Morgunblaðið - 07.06.2019, Síða 32

Morgunblaðið - 07.06.2019, Síða 32
32 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. JÚNÍ 2019 fyrir heimilið Sendum um land allt Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is Fallegar vörur Stóll á snúningsfæti í ítölsku nautsleðri 75 cm á breidd Verð frá 120.000 kr. ALBANÍA Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Albanska knattspyrnulandsliðið sem mætir Íslandi í undankeppni EM á Laugardalsvellinum á morg- un er alls ekki ósvipað íslenska landsliðinu hvað varðar samsetn- ingu leikmannahópsins. Albanar eru ekki með marga leikmenn úr sterkustu deildum Evrópu og langflestir leika með „miðlungsliðum“ víðsvegar í álf- unni. Þessi lýsing gæti hæglega líka átt við um landsliðshópinn sem Ísland teflir fram. Útfrá því er hægt að álykta að á pappírunum séu þessi landslið mjög áþekk að styrkleika. Albanar náðu, eins og Íslend- ingar, ákveðnum hápunkti á EM í Frakklandi sumarið 2016, þar sem þeir voru líka nýliðar og stóðu sig vel. Unnu Rúmena í riðlakeppninni og náðu þriðja sæti í sínum riðli, þó það reyndist ekki nóg til að komast í sextán liða úrslitin. Þeir hafa síðan heldur gefið eftir og gekk frekar illa í C-deild Þjóða- deildar UEFA í haust, þar sem þeir töpuðu þremur leikjum af fjór- um gegn Skotlandi og Ísrael. Albanar töpuðu 0:2 fyrir Tyrkj- um á heimavelli í fyrstu umferð undankeppni EM í mars en sigruðu Andorra 3:0 á útivelli þremur dög- um síðar. Þeir mæta því til landsins með þrjú stig, jafnir Íslandi. Þrír í A-deildinni í vetur Í sínum eina vináttuleik í vetur unnu Albanar sigur á Wales á heimavelli, 1:0, í nóvember með marki frá Bekim Balaj. Þrír Albananna sem eru í hópnum að þessu sinni léku í ítölsku A- deildinni í vetur. Hægri bakvörð- urinn Elseid Hysaj spilaði 27 leiki með Napoli, sem hafnaði í 2. sæti, markvörðurinn Etrit Berisha varði mark Atalanta, sem hafnaði í 3. sæti, í 18 leikjum og Freddie Veseli, sem ýmist spilar sem bakvörður eða miðvörður, lék 31 leik með Empoli sem féll úr deildinni í vor. Berisha markvörður er leikjahæstur í alb- anska liðinu sem hingað kemur með 55 landsleiki en hann varði áður mark Lazio og sænska liðsins Kal- mar. Þá lék miðjumaðurinn Amir Abrashi 10 leiki með Freiburg í efstu deild Þýskalands í vetur en hann á þar fjögur ár að baki. Uppalinn hjá Barcelona Bakvörðurinn Iván Balliu sem er spænskur og uppalinn hjá Barce- lona, hóf að leika með Albaníu síð- asta haust og var í byrjunarliðinu gegn Tyrklandi, sem kantmaður. Hann varð meistari í frönsku B- deildinni með Metz í vetur. Miðvörðurinn Arlind Ajeti gæti komið við sögu en hann hefur spilað 20 landsleiki og var samherji Rún- ars Más Sigurjónssonar hjá Grass- hoppers í Sviss í vetur. Lykilmaður á miðjunni er Taul- ant Xhaka, fyrrverandi samherji Birkis Bjarnasonar hjá Basel, en hann hefur verið í röðum Basel frá 11 ára aldri og er bróðir Granit Xhaka, miðjumanns Arsenal og svissneska landsliðsins. Xhaka- bræður mættust einmitt á sögulegri stund á EM í Frakklandi með Sviss og Albaníu. Sadiku skæðastur frammi Armando Sadiku er helsti sókn- armaður Albana og markahæstur í liðinu í dag með 12 mörk í 35 lands- leikjum. Hann skoraði þó aðeins 3 mörk í 16 leikjum með Lugano í Sviss í vetur. Myrto Uzuni, leikmaður Lokomo- tiva Zagreb í Króatíu, var í byrj- unarliðinu gegn Tyrklandi og An- dorra. Hann hefur ekki skorað í 6 landsleikjum en gerði 7 mörk í kró- atísku deildinni í vetur. Framherjinn Bekim Balaj hefur spilað með Akhmat Grozní í rúss- nesku úrvalsdeildinni undanfarin ár en gerði þar aðeins 3 mörk í vetur. Reyndir fyrir þá meiddu Þrír þeirra sem léku með Albön- um gegn Tyrklandi og Andorra í fyrstu leikjunum í mars eru ekki með núna vegna meiðsla. Það eru Berat Gjimshiti, miðvörður Atal- anta á Ítalíu, Ledian Memushaj, miðjumaður Pescara á Ítalíu, og Eros Grezda, miðjumaður Rangers í Skotlandi. Þar munar mest um Gjimshiti sem var annar miðvarð- anna í báðum leikjunum. Fyrirliðinn Mërgim Mavraj leys- ir Gjimshiti væntanlega af hólmi en hann spilaði ekki í mars. Mavraj leikur með Ingolstadt í þýsku B- deildinni og á 48 landsleiki að baki. Þá kemur Odishe Roshi, miðju- maður Akhmat Grozní, aftur inn í lið Albana en hann á að baki 50 landsleiki. Þessir tveir spiluðu fáa leiki með sínum félagsliðum í vetur. Ráku þjálfarann eftir Tyrkjatapið Albanar mæta til leiks á Laug- ardalsvelli með nýjan þjálfara í brúnni. Edoardo Reja, 73 ára gam- all Ítali sem síðast stýrði Atalanta tímabilið 2015-2016, tók við um miðjan apríl eftir að landi hans Christian Panucci var rekinn eftir tapið gegn Tyrkjum 22. mars. Að- stoðarþjálfarinn Ervin Bulku stýrði liðinu í leiknum við Andorra þrem- ur dögum síðar. Albanska liðið er væntanlegt til landsins snemma í dag, aðeins rúmum sólarhring fyrir leik, en það hefur dvalið við æfingar í Frank- furt í Þýskalandi síðan á sunnudag. Svipuð sam- setning og hjá íslenska liðinu  Fáir Albananna leika með stórliðum  Lykilmenn frá Atalanta og Napoli Morgunblaðið/Golli 2013 Ergys Kace, leikmaður Panathinaikos í Grikklandi, og Ari Freyr Skúlason í leik Íslands og Albaníu fyrir sex árum. Þeir geta mæst á ný.  Alfreð Gíslason var í gær útnefndur þjálfari ársins í þýsku 1. deildinni í hand- knattleik karla en hann stýrir þar sínum síðasta leik á sunnudaginn þegar hann kveður Kiel eftir að hafa þjálfað liðið frá árinu 2008. Alfreð hefur áður hlotið þennan heiður árin 2002, sem þjálfari Magdeburg, og árin 2009 og 2012 sem þjálfari Kiel.  Breiðablik hefur samþykkt tilboð frá belgíska B-deildarliðinu Lommel í knatt- spyrnumanninn Jonathan Hendrickx. Hann hefur samið við Lommel til tveggja ára. Hendrickx er 25 ára Belgi sem hefur spilað með Blikum í hálft annað ár en lék áður með FH og í millitíðinni með Leixo- es í Portúgal.  Ómar Ingi Magnússon, leikmaður Aalborg og íslenska landsliðsins í hand- knattleik, hefur verið valinn í lið ársins í dönsku úrvalsdeildinni. Ómar var í stóru hlutverki með Álaborgarliðinu í vetur en er sem stendur frá keppni vegna meiðsla. Álaborg vann í gærkvöld drama- tískan útisigur án hans, í öðrum úrslita- leiknum gegn GOG um danska meist- aratitilinn, 32:31, og fær oddaleikinn um titilinn á heimavelli á sunnudaginn.  Hilmar Örn Jónsson fékk brons- verðlaun í sleggjukasti á bandaríska há- skólameistaramótinu í Austin í Texas. Hann kastaði 73,31 metra en Íslandsmet hans er 75,26 metrar. Sindri Hrafn Guð- mundsson varð fjórði í spjótkasti og kastaði 73,92 metra en hefur best kast- að tæpan 81 metra.  Haraldur Franklín Magnús er einn í efsta sæti eftir tvo hringi á Thisted For- sikring-mótinu í golfi í Danmörku en það er hluti af Nordic-mótaröðinni. Hann lék á 66 höggum í gær og er samtals á átta höggum undir pari. Eitt ogannað Albanskir fjölmiðlar telja fullvíst að nýi landsliðsþjálf- arinn Edoardo Reja muni beita leikaðferðinni 3-5-2 í leiknum gegn Íslandi í undankeppni EM karla í fótbolta á Laugardalsvellinum á morgun. Albanar spiluðu 4-3-3 og 4-4-2 í mars undir stjórn forvera hans. Albanska liðið hefur búið sig undir leikinn í Frankfurt og samkvæmt íþróttavefnum Vipsport hafa uppstillingar Reja á æfing- unum þar miðast við þessa leikaðferð. Vipsport telur öruggt að hann tefli fram sömu þremur miðjumönnum og í 3:0-sigrinum gegn Andorra, Taulant Xhaka (Basel), Migjen Basha (Aris Saloniki) og Ergys Kace (Panathinaikos). Kantmenn verði væntanlega bak- verðirnir Elseid Hysaj (Napoli) og Naser Aliji (Dinamo Búkarest). Hinsvegar sé Reja greinilega mjög óviss um hverjir skipi varnarlínuna og framlínuna því hann hafi prófað margar útgáfur á æfingum liðsins síð- ustu daga. Þó megi ráða af þeim að Armando Sadiku (Lugano) og Myrto Uzuni (Lokomotiv Zagreb) séu líklegastir til að hefja leik í fremstu víglínu á Laugardalsvellinum. vs@mbl.is Albanar breyta skipulaginu Edoardo Reja Björgvin Stefánsson sóknarmaður KR-inga getur næst spilað með Vesturbæjarliðinu á Íslandsmótinu í knatt- spyrnu 21. júlí, eftir 44 daga, þegar það fær Stjörnuna í heimsókn í 13. umferð deildarinnar. Hann var í gær úr- skurðaður í fimm leikja bann af aga- og úrskurðarnefnd KSÍ fyrir ósæmileg ummæli í garð þeldökks leikmanns Þróttar þegar hann lýsti leik Hauka og Þróttar í 1. deild karla í útsendingu Hauka TV fyrir skömmu. Björgvin getur ekki spilað gegn ÍA 15. júní, gegn Val 19. júní, gegn FH 23. júní, gegn Breiðabliki 1. júlí og gegn ÍBV 6. júlí. Að auki er hann í eins leiks banni í bik- arkeppninni þar sem KR mætir Njarðvík 27. júní en hann hafði áður verið úrskurðaður í það vegna gulra spjalda í bikarnum. Fyrstu leikirnir sem Björgvin getur spilað eru þó leikir KR í 1. umferð undankeppni Evrópudeildarinnar en þar spila Vesturbæingar dagana 11. og 18. júlí. vs@mbl.is 44 daga bann á Íslandsmóti Björgvin Stefánsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.