Morgunblaðið - 13.06.2019, Síða 64
64 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. JÚNÍ 2019
VIÐTAL
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Þetta er metnaðarfyllsta og stærsta
verkefni mitt á Íslandi til þessa,“
segir Víkingur Heiðar Ólafsson
píanóleikari um tónlistarhátíðina
Reykjavík Midsummer Music
(RMM) sem verður haldin í Reykja-
vík eftir viku, dagana 20. til 23. júní.
Efnisskráin er, eins og hann segir,
æði metnaðarfull og koma þekktir
og virtir erlendir tónlistarmenn
fram, auk Víkings sjálfs. Tónleikarn-
ir verða í Eldborgar- og Norður-
ljósasölum Hörpu og í Mengi.
Víkingur Heiðar stofnaði hátíðina
árið 2012 og hefur hún frá upphafi
verið haldin í samstarfi við Hörpu.
Víkingur er listrænn stjórnandi og
frá byrjun hefur hátíðin vakið at-
hygli fyrir kraftmikla og frumlega
dagskrá. Hefur hún laðað til lands-
ins einvalalið heimskunnra lista-
manna sem hafa komið fram með
færum íslenskum tónlistarmönnum.
Listræn stefna hátíðarinnar ein-
kennist af því að öll tónlist sem flutt
er í dag flokkist í raun sem nútíma-
tónlist, hvort sem hún var samin á
17. eða 21. öldinni. Víkingur segir að
þegar verkum úr ólíkum áttum og
frá ólíkum tímum sé teflt saman geti
„orðið mikill galdur, hverjir tón-
leikar að sögu sem aldrei fyrr hefur
verið sögð“.
Sest á milli Labèque-systra
Víkingur segir RMM vera sitt
„tónlistarlega afkvæmi“ og sé hann
ætíð með hugann við það að finna
listamenn til að koma fram. „Það
koma tíu ólíkir en rosalegir tónlist-
armenn til landsins að spila,“ segir
hann. „Þeim fjölgaði smám saman
og í lokin sögðu enn fremur já við
boðinu listamenn sem ég hefði í raun
aldrei trúað að myndu mæta, eins og
Katia og Marielle Labèque, systurn-
ar þekktu sem ég hitti í Brussel í
febrúar. Við áttum skemmtilegt
samtal og þá kom í ljós að við höfum
fylgst hvert með öðru þótt við hefð-
um aldrei hist. Við lékum á tónleik-
um þar á sömu hátíð og ræddum
saman á eftir. Ég sendi þeim svo
sms daginn eftir og spurði hvort þær
vildu ekki koma til Reykjavíkur á
hátíðina núna og þær svöruðu strax
játandi. Þær eru vitaskuld bókaðar
langt fram í tímann en eiga þrjá
daga lausa og ættu í raun að vera
heima í París að slaka á en ákváðu
þess í stað að koma til Reykjavíkur.“
Víkingur segir að þau Labèque-
systur séu að ræða að flytja saman
eftir tvö ár píanókonsert eftir Moz-
art fyrir þrjú píanó og hljómsveit.
„Það hljómar hættulegt,“ segir hann
brosandi; „ég verð á milli þessara
kvenna sem hafa verið fremsti
píanódúettinn síðan snemma á
níunda áratugnum. Þetta eru
franskar tónlistargyðjur sem eru á
aldur við foreldra mína og hafa verið
mjög lengi í fremstu röð og tekið
þátt í að skapa tónlistarsöguna hvað
varðar leik á tvo flygla. Þær spila
tvisvar á hátíðinni, fyrst í Norður-
ljósum og svo í Eldborg á lokatón-
leikunum og þá ætla ég í fyrsta sinn
að prufa að spila með þeim, að setj-
ast í miðjuna og við spilum verk eftir
Rachmaninoff sexhent á eitt píanó.“
Heildstæðar sögur á tónleikum
Það er glæsilegur hópur lista-
manna sem kemur fram á hátíðinni;
leggur Víkingur upp með einhverja
grunnhugmynd fyrir hana eða mót-
ar efnisskrána út frá flytjendunum?
„Fyrst listamenirnir núna eru
þetta ólíkir og koma úr ýmsum átt-
um þá ákvað ég að leyfa þeim að
móta dagskrána með mér, að spila
það sem þau langar að spila. En ég
raðaði verkunum upp í efnisskrár
sem segja heildstæðar og einstakar
sögur. Fyrri tónleikarnir í Norður-
ljósum, á föstudagskvöldinu, kallast
„Að skrifast á“ og þar er keðja
verka tónskálda sem eru með
tónlistarlegar tileinkanir hvert til
annars. Við flytjum falleg verk eftir
Schumann og György Kurtág fyrir
óvenjulega hljóðfæraskipan, víólu,
klarinett og píanó, svo kemur verk
eftir einn gestinn, Mark Simpson
sem er eitt helsta tónskáld Breta af
ungu kynslóðinni og það er tileinkað
Kurtág. Hinn þráðurinn á þessum
tónleikum er samtal milli Bachs og
Schumanns. Þar kemur fram Flori-
an Boesch, ljóðasöngvari sem ég dái.
Við hittumst í Konzerthaus í Vín
fyrir um ári síðan og þá bauð ég
honum.“
Þeir Boesch og Víkingur Heiðar
unnu báðir til tónlistarverðlauna
BBC á dögunum; sá fyrrnefndi í
flokki ljóðasöngs en Víkingur fyrir
plötu ársins og sem flytjandi ársins.
„Það var nú tilviljun sem við sáum
nú ekki fyrir þegar við ákváðum
þetta samstarf hér,“ segir Víkingur
brosandi. „Florian býr yfir gríðar-
legri raddfegurð sem fær fólk til að
bráðna og svo er hann líka greindur
og hæfilega flippaður. Á lokatónleik-
um hátíðarinnar í Konzerthaus, því
fornfræga tónlistarhúsi, tókum við
grínatriði þar sem ég spilaði etýðu
númer 2 eftir Philip Glass og hann
impróviseraði ofan á hana við ljóð-
línu eftir hnefaleikakappann Mo-
hammed Ali. Florian er nú á hátindi
ferilsins og ég held að enginn bari-
tón-ljóðasöngvari standi honum
framar í dag,“ segir Víkingur.
„Stórkostlega erfitt“
Víkingur viðurkennir að hann sé
sífellt með það í huga að finna lista-
menn fyrir hátíðina sína.
„Ég vel á hátíðina listamenn sem
ég hef kynnst og hrifist af. Fólk sem
mig langar að koma með hingað, en
það vantaði svona hátíð hér. Hér er
frábær klassísk sena kringum Sin-
fóníuhljómsveitina sem fær flotta
einleikara til landsins – sumt af fólk-
inu sem ég býð hefur komið og leikið
einleik með henni – en annars er of
lítið af einleiks- og kammertónleik-
um hér á landi, í Hörpu sem annars
staðar. Við þurfum að fá fleiri lista-
menn að utan. Kammersenan innan-
lands er fín en mér finnst vanta fleiri
erlenda gesti til að auka dýnamíkina.
Mér finnst þess vegna mjög mik-
ilvægt að það sé ein svona hátíð á Ís-
landi.“
Hann bætir við að það sé „stór-
kostlega erfitt“ að hrinda hátíð með
umfang sem þetta í framkvæmd.
„Það er mun erfiðara hér en í ná-
grannalöndunum, eins það og að
finna fjármagn og fá fólk til að skilja
um hvað um er að ræða,“ segir hann.
„Áhorfendur eru heldur ekki vanir
kammerprógrammi sem þessu, þar
sem ekki er hægt að útskýra með
auðveldum hætti um hvað sé að
ræða. Við bjóðum til að mynda upp á
tónleika með 85 ára raftónlistar-
manni frá Þýskalandi, Roedelius,
sem er einn af feðrum „ambient“
tónlistar.“ Þess má geta að Roede-
lius er einn þeirra sem endurunnu
verk eftir Bach sem Víkingur Heiðar
hafði hljóðritað og voru á síðasta
diski hans, en meðal annarra sem
tókust á við það og má heyra í útgáfu
frá Deutsche Grammophon eru Ryu-
ichi Sakamoto, Valgeir Sigurðsson,
Hildur Guðnadóttir og Skúli Sverr-
isson.
Og Víkingur heldur áfram að
nefna gesti sína, í þeim hópi séu ein-
stakir strengjaleikarar: „Ilya Grin-
golts vann Paganini-keppnina fyrir
löngu síðan og er mikil „sensasjón“;
hefur verið lengi á hæsta stalli. Svo
koma tveir sellóleikarar, Jakob Kor-
anyi og Leonard Elschenbroich,
menn á mínum aldri og meðal þeirra
fremstu á sínu sviði. Þá er Yura Lee
alveg stórmerkileg. Hún er jafnvíg á
fiðlu og víólu, sem er mjög sjald-
gæft. Hún var undrabarn og fór í
tónleikaferð með New York-fílharm-
óníunni 13 ára gömul. Þegar hún var
15 ára komst hún upp á kant við for-
eldra sína. Þá hafði hún haldið þeim
uppi fjárhagslega en þau vildu taka
hana frá New York og fara aftur til
Suður-Kóreu, inn í strangkristið
samfélag. Yura Lee var þá orðin
stórstjarna og sagði ákveðið nei.
Hún er síðan orðin stórstjarna sem
allir í tónlistarheiminum þekkja.
Hún spilar mikið á hátíðinni og ég er
mikill aðdáandi.“
Leikur sjálfur á þeim öllum
Við að skoða efnisskrána vekur at-
hygli að Víkingur Heiðar tekur sjálf-
ur þátt í öllum dagskrárliðum.
„Já, ég ákvað að spila sjálfur mkið
á þessari hátið,“ segir hann. Það
krefst vitaskuld mikils undirbúnings
og tíminn er af skornum skammti.
„Nú er sonur minn orðinn tveggja
mánaða og þegar ég kom heim fyrir
viku eftir tónleikahald erlendis þá
hafði ég verið hálfa ævi hans í burtu.
Það er ekki góð tölfræði fyrir for-
eldri að horfast í augu við. Ég hef
verið mikið á flakki. Og á sama tíma
er þessi hátíð nú umfangsmeiri en
áður og ég ekki haft jafn knappan
tíma til að undirbúa hana. Ég er með
frábært teymi í kringum mig, það
vantar ekki, en ég hef æft mig fram
á nætur og verið að sinna því sem
þarf að sinna – og mér finnst það
mjög gaman. Ég get alveg ímyndað
mér að gráu hárunum fjölgi aðeins
við þetta…“ segir hann og strýkur
yfir hárið. „ En ég vil gefa allt sem
ég á í hátíðina, fyrst ég er að standa í
þessu á annað borð.
Á efnisskránni eru verk sem hafa
aldrei fyrr verið flutt hér á landi. Til
dæmis hinn stórkostlega fallegi
fiðrildakvartett, Papillon, eftir Bent
Sørensen sem er eitt af mínum eftir-
lætis lifandi tónskáldum. Ég leik það
nú í fyrsta sinn en á meðal annars
eftir að leika það með Los Angeles
fílharmóníunni og í Konzerthaus í
Berlin þegar ég verð staðarlistamað-
ur þar næsta vetur.
Svo flytjum við nýja píanótríós-
útsetningu á Souvenir de Florence
eftir Tsjaikovskíj, sem er uppruna-
lega strengjasextett en nú er komin
fulkomlega geggjuð útgáfa fyrir
píanótríó sem setur verkið í alveg
nýtt samhengi. Að fá nýtt tríó eftir
Tsjaikovskij er auðvitað frábært!
Við byrjum og endum dagskrána
með tvennum Eldborgartónleikum
og erum svo með aðeins tilrauna-
kenndara prógramm í Norðurljósum
á milli. Í Eldborg verða sannkölluð
glæsiprógrömm, til dæmis píanó-
konsert eftir Bach sem ég spila á
lokatónleikunum og systurnar spila
verk eftir Philip Glass en þær hafa
mikið unnið með honum; hann skrif-
aði fyrir þær konsert fyrir tvö píanó
og fullskipaða hljómsveit sem væri
gaman að heyra hér einhverntím-
ann.“
Þá eru ónefndir tvennir miðnæt-
urtónlekar í Mengi. Á öðrum verður
Roedelius með hljóðleiðangur sem
Víkingur og Yura Lee taka þátt í en
prógramm með blönduðum verkum
á hinum. „Eftir að hafa verið að allan
daginn eru svona miðnæturtónleikar
býsna skemmtilegir, þá opnast oft
nýjar gáttir,“ segir hann. „Bæði fyr-
ir áhorfendur og listamennina sem
hlusta og spila þá með öðrum hætti.
Tími dags og ástand getur haft mikil
áhrif á upplifun sem túlkun.“
„Get tapað fullt af pening“
Þessi hátíð er því umfangsmikil og
gestirnir koma víða að. Er það ekki
dýrt og áhættan mikil?
„Jú, og áhættan er mín,“ svarar
Víkingur „Ég get tapað fullt af pen-
ing á þessu en það er samt þess
virði. Maður sér aldrei eftir því að
halda stórkostlega veislu. Peningar
skipta ekki miklu máli í því sam-
hengi – en jú, ég tek áhættu.
Það er erfitt að fá fyrirtæki á Ís-
landi til að taka þatt í þessu og skilja
hvað þetta er; það er ekki auðvelt að
vera hér með viðburð af þessu tagi.
En mér er fjandans sama, ég geri
þetta samt og held það fari mjög vel!
Ef ég væri stressuð týpa væri ég að
fríka út núna, en ég er það ekki,
þetta er svo mikil veisla.“
Hann talar eins og sannkallaður
hugsjónamaður, og eins og hann
starfræki hátíðina af köllun.
„Það er líklega svoleiðis. Fyrst ég
stend í þessu þá tek ég það alla leið.
Það væri ekki gaman að halda hátíð
sem væri næstum draumur manns,
þá væri betra að sleppa því. Ég vil
spilin á borðið og tjalda öllu til.
Einn kosturinn við að gera þetta
„Maður sér aldrei eftir því
að halda stórkostlega veislu“
Hin metnaðarfulla tónlistarhátíð Víkings Heiðars, Reykjavík Midsummer Music, hefst eftir viku
Morgunblaðið/Einar Falur
Stjórnandinn „Þetta er metnaðarfyllsta og stærsta verkefni mitt á Íslandi til þessa,“ segir Víkingur Heiðar.