Morgunblaðið - 13.06.2019, Page 50
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. JÚNÍ 2019
Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700
Opið: 11-18 virka daga, 11-16 laugardaga www.alno.is
70 þvotta. Ekki er verra ef þú getur notað þær undir kjól en
líka kannski í ræktina. Fjölnota föt eru nefnilega að koma
mjög sterk inn. Föt sem hægt er að nota spari og hversdags
og líka föt sem nýtast í ræktinni og utan leikfimissalarins.
Nútímafólk með nútímalegan þankagang hugsar um að
fullnýta allar eigur sínar og láta helst ekkert fara til spillis.
En hvernig notum við hjólabuxur?
Jú, við getum notað þær undir kjóla en við getum líka
notað þær við stóra blazer-jakka eða undir skyrtukjóla sem
við hneppum ekki mikið. Möguleikarnir eru óþrjótandi og
við megum ekki festast í gömlum hugmyndum heldur
hleypa nýjum og ferskum straumum inn í líf okkar. Og ef
við ætlum að kaupa okkur eitthvað og nota alla vega 70
sinnum skiptir máli að máta vel og vandlega og kaupa ekk-
ert nema við séum alveg viss. Þannig getum við verið smart
og sniðug.
Marta María
mm@mbl.is
Ef þú átt ekki sumarkjóla á lager í fataskápnum
mætti kannski fjárfesta í einum vel sniðnum. Gott er
að hafa það í huga áður en þú kaupir þér sumarkjól
hvað þú munir nota hann mikið. Ef þú sérð fyrir þér að
nota hann 70 sinnum eða oftar þá máttu kaupa hann.
Annars ættir þú að láta fatakaupin vera. Með því að
hugsa fatakaup út frá 70 sinnum reglunni fáum við aðeins
öðruvísi viðmið og hugsum hlutina á allt annan hátt.
Ef þú átt fallega sumarkjóla í fataskápnum þínum en
þráir tilbreytingu gæti verið ráð að fara í hjólabuxur und-
ir kjólinn. Hjólabuxur eru nefnilega að komast aftur í
móð eftir smá pásu. Það skiptir máli að velja hjólabux-
urnar vel og hafa þær úr þannig efni að þær þoli alla vega
Of mikið?
Hlébarða-
hjólabuxur eru
kafli út af fyrir
sig. Hægt er að
nota þær í rækt-
ina, undir kjól
eða síðar
skyrtur.
Þessar fást
í Monki í
Smára-
lind.
Mjúk litapalletta
Sumarkjóll við bla-
zer-jakka er móðins
núna. Þessi föt fást í
Baum und pferd-
garten á Garðatorgi.
Frjálslegur stíll Pils við
topp og strigaskó er
margnota dress. Þessi föt
fást í Baum und Pferd-
garten á Garðatorgi.
Allt í stíl Þessi kjóll og
þessi jakki koma frá
Baum und Pferdgarten
á Garðatorgi.
Er hægt að nota
þetta 70 sinnum?
Svona er
sumarið Víð pils
við stutt-
ermabol er
mikið atriði í
sumar. Þetta
dress er frá
Anine Bing
og fæst í
Mathildu í
Kringl-
unni.
Sumartískan iðar af lífi og fjöri þessa dagana enda leikur sólin við lands-
menn. Það er einmitt í svona veðri sem mann langar bara að klæða sig upp í
sumarlegan kjól, setja blómakrans í hárið og gleyma öllum áhyggjum lífsins.
Draumadress Allir uppáhalds-
tískustraumar síðustu áratuga
sameinaðir í eitt dress. Blazer-
jakki við neonlitaðar hjólabuxur
er sko aldeilis eitthvað fyrir aug-
að. Þetta draumadress fæst á
Net-a- porter.com.