rakka, hlýja og skemmtilega manneskju. Hún var sönn fyrir- mynd. Lifði innihaldsríku og skemmtilegu lífi. Vildi öllum vel og lét svo sannarlega gott af sér leiða. Það er mikill söknuður að Sillu frænku. Bjarni Ármannsson. Það eru hlýjar hugsanir og þakk- læti sem koma upp, þegar ég hugsa til Rögnu ömmu. Amma var einstök kona, og verður skrýtið að fara til Ólafsfjarðar og koma ekki við hjá henni, setja 2-3 kubba í púsluspil- ið á stofuborðinu. En amma var alltaf að púsla og fannst henni gott að fá aðstoð þegar réttur kubbur fannst ekki. Þær voru ófáar stundirnar sem við amma sátum saman og hún sagði mér skemmtilegar sögur úr sínu lífi, amma var mikill húmoristi og átti auðvelt með að gera grín að sjálfri sér. Hún sagði svo skemmtilega frá að oft var ég hætt að sjá fyrir tárum. Amma var mikil hannyrða- kona og sat aldrei aðgerðalaus, hún saumaði, prjónaði og föndr- aði. Meðan afi lifði var hann öll- um stundum í bílskúrnum, að smíða og renna ýmsa fallega hluti, og á maður marga fallega Ragna Kristín Karlsdóttir ✝ Ragna KristínKarlsdóttir fæddist 3. mars 1928. Hún lést 12. maí 2019. Útför Rögnu Kristínar fór fram 25. maí 2019 muni eftir þau. Þetta gerðu þau mest á veturna, því á sumrin átti hús- bíllinn hug þeirra allan. Þau voru í Flökkurum – félagi húsbílaeigenda, og voru dugleg að fara með þeim í ferðir og þvældust um landið líka tvö ein. Ef ég náði á þau heima á sumrin þá sagði amma: „Þú ert heppin, við komum bara til að setja í þvottavélina, það var allt orðið skítugt.“ Þau voru farin aft- ur þegar búið var að fylla hús- bílafataskápinn. Ömmu var alltaf umhugað um afkomendur sína, hún fylgdist vel með hverjum og einum og var stolt af stóra hópn- um sínum. Amma var þakklát fyrir líf sitt og tilbúin að fara í síð- ustu ferðina sína. Elsku amma, takk fyrir allar dýrmætu stundirnar sem við átt- um saman, ég geymi þær í hjarta mínu og allt sem þú hefur gert fyrir mig. Ég veit að þér líður vel núna enda komin til afa sem er örugglega að elda steik handa þér eins og honum einum var lagið. Saknaðarkveðjur. Kristín Aðalsteinsdóttir. ✝ Judith El-ísabet Christi- ansen fæddist í Þórshöfn í Fær- eyjum 21. október 1944. Hún lést á Landspítalanum 1. júní 2019. For- eldrar hennar voru Anton Christiansen, f. 5. mars 1915, d. 12. október 1970 og Semona Christiansen, f. 22. júlí 1923, d. 26. febrúar 1998. Bróðir hennar var Gunnar Christiansen, f. 12. mars 1948, d. 5. júlí 2004. Judith kvæntist Sveini Yngvasyni, f. 17. ágúst 1942, Hún átti 4 barnabarnabörn. Judith fluttist frá Færeyjum til Íslands árið 1961, ásamt for- eldrum sínum og bróður. Hún starfaði lengst af við afgreiðslu og þjónustustörf hjá ýmsum aðilum, en lengst af starfaði hún hjá dagheimilinu Suð- urborg, fyrst í þvottahúsinu og síðar og til starfsloka í eldhús- inu, síðast sem matráðskona. Hún var mjög virk í kvenfélag- inu Fjallkonum til margra ára og var meðlimur í Færeyinga- félaginu. Hún hafði gaman af hannyrðum, svo sem að prjóna, hekla, skrautskrift og leir- munagerð. Hún var einnig söngelsk og söng um tíma með Rangæinga-kórnum. Hún var mjög dugleg að heimsækja heimaland sitt Færeyjar og á seinni árum var það árviss við- burður. Útför Judithar fer fram frá Fella- og Hólakirkju í dag, 7. júní 2019, kl.ukkan 13. þann 30. janúar 1965. Þau slitu samvistum. Börn þeirra eru: (1) Sús- anna Sveinsdóttir Kosicki, f. 8. nóv- ember 1965, á hún 2 börn, (2) Sig- urður Yngvi Sveinsson, f. 12. apríl 1968, á hann 3 börn og er í sambúð með Guð- veigu Elísdóttur, (3) Anton Sveinsson, f. 30. ágúst 1971, á hann 5 börn og er giftur Jody Towson, (4) Sveinn Júlían Sveinsson, f. 3. júlí 1976, á hann 2 börn og er í sambúð með Kristínu Guðmundsdóttur. Elsku mamma, nú hefurðu kvatt okkur í síðasta sinn, veröldin verð- ur tómlegri án þín. Ég mun ávallt minnast þín í gegnum allar góðu stundirnar okkar, samtalanna og hlátursins. Ég er þakklátur fyrir svo margt þegar ég lít tilbaka, en fyrst og fremst er ég þakklátur fyrir þann tíma sem ég fékk til að vera samferða þér í gegnum lífið. Þú varst alla tíð til staðar þegar ég þurfti á þér að halda, varst klett- urinn og sú sem hélst öllu saman, takk fyrir það, mamma, ég er þakklátur. Þín stærstu persónu- einkenni voru fyrst og fremst bros- ið sem alltaf var stutt í, þolinmæðin og að hlusta, þannig varst þú. Aðrir gengu alltaf fyrir, þannig vildirðu hafa það, þannig varst þú. Góðmennska þín átti sér engin tak- mörk og allir sem þekktu til þín, vissu hvaða gæðum þú varst gædd. Þú varst elskuð af mörgum. Minningarnar sem sitja eftir um þig eru fallegar, góðar og ótal margar. Til dæmis voru það fjalla- ferðirnar sem voru farnar í gamla daga með útlendingunum útum allt land, þær eru mér alltaf ofarlega í huga. Ég rifja oft upp þessar ferðir sem ég kom með í og hugsa til baka með bros á vör og hlýju í hjarta, þetta voru æðislegar ferðir og góð samvera. Í minningunni er ein- göngu sól og blíða alla dagana í þessum ferðum. Einnig eru allar Færeyja-ferð- irnar oft í huga mér, þetta var skemmtilegur tími sem maður fékk með fjölskyldunni okkar sem bjó þar. Færeyjar voru þér mjög mikilvægar og þú hafðir gaman af að rifja upp æskuárin þín þar. Það skipti þig miklu máli að vera þar, þú talaðir oft um það, enda ferð- irnar þangað orðnar ótalmargar í gegnum árin. Veikindi þín síðustu árin fengu mig til að endurskoða margt í lífinu og horfa á í nýju ljósi, þú kenndir mér mikilvægar lexíur allt til enda. Mikið hefði mig langað að stelp- urnar mínar hefðu fengið lengri tíma með þér, þær nutu góðs af nærveru þinni. Við Kristín tölum oft um þig og minnumst hversu fal- lega manneskju þú hafðir að geyma. Mamma, við elskum þig og söknum þín og gleðjumst yfir því að hafa þekkt þig og lifað með þér. Elsku mamma, brottför þín er upp- hafið að nýju ferðalagi hjá þér, við hin sem sitjum eftir, kveðjum þig með ást og söknuði í hjarta. Ég veit að þú munt halda áfram að hafa áhrif á líf annarra til hins betra eins og áður, arfleifð þín mun sjá til þess. Þinn sonur, Sveinn Júlían Sveinsson. Elsku besta frænka mín. Átti erfitt með að skrifa minn- ingargrein en langar til að birta þetta ljóð sem ég samdi og segir mest allt sem segja þarf. Elsku besta frænka mín þú kvaddir allt of fljótt Baráttan við illan vætt tók allan þinn þrótt Tengslin okkar mikil voru allt frá barnæsku Þakkir, þú kenndir mér sitt af hvoru af þinni manngæsku Sorgina ber nú í brjósti mér mun ávallt sakna þín Er óréttlætið fyllir huga mér tárin byrgja sýn Minningarnar ylja munu Þú varst alltaf svo flott og fín Í mömmu, pabba og bróðir faðmi þau gæta munu þín Þitt ferðalag nú hafið er við sjáumst síðar meir Í blómalandi er sólin skín þú varst föðursystir mín (EAC) Elska þig, mín kæra, og er svo fegin og þakklát fyrir að hafa náð að segja þér það rétt áður en þú kvaddir. Elsku besti Mortan minn, Sús- anna, Sigurður, Anton, Sveinn og aðrir aðstandendur, við sam- hryggjumst ykkur innilega á þessum erfiðu tímum. Hugur okkar er hjá ykkur og megi allir englar alheimsins styrkja ykkur í sorginni. Elísabet, Arnar og dætur. Judith Elísabet Christiansen Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felli- glugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dög- um fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað get- ur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.