Morgunblaðið - 07.06.2019, Side 34

Morgunblaðið - 07.06.2019, Side 34
0:1 Agla María Albertsdóttir 5. I Gul spjöldEngin Dómari: Ásmundur Þór Sveinss., 7. Áhorfendur: 167. STJARNAN – BREIÐABLIK 0:1 M Kolbrún Tinna Eyjólfsd. (Stjörn.) Hildigunnur Ýr Benediktsd. (Stj.) Agla María Albertsdóttir (Breið.) Áslaug M. Gunnlaugsd. (Breið.) Hildur Antonsdóttir (Breið.) Selma Sól Magnúsdóttir(Breið.) 34 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. JÚNÍ 2019 Pepsi Max-deild kvenna KR – Keflavík ........................................... 0:4 Stjarnan – Breiðablik............................... 0:1 Staðan: Breiðablik 6 6 0 0 18:4 18 Valur 5 5 0 0 17:3 15 Þór/KA 6 4 0 2 11:11 12 Stjarnan 6 3 0 3 5:8 9 ÍBV 5 2 0 3 9:7 6 Fylkir 5 2 0 3 6:9 6 HK/Víkingur 5 2 0 3 3:7 6 Selfoss 6 2 0 4 6:12 6 Keflavík 6 1 0 5 8:12 3 KR 6 1 0 5 5:15 3 Inkasso-deild kvenna ÍR – ÍA....................................................... 0:3 Haukar – Afturelding .............................. 3:0 Grindavík – FH......................................... 2:1 Þróttur R. – Augnablik ............................ 3:0 Staðan: Þróttur R. 4 4 0 0 19:3 12 ÍA 4 2 2 0 7:2 8 FH 4 2 1 1 10:7 7 Grindavík 4 2 1 1 5:5 7 Haukar 4 2 0 2 5:3 6 Augnablik 4 2 0 2 5:5 6 Afturelding 4 1 1 2 6:7 4 Tindastóll 3 1 0 2 7:10 3 Fjölnir 3 0 1 2 1:5 1 ÍR 4 0 0 4 2:20 0 2. deild karla Völsungur – Dalvík/Reynir ..................... 1:1 Staða efstu liða: Selfoss 5 3 1 1 12:4 10 Víðir 5 3 1 1 11:9 10 Völsungur 6 3 1 2 8:9 10 Leiknir F. 5 2 3 0 10:5 9 Fjarðabyggð 5 3 0 2 9:6 9 KFG 5 3 0 2 9:8 9 3. deild karla Kórdrengir – Álftanes.............................. 4:2 KH – Reynir S .......................................... 2:5 Staða efstu liða: Kórdrengir 6 4 2 0 13:5 14 KF 5 4 1 0 12:4 13 KV 5 4 0 1 13:6 12 Vængir Júpiters 5 3 0 2 9:6 9 Reynir S. 6 2 2 2 10:9 8 Álftanes 6 2 2 2 12:12 8 KNATTSPYRNA GARÐABÆR/ VESTURBÆR Kristófer Kristjánsson Jóhann Ingi Hafþórsson Sigurganga Breiðabliks í úrvalsdeild kvenna í fótbolta hélt áfram í gær- kvöldi með 1:0-sigri á Stjörnunni á Samsung-vellinum. Þrátt fyrir að aðeins eitt mark hafi verið skorað var sigur Blika gríðarlega öruggur en gestirnir réðu lögum og lofum í Garðabænum og voru oft á tíðum klaufar að bæta ekki við mörkum. Bæði lið féllu úr bikarnum í síð- ustu viku, Breiðablik tapaði gríðar- lega óvænt gegn Fylki og þá fékk Stjarnan slæma útreið í síðasta deildarleik er liðið tapaði 5:0 gegn ÍBV. Það virðist hafa slegið Garðbæ- inga nokkuð út af laginu, erfitt gengi undanfarið, og var spilamennskan í gær eftir því. Breiðablik, sem hefur nú unnið alla sex leiki sína í deild- inni, réð lögum og lofum og hefði hæglega getað unnið með töluvert stærri mun en sigurmarkið skoraði Agla María Albertsdóttir strax á fimmtu mínútu. Við tók svo orrahríð að marki Stjörnunnar, gestirnir fengu á annan tug tækifæra og 13 hornspyrnur til að bæta við. Varnar- leikur Stjörnunnar hélt vel við þess- ar erfiðu aðstæður en liðinu tókst nær aldrei að tengja saman send- ingar til að snúa vörn í sókn. Það urðu gríðarlegar mannabreytingar í Garðabænum í vetur og eftir ágæta byrjun hefur liðið hikstað nokkuð upp á síðkastið. Blikar eru aftur á móti fullklárir í titilvörnina í sumar og bíðum við flest í ofvæni eftir að Valur og Breiðablik mætist á Hlíð- arenda eftir nokkrar vikur. Nýliðarnir náðu í fyrstu stigin Keflavík er komin á blað eftir mik- ilvægan og afar sannfærandi 4:0- útisigur á KR. Keflavík var sterkari aðilinn frá fyrstu mínútu og var sig- urinn verðskuldaður. Keflavík vann nánast hvert einasta einvígi á vell- inum og sýndi að ekki þarf 50 send- ingar til að spila árangursríkan og góðan fótbolta. Keflavík spilaði á styrkleikum sínum og nýtti sér veik- leikana í liði KR hvað eftir annað. Keflavíkurkonur voru búnar að eiga nokkrar góðar sóknir þegar fyrsta markið kom loksins á 28. mín- útu. Anita Lind Daníelsdóttir skor- aði það beint úr hornspyrnu. Eftir það var aldrei spurning um hvort lið- ið myndi fara með sigur af hólmi. Frammistaða leikmanna Keflavíkur var afar heilsteypt frá markmanni til fremsta manns og voru margir sem spiluðu vel. Þótt Sveindís Jane Jónsdóttir hafi ekki skorað spilaði enginn betur en framherjinn. Sveindís vann gríðar- lega vel fyrir liðið og bjó til fullt af tækifærum fyrir liðsfélaga sína. Sveindís er potturinn og pannan í sóknarleik Keflavíkur. Hún er orðin ákveðinn leiðtogi, þrátt fyrir ungan aldur. Sveindís býr yfir gæðum sem fáir leikmenn deildarinnar geta montað sig af og er ljóst að hún get- ur farið alla leið. Það hefur lukkast vel hjá Keflavík að hafa fyrirliðann Natöshu Anasi framar á vellinum. Hún spilaði sem miðvörður framan af móti, en hún spilaði vel sem afturliggjandi miðju- maður í gær og kórónaði góðan leik með tveimur mörkum. Hún gerir mjög vel í að vernda varnarmennina og komust sóknarmenn KR ekki framhjá henni. Anasi kórónaði svo góðan leik sinn með tveimur mörk- um. Það er mikið spunnið í þetta Keflavíkurlið og það sýndi í gær að það getur haldið sér uppi. KR á hins vegar enga möguleika á slíku með spilamennsku sem boðið var upp á í gær. Margir leikmenn KR eru komnir til ára sinna og virtist vanta hungur í Frostaskjólið. Eitt mark en samt öruggt  Breiðablik áfram með fullt hús stiga Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Garðabær Birna Jóhannsdóttir og Heiðdís Lillýjardóttir í harðri baráttu um boltann í leik Stjörnunnar og Breiðabliks í gærkvöld. 0:1 Anita Lind Daníelsdóttir 28. 0:2 Sophie Groff 32. 0:3 Natasha Anasi 39. 0:4 Natasha Anasi 65. I Gul spjöldÁsdís Karen Halldórsdóttir (KR). Katla María Þórðardóttir, Na- tasha Anasi (Keflavík) Dómari: Gunnþór Steinar Jónss., 6. Áhorfendur: 80. KR – KEFLAVÍK 0:4 MM Natasha Anasi (Keflavík) Sveindís Jane Jónsdóttir (Kefl.) M Ásdís Karen Halldórsdóttir (KR) Aytac Sharifova (Keflavík) Sophie Groff (Keflavík) Anita Lind Daníelsdóttir (Keflavík) Þóra K. Klemensdóttir(Keflavík) Ísabel Jasmín Almarsdóttir (Kefl.) Þróttarkonur náðu í gærkvöld fjögurra stiga forystu í 1. deild kvenna í knattspyrnu, Inkasso-deildinni. Þróttur tók á móti Augnabliki á Eimskipsvellinum í Laugardal og Lauren Wade skoraði eitt mark í hvorum hálfleik. Linda Líf Boama bætti við þriðja markinu á 67. mínútu og lokatölur urðu 3:0. ÍA sótti ÍR heim í Breiðholtið og sigraði 3:0. Aníta Sól Ágústsdóttir kom Skagakonum yfir úr vítaspyrnu á 22. mínútu. Fríða Halldórsdóttir og Eva María Jónsdóttir bættu við mörkum í síðari hálfleik. Grindavík og FH, liðin sem féllu úr úrvalsdeildinni, mættust á Grindavíkurvelli og þar skoraði Erna Guðrún Magnúsdóttir fyrir FH strax á 3. mínútu. Írena Björk Gestsdóttir jafnaði fyrir Grindavík á 14. mínútu. Nicole Maher skoraði sigurmark Grindavíkur á 77. mínútu, 2:1. Haukar og Afturelding áttust við á Ásvöllum og þar skoraði Sierra Mar- ie Lelii fyrir Hauka á 48. mínútu, 1:0. Kristín Ösp Sigurðardóttir bætti við marki á 76. mínútu og Lelii gerði sitt annað mark í uppbótartímanum, 3:0. Góð byrjun Þróttarkvenna Linda Líf Boama Framarar komust í gærkvöld í ann- að sæti 1. deildar karla í knatt- spyrnu, Inkasso-deildarinnar, með því að sigra Njarðvíkinga á útivelli, 1:0, í fyrsta leik sjöttu umferðar. Helgi Guðjónsson skoraði sigur- markið á 63. mínútu og Fram er nú komið með 11 stig, einu minna en Fjölnismenn sem eru á toppnum með 12 stig. Njarðvíkingar sitja áfram í áttunda sæti deildarinnar með sjö stig og náðu ekki að skora mark í þriðja leiknum í röð í deild- inni. vs@mbl.is Framarar í annað sætið Morgunblaðið/Eggert Sigurmark Helgi Guðjónsson tryggði Frömurum sigurinn. Dýrabær Smáralind, Kringlunni, Reykjanesbæ og Akranesi | Byko Selfossi Fiskó Garðabæ | Heimkaup | Hundaheppni | Sími 511 2022 | dyrabaer.is NÁTTÚRULEG INNIHALDSEFNI bragðgott – hollt – næringarríkt – fyrir dýrin þín KNATTSPYRNA Úrvalsdeild kvenna, Pepsi Max-deildin: Kórinn: HK/Víkingur – ÍBV..................... 18 Origo-völlur: Valur – Fylkir ................ 19.15 1. deild kvenna, Inkasso-deildin: Sauðárkrókur: Tindastóll – Fjölnir .... 19.15 1. deild karla, Inkasso-deildin: Ásvellir: Haukar – Þór.............................. 18 Eimskipsv.: Þróttur R. – Leiknir R.... 19.15 Vivaldi-völlur: Grótta – Fjölnir ........... 19.15 Varmárvöllur: Afturelding – Magni ... 19.15 2. deild karla: Akraneshöll: Kári – Víðir..................... 19.15 Í KVÖLD!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.