Morgunblaðið - 13.06.2019, Side 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. JÚNÍ 2019
Dagana 25.-26. maí voru hljóðritaðar
sex messur í Húsavíkurkirkju. Þetta
er fimmta sumarið sem Rík-
isútvarpið hljóðritar messur safnaða
á landsbyggðinni og hefur þetta
verkefni mælst vel fyrir bæði hjá út-
varpshlustendum og þátttakendum
sem voru í þetta sinn um eitt hund-
rað talsins, segir í frétt á heimasíðu
biskups Íslands.
Húsavíkurkirkja varð fyrir valinu
sem upptökustaður og var öllum
boðið að sækja messu tvisvar á laug-
ardag og fjórum sinnum á sunnudag.
„Fjölmennur hópur presta, org-
anista, lesara og kirkjukóra hefur
lagt á sig mikla vinnu við undirbún-
ing og ánægjuleg samvinna smærri
kirkjukóra hefur skapað stærri heild
og möguleika til að flytja metn-
aðarfyllri tónlist,“ segir í fréttinni.
Messunum verður útvarpað á
sunnudögum á Rás 1 sem hér segir:
23. júní, messa úr Laufásprestakalli,
30. júní, úr Grenjaðarstað-
arprestakalli, 7. júlí úr Skútustaða-
prestakalli, 14. júlí úr Skinnastað-
arprestakalli, 21. júlí úr
Langanesprestakalli og 4. ágúst úr
Húsavíkurprestakalli.
Upptökumaður Ríkisútvarpsins
var Einar Sigurðsson og Margrét
Bóasdóttir, söngmálastjóri þjóð-
kirkjunnar, annaðist skipulagningu
og umsjón. Í fyrra voru fluttar sjö
messur úr Vesturlandsprófastdæmi,
sem teknar voru upp um eina helgi í
Reykholtskirkju. sisi@mbl.is
Messur hljóðrit-
aðar á Húsavík
Útvarpað á sunnudögum í sumar
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Húsavíkurkirkja Hljóðritaðar voru
sex messur sömu helgina í maí.
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Frá árinu 2018 hafa yfir 90 ríki
deilt með sér upplýsingum um 47
milljón aflandsreikninga með
heildarvirði eigna um 4,9 billjónir
evra. Um er að ræða alheimsátak í
gagnsæi skattalegra upplýsinga,
þekkt sem CRS (Common Report-
ing Standard).
Þetta kemur á heimasíðu Efna-
hags- og framfarastofnunarinnar,
OECD, um alþjóðlegar aðgerðir til
að auka gagnsæi í sjálfvirkum
skiptum á bankaupplýsingum.
Heildarskýrslu um átaksverkið er
að vænta í lok árs en samkvæmt
fyrstu upplýsingum hefur sam-
starfið bætt skattskil og skilað
markverðum árangri fyrir ríki á
heimsvísu.
Ísland nýtur góðs af
Alls hafa 4.500 tvíhliða sambönd
myndast milli ríkja um að deila
skattalegum upplýsingum í gegn-
um The Automatic Exchange of
Information Initiative (AEOI) sem
markar stærstu sameiginlegu
notkun á skattalegum upplýsing-
um í mannkynssögunni.
Njóta góðs af samstarfinu
Bryndís Kristjánsdóttir skatt-
rannsóknarstjóri segir að Ísland
hafi notið góðs af þessu samstarfi
og bendir á að ríkisskattstjóri sé
m.a. að bera þessar upplýsingar
saman við aðrar upplýsingar sem
aflað hefur verið um eignir Íslend-
inga í skattaskjólum.
„Þetta er eitt af þessum stóru
verkfærum sem hafa komið á síð-
ustu árum. Það er grundvallarat-
riði að þetta er nú sent sjálfkrafa,
bæði héðan og til annarra ríkja og
frá öðrum ríkjum og til Íslands,
andstætt því sem var áður var, en
þá þurfti að miklu leyti að biðja
um þessar upplýsingar.“
Bryndís segir að um sé að ræða
lista með nöfnum og fjárhæðum.
„Nú sjá íslensk skattayfirvöld í
kerfunum bankainnistæður sem
eru hér á landi og erlendis þannig
að þetta gefur allt aðra mynd held-
ur en var áður,“ segir Bryndís og
bætir við að þetta sé öflugt tól í
baráttunni við skattsvik. „Bæði til
að finna mál en einnig sem hluti af
þeim upplýsingum sem hægt er að
styðjast við þegar verið er að
rannsaka mál. Til dæmis þegar
verið er að leita að því hvar fjár-
muni er að finna getur þetta veitt
upplýsingar um það og þá er hægt
að óska eftir frekari gögnum.“
Viðbótartekjur ríkja miklar
Valfrjáls birting upplýsinga um
aflandsreikninga, fjárhagslegar
eignir og tekjur í aðdraganda
þess að AEOI tók gildi skilaði
meira en 95 milljörðum evra í við-
bótartekjum (skattar, vextir og
sektir) fyrir OECD- og G20-ríkin
á tímabilinu 2009 til 2019. Þessi
upphæð hækkaði um 2 milljarða
evra, jafnvirði yfir 280 milljarða
króna, frá síðustu skráningu
OECD í nóvember í fyrra.
Haft er eftir Angel Gurria,
framkvæmdastjóra OECD, á
heimasíðu samtakanna, að búist
sé við því að mun meiri viðbót-
arskattur muni skila sér til ríkja á
komandi árum með þessum tól-
um.
„Það taka auðvitað ekki öll ríki
þátt í þessu og menn leita alltaf
einhverra leiða,“ segir Bryndís og
bætir við að hægt sé að nota leit-
arvélar á netinu til að fá upplýs-
ingar um hvernig sé best að forð-
ast CRS. „En þetta gerir slíkt
mun erfiðara. Menn leita þá til
annarra ríkja eða fara með þetta í
annars konar afurðir en þær sem
falla þarna undir,“ segir Bryndís.
Gagnsæi í skattamálum skilar árangri
Bankaupplýsingum deilt sjálfkrafa milli ríkja í átaki OECD Upplýsingar um 47.000.000 aflandsreikn-
inga „Eitt af þessum stóru verkfærum sem hafa komið á síðustu árum,“ segir skattrannsóknarstjóri
Morgunblaðið/Arnaldur
Peningar Aukið gagnsæi milli ríkja skilar árangri í baráttunni við skattsvik.