Morgunblaðið - 13.06.2019, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 13.06.2019, Blaðsíða 60
60 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. JÚNÍ 2019 Z-brautir & gluggatjöld Opið mán.-fös. 10-18 Faxafeni 14 | 108 Reykjavík | S. 525 8200 | www.z.is | Mælum, sérsmíðum og setjum upp Úrval - gæði - þjónusta Falleg gluggatjöld fyrir falleg heimili HM kvenna í Frakklandi A-RIÐILL: Nígería – Suður-Kórea ........................... 2:0 Do-Yeon (sjálfsmark) 29., Oshoala 75. Frakkland – Noregur.............................. 2:1 Gauvin 46., Le Sommer (víti) 72. – Renard (sjálfsmark) 54. Staðan: Frakkland 2 2 0 0 6:1 6 Noregur 2 1 0 1 4:2 3 Nígería 2 1 0 1 2:3 3 Suður-Kórea 2 0 0 2 0:6 0 B-RIÐILL: Þýskaland – Spánn .................................. 1:0 Däbritz 42. Staðan: Þýskaland 2 2 0 0 2:0 6 Spánn 2 1 0 1 3:2 3 Kína 1 0 0 1 0:1 0 Suður-Afríka 1 0 0 1 1:3 0 KNATTSPYRNA KNATTSPYRNA 1. deild karla, Inkasso-deildin: Grenivíkurv.: Magni – Njarðvík............... 17 Nettóvöllur: Keflavík – Þróttur R ...... 19.15 Extra-völlur: Fjölnir – Víkingur Ó ..... 19.15 Framvöllur: Fram – Grótta ................. 19.15 Varmárv.: Afturelding – Haukar ........ 19.15 Í KVÖLD! Gestgjafar Frakka eru í góðum mál- um í A-riðli heimsmeistaramóts kvenna í knattspyrnu. Frakkar unnu sinn annan leik í gærkvöldi, 2:1, gegn Maríu Þórisdóttur og liði Nor- egs, fyrir framan rúmlega 34 þúsund áhorfendur í Nice. Sigurmarkið skoraði Eugenie Le Sommer úr umdeildri vítaspyrnu sem dæmd var eftir myndbands- úrskurð, en áður hafði Valerie Gauv- in komið Frökkum yfir strax í upp- hafi síðari hálfleiks. Noregur jafnaði metin með sjálfsmarki Wendie Ren- ard og sótti stíft að jöfnunarmarkinu í lokin en hafði ekki erindi sem erfiði. Frakkarnir áttu mun fleiri mark- tækifæri en gátu aldrei slakað á gegn spræku liði Noregs. Staðan er engu að síður góð fyrir norska liðið, sem er í öðru sæti með betri marka- tölu en Nígería og sigur gegn stiga- lausu liði Suður-Kóreu tryggir liðinu farseðilinn í 16-liða úrslit. Nígería hefur aðeins einu sinni komist í útsláttarkeppnina á HM, ár- ið 1999, en liðið á góða möguleika á að komast upp úr A-riðlinum eftir óvæntan 2:0-sigur á Suður-Kóreu í gær. S-Kórea er í 14. sæti heimslist- ans á meðan að Nígería er þar í 38. sæti, en sjálfsmark Kim Do-Yeon og mark frá Asisat Oshoala úr skyndi- sókn dugðu Afríkumeisturunum til sigurs. Oshoala hefur einmitt raðað inn mörkum fyrir Barcelona í vor eftir komu að láni frá Dalian Quanij- an í Kína. Suður-Kórea þarf nú nauðsynlega á sigri að halda gegn Noregi í loka- umferð riðlakeppninnar til að eiga einhverja von um að komast áfram. Stigin þrjú sem Nígería er komin með gætu dugað liðinu til að komast áfram sem eitt fjögurra liða með bestan árangur í 3. sæti í riðlunum sex. Þýskaland hélt út gegn Spáni Sara Däbritz reyndist hetja Þýskalands þegar liðið vann 1:0- sigur gegn Spáni í B-riðlinum á Hai- naut-vellinum í Valenciennes. Dä- brtiz skoraði sigurmarkið á 42. mín- útu en þýska liðið var sterkari aðilinn í leiknum. Spánverjar voru meira með bolt- ann en gekk illa að opna varnarmúr þýska liðsins en Däbritz nýtti sér vandræðagang í vörn spænska liðs- ins þegar hún kom Þjóðverjum yfir. Alexandra Popp átti fastan skalla að marki sem Sandra Panos varði í marki Spánverja. Irena Paredes, varnarmaður Spánverja, var allt of lengi að koma boltanum í burtu og Däbritz hirti frákastið og skoraði í tómt markið. Þýskaland er með fullt hús stiga eft- ir fyrstu tvær umferðirnar eða 6 stig en Spánverjar eru í öðru sæti riðils- ins með 3 stig. sport@mbl.is Gestgjafarnir í góðum málum  Frakkar og Þjóðverjar með fullt hús AFP Hörkuleikur María Þórisdóttir í liði Noregs reynir hér að stöðva Valerie Gauvin, annan markaskorara Frakka, í leik þjóðanna á HM í gærkvöldi. Hörður J. Oddfríðarson stígur nú um helgina til hliðar eftir 13 ár sem formaður Sundsambands Íslands. Hörður, sem var varaformaður í þrjú ár áður en hann var fyrst kjör- inn árið 2006, var árið 2017 kjörinn til formennsku til ársins 2021 en ákvað að hætta fyrr. Á þingi SSÍ um helgina verður kosið í stjórn SSÍ og er tillaga kjör- nefndar sú að Björn Sigurðsson, núverandi gjaldkeri, taki við for- mennsku til 2021. Einnig er lagt til að Hörður verði einn meðstjórn- enda á þeim tíma. sindris@mbl.is Hættir eftir 13 ár sem formaður Morgunblaðið/Kristinn Reyndur Hörður hefur verið í stjórn SSÍ nær alla þessa öld. Opna bandaríska meistaramótið í karlaflokki í golfi hefst á hinum glæsilega Pebble Beach-velli í Kali- forníu í dag. Verður þetta í sjötta sinn sem mótið er haldið á vellinum. Tiger Woods sigraði þegar mótið var haldið á vellinum árið 2000 en árið 2010 sigraði N-Írinn Graeme McDowell. Opna bandaríska hefur verið haldið frá árinu 1895 ef frá eru tal- in stríðsárin á fyrri hluta 20. ald- arinnar. Bandaríkjamaðurinn Bro- oks Koepka hefur unnið mótið síðustu tvö skipti. Brooks Koepka reynir við þrennu AFP Sigurvegari Brooks Koepka er meistari síðustu tveggja ára. Danska knattspyrnusambandið tilkynnti í gær að þjálf- arinn Åge Hareide myndi hætta að stýra danska karla- landsliðinu eftir EM á næsta ári, þegar samningur hans rennur út. Kasper Hjulmand tekur við liðinu en hann hætti með Nordsjælland í mars eftir að hafa tekið við því liði af Ólafi Kristjánssyni í lok árs 2015. Hareide kvaðst á blaðamannafundi í gær opinn fyrir því að taka við norska landsliðinu á næsta ári. Hann var spurður um það í ljósi þess sem Lars Lagerbäck, núver- andi þjálfari Noregs, sagði fyrir leik liðsins við Færeyjar á mánudag. Þar viðurkenndi Svíinn, sem tók við Noregi eftir góðan árangur sem þjálfari Íslands, að undan- keppni EM væri örugglega sín síðasta undankeppni sem þjálfari Noregs. Liðið hefur ekki farið vel af stað og er með 5 stig eftir 4 leiki, á eftir Spáni, Rúmeníu og Svíþjóð. Hareide var áður landsliðsþjálfari Noregs á árunum 2003 til 2008, áður en hann tók að sér félagslið en hann stýrði Örgryte, Viking, Helsingborg og Malmö, og tók svo við danska landsliðinu 2016. sindris@mbl.is Hareide í stað Lagerbäck? Lars Lagerbäck Fótboltamenn skipa þrjú efstu sætin á nýjum lista viðskiptatímaritsins Forbes yfir 100 tekjuhæstu íþróttamenn heims síðasta árið. Lionel Messi er efst- ur með 127 milljónir Bandaríkjadala eða jafnvirði 15,9 milljarða króna. Cristiano Ronaldo þénaði 109 milljónir dala og Neymar 105 milljónir dala. Hnefa- leikakappinn Canelo Alvarez og tenniskappinn Roger Federer koma næstir á eftir, með 94 og 93,4 milljónir dala. Serena Williams er eina konan á 100 manna listan- um en þessi bandaríska tennisstjarna er í 63. sæti með 29,2 milljónir dala í tekjur síðasta árið, eða tæp- lega 3,7 milljarða króna. Hnefaleikamaðurinn Floyd Mayweather var efstur á listanum í fyrra en komst ekki inn á 100 manna listann í ár enda er sýningarbardagi við japanskan sparkboxara eini bardagi hans frá því í ágúst 2017. Ronaldo var efstur á listanum árið 2017 og 2016. sindris@mbl.is Ein kona í hópi 100 tekjuhæstu Lionel Messi Íslandsmeist- aralið Selfoss í handbolta karla er enn þjálf- aralaust en Pat- rekur Jóhann- esson kvaddi liðið með Ís- landsmeist- aratitlinum. „Það er lítið að frétta af okkar þjálfaramálum. Það er ekkert kom- ið í hendi enn sem komið er. Við höfum lagt áherslu á að finna góð- an íslenskan þjálfara enda teljum við að við eigum talsvert marga frambærilega þjálfara hér á landi. Við erum ekki búnir að hitta í mark enn þá. Við erum búnir að ræða við ýmsa þjálfara eftir að Hannes Jón sveik okkur en það hefur ekki skilað neinu enn þá,“ sagði Þórir Haraldsson, formaður handknattleiksdeildar, í samtali við mbl.is. gummih@mbl.is Nýr þjálfari ekki í augsýn Patrekur Jóhannesson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.