Morgunblaðið - 13.06.2019, Blaðsíða 56
56 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. JÚNÍ 2019
www.gilbert.is
GEFÐU TÍMA
ÍSLENSKT ÚR MEÐ SÁL
101 ART DECO
60 ára Guðmundur er
frá Heiði í Biskups-
tungum en býr á Sel-
fossi. Hann er eigandi
GBS gröfuþjónustu
ásamt eiginkonu sinni.
Maki: Guðríður Egils-
dóttir, f. 1960, fram-
haldskennari við Fjölbrautaskóla Suður-
lands.
Börn: Rebekka, f. 1979, og Rakel, f.
1992.
Barnabörn: Guðmundur Egill og Ingi
Hrafn.
Foreldrar: Sigurður Þorsteinsson, f.
1924, fyrrverandi bóndi á Heiði, búsettur
þar, og Ólöf Sigríður Rebekka Brynjólfs-
dóttir, f. 1933, d. 2010, húsfreyja á Heiði.
Guðmundur Bjarnar
Sigurðsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Langi þig til þess að létta á hjarta
þínu, skaltu gæta þess vel hvern þú velur.
Líttu á björtu hliðarnar, það auðveldar
allt.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú stendur frammi fyrir flóknum
ákvörðunum. Varastu að láta draga þig út
í eitthvað sem þú hefur engan áhuga á.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Nú er rétti tíminn til þess að
fara í gegnum sambönd þín við aðra. Hug-
ur þinn fer á flug og þú sérð tækifæri í
hverju horni.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það er nauðsynlegt að lesa smáa
letrið í öllum samningum. Farðu í göngu-
túr í náttúrunni. Einhverjir finna sig knúna
til þess að tala við þig um sín hjartans
mál.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Ef þú ert í vafa um hvaða leið þú eig-
ir að velja þá skaltu staldra við og velta
hlutunum betur fyrir þér. Hentu hlutum
sem þú þarft ekki á að halda.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það gefur lífinu lit að upplifa eitt-
hvað nýtt og spennandi. Blandaðu geði
við nýju nágrannana.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þótt verkefnin hlaðist upp máttu ekki
vanrækja sjálfa/n þig. Heilsan er það mik-
ilvægasta sem þú átt. Láttu til skarar
skríða í ástamálunum.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú gerir þér far um að vinna í
einrúmi í dag og kemur miklu í verk fyrir
vikið. Þú færð gjöf sem mun gleðja þig
mikið.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú kannt að verða að gera
fleira uppskátt um þig en þér þykir þægi-
legt. Ekki trúa kjaftasögum um vini þína.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Vertu stolt/ur af starfi þínu
þótt einhverjum finnist ekki mikið til þess
koma. Hafðu vaðið fyrir neðan þig í við-
ræðum við ókunnuga.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Nýtt ástarævintýri er í kort-
unum, sálufélaginn er mögulega fundinn.
Það kemur upp úr dúrnum að þú hafðir
rétt fyrir þér í deilumáli.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Augu þín munu opnast og þú
munt vita nákvæmlega hvað þú átt að
gera. Ferðalag myndi gera þér gott og
gefa þér nýja sýn á ýmislegt.
Suðurnesjum en hætti störfum þar
2004. „Meðfram störfum mínum hjá
lögreglunni 1996 til 1998 átti ég og
rak ásamt mági mínum Hólmgeiri
Hólmgeirssyni fyrirtækið Bílasölu
Reykjanes ehf. sem var umboðsaðili
fyrir Bílheima og Ingvar Helgason á
Suðurnesjum og var fyrirtækið selt
árið 1998.
Þegar ég var í meistaranámi í
Skotlandi árið 2001 stofnaði ég og
rak ásamt bróður mínum, Atla
Georg, ferðaskrifstofuna Icehydra
Travel sem skipulagði hvataferðir
um árum. Eftir á að hyggja þá hætti
ég of snemma í boltanum, átti nóg
eftir.“
Rúnar lauk námi frá Grunnskóla
Grindavíkur 1985, varð stúdent af
tölvu- og viðskiptabraut frá Fjöl-
brautaskóla Suðurnesja 1990, út-
skrifaðist frá Lögregluskóla ríkisins
1994 og lauk almennu prófi fyrir
rannsóknarlögreglumenn 2001, hann
lauk MBA-námi frá Aberdeen Bus-
iness School 2003. Rúnar hefur sótt
fjölda námskeiða og styttra nám af
ýmsu tagi í tengslum við fyrri störf
sín í lögreglunni og og fjölda nám-
skeiða í tengslum við flugstarfsemi.
Starfsferill
„Tólf ára gamall fékk ég sumar-
vinnu á netaverkstæðinu Möskva í
Grindavík og starfaði þar mörg sum-
ur og í jóla- og páskafríum. Þá vann
ég á mínum yngri árum hin ýmsu
störf við fiskvinnslu, landbúnað, sjó-
mennsku á tog-, neta- og dragnóta-
skipum ásamt því að hafa verið í út-
gáfustarfsemi og sölumennsku um
tíma með námi.“
Rúnar hóf störf hjá lögreglunni á
Suðurnesjum sem sumarmaður vorið
1989, starfaði síðan sem lög-
regluflokksstjóri almennrar deildar,
síðar rannsóknarlögreglumaður og
stýrði m.a. fíkniefnarannsóknum á
R
únar Fossádal Árnason
fæddist 13. júní 1969
kl. 22.55 heima hjá
Rósu E. Þorsteins-
dóttur ljósmóður að
Staðarhrauni 9 í Grindavík. „Ég bjó í
foreldrahúsum á Borgarhrauni 21 til
ársins 1991 en þá hófum við Heiða
konan mín sambúð í Keflavík. Við
Heiða giftum okkur 16. júní 2001 og
höfum ýmist búið í Keflavík og Aber-
deen í Skotlandi.“
Rúnar fór í sveit í um einn mánuð
á hverju sumri frá 6 ára aldri í
Hvamm í Arnarneshreppi í Eyjafirði
til Rögnu móðursystur sinnar og
hennar fólks. „Ég fór líka mjög
reglulega á uppvaxtarárunum til
Færeyja og kynntist fólkinu hennar
mömmu og matnum líka sem maður
lærir að elska. Sérstaklega eru
sumrin minnisstæð þegar ég var 11
ára og fór í Sarepta sumarbúðir.
Líka sumarið þegar ég var 15 ára og
var að vinna við uppskipun í Hall-
dórsvík og kynntist hlið unglingsins
á færeyskri unglingamenningu. Og
svo eru það brúðkaupin í Færeyjum
sem eru alveg frábær og jafnvel jarð-
arfarir líka sem maður man eftir á
skemmtilegan hátt. Þannig er minn-
ingin og menningin.“
Rúnar lék knattspyrnu til 17 ára
aldurs og var liðtækur markmaður,
var í golfi, keppti í skák, lagði stund á
brids um tíma og var mjög virkur í
júdó. „Þar vann ég til fjölda verð-
launa undir góðri þjálfun Jóa júdó
sem var allt í öllu með júdóið í
Grindavík á sínum tíma. Lengst var
ég þó í körfubolta og æfði með meist-
araflokki Grindavíkur frá 14 ára
aldri þar sem við lékum þá í fyrstu
deild karla. Tók þátt í vígsluleik
íþróttahúss Grindavíkur 1985 og þá
hófst körfuboltavelferð Grindavík-
inga þar sem við komumst í kjölfarið
í úrvalsdeild karla þar sem Grindvík-
ingar leika enn. Ég lék með Grinda-
vík til ársins 1992 en skipti þá yfir í
úrvalsdeildarlið Njarðvíkur.“ Rúnar
varð Íslandsmeistari með Njarðvík
1994 og 1995 og lék með landsliðinu.
„Ég hætti körfuboltaiðkun í lok
tímabilsins 1997 vegna þrálátra
meiðsla en þó aðallega vegna mjög
mikilla anna í störfum mínum á þess-
fyrir hópa til Skotlands og annarra
landa í Evrópu. Það verkefni leiddi af
sér þá hugmynd og það tækifæri að
við Atli Georg, í félagi við aðra aðila,
stofnsettum flugfélagið City Star
Airlines árið 2004 sem var með starf-
semi í Skotlandi og á Íslandi. Gegndi
ég starfi framkvæmdastjóra móð-
urfélagsins og dótturfélaga þess og
jafnframt bar ég ábyrgð á helstu
ábyrgðarstöðum félagsins gagnvart
flugmálayfirvöldum á Íslandi og í
Bretlandi. Atli bróðir var starfandi
stjórnarformaður félagsins og unn-
um við saman að þessum rekstri frá
upphafi og þar til við hættum þar
störfum árið 2008. Þegar umsvifin
voru sem mest störfuðu um 130
manns í hinum ýmsu dóttur-
fyrirtækjum á Íslandi, í Bretlandi og
Noregi.“
Rúnar var sjálfstætt starfandi við
rekstrarráðgjöf hér á landi og er-
lendis á árunum 2008-2012 og kom
að hinum ýmsu verkefnum við ým-
iskonar verkefna- og fyrirtækjaráð-
gjöf. „Ásamt því að allan minn feril
þá hef ég átt í nokkuð reglulegum
fasteignaviðskiptum sem hófust á
upphafstímum mínum í lögreglunni
þegar ég hélt að ég ætti nægan tíma í
lífinu.“
Í ágúst 2012 tók Rúnar við rekstri
flugakademíu Keilis. Eitt hans fyrsta
verkefni var að stofnsetja flugvirkja-
nám innan veggja Keilis og end-
urskipuleggja starfsemi flugskólans
við að byggja upp viðurkennt al-
þjóðlegt flugtengt nám hér á Íslandi.
Í dag starfar hann sem for-
stöðumaður Flugakademíu Keilis
(Keilir Aviation Academy ehf.) og er
jafnframt framkvæmdastjóri Flug-
skóla Íslands ehf. þar sem Keilir
keypti þann rekstur í janúar sl.
„Starfsemi Flugakademíu Keilis og
Flugskóla Íslands hefur vaxið með
þeim hætti undanfarin ár að sam-
anlagt þá er sameinaður skóli einn af
stærri flugskólum Evrópu.
Mín helstu áhugamál eru flestar
íþróttir og elska ég að horfa á íþrótt-
ir í sjónvarpi. Í dag þykir mér mik-
ilvægast að eiga tíma með fjölskyld-
unni, fer í göngur og á fjöll stundum,
ferðast nokkuð reglulega erlendis,
reyndar of lítið innanlands, sinni
Rúnar Árnason, framkvæmdastjóri Flugakademíu Keilis og Flugskóla Íslands – 50 ára
Fjölskyldan Rúnar, Aðalheiður, Árni Geir, Eydís Ásla og hundurinn Tinley
ásamt foreldrum Aðalheiðar til hægri og foreldrum Rúnars til vinstri.
Fjölhæfur með færeyskt blóð
Fimmtugur Rúnar Fossádal.
40 ára Agnes ólst
upp á Seltjarnarnesi
en býr í Reykjavík.
Hún útskrifaðist sem
lögfræðingur frá HÍ og
vinnur í mennta- og
menningarmálaráðu-
neytinu.
Maki: Gunnar Sigurðarson, f. 1973, við-
skiptastjóri á framleiðslusviði Samtaka
iðnaðarins.
Börn: Óskar Ingi, f. 2008, Jón Bergur, f.
2009, og Sonja Steinunn, f. 2014. Stjúp-
dóttir er Embla Laufey, f. 1997.
Foreldrar: Guðjón Reynir Jóhannesson,
f. 1952, fv. gæðastjóri Veritas, bús. í Rvík,
og Ásdís Jónsdóttir, f. 1952, hjúkrunarfr.
og snyrtifræðingur og rekur eigin snyrti-
stofu á Helsingjaeyri í Danmörku.
Agnes
Guðjónsdóttir
Til hamingju með daginn
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is