Morgunblaðið - 13.06.2019, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. JÚNÍ 2019
595 1000
Sérferð til
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
ve
rð
g
Víetnam
.
ge
tur
20. september í 18 nætur
Frá kr.
599.995
eð
fyr
irv
a
ÖRFÁ SÆTI LAUS
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Ísland er meðal þrettán fremstu ríkja
þegar kemur að vernd réttinda
launafólks að því er fram kemur í út-
tekt Alþjóðasambands verkafólks,
ITUC, fyrir síðasta ár. Í úttektinni er
sérstaklega fjallað um íslenska lög-
gjöf frá því á síðasta ári um að öll
fyrirtæki með 25 eða fleiri starfs-
menn skuli hafa jafnlaunavottun og
stefnu stjórnvalda um að útrýma
launamun kynja fyrir árið 2022.
Í fremsta flokki úttektarinnar eru
lönd þar sem brotum gegn launafólki
hefur ekki verið útrýmt, en þau verða
þó ekki með reglulegu millibili og til-
tekin réttindi þess eru tryggð. Í þess-
um flokki eru öll Norðurlönd og er
Úrúgvæ þar eina ríkið utan Evrópu.
Sambærilegt við fyrri ár
Nokkuð hefur verið fjallað um brot
gegn launafólki hér á landi undanfar-
ið, einkum erlendum verkamönnum
sem starfa fyrir milligöngu starfs-
mannaleiga. Magnús M. Norðdahl,
deildarstjóri lögfræðideildar ASÍ,
segir að niðurstaðan fyrir árið 2018
sé sambærileg við fyrri ár.
„Okkar umbúnaður kringum
vinnumarkaðinn er góður. Við erum
með sterkt kerfi kjarasamninga sem
gilda sem lágmarkskjör á íslenskum
vinnumarkaði. Þetta útilokar þó ekki
að einstakir atvinnurekendur geti
misboðið starfsmönnum sínum og
brotið reglurnar. Þess vegna rekum
við t.d. verkefni okkar Einn réttur,
ekkert svindl,“ segir Magnús. Niður-
staða skýrslu ITUC gefi þannig ekki
til kynna að réttur verkafólks sé virt-
ur að öllu leyti og að allt sé í lagi.
„Þetta er stimpill um það að ef eitt-
hvað er ekki í lagi, þá er hægt að
kippa því í liðinn. Það er hægt að orða
það þannig,“ segir Magnús og bendir
á að ASÍ eigi í góðu samstarfi við
bæði Samtök atvinnulífsins og
stjórnvöld um eftirfylgd með því að
reglurnar séu í heiðri hafðar. Aldrei
verði þó hægt að koma í veg fyrir
brot. „En við gerum okkar besta og
þess vegna mælumst við nokkuð vel
samkvæmt þessum viðmiðum sem
þarna eru gefin,“ segir hann.
Árangurinn ekki kominn í ljós
Sem fyrr sagði er sérstaklega
fjallað um löggjöf um jafnlaunavott-
un hér á landi í úttektinni. Magnús
segir hana hafa vakið athygli mjög
víða. „Við erum auðvitað ekki farin að
tína ávextina af trénu ennþá, en kerf-
ið er komið á laggirnar. Stjórnvöld
virðast hafa einsettan ásetning til
þess að klára þetta mál,“ segir Magn-
ús og nefnir að margt hafi þó verið
reynt í þessum efnum. „Við höfum
verið með lög, stjórnarskrárákvæði
um jafnrétti og bann við mismunun.
Samt viðgengst kynbundinn launa-
munur sem virðist vera erfitt að
eyða. Þetta er ein aðferð til að reyna
það,“ segir Magnús sem er nú stadd-
ur á þingi Alþjóðavinnumálastofnun-
arinnar, sem fagnar hundrað ára af-
mæli á þessu ári.
Magnús var kjörinn í stjórn fyrr á
þessu ári, fyrstur Íslendinga, og var
studdur af ITUC í kjörinu. Á þinginu
hafa m.a. verið til umræðu mál er
varða félagafrelsi og lágmarksrétt-
indi launafólks. „Okkar vandamál eru
afskaplega smá í því stóra samhengi.
Þar er talað um nauðungarvinnu,
barnavinnu, þrælavinnu, morð á
verkalýðsleiðtogum, bann við kjara-
samningum o.fl. Við erum í svolítilli
bómull miðað við það samhengi,“ seg-
ir Magnús.
Meðal fremstu ríkja í réttindavernd
Morgunblaðið/Golli
Launafólk Ísland er eitt þrettán ríkja sem mælast hæst í úttekt ITUC 2018.
Ísland meðal ríkja sem tryggja best réttindi launafólks Jafnlaunavottun vekur athygli erlendis
Gefi ekki til kynna að allt sé sem best verður á kosið Vandamál Íslands séu smá í stóra samhenginu
Í góða veðrinu sem leikið hefur við íbúa höf-
uðborgarsvæðisins að undanförnu hafa margir
nýtt sér Klambratún til að flatmaga og njóta sól-
arinnar. Strandblakvöllurinn er til reiðu fyrir þá
sem vilja sýna hvað í þeim býr ásamt ýmsum
leik- og æfingatækjum.
Morgunblaðið/Hari
Afslappað andrúmsloft á Klambratúni
Það var kátt á hjalla í útvarpsþætt-
inum „Ísland vaknar“ á K100 í gær
þegar dregið var í annað sinn í
áskrifendahappdrætti Morgunblaðs-
ins. Voru fimm heppnir áskrifendur
dregnir út að þessu sinni og hlutu
þeir í vinning úrvals Landmann-grill
frá Grillbúðinni, að verðmæti 99.900
krónur.
Hjördís Ýr Johnson, kynningar-
stjóri Árvakurs, sá um útdráttinn, en
vinningshafar voru þau Haraldur
Haraldsson, Seltjarnarnesi, Halldór
Berg Jónsson, Hafnarfirði, Sigrún
Guðný Arndal, Hveragerði, Berglind
Tryggvadóttir, Reykjavík og Ásta
Angela Grímsdóttir, Hafnarfirði.
Hjördís Ýr segir að allir vinnings-
hafarnir hafi verið hæstánægðir með
vinninginn, enda komi það sér held-
ur betur vel að geta grillað í góða
veðrinu sem hefur verið í sumar. Þá
hafði einn vinningshafinn frétt af
vinningnum í gegnum vin sinn sem
heyrði útdráttinn, en sá flýtti sér að
hafa samband til að láta bjóða sér í
grillveislu um kvöldið.
Dregið verður í áskrifendahapp-
drættinu í þriðja og síðasta sinn
næstkomandi miðvikudag og verða
allir áskrifendur Morgunblaðsins,
bæði núverandi sem og þeir sem fá
sér áskrift á næstu dögum, sjálfkrafa
með í pottinum. sgs@mbl.is
Bauð sjálfum sér í grillveislu
Dregið í annað sinn í áskrifendahappdrætti Morgun-
blaðsins Fimm grill verða dregin út í næstu viku
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Útdrátturinn Þau Jón Axel, Hjördís Ýr Johnson og Ásgeir Páll á K100 munu
draga út fimm heppna áskrifendur til viðbótar næsta miðvikudag.
Flugfreyjufélag Íslands hefur vísað
kjaradeilu við Samtök atvinnulífsins
vegna Air Iceland Connect til rík-
issáttasemjara. Þetta staðfesti
Berglind Kristófersdóttir sem situr í
samninganefnd fyrir hönd FFÍ við
mbl.is. Samningar hafa verið lausir
frá áramótum.
Segir Berglind að frá áramótum
hafi verið góðir vinnufundir og við-
ræðufundir milli deiluaðila. „Eins og
staðan er núna ber of mikið á milli.
Til að koma þessu áfram ákváðum
við að fara þessa leið,“ segir Berg-
lind.
Ekki er búið að ákveða fyrsta fund
milli deiluaðila en býst Berglind að
hann verði á næstu tveimur vikum.
Vísa til ríkis-
sáttasemjara
Deila Engin lausn hjá flugfreyjum.