Morgunblaðið - 13.06.2019, Side 65
MENNING 65
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. JÚNÍ 2019
Vínlandsleið 16
Grafarholti
urdarapotek.is
Sími 577 1770
Opið virka daga kl. 09.00-18.30
og laugardaga kl. 12.00-16.00
Hugsaðu vel um húðina þína – alltaf
Bjóðum fjölbreytt úrval húðvara, jafnt fyrir
andlitið, hendurnar, fæturna og kroppinn allan.
Gestir Víkings
Heiðars á
Reykjavík Mid-
summer Music-
hátíðinni eru
armenski fiðlu-
leikarinn Anahit
Kurtikyan, sem
er leiðari ann-
arrar fiðlu
Óperuhljómsveit-
arinnar í Zürich
og meðlimur Gringolts-strengja-
kvartettsins; austurríski barí-
tónsöngvarinn Florian Boesch, sem
er einn eftirsóttasti ljóðasöngvari
heims og margverðlaunaður;
kontrabassaleikarinn Jacek Karw-
an, sem var áður leiðari við Gorzow-
fílharmóníuna en leikur nú með Sin-
fóníuhljómsveit Íslands; frönsku
systurnar Katia og Marielle Labè-
que sem skipa þekktasta píanódúett
heims og hafa starfað saman í ríf-
lega hálfa öld;
hinn breski Mark
Simpson, sem er
þekktur og virtur
sem klarínettu-
einleikari og eitt
helsta tónskáld
sinar kynslóðar í
heimalandinu;
Emilía Rós Sig-
fúsdóttir, sem
hefur á undanförnum árum skipað
sér í röð fremstu flautuleikara Ís-
lands og starfað með Elektra En-
semble; rússneski fiðluvirtúósinn
Ilya Gringolts, sem bar árið 1998
sigur úr býtum í alþjóðlegu
Paganini- keppninni og hefur síðan
átt farsælan einleikaraferil auk þess
að vera mikilvirkur kammertónlist-
armaður; sænski sellóleikarinn Jak-
ob Koranyi, sem hefur hreppt
Sænsku einleikaraverðlaunin og á
síðustu árum komið fram víða um
lönḑ, þýski sellóleikarinn Leonard
Elschenbroich, sem hefur verið
hylltur af gagnrýnendum fyrir
tæknilega fullkomnun og djúpa og
ástríðufulla túlkun; hinn þekkti suð-
urkóreski fiðlu- og víóluleikari Yura
Lee, sem á að baki
tuttugu ára glæst-
an og áhugaverð-
an feril, en hún
býr yfir þeim fá-
gætu hæfileikum
að vera jafnvíg á
bæði hljóðfæriņog
loks hinn þýski
hálfníræði raf-
tónlistarmaður
Hans-Joachim
Roedelius. Hann hefur verið í fram-
varðasveit tilraunakenndrar raf-
tónlistar um áratugaskeið og hefur
sent frá sér fimmtíu sólóplötur og
átt í samstarfi við stóran hóp lista-
manna, svo sem Brian Eno, Chri-
stopher Chaplin og Víking Heiðar.
Óvænt og spennandi stefnumót
Hátíðin hefst 20. júní með opn-
unartónleikum í Eldborg, „Minn-
ingar um Flórens“. Þar hljóma Vier
Ernste Gesänge eftir Brahms,
píanótríó eftir Sjostakovits og Sou-
venir de Florence eftir Tsjaíkovskíj
sem var upphaflega samið sem
strengjasextett en er hér sem píanó-
tríó.
21. júní er í Norðurljósum dag-
skráin „Skrifast á“. Þar kallast með
áhugaverðum
hætti á ólík verk
eftir J.S. Bach,
Schumann, Gy-
örgy Kurtág og
Mark Simpson,
verk með allra-
handa tileink-
unum og teng-
ingum.
Sama kvöld,
kl. 23.15. verða „Næturtónar“ í
Mengi. Þar takast nokkrir lista-
menn á við sænsk og katalónsk þjóð-
lög og verk eftir Mark Simpson og
Arvo Pärt.
22. júní verða tónleikarnir „Fiðr-
ildi og fiðurfé“ í Norðurljósum.
Flutt verða Sept Papillons eftir
Saariaho, Papillons eftir Bent Sø-
rensen, Gæsa-
mömmusvítan
eftir Ravel og
Karnival dýr-
anna eftir Saint-
Saëns. Sama
kvöld er dagskrá
með Roedelius í
Mengi, Víkingur
Heiðar og Yura
Lee koma fram
með honum í spuna.
Lokatónleikar RMM verða síðan í
Eldborg 23. júní. Þar hljóma meðal
annars Hljómborðskonsert nr. 5 í
f-moll eftir J.S. Bach og verk eftir
Prokofief, Sjostakovitsj, Rachman-
inoff, Arvo Pärt og Philip Glass.
Dagskrá hátíðarinnar má sjá á
www.rmm.is
Fjölbreytileg dagskrá með rómuðum
listamönnum í Hörpu og Mengi
Virtar Katia og Marielle Labéque mynda
kunnasta píanódúett heims.
Anahit
Kurtikyan
Emilía Rós
Sigfúsdóttir
Florian Boesch
Jakob Koranyi
Roedelius
sjálfur er að þá er auðveldara að
prófa sig áfram með eitthvað nýtt og
bera sjálfur ábyrgðina. Ég ræð
framhaldinu. Það hef ég skilið sífellt
betur á síðustu einu til tveimur árum
í mínu tónlistarlífi því nú er ég far-
inn að ráða mér þar sjálfur í fyrsta
sinn. Það getur tekið langan tíma að
komast á þann stað að þurfa ekki að
segja já þó það berist boð frá flottum
tónleikahaldara, því manni finnst
það ekki vera rétta verkið að flytja.
Þegar ég fór að geta það veitti það
mér mikla gleði í listrænu ljósi.
Við að horfa til baka sé ég að ég
hef æft upp marga konserta og verk
sem ég hef bara flutt einu sinni, bara
vegna þess að einhver konserthald-
ari gerði það að kröfu gegn því að ég
kæmi fram. Nú hef ég smám saman
fengið meiri stjórn á þessu. Og þar
hjálpa viðurkenningar og verðlaun,
þau auka frelsið.“
Ný plata í janúar
Undanfarin misseri hefur Víking-
ur Heiðar haft öflugan vind í seglin.
Síðasta plata hans með píanóverkum
eftir J.S. Bach hefur hlotið einróma
lof og sama má segja um tónleika
sem hann hefur haldið undanfarið
víða um lönd til að fylgja útgáfunni
eftir. Og dagskráin er þegar orðin
þétt og vel skipulögð hjá honmum
næstu árin, til að mynda sem stað-
arlistamaður við hið virta Konzert-
haus í Berlín næsta vetur. Hann seg-
ir það vera hið fyrsta af nokkrum
slíkum prógrömmum sem verið sé
að stilla upp en hann muni í kjölfarið
gegna slíkri stöðu í London og í
Brussel.
„Og alls staðar ætla ég eiginlega
að gera of mikið,“ segir Víkingur og
brosir. „Í Berlín kem ég að ellefu
ólíkum verkefnum. Þar af eru fjórir
píanókosertar, tvennir einleikstón-
leikar, þrennir stórir kammertón-
leikar með fólki sem ég dái, meðal
annars Florian Boesch, Martin
Fröst og Danish String Quartet. Á
konsertunum leik ég alls konar verk,
til dæmis konsert Daníels Bjarna-
sonar, Processions, sem ég hef flutt
talsvert; ég leik hann með Sinfóníu-
hljómsveit Íslands sem kemur sem
gestur á Íslandshátíð. Svo verð ég
með Bach-tónleika sem tengjast
plötunni en verð líka með útgáfu-
tónleikana vegna nýrrar plötu sem
kemur út hjá Deutsche Grammo-
phon í janúar.“
Hann segist ekki reiðubúinn að
upplýsa hvaða verk og eftir hverja
verða á plötunni. „Það verður samtal
tveggja tónskálda, það eru 200 ár á
milli þeirra en þeir eru tengdir og
ótrúlega fallegur þráður þar á milli.
Ég tek hana upp í Hörpu í ágúst.
Fyrst held ég nokkra tónleika með
efnisskránni, tek mér svo tíu daga
hvíld og hugsa um hana áður en við
hljóðritum.“
En það verður frábært að fá að
halda röð tónleika á sama stað, í
Konzerthaus; það gefst tækifæri til
að mynda djúpt samband við þá frá-
bæru áhorfendur sem sækja tón-
leika hússins. Þetta er rómantíski
salurinn í borginni, grand barokk-
hús, gyllt og flúrað og stórkostlega
fallegt. Á tónleikunum læt ég, eins
og nú á hátíðinni, nýja og gamla tíma
mætast en það er einmitt mín fíló-
sófía, að allt sé nýtt í músík ef við
spilum hana í dag, hvort sem verkið
er eftir Bach eða Thomas Ades.
Klassísk músík hefur aldrei verið
meira lifandi en einmitt núna, svo
margir eru að hlusta á hana og
gróskan er svo mikil í túlkun.“
Svo er Berlín önnur heimaborg
Víkings Heiðars.
„Ég var meira að segja getinn í
Berlín!“ segir hann glettnislega. „Ég
er með íbúð þar, útgáfan mín er í
borginni og mér finnst Berlín vera
tónlistarhöfuðborg Evrópu núna;
það er stórkostleg borg að vera tón-
listarmaður í. Ég á mjög gott públik-
úm í Berlín og var farinn að spila í
neðanjarðarsenunni þar löngu áður
en ég varð eitthvað þekktur erlend-
is,“ segir hann.