Morgunblaðið - 13.06.2019, Blaðsíða 72
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is
laugardaga og sunnudaga 12-18
mánudaga - föstudaga 11-18:30
ATLANTEREN N°6301
120x200 cm 169.900 kr. Nú 127.425 kr.
160x200 cm 219.900 kr. Nú 164.925 kr.
180x200 cm 239.900 kr. Nú 179.925 kr.
HÖFUÐGAFL N°02
120 cm 54.900 kr. Nú 41.175 kr.
160 cm 64.900 kr. Nú 48.675 kr.
180 cm 69.900 kr. Nú 52.425 kr.
ATLANTEREN
WWW.ILVA.IS/NORTHBEDS
1
2
3
4
5
6
1 Teygjanlegt efni sem má þvo
2 Comfort Latex - 5 cm
3 7 svæða pokagormar - 15 cm
4 Stuðningssvampur
5 Stuðnings-pokagormar - 15 cm
6 Sterkur viðarrammi - 8 cm
25%
AFNORTH BEDS OG FRÍ
HEIMSENDING Á HÖFUÐ-
BORGARSVÆÐINU EF VERSLAÐ
ER FYRIR 59.000 KR. EÐA
MEIRA 14. - 16. JÚNÍ
Jón Bjarki Magnússon hlaut á dög-
unum verðlaun hinnar konunglegu
mannfræðistofnunar í Bretlandi,
RAI, fyrir heimildarstuttmynd sína
Even Asteroids Are Not Alone frá
árinu 2018 en í henni er veitt inn-
sýn í vinatengsl milli þátttakenda í
leiknum Eve Online og hvernig þau
þróast, innan leiks sem utan.
Kvikmyndahátíð RAI hefur verið
haldin á tveggja ára fresti frá árinu
1980. Even Asteroids Are Not Alone
er fyrsta mynd Jóns Bjarka.
Hlaut verðlaun RAI
FIMMTUDAGUR 13. JÚNÍ 164. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 670 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
Íslenska karlalandsliðið í
handknattleik mátti þakka fyr-
ir að ná jafntefli við Grikki í
undankeppni Evrópumótsins
þegar þjóðirnar mættust ytra
í gærkvöldi. Sigur hefði komið
Íslandi á EM, en liðið sýndi aldrei
sínar bestu hliðar. Fram undan er
úrslitaleikur gegn Tyrkjum í Laug-
ardalshöll á sunnudag. »61
Ísland slapp með eitt
stig frá Grikklandi
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Þýskaland byrjar vel í heimsmeist-
arakeppni kvenna í knattspyrnu í
Frakklandi og lagði í gær Spán að
velli 1:0 í B-riðlinum. Þýskaland var
með Íslandi í riðli í undankeppninni
og vann 2:0 á Laugardalsvelli en Ís-
land vann hins vegar 3:2 í Þýska-
landi. Þær þýsku hafa unnið fyrstu
tvo leiki sína í keppninni og virðast
til alls
líkleg-
ar.
Tveir
leikir
fóru
fram í
A-riðli
keppninnar
í gær. »60
Þær þýsku byrja vel
á HM í Frakklandi
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Karl Jóhannsson, einn besti hand-
boltamaður landsins á árum áður,
hætti að spila 45 ára, sinnti dóm-
arastörfum til fimmtugs og sneri sér
þá alfarið að golfinu, sem hann byrj-
aði að æfa um þrítugt. Hann er enn
að á golfvellinum, 85 ára gamall, og
fer níu holur á Korpuvellinum nán-
ast á hverjum degi, en á veturna
skipuleggur hann og sér um bingó
fyrir eldri kylfinga í GR.
„Fyrir fimm árum tók ég að mér
að sjá um bingó mánaðarlega, hef
betlað vinninga og þetta hefur geng-
ið reglulega vel,“ segir Karl. „Í
fyrstu mættu um 15 manns en nú
eru um 50 þátttakendur og konur í
meirihluta.“
Karl var fæddur íþróttamaður,
léttur og lipur með mikinn stökk-
kraft, stökk 1,80 m í hástökki og 6,30
m í langstökki, auk þess sem hann
kastaði spjóti lengra en margir
keppnismenn. Hann var Íslands-
meistari með 3. flokki Ármanns í
handbolta 1949, strákarnir fylgdu
titlinum eftir í 2. flokki og síðan varð
hann Íslandsmeistari með meist-
araflokki þrjú ár í röð, 1952-1954.
„Þá hættu margir, en ég vildi halda
áfram og skipti yfir í KR, þar sem ég
spilaði þar til ég var 38 ára.“ Hann
varð meðal annars Reykjavíkur-
meistari með KR 1955 til 1957 og Ís-
landsmeistari 1958. „Þegar menn
fóru að spyrja hvort ég ætlaði ekki
að fara að hætta skipti ég yfir í HK
og hætti ekki fyrr en 45 ára. Hafði
þá spilað tæplega 700 leiki í meist-
araflokki.“
Alltaf á tánum
Karl byrjaði að dæma handbolta-
leiki 27 ára og var strax virtur sem
slíkur, var til dæmis fyrsti Íslend-
ingurinn til þess að dæma milliríkja-
leiki erlendis. „Ég var alltaf í góðri
æfingu, alltaf á tánum og í góðri
tengingu við leikinn hverju sinni,“
segir hann enda var dómum hans
aldrei mótmælt, að minnsta kosti
ekki í minningunni.
Karl var formaður Golfklúbbs
Reykjavíkur 1983-1985 og er heið-
ursfélagi félagsins. Hann hefur verið
sæmdur gullmerki GR, GSÍ, KR,
HKRR, HSÍ og ÍSÍ. „Ég var best
með tíu í forgjöf, en félagsskapurinn
skiptir mestu,“ segir Karl. Nefnir í
því sambandi að nokkrir golffélagar
hafi farið á vorin og haustin ellefu ár
í röð í golfferðir til Skotlands en
undanfarin þrjú ár hafi hann farið í
sama tilgangi til Bandaríkjanna.
„Golfið er lífsstíll. Ég geri nánast
ekkert annað nema þá að horfa á
sjónvarpið og sofa. Nei, annars, ég
segi bara svona. Auðvitað dunda ég
mér við ýmislegt og það er mjög gott
að hafa bingóin á veturna til að
hugsa um. Þau dreifa huganum.“
Karl var lykilmaður í landsliðinu í
handbolta 1958 til 1967 og segir að
það tímabil sé eftirminnilegast á
ferlinum. „Sérstaklega var gaman
að gera jafntefli við Tékkana á HM
1961 og landsleikirnir heima voru
líka ansi skemmtilegir. Ég var svo
heppinn að hafa þannig skotlag að
ég skoraði oft beint úr fríköstum,
meðal annars í fjórum landsleikjum í
röð, en nú er ég hættur með undir-
skotin með bolta og nota tæknina
með kylfunni,“ segir kempan.
Morgunblaðið/RAX
Félagar Gömlu Ármenningarnir Jakob Steingrímsson og Karl Jóhannsson til hægri á Korpuvelli.
Lífsstíll bingóstjórans
Karl Jóhannsson er 85 ára og fer í golf nær daglega
Handboltastjarnan kastaði spjóti lengra en keppnismenn