Morgunblaðið - 13.06.2019, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 13.06.2019, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. JÚNÍ 2019 sp ör eh f. Sumar 23 Þessi glæsilega ferð byrjar í frönsku Ölpunum í fjallabænum fræga Chamonix.Við förum til bíllausa bæjarins Zermatt og bæjarins Stresa við vatnið Lago Maggiore en staðsetning vatnsins hefur allt frá 18. öld laðað að ferðamenn. Þaðan verður m.a. farið í siglingu til eyjaperlunnar Isola Bella og þar skoðuð dásamleg höll í miðjum, stórglæsilegum lystigarði. 19. - 28. ágúst Fararstjórn: Inga Ragnarsdóttir Bókaðu núna á baendaferdir.is Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 Reykjavík Verð: 274.900 kr. á mann í tvíbýli. Mjög mikið innifalið! Chamonix, Zermatt&Stresa Sunna Ósk Logadóttir sunna@mbl.is Kossar flögra um og fylla búðina í Árneshreppi á Ströndum. Við búð- arborðið stendur verslunarstjórinn ungi, Árný Björk Björnsdóttir frá bænum Melum, og tekur á móti fyrstu kúnnunum þetta sumarið með geislandi brosi. Yfir hana rignir hamingjuóskum og hún svarar að bragði: „Já, sömuleiðis!“ Það er vissulega tilefni til að brosa og fagna. Verslunin, sem nú hefur fengið nafnið Verzlunarfjelag Árneshrepps, var lokuð í allan vet- ur. Hún var svo opnuð á hvítasunnu- dag og verður opin alla daga vik- unnar í sumar. Sveitungar og aðrir sem eiga viðdvöl í hreppnum um þessar mundir hafa margir hverjir þegar litið inn, keypt hitt og þetta sem þá vanhagar um og svo gert það allra mikilvægasta: Spjallað um daginn og veginn. Því það er ómissandi að spjalla í búðinni í Norðurfirði; hjarta sveit- arinnar sem nú streymir á ný líf um. „Búðin hefur stóru hlutverki að gegna í sveitinni sem samkomu- staður, nokkurs konar félagsmið- stöð, og þannig viljum við hafa það áfram,“ segir Árný. Lokkandi ilmur frá Kaffi Norðurfirði Gegnt henni við höfnina er svo veitingastaðurinn Kaffi Norður- fjörður sem Sara Jónsdóttir og Lovísa Bryngeirsdóttir reka yfir sumartímann. Þaðan leggur út í sól- skinið, sem nóg hefur verið af síð- ustu daga, ilminn af nýju bakkelsi og fiskisúpunni vinsælu. Við höfnina eru strandveiðibátarnir farnir að skríða í land eftir blíðviðrisdag á gjöfulum miðunum. Franskir ferða- menn sitja við eitt borðið á kaffihús- inu og njóta útsýnisins yfir hafið og hin sérstæðu fjöll Strandanna, sem sum eru gróin upp á hæstu tinda, út- sýni sem er óumdeilanlega á heims- mælikvarða. „Sjáðu fiskibátana,“ segir ungur Bandaríkjamaður hrað- mæltur við ferðafélaga sinn, aug- ljóslega hrifinn, er þeir tylla sér við annað borð við gluggann. Þeir fylgj- ast með hafnarstjóranum, Elínu Öglu Briem, taka á móti feng dags- ins. Elín vippar sér fimlega upp í lyftarann, klædd bláum sumarkjól, og færir til ker barmafull af fiski, ís- ar og skráir. Vel menntaður verslunarstjóri Það er því ekki að ástæðulausu sem svæðið er stundum kallað „mið- bærinn“ eða „bryggjuhverfið“ segir Árný og hlær. Hún tekur svo við að afgreiða systurson sinn, Skúla Björn Ásgeirsson, sem er kominn til að versla fyrir ömmu sína, Bjarn- heiði Fossdal á Melum. Og svo app- elsínur fyrir sjálfan sig, hvorki meira né minna en 2,2 kíló af þeim. Þó að Árný sé nýtekin við starf- inu er hún flestum hnútum kunnug í búðinni. Þar vann hún sem ungling- ur í fjögur sumur. Nú er það hún sem stjórnar, sér um að panta vörur og afgreiða. Frá því að hún starfaði þar síðast hefur hún m.a. lokið há- skólanámi í ferðamálafræðum og frönsku. Nú er hún að bæta við sig námi og er hálfnuð með meist- aranám í markaðsfræðum og al- þjóðaviðskiptum. Það var ekki fyrr en nú um miðan maí sem Árný var ráðin versl- unarstjóri og því þurfti að hafa hraðar hendur við undirbúning. Hún segir þó allt hafa gengið nokk- uð vel enda margir sem voru boðnir og búnir að aðstoða svo hægt yrði að opna sem fyrst. „Við þurftum að koma húsnæðinu í stand, panta allar vörur, hér var enginn lager, og sitt hvað fleira.“ Töluvert af matvöru og hreinlæt- isvörum er þegar á boðstólum. En Árný ætlar ekki að láta staðar num- ið þar. Hún hyggst einnig bjóða upp á gas, bílavörur og handverk, svo dæmi séu tekin, helst úr heima- byggð. „Nú þarf ég að fara að spyrj- ast fyrir í sveitinni hvort einhverjir hafi setið við prjóna í vetur,“ segir hún. Stútfull búð af minningum 138 hluthafar eru í Verzlunarfje- lagi Árneshrepps sem stofnað var í vetur. Stefnt var að því að safna tveimur milljónum króna í hlutafé en þær urðu um fimm sem kom skemmtilega á óvart. Hluthafarnir og fleiri hafa verið boðnir og búnir að leggja hönd á plóg síðustu vikur. Fyrir það er Árný óendanlega þakk- lát. „Þetta er samvinnuverkefni. Öll- um þykir vænt um að hér sé búð, þetta húsnæði hefur líka svo mikla sögu. Hingað komu til dæmis systur í gær sem sögðu mér frá því að önn- ur þeirra hefði fæðst á hæðinni hér fyrir ofan þegar pabbi hennar var kaupfélagsstjóri. Fleiri sögur í þess- um dúr heyri ég. Búðin hefur auðvit- að breyst í áranna rás en svo margir eiga góðar minningar héðan.“ Sjálf á Árný minningar þaðan frá því hún var barn. „Það var alltaf svo sérstakt að koma hingað á jólunum. Það var alveg föst hefð að fara í búð- ina og versla mikið.“ Fyrir utan dyrnar á búðinni stendur Jóhanna Engilráð Hrafns- dóttir, tíu ára, og með henni er hundurinn Kubbur og heimaln- ingurinn Pési, báðir ættaðir úr Steinstúni. Pési heillar alla sem á vegi hans verða og nú jarmar hann að Árnýju áður en hann stekkur af stað á eftir Jóhönnu sem þreytist ekki á að leika við hann. Stefnt að opinni búð árið um kring Fleiri viðskiptavinir eru mættir. Fleiri kossum er smellt á Árnýju. Hún tekur við enn einum skammti af heillaóskum. Og svo er spjallað. „Sumir koma hingað bara til að spjalla,“ segir hún. „Fá fréttir af bæjunum. Það er notalegt og skemmtilegt og ég tek því fagnandi.“ Árný mun halda áfram námi sínu fyrir sunnan í haust. Stefnt er að því að halda búðinni opinni í vetur en þá mun einhver annar taka við versl- unarstjórninni. „Um háveturinn verður af- greiðslutíminn skertur en það er al- gjörlega markmiðið að hér verði rekin búð árið um kring.“ En í sumar verður það hin glað- lega Árný sem heilsar gestum Verzl- unarfjelags Árneshrepps. Hvort sem þeir eru komnir til að kaupa í matinn eða aðeins til að spjalla. „Það er ótrúlega gaman að vera komin hingað í Norðurfjörð aftur, ég var hér svo mikið sem barn og ungling- ur. Það er gott að vera komin í bryggjuhverfið, vera hluti af þessu lífi hér. Ég hlakka sannarlega til sumarsins. Mér finnst ótrúlega gott að vera komin heim.“ Kossaflóð við búðarborðið í Norðurfirði  Verzlunarfjelag Árneshrepps var opnað um hvítasunnuna  138 hluthafar eru í félaginu  Árný Björk verslunarstjóri segir að búðin hafi stóru hlutverki að gegna í sveitinni sem samkomustaður Morgunblaðið/Sunna Ósk Logadóttir Hlakkar til sumarsins Árný Björk Björnsdóttir, verslunarstjóri Verzl- unarfjelags Árneshrepps, hlakkar til sumarsins í búðinni í Norðurfirði. Sprettur Jóhanna Engilráð tekur á sprett við búðina. Með henni eru heim- alningurinn Pési, hundurinn Kubbur og vinur hennar, Thomas Elguezabal. Algengt er að þrastarungar flækist inn á þjóðvegi á þessum tíma árs. Þetta segir Jóhann Óli Hilmarsson fuglafræðingur í samtali við Morgunblaðið. Hann hvetur fólk sem verði vart við unga á vegum til að færa ungana út í kant en varar við því að fjarlægja þá. Jóhann segir allt of algengt að fólk taki þrastar- unga með sér heim í þeirri trú að það sé að bjarga þeim og bætir við að oftast séu foreldrarnir skammt undan að sækja æti fyrir ungana. „Þeir eru úti um allt. Þeir verpa á jörðinni í íslensku birkiskógunum og hafa gert það í þúsundir ára. Það er ekki komið inn í kerfið hjá þeim að verpa í trjám. Þess vegna hoppa ungarnir af stað löngu áður en þeir verða fleygir og lenda oft í hrakförum,“ segir Jóhann. rosa@mbl.is Algengt að fólk fjarlægi unga Morgunblaðið/Bogi Arason Hjálparhönd Þrastarungar villast gjarnan inn á þjóðvegi á vorin. Þessi ungi rataði inn á þjóðveginn að Stöðvarfirði en góð kona rétti honum hjálparhönd og fór með hann af veginum þar sem foreldrarnir gátu fundið hann.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.