Morgunblaðið - 13.06.2019, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. JÚNÍ 2019
sp
ör
eh
f.
Sumar 23
Þessi glæsilega ferð byrjar í frönsku Ölpunum í fjallabænum
fræga Chamonix.Við förum til bíllausa bæjarins Zermatt og
bæjarins Stresa við vatnið Lago Maggiore en staðsetning
vatnsins hefur allt frá 18. öld laðað að ferðamenn. Þaðan
verður m.a. farið í siglingu til eyjaperlunnar Isola Bella og þar
skoðuð dásamleg höll í miðjum, stórglæsilegum lystigarði.
19. - 28. ágúst
Fararstjórn: Inga Ragnarsdóttir
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Verð: 274.900 kr. á mann í tvíbýli.
Mjög mikið innifalið!
Chamonix, Zermatt&Stresa
Sunna Ósk Logadóttir
sunna@mbl.is
Kossar flögra um og fylla búðina í
Árneshreppi á Ströndum. Við búð-
arborðið stendur verslunarstjórinn
ungi, Árný Björk Björnsdóttir frá
bænum Melum, og tekur á móti
fyrstu kúnnunum þetta sumarið
með geislandi brosi. Yfir hana rignir
hamingjuóskum og hún svarar að
bragði: „Já, sömuleiðis!“
Það er vissulega tilefni til að
brosa og fagna. Verslunin, sem nú
hefur fengið nafnið Verzlunarfjelag
Árneshrepps, var lokuð í allan vet-
ur. Hún var svo opnuð á hvítasunnu-
dag og verður opin alla daga vik-
unnar í sumar. Sveitungar og aðrir
sem eiga viðdvöl í hreppnum um
þessar mundir hafa margir hverjir
þegar litið inn, keypt hitt og þetta
sem þá vanhagar um og svo gert það
allra mikilvægasta: Spjallað um
daginn og veginn.
Því það er ómissandi að spjalla í
búðinni í Norðurfirði; hjarta sveit-
arinnar sem nú streymir á ný líf um.
„Búðin hefur stóru hlutverki að
gegna í sveitinni sem samkomu-
staður, nokkurs konar félagsmið-
stöð, og þannig viljum við hafa það
áfram,“ segir Árný.
Lokkandi ilmur
frá Kaffi Norðurfirði
Gegnt henni við höfnina er svo
veitingastaðurinn Kaffi Norður-
fjörður sem Sara Jónsdóttir og
Lovísa Bryngeirsdóttir reka yfir
sumartímann. Þaðan leggur út í sól-
skinið, sem nóg hefur verið af síð-
ustu daga, ilminn af nýju bakkelsi
og fiskisúpunni vinsælu. Við höfnina
eru strandveiðibátarnir farnir að
skríða í land eftir blíðviðrisdag á
gjöfulum miðunum. Franskir ferða-
menn sitja við eitt borðið á kaffihús-
inu og njóta útsýnisins yfir hafið og
hin sérstæðu fjöll Strandanna, sem
sum eru gróin upp á hæstu tinda, út-
sýni sem er óumdeilanlega á heims-
mælikvarða. „Sjáðu fiskibátana,“
segir ungur Bandaríkjamaður hrað-
mæltur við ferðafélaga sinn, aug-
ljóslega hrifinn, er þeir tylla sér við
annað borð við gluggann. Þeir fylgj-
ast með hafnarstjóranum, Elínu
Öglu Briem, taka á móti feng dags-
ins. Elín vippar sér fimlega upp í
lyftarann, klædd bláum sumarkjól,
og færir til ker barmafull af fiski, ís-
ar og skráir.
Vel menntaður verslunarstjóri
Það er því ekki að ástæðulausu
sem svæðið er stundum kallað „mið-
bærinn“ eða „bryggjuhverfið“ segir
Árný og hlær. Hún tekur svo við að
afgreiða systurson sinn, Skúla
Björn Ásgeirsson, sem er kominn til
að versla fyrir ömmu sína, Bjarn-
heiði Fossdal á Melum. Og svo app-
elsínur fyrir sjálfan sig, hvorki
meira né minna en 2,2 kíló af þeim.
Þó að Árný sé nýtekin við starf-
inu er hún flestum hnútum kunnug í
búðinni. Þar vann hún sem ungling-
ur í fjögur sumur. Nú er það hún
sem stjórnar, sér um að panta vörur
og afgreiða. Frá því að hún starfaði
þar síðast hefur hún m.a. lokið há-
skólanámi í ferðamálafræðum og
frönsku. Nú er hún að bæta við sig
námi og er hálfnuð með meist-
aranám í markaðsfræðum og al-
þjóðaviðskiptum.
Það var ekki fyrr en nú um miðan
maí sem Árný var ráðin versl-
unarstjóri og því þurfti að hafa
hraðar hendur við undirbúning.
Hún segir þó allt hafa gengið nokk-
uð vel enda margir sem voru boðnir
og búnir að aðstoða svo hægt yrði
að opna sem fyrst. „Við þurftum að
koma húsnæðinu í stand, panta allar
vörur, hér var enginn lager, og sitt
hvað fleira.“
Töluvert af matvöru og hreinlæt-
isvörum er þegar á boðstólum. En
Árný ætlar ekki að láta staðar num-
ið þar. Hún hyggst einnig bjóða upp
á gas, bílavörur og handverk, svo
dæmi séu tekin, helst úr heima-
byggð. „Nú þarf ég að fara að spyrj-
ast fyrir í sveitinni hvort einhverjir
hafi setið við prjóna í vetur,“ segir
hún.
Stútfull búð af minningum
138 hluthafar eru í Verzlunarfje-
lagi Árneshrepps sem stofnað var í
vetur. Stefnt var að því að safna
tveimur milljónum króna í hlutafé en
þær urðu um fimm sem kom
skemmtilega á óvart. Hluthafarnir
og fleiri hafa verið boðnir og búnir
að leggja hönd á plóg síðustu vikur.
Fyrir það er Árný óendanlega þakk-
lát. „Þetta er samvinnuverkefni. Öll-
um þykir vænt um að hér sé búð,
þetta húsnæði hefur líka svo mikla
sögu. Hingað komu til dæmis systur
í gær sem sögðu mér frá því að önn-
ur þeirra hefði fæðst á hæðinni hér
fyrir ofan þegar pabbi hennar var
kaupfélagsstjóri. Fleiri sögur í þess-
um dúr heyri ég. Búðin hefur auðvit-
að breyst í áranna rás en svo margir
eiga góðar minningar héðan.“
Sjálf á Árný minningar þaðan frá
því hún var barn. „Það var alltaf svo
sérstakt að koma hingað á jólunum.
Það var alveg föst hefð að fara í búð-
ina og versla mikið.“
Fyrir utan dyrnar á búðinni
stendur Jóhanna Engilráð Hrafns-
dóttir, tíu ára, og með henni er
hundurinn Kubbur og heimaln-
ingurinn Pési, báðir ættaðir úr
Steinstúni. Pési heillar alla sem á
vegi hans verða og nú jarmar hann
að Árnýju áður en hann stekkur af
stað á eftir Jóhönnu sem þreytist
ekki á að leika við hann.
Stefnt að opinni búð
árið um kring
Fleiri viðskiptavinir eru mættir.
Fleiri kossum er smellt á Árnýju.
Hún tekur við enn einum skammti af
heillaóskum. Og svo er spjallað.
„Sumir koma hingað bara til að
spjalla,“ segir hún. „Fá fréttir af
bæjunum. Það er notalegt og
skemmtilegt og ég tek því fagnandi.“
Árný mun halda áfram námi sínu
fyrir sunnan í haust. Stefnt er að því
að halda búðinni opinni í vetur en þá
mun einhver annar taka við versl-
unarstjórninni.
„Um háveturinn verður af-
greiðslutíminn skertur en það er al-
gjörlega markmiðið að hér verði
rekin búð árið um kring.“
En í sumar verður það hin glað-
lega Árný sem heilsar gestum Verzl-
unarfjelags Árneshrepps. Hvort
sem þeir eru komnir til að kaupa í
matinn eða aðeins til að spjalla. „Það
er ótrúlega gaman að vera komin
hingað í Norðurfjörð aftur, ég var
hér svo mikið sem barn og ungling-
ur. Það er gott að vera komin í
bryggjuhverfið, vera hluti af þessu
lífi hér. Ég hlakka sannarlega til
sumarsins. Mér finnst ótrúlega gott
að vera komin heim.“
Kossaflóð við búðarborðið í Norðurfirði
Verzlunarfjelag Árneshrepps var opnað um hvítasunnuna 138 hluthafar eru í félaginu Árný
Björk verslunarstjóri segir að búðin hafi stóru hlutverki að gegna í sveitinni sem samkomustaður
Morgunblaðið/Sunna Ósk Logadóttir
Hlakkar til sumarsins Árný Björk Björnsdóttir, verslunarstjóri Verzl-
unarfjelags Árneshrepps, hlakkar til sumarsins í búðinni í Norðurfirði.
Sprettur Jóhanna Engilráð tekur á sprett við búðina. Með henni eru heim-
alningurinn Pési, hundurinn Kubbur og vinur hennar, Thomas Elguezabal.
Algengt er að þrastarungar flækist inn á þjóðvegi á
þessum tíma árs. Þetta segir Jóhann Óli Hilmarsson
fuglafræðingur í samtali við Morgunblaðið. Hann
hvetur fólk sem verði vart við unga á vegum til að
færa ungana út í kant en varar við því að fjarlægja
þá.
Jóhann segir allt of algengt að fólk taki þrastar-
unga með sér heim í þeirri trú að það sé að bjarga
þeim og bætir við að oftast séu foreldrarnir skammt
undan að sækja æti fyrir ungana. „Þeir eru úti um
allt. Þeir verpa á jörðinni í íslensku birkiskógunum
og hafa gert það í þúsundir ára. Það er ekki komið
inn í kerfið hjá þeim að verpa í trjám. Þess vegna
hoppa ungarnir af stað löngu áður en þeir verða
fleygir og lenda oft í hrakförum,“ segir Jóhann.
rosa@mbl.is
Algengt að fólk fjarlægi unga
Morgunblaðið/Bogi Arason
Hjálparhönd Þrastarungar villast gjarnan inn á þjóðvegi á vorin. Þessi ungi rataði inn á þjóðveginn að Stöðvarfirði
en góð kona rétti honum hjálparhönd og fór með hann af veginum þar sem foreldrarnir gátu fundið hann.