Morgunblaðið - 07.06.2019, Qupperneq 33
ÍÞRÓTTIR 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. JÚNÍ 2019
hafðu það notalegt
handklæðaofnum
Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - www.ofnasmidja.is - sími 577 5177
Eigum úrval af
HM Í FRAKKLANDI
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Lyon er líklega besta kvennalið
heims í fótbolta. Að meðtöldum þeim
24 landsliðum sem eru mætt til
Frakklands og taka þátt í heims-
meistaramótinu en það hefst í París í
kvöld með viðureign Frakklands og
Suður-Kóreu.
Sennilega er leikmannahópur Evr-
ópu- og Frakklandsmeistaranna
sterkari en hjá landsliðum Bandaríkj-
anna, Þýskalands og Frakklands,
sem ættu að vera líklegustu liðin til
að slást um verðlaunasætin á þessu
heimsmeistaramóti.
Fimmtán leikmenn Lyon eru
mættir til leiks á HM og þeir dreifast
á sjö landslið. Sú sextánda og kannski
sú besta, sem vissulega ætti að vera
þar, er norska markadrottningin Ada
Hegerberg sem var kjörin besta
knattspyrnukona heims 2018. Hún
hefur skorað 193 mörk í 165 leikjum
fyrir Lyon en gefur ekki kost á sér í
landslið Noregs vegna deilna við þar-
lenda knattspyrnusambandið.
Kjarni franska landsliðsins
Með Lyon leikur kjarninn úr
franska landsliðinu. Þær Amandine
Henry, Wendie Renard og Eugénie
Le Sommer hafa um árabil verið á
meðal albestu leikmanna heims og
samherjar þeirra Amel Majri,
Griedge Mbock, Delphine Cascarino
og markvörðurinn Sarah Bouhaddi
eru líka í franska hópnum.
Lyon á átta aðra fulltrúa í sex
landsliðum á HM:
Þýskaland: Dzsenifer Marozsán og
Carolin Simon.
England: Lucy Bronze og Nikita
Parris.
Japan: Saki Kumagai.
Kanada: Kadeisha Buchanan.
Holland: Shanice van de Sanden.
Argentína: Sole Jaimes.
Það þarf kannski ekki að koma
neinum á óvart að Lyon tapaði ekki
leik í frönsku 1. deildinni í vetur, vann
20 af 22 og skoraði 89 mörk gegn að-
eins 6, og vann meistaratitilinn þrett-
ánda árið í röð.
Að auki vann Lyon Meistaradeild
Evrópu fjórða árið í röð og svo
franska bikarinn í sjöunda skipti á
átta árum.
Ellefu frá París SG
Eina franska liðið sem veitir Lyon
keppni er París SG en aðeins fimm
stig skildu liðin að í deildinni í vetur.
En þess ber að geta að Lyon vann
uppgjör þeirra undir lok tímabilsins
með yfirburðum, 5:0, þar sem fimm af
þeim snjöllu knattspyrnukonum sem
nefndar hafa verið hér fyrir ofan
skoruðu sitt markið hver (Heger-
berg, Le Sommer, Renard, Maroszán
og van de Sanden).
PSG er líka með stóran hóp af HM-
leikmönnum en ellefu landsliðskonur
frá átta þátttökuþjóðum spila með
Parísarliðinu.
Þar er frægust hin brasilíska
Formiga, fyrirliði PSG, sem setur
væntanlega nýtt heimsmet, 41 árs
gömul, með því að spila á sínu sjö-
unda heimsmeistaramóti. Annars eru
það heldur minna þekktar landsliðs-
konur sem spila fyrir PSG sem á full-
trúa í landsliðum Frakklands, Þýska-
lands (Sara Däbritz), Kanada,
Brasilíu, Svíþjóðar, Spánar, Síle og
Kína.
60 frá bandarískum liðum
Annars er það bandaríska atvinnu-
deildin sem á flesta leikmenn á HM í
Frakklandi. Liðin níu sem leika í
deildinni eru alls með 60 fulltrúa á
HM, fjóra til níu leikmenn hvert. Þar
af er allt bandaríska liðið, 23 leik-
menn, og einar tíu HM-þjóðir skipta
hinum á milli sín. Dagný Brynj-
arsdóttir hjá Portland Thorns á átta
samherja á HM og sex koma frá Utah
Royals, liði Gunnhildar Yrsu Jóns-
dóttur. Eins merkilegt og það er þá
heldur keppni í Bandaríkjunum
áfram á fullu á meðan HM stendur
yfir og liðin spila bara án HM-
stjarnanna á meðan!
Þekktasti leikmaðurinn úr banda-
rísku deildinni er hin brasilíska
Marta sem spilar með Orlando Pride
og svo að sjálfsögðu allar bandarísku
stjörnurnar eins og Carli Lloyd (Sky
Blue), Alex Morgan (Orlando), Meg-
an Rapinoe (Reign) og Tobin Heath
(Portland) sem eiga eftir að setja svip
sinn á keppnina í Frakklandi næsta
mánuðinn.
Besta liðið í heiminum?
Frakklands- og Evrópumeistarar Lyon eiga 15 leikmenn í sjö landsliðum á
heimsmeistaramótinu þó sú besta sé ekki með Flautað til leiks á HM í kvöld
AFP
Lyon Saki Kumagai frá Japan, Griedge Mbock frá Frakklandi og Lucy Bronze frá Englandi eru í Evrópumeist-
araliði Lyon og eru allar á leið á HM. Hér fagna þær eftir sigur á Barcelona, 4:1, í úrslitaleik Meistaradeildarinnar.
Áhyggjur. Þetta er hálfgert
lykilorð í aðdragandanum að
landsleikjunum við Albaníu og
Tyrkland í undankeppni EM karla
í fótbolta sem fram fara á morg-
un og þriðjudag í Laugardal.
Áhyggjur yfir því að ekki verði
uppselt. Í seinni tíð hefur Laug-
ardalsvöllur verið troðfullur á
flestum leikjum karlalandsliðs-
ins, enda þótt ekki séu mörg ár
síðan það þótti fínt að fá fimm til
sex þúsund manns á landsleiki.
Áhyggjur yfir því að það verði
erfitt að skora mörk í fjarveru Al-
freðs Finnbogasonar og með
Kolbein Sigþórsson og Jón Daða
Böðvarsson nýstigna uppúr
meiðslum.
Áhyggjur yfir því að neistinn í
landsliðsmönnunum okkar sé
ekki lengur til staðar, þeir séu
kannski orðnir saddir eftir að
hafa komist bæði á EM og HM.
Áhyggjur yfir því að landsliðið
okkar sé að verða of gamalt og
endurnýjunin of hæg.
Áhyggjur yfir því að sólin
verði hætt að skína á höfuðborg-
arsvæðinu á morgun. Mér sýnist
þær allavega vera ástæðulausar.
13 stiga hiti, 6-7 metrar á sek-
úndu og heiðskírt þegar flautað
verður til leiks kl. 13, segir spá-
kortið þegar þetta er skrifað.
Áhyggjur yfir því að góða
veðrið verði þá of hagstætt fyrir
mótherjana.
Eru þetta ekki óþarfa áhyggj-
ur? Ég held að okkar menn séu
klárir í slaginn. Þeir ætla sér á
EM 2020 og sigur á morgun
kæmi þeim betur á sporið. Og
fyrir þá sem hafa áhyggjur af því
hvort Laugardalsvöllurinn verði
fullur eða ekki þá sér veðrið til
þess að fylla hann endanlega á
morgun og sigur í leiknum til að
fylla hann á þriðjudag!
BAKVÖRÐUR
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Holland mætir Portúgal í fyrsta úr-
slitaleik Þjóðadeildar UEFA í
knattspyrnu í Porto á sunnudags-
kvöldið. Þetta varð ljóst í gærkvöld
þegar Hollendingar sigruðu Eng-
lendinga 3:1 í framlengdum leik í
Guimaraes en í fyrrakvöld höfðu
Portúgalar lagt Svisslendinga að
velli með sömu markatölu, 3:1, þar
sem Cristiano Ronaldo skoraði öll
mörkin.
Þessar fjórar þjóðir unnu riðlana
í A-deild Þjóðadeildarinnar síðasta
haust og eru öruggar með í það
minnsta sæti í umspili fyrir EM
2020, komist þær ekki beint í gegn-
um undankeppnina sem lýkur í nóv-
ember.
Marcus Rashford kom Englend-
ingum yfir úr vítaspyrnu sem hann
fékk sjálfur á 32. mínútu. Matthijs
de Ligt jafnaði með skalla eftir
hornspyrnu á 73. mínútu og leik-
urinn því framlengdur. Þar gerðu
Hollendingar tvö ódýr mörk eftir
slæm varnarmistök Englendinga,
fyrst skoraði Kyle Walker sjálfs-
mark á 97. mínútu og síðan sendi
Quincy Promes boltann í tómt mark
Englands á 114. mínútu. vs@mbl.is
AFP
Fyrirliðar Virgil Van Dijk og Raheem Sterling í leiknum í gærkvöld.
Holland í úrslitaleik