Morgunblaðið - 13.06.2019, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 13.06.2019, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. JÚNÍ 2019 Smiðjuvegur 10, 200 Kópavogur - Sími 588 60 70 hitataekni.is – sjö viftur í einni Ein sú hljóðlátasta á markaðinum (17-25 dB) Valin besta nýja vara ársins, Nordbygg 2016 Sjálfvirk, raka-og hitastýring, fer sjálfkrafa í gang þegar ljós eru kveikt eða við hreyfingu í rými. Klimat K7 er fjölnota vifta, þróuð og framleidd í Svíþjóð. Frank-Walter Steinmeier, forseti Þýskalands, fundaði með forseta lýðveldisins, Guðna Th. Jóhann- essyni, á Bessastöðum í gærmorg- un. Ræddu forsetarnir þar saman um loftslagsmál, sameiginlega hagsmuni ríkjanna á norðurslóðum og horfur í alþjóðamálum. Sagði Steinmeier að fundurinn hefði leitt í ljós hversu líka sýn hann og Guðni hefðu á alþjóðamál og hvernig mætti best tryggja við- skiptasambönd þjóða um allan heim. Þar skipti mestu máli að forð- ast sundrungu. Steinmeier mun í dag leggja land undir fót, en hann mun meðal ann- ars heimsækja Hellisheiðarvirkjun og Vestmannaeyjar, þar sem ís- lenskar lausnir í umhverfismálum verða kynntar fyrir honum. Stein- meier hefur látið loftslags- og um- hverfismál sig miklu varða í emb- ættistíð sinni og sagði hann í gær að Þjóðverjar gætu lært margt af Íslendingum, meðal annars um það hvernig skipta eigi um orkugjafa, án þess að valda of miklum breyt- ingum í lífi fólks. Þar hefði þróunin í Þýskalandi verið of hæg. Opinber heimsókn Þýskalandsforseta til Íslands Ánægju- legur for- setafundur Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Samþykkt var á fundi bæjarstjórnar Seltjarnarness í gær með sex at- kvæðum gegn einu að bærinn myndi taka þátt í greiningar- og hönnunar- vinnu með öðrum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu vegna fyrir- hugaðrar borgarlínu. Er þar með ljóst að öll sveitarfélögin á höfuð- borgarsvæðinu hafa samþykkt að taka þátt í þeirri vinnu, og munu þau leggja saman 300 milljónir króna til þeirrar vinnu, á móti 300 milljónum frá ríkinu. „Ég fagna því samstarfi, sem nú verður farið í með ríkinu og Vega- gerðinni í að skoða hvernig hægt er að efla almenningssamgöngur á höf- uðborgarsvæðinu og hlakka bara til að sjá hvað kemur úr þeirri vinnu,“ segir Ásgerður Halldórsdóttir, bæj- arstjóri Seltjarnarness. Hún segir að næsta skref muni koma eftir að þeirri forvinnu lýkur, en ekki verður farið í næsta fasa verkefnisins nema ásættanlegur samningur náist við ríkið. Einungis Magnús Örn Guðmunds- son, forseti bæjarstjórnar, greiddi atkvæði á móti samþykktinni, en hann lagði fram bókun á fundi bæj- arráðs 23. maí síðastliðinn þar sem hann lagðist gegn borgarlínunni. Magnús Örn segir í samtali við Morgunblaðið að hann telji þær hug- myndir sem liggi fyrir um verkefnið vera óraunhæfar, en í sérstakri bók- un sem hann lagði fram á fundi bæj- arstjórnar í gær segir meðal annars að áætlanir um heildarkostnað og fjármögnun verkefnisins séu í besta falli óljósar. Þá hafi engin umræða um rekstrarforsendur og rekstrar- kostnað farið fram. „Það er óábyrgt af kjörnum fulltrúum að skrifa undir samninga sem hafa svo óþekkta út- komu fyrir skattgreiðendur,“ segir að lokum í bókun Magnúsar. Þá sendi stjórn Sjálfstæðisfélags Seltirninga frá sér bókun í fyrra- kvöld, þar sem hún lýsti yfir stuðn- ingi sínum við sjónarmið Magnúsar í málinu. Sagði þar meðal annars að stjórnin teldi undirritun samninga um borgarlínu vera á skjön við stefnuskrá flokksins í bænum. Ás- gerður kvaðst ekki hafa séð þá bók- un, þegar leitað var viðbragða í gær. Fyrsti fasinn samþykktur  Bæjarstjórn Seltjarnarness samþykkir þátttöku í borg- arlínuverkefninu  Forseti bæjarstjórnar einn á móti Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Rannsóknarnefnd samgönguslysa (RNSA) hefur beint þeirri tillögu til samgöngu- og sveitarstjórnarráðu- neytisins að taka til endurskoðunar viðurlög við að vanrækja skoðunar- skyldu ökutækja. Regluleg skoðun ökutækja er mikilvægur liður í að tryggja öruggari umferð. Þessi tillaga RNSA í öryggisátt er sett fram í skýrslu um banaslys sem varð á Miklabraut við Skeiðarvog í Reykjavík seint í nóvember 2017. Í slysinu lést ökumaður bifreiðarinn- ar, en bíllinn hafði hlotið endurskoð- un og ekki verið færður til endur- skoðunar fyrir slysið. Ástand bílsins var metið „verulega ábótavant“ af RNSA og hafði vanrækslugjald ver- ið lagt á ökutækið vegna vanefnda á að færa það til skoðunar. Gjaldið var greitt í október, rúmum mánuði fyrir slysið. Talsverð vanhöld höfðu verið á því að færa bifreiðina til skoðunar. Hafði hún ekki verið skoðuð árin 2007, 2009, 2011 og 2016. Tekið skal fram að á þessu tímabili voru eig- endaskipti tíð. Sé ökutæki ekki fært til skoðunar er meginreglan sú að leggja á van- rækslugjald, 15.000 krónur, innan tveggja mánaða frá lokum þess mán- aðar sem endastafur á skráningar- merki vísar til. „Að mati nefndarinnar nær gjald- ið ekki tilgangi sínum því hægt er að greiða gjaldið án þess að færa öku- tækið til skoðunar á ný. Ef gjaldið er greitt en ökutækið ekki fært til skoð- unar er ekki lagt á annað gjald innan sama árs. Að mati nefndarinnar ætti að taka til skoðunar hvernig hægt sé að gera kerfið skilvirkara,“ segir í skýrslu rannsóknarnefndar. Bara auknar tekjur í ríkissjóð? Runólfur Ólafsson, framkvæmda- stjóri FÍB, segir tilgang vanrækslu- gjaldsins að auka öryggi í umferð- inni. „Umferðin er ekki einkamál hvers og eins og þetta gjald er hugs- að sem ákveðin forvörn – forvarn- arhlutinn fer aftur á móti fyrir lítið þegar menn geta bara greitt gjaldið án þess að fara með ökutækið í skoð- un,“ segir hann og heldur áfram: „Miðað við þetta þá tryggir þetta gjald bara ríkissjóði auknar tekjur en uppfyllir ekki meginmarkmið sitt.“ Sýslumaðurinn á Vestfjörðum annast álagningu og innheimtu van- rækslugjalds. Jónas Guðmundsson sýslumaður segir fjölda álagðra van- rækslugjalda hafa verið um og yfir 40 þúsund á ári þau 10 ár sem kerfið hefur verið við lýði. Allan þann tíma hefur sama fjárhæð, 15.000 krónur, verið notuð. „Þetta er ekki hátt gjald og ég held að það mætti hækka það og jafnvel bæta við öðru þrepi. Í dag eru lagðar á 15 þúsund krónur og ef viðkomandi greiðir innan mánaðar fæst helmingsafsláttur,“ segir hann og bætir við að embætti hans inn- heimti um eina milljón króna á hverjum degi vegna vanrækslu- gjalda. Guðbrandur Sigurðsson, aðalvarð- stjóri í umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir lögreglu klippa númer af þeim ökutækjum sem vanrækt hafa skoðun í átta mán- uði eða lengur. Segir hann heimilt samkvæmt reglugerð að hækka van- rækslugjaldið úr 15.000 krónum í 30.000 krónur. „Okkar afstaða er sú að það ætti að nýta reglugerðina til fulls. En svo mætti auðvitað einnig skoða að hækka gjaldið,“ segir hann. „Menn geta komist upp með það ansi lengi að vera með óskoðuð ökutæki.“ Bitlítið vanrækslugjald í umferð  Rannsóknarnefnd samgönguslysa segir vanrækslugjald á ökutæki ekki ná tilgangi sínum  Tryggir bara ríkissjóði auknar tekjur, segir FÍB  Sýslumaður innheimtir eina milljón á hverjum einasta degi Morgunblaðið/Ernir Lögbundið Það getur tekið á taugarnar að fara með bílinn í skoðun.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.