Morgunblaðið - 13.06.2019, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. JÚNÍ 2019
Bæjarlind 6 | sími 554 7030
Við erum á facebook
Kr. 4.990
Str. 38-50
8 litir
- hvítt
- svart
- bleikt
- dökkblátt
- mosagrænt
- ljósgrátt
- beige
- rautt
Cherry Berry
kvartbuxur
Skoðið laxdal.is
Skipholti 29b • S. 551 4422
SUMARTILBOÐ TIL 18. JÚNÍ
10-70%
AFSLÁTTUR
af öllum
vörum
Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | VersluninBelladonna
Netverslun á www.belladonna.is
Síðbuxur, kvartbuxur,
stuttbuxur og sumarpils
Str.
38-58
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
Fimmtudag 10-18
Föstudag 10-18
Laugardag 10-16
20%
afsláttur af
MOSMOSH
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið
leggur til að áfengisveitingar verði
heimilar í takmörkuðu magni við
baðstaði í náttúrunni. Tillagan nær
þó ekki til baðstaða þar sem enginn
rekstur fer fram. Hún er nú í sam-
ráðsgátt stjórnvalda á vefnum og
gefst hverjum sem er kostur á að
senda inn umsögn um tillöguna.
Of ölvuðum ekki hleypt ofan í
Lagðar eru til breytingar á reglu-
gerð um baðstaði í náttúrunni ann-
ars vegar og hollustuhætti á sund-
og baðstöðum hins vegar, en í skýr-
ingum með tillögunum í samráðs-
gátt segir að tillagan varði veit-
ingaþjónustu á baðstöðum, svo sem
í afþreyingarlaugum.
„Baðstaðir í náttúrunni, eins og
t.d. Bláa lónið, hafa um árabil boðið
upp á takmarkaðar veitingar á bað-
svæðum og hefur þar verið farið
eftir þeim verklagsreglum sem
fram koma í starfsleyfi. Lagt er til
að kveðið verði á um í reglugerðinni
að heimilt sé að veita áfengi í tak-
mörkuðu magni á baðstað og að
fjallað verði um það í öryggis-
reglum og starfsleyfi,“ segir þar
enn fremur.
Lagt er til að áfengisveitingar á
baðstöðum takmarkist við veitingar
í margnota umbúðum eða margnota
glösum. Í öryggisreglum skuli
fjallað um hámark áfengiseininga á
hvern einstakling og umfang laug-
argæslu. Þá er kveðið á um að sér-
staklega skuli fjallað um veitingu
áfengis í starfsleyfi, m.a. vegna ör-
yggismála. Þá verði gerð strangari
krafa um laugargæslu. Einnig er
lagt til að óheimilt verði að veita
einstaklingum undir augljósum
áhrifum áfengis eða annarra vímu-
efna aðgang að sund- og baðstöðum.
Vilja leyfa áfengi í laugunum
Baðstaðir í nátt-
úrunni fái heimild
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Lón Í Bláa lóninu hefur gestum lengi verið boðið að kaupa áfengi.
Vantar þig
pípara?
FINNA.is
Hæstiréttur úrskurðaði í gær að
vísa bæri frá héraðsdómi máli, sem
Blönduós höfðaði á hendur ábúend-
um jarðarinnar Kleifa árið 2017, en
bærinn rifti í desember 2009 bygg-
ingarbréfi sem gert hafði verið við
ábúendur árið 1951 og lýsti því yfir
að hann vildi taka jörðina eign-
arnámi. Fjórir erfðaleigusamn-
ingar til óákveðins tíma voru gerðir
á árunum 1932-1939 og náðu þeir
samtals til 7,39 hektara lands. Árið
1951 var gert byggingarbréf við
Kristin Magnússon, ábúanda jarð-
arinnar, þar sem 12 hektarar bætt-
ust við jörðina. Greindi bæinn á við
afkomendur Kristins um hvort
byggingarbréfið frá árinu 1951
hefði leyst erfðaleigusamningana
af hólmi, en Hæstiréttur taldi það
ekki sannað. Blönduós hafði áður
borið sigur úr býtum bæði fyrir
héraðsdómi og í Landsrétti, en einn
landsréttardómari af þremur, Vil-
hjálmur H. Vilhjálmsson, skilaði inn
sératkvæði, sem byggði meðal ann-
ars á því að kröfur Blönduóss væru
of víðtækar.
Áslaug Thorlacius myndlist-
armaður og barnabarn Kristins
segir að fjölskyldan fagni mjög nið-
urstöðu Hæstaréttar. Málið hafi
hins vegar tekið nokkuð á, og með-
al annars valdið því að fyrirhug-
uðum framkvæmdum á jörðinni
hefði verið slegið á frest í um ára-
tug. „Mér finnst aðalatriðið að þeg-
ar yfirvaldið vill fara sínu fram
gegn réttindum einstaklingsins er
gott að til er Hæstiréttur sem
stendur vörð um þau réttindi,“ seg-
ir Áslaug að lokum.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Hæstiréttur Kröfu Blönduóss var
vísað frá í meðförum Hæstaréttar.
Kröfum
Blönduóss
vísað frá
Áratugadeilu um
jörðina Kleifar lokið