Morgunblaðið - 13.06.2019, Side 36
36 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. JÚNÍ 2019
Fæst í öllum apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum verslana.
Fat Burner™ frá New Nordic eru
háþróaðar jurtatöflur þar sem sérvalin
innihaldsefni styðja við heilbrigða og skilvirka
fitubrennslu.Fat Burner™ er samsett af
yerba mate jurtinni sem blönduð er með svörtu
kummin (Nigella fræjum), engifer, grænu te,
mjólkurþistli og kólíni. Kólín stuðlar að eðlilegu
niðurbroti á fitu og yerba mate getur stutt við
þyngdartap samhliða heilbrigðu mataræði.
Stuðlar að eðlilegu niðurbroti fitu
og styður við þyngdartap
Fat Burner ™
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Neðri deild breska þingsins hafnaði í
gær tillögu Verkamannaflokksins og
nokkurra þingmanna Íhaldsflokksins
sem hefði gert þeim kleift að leggja
fram lagafrumvarp til að hindra að
Bretland gengi úr Evrópusamband-
inu án samnings eftir að íhaldsmenn
kjósa nýjan flokksleiðtoga sem á að
taka við embætti forsætisráðherra
eftir afsögn Theresu May. Boris
Johnson, fyrrverandi utanríkis-
ráðherra og borgarstjóri Lundúna, er
talinn sigurstranglegastur í leiðtoga-
kjörinu og ný skoðanakönnun bendir
til þess að Íhaldsflokkurinn fengi
mikinn meirihluta á þinginu í næstu
kosningum færi Johnson fyrir flokkn-
um.
Boris Johnson hóf baráttu sína fyr-
ir leiðtogastöðunni formlega í gær og
kvaðst ekki stefna að því að Bretland
gengi úr ESB án samnings. Hann
sagði hins vegar að hann útilokaði
ekki útgöngu án samnings „ef allt
annað bregst“ og liti á það sem
„nauðsynlegt tæki“ til að knýja fram
breytingar í samningaviðræðum við
ESB um útgönguna.
Útgöngunni hefur verið frestað
tvisvar og Johnson hefur sagt að ef
hann verði forsætisráðherra gangi
Bretland úr ESB með eða án samn-
ings 31. október í samræmi við niður-
stöðu þjóðaratkvæðisins í júní 2016
þegar útgangan var samþykkt með
52% atkvæða. „Eftir þriggja ára bið
og tvær frestanir verðum við að
ganga úr Evrópusambandinu 31.
október,“ sagði Johnson. Leiðtogar
Evrópusambandsins hafa sagt að
þeir ljái ekki máls á nýjum samningi
um brexit og telja að líkurnar á út-
göngu án samnings hafi aukist eftir
að May tilkynnti afsögn sína.
Vilja hindra Brexit án samnings
Verkamannaflokkurinn og nokkrir
þingmenn Íhaldsflokksins lögðu fram
tillögu sem hefði gert þeim kleift að
leggja fram lagafrumvarp síðar í
mánuðinum til að koma í veg fyrir út-
göngu án samnings 31. október en til-
lagan var felld í gær með 309 atkvæð-
um gegn 298. Stuðningsmenn
tillögunnar óttast að Brexit án samn-
ings myndi valda mikilli röskun á við-
skiptum við ríki Evrópusambandsins.
Ríkisstjórn Íhaldsflokksins hefur
spáð því að breska hagkerfið dragist
saman um alls 9,3% á næstu 15 árum
gangi Bretland úr ESB án samnings,
að því er fram kemur á vef breska
ríkisútvarpsins. „Umræðan um Brex-
it í Íhaldsflokknum er orðin ugg-
vænleg, fáránleg og gáleysisleg,“ hef-
ur fréttaveitan AFP eftir Keir
Starmer, talsmanni Verkamanna-
flokksins í Brexit-málum. „Við getum
ekki staðið aðgerðalaus hjá ef næsti
forsætisráðherra reynir að knýja
fram samningslausa útgöngu án sam-
þykkis bresku þjóðarinnar.“
Einn frambjóðendanna í leiðtoga-
kjörinu, Dominic Raab, fyrrverandi
Brexit-ráðherra, hefur sagt að út-
ganga án samnings yrði miklu betri
en fyrirliggjandi Brexit-samningur
og hann hefur jafnvel neitað að úti-
loka þann möguleika að þingið verði
sent heim til að koma í veg fyrir að
það hindri útgöngu án samnings.
Johnson hefur sagt að ef Bretland
gangi ekki úr Evrópusambandinu 31.
október verði það til þess að Íhalds-
flokkurinn gjaldi afhroð í næstu þing-
kosningum og Jeremy Corbyn, leið-
togi Verkamannaflokkksins, verði
forsætisráðherra.
Ný skoðanakönnun The Daily
Telegraph bendir til þess að fylgi
Verkamannaflokksins sé nú 27%,
Íhaldsflokksins 23%, Brexit-flokksins
22% og Frjálslyndra demókrata 17%.
Yrði þetta niðurstaða næstu kosninga
myndi Verkamannaflokkinn vanta 26
sæti til að ná meirihluta á þinginu.
Fengi mikinn meirihluta
Ef marka má könnunina er John-
son eina leiðtogaefni íhaldsmanna
sem getur sigrað Verkamannaflokk-
inn og Brexitflokkinn í næstu kosn-
ingum, að sögn The Daily Telegraph.
Um 37% sögðust myndu kjósa
Íhaldsflokkinn ef Johnson yrði leið-
togi hans, 22% sögðust myndu kjósa
Verkamannaflokkinn, 20% Frjáls-
lynda demókrata og 14% Brexit-
flokkinn. Gengi þetta eftir fengi
Íhaldsflokkurinn 140 sæta meirihluta
á þinginu og fjórum sætum minna en
í kosningasigri flokksins árið 1983
þegar hann var undir forystu Marg-
aret Thatcher.
Um 25% aðspurðra sögðust myndu
kjósa Íhaldsflokkinn ef annaðhvort
Dominic Raab eða Jeremy Hunt
utanríkisráðherra færi með sigur af
hólmi í leiðtogakjörinu. 23% sögðust
myndu kjósa flokkinn ef Michael
Gove umhverfisráðherra færi fyrir
honum og 22% ef Sajid Javid innan-
ríkisráðherra yrði leiðtogi hans.
Gæti leitt flokkinn til sigurs
Könnun bendir til þess að Johnson sé eina leiðtogaefni Íhaldsflokksins sem geti tryggt honum sig-
ur á Verkamannaflokknum og Brexit-flokknum Boðar útgöngu án samnings „ef allt annað bregst“
AFP
Boris Johnson Er 54 ára, var borgarstjóri Lundúna á
árunum 2008-2016 og utanríkisráðherra 2016-2018.
Sajid Javid Er 49 ára og varð
innanríkisráðherra á síðasta ári.
AFP
Jeremy Hunt Studdi aðild að ESB í þjóðaratkvæðinu
2016 og varð utanríkisráðherra í fyrra. Er 52 ára.
Michael Gove Er 51 árs og varð
umhverfisráðherra 2017.
Kjörið hefst í dag
» Fyrsta atkvæðagreiðslan í
leiðtogakjöri Íhaldsflokksins
fer fram í dag.
» 313 þingmenn flokksins
kjósa á milli leiðtogaefnanna í
nokkrum umferðum þar til
tveir verða eftir.
» Um 160.000 skráðir félagar
flokksins fá síðan tækifæri til
kjósa á milli leiðtogaefnanna
tveggja í póstkosningu.
» Líklegt er að niðurstaðan
liggi fyrir seint í júlí.
Dominic Raab Er 45 ára og fyrr-
verandi ráðherra Brexit-mála.
Lögreglan í Hong Kong beitti tára-
gasi og skaut gúmmíkúlum á mót-
mælendur sem berjast gegn laga-
frumvarpi um að heimila framsal
meintra glæpamanna frá sjálf-
stjórnarsvæðinu til meginlands
Kína. Mótmælendurnir lokuðu veg-
um að opinberum byggingum,
reyndu að ráðast inn í þær og köst-
uðu múrsteinum og öðrum hlutum
á lögreglumenn. Tugir manna
særðust í átökunum og a.m.k. tveir
þeirra lífshættulega.
Gert er ráð fyrir því að þing
Hong Kong samþykki frumvarpið á
fimmtudaginn kemur. Mótmælend-
urnir óttast að frumvarpið verði til
þess að pólitískir andstæðingar
stjórnvalda í Kína verði framseldir
þangað og að meintir afbrotamenn
verði pyntaðir í fangelsum á megin-
landinu, þvingaðir til að játa á sig
glæpi og mál þeirra fái ekki sann-
gjarna meðferð í kínverska dóms-
kerfinu. Stjórnvöld í Hong Kong
segja að framsalsheimildin nái að-
eins til alvarlegra glæpa eins og
morða og nauðgana. Dómstólar í
Hong Kong hafi lokaorðið þegar
óskað sé eftir framsali og enginn
verði framseldur vegna ásakana
um pólitíska glæpi.
Hörð átök í Hong Kong
AFP