Morgunblaðið - 13.06.2019, Side 10

Morgunblaðið - 13.06.2019, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. JÚNÍ 2019 nd.is and.isBRIMBORG REYKJAVÍK | BÍLDSHÖFÐA 8 | S. 515 7040 | BRIMBORG AKUREYRI | TRYGGVABRAUT 5 | S. 515 70 PEUGEOT 2008 Á SUMARTILBOÐI -400.000kr. AFSLÁTTUR Peugeot 2008 Allure SUV Sjálfskiptur 1.2 bensín 110 hö Verðlistaverð með málmlit og bakkmyndavél: 3.650.000 kr. Sumartilboðsverð: 3.250.000 KR. i e ti l50 Fjórir heimsþekktir fiskihagfræðingar flytja fyrirlestra um ýmis svið fiskihagfræðinnar, einkum stjórn fiskveiða, á ráðstefnu Félagsvísindasviðs Háskóla Íslands, Rannsóknarseturs um nýsköpun og hagvöxt (RNH), Hagfræðideildar HÍ og Hagfræðistofnunar. Síðan eru umræður og fyrirspurnir. Loks er móttaka á Litla torgi í Hámu kl. 18–19. Aðgangur ókeypis og allir velkomnir. Hátíðasal Háskóla Íslands föstudaginn 14. júní kl. 16–18 Ráðstefna til heiðurs Ragnari Árnasyni sjötugum Trond Bjorndal Rögnvaldur Hannesson GordonMunro JamesWilen Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Bilun í Sauðárveitu í fyrrinótt varð þess valdandi að farið var fram á það við alla notendur kalds vatns á Sauð- árkróki, íbúa þar meðtalda, að þeir færu eins sparlega með kalda vatnið og mögulegt væri næstu daga. Sagði í tilkynningu á heimasíðu Skaga- fjarðarveitna að bilunin hefði leitt til þess að minna vatnsrennsli hefði verið inn á forðatanka neysluvatns á Skarðsmóum fram til gærmorguns. Indriði Þór Einarsson, sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs Skaga- fjarðar, segir í samtali við Morgun- blaðið að gert hafi verið við bilunina um leið og hennar varð vart í gær- morgun, en svo virðist sem raf- magnsleysi sem varð í dreifbýlinu kringum Sauðárkrók um nóttina hafi valdið biluninni. Fréttamiðillinn Feykir.is greindi frá því á föstudaginn, að svo mikill skortur væri á köldu vatni að farið hefði verið fram á það við fyrirtæki að þau drægju úr framleiðslu eða minnkuðu vatnsnotkunina á annan hátt. Var í úttekt Feykis greint frá því að lítil úrkoma í vetur og vor væri orsakavaldurinn. „Það hefur ekki komið deigur dropi úr lofti í margar vikur hérna frekar en víða annars staðar og það hjálpar ekki til,“ segir Indriði. Hann bætir við að veiturnar ættu þó að hafa undan vatnsþörfinni, en að sama skapi megi varla við áföllum á borð við biluninni í fyrrinótt. „Þetta vindur upp á sig, því við erum að fylla á forðatanka yfir nóttina, og ef við missum póst eins og þennan, þá hefur það áhrif út vikuna.“ Það sé ekki síst vegna þess að á Sauðár- króki séu stór fyrirtæki í matvæla- framleiðslu. „Við megum því ekki við svona áföllum þegar verið er að fylla á forðabúrið.“ Fyrirtæki sýnt mikinn skilning Indriði segir að verið sé að leita lausna á vatnsskortinum, og að með- al annars hafi í gær lokið viðgerð á seinni vatnsdælunni af tveimur sem hafði bilað fyrr í mánuðinum. „Þann- ig að við vonum að þetta ástand verði ekki viðvarandi, auk þess sem við er- um að leita leiða til að afla meira vatns.“ Þá hafi fyrirtækin á Sauð- árkróki sýnt mikinn skilning á ástandinu og brugðist vel við þeim tilmælum sem komið hafa um að spara vatnið. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Sauðárkrókur Íbúar hafa verið beðnir um að spara notkun kalda vatnsins. Íbúar spari kalda vatnið  Lítil úrkoma farin að hafa áhrif

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.