Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.06.2019, Side 2
Hefur það sérstaka þýðingu fyrir þig að spila á
Gljúfrasteini í Mosfellsdal, þar sem þú ert uppalin
í Mosfellsbæ?
Já, þetta er svolítið skemmtilegt því þetta er uppeldisbærinn
minn, þó ég sé ekki uppalin í dalnum heldur miðsvæðis í Mos-
fellsbænum. Sem barn fór ég oft upp að Gljúfrasteini og á degi ís-
lenskrar tungu fórum við oft þangað. Mér finnst þetta svolítið
merkilegur staður og það verður gaman að fá að spila þarna og
glamra kannski aðeins á píanóið hans Halldórs.
Þú munt spila eigin lög í sérsniðnum útgáfum á tónleik-
unum. Geturðu útskýrt þetta eitthvað frekar?
Venjulega eru lögin mín bassadrifin og í rafútsetningu en þetta verður bara
gítar- og píanóútsetning. Það verður því kósí stemning á tónleikunum.
Hvaða lög muntu leika?
Flest lögin verða af plötunni minni sem kom út í fyrra. Svo mun ég spila lög
af nýrri plötu sem ekki er komin út, lög sem varla hafa verið spiluð fyrir al-
menning.
Hvað er framundan í sumar og haust?
Ég mun hita upp fyrir Lykke Li í næstu viku. Svo mun ég spila á Lunga,
Bræðslunni, Þjóðhátíð og í raun öllum þessum stóru hátíðum í sumar.
Hvernig er staðan á nýju plötunni og hvert er þemað?
Ég er bæði að semja og taka upp um þessar mundir og fer vonandi að
koma henni út á næstunni. Mér finnst þessi plata allt öðruvísi en sú sem
kom út í fyrra en maður sér þetta kannski aðeins öðruvísi þegar maður er
að semja þetta sjálfur. Það er meira um lifandi tónlist á plötunni og svolítið
um djass og fönk. Þetta er svona „up-beat“, skemmtileg tónlist, þó tónlistin
á hinni plötunni sé auðvitað skemmtileg líka.
Morgunblaðið/Eggert
GDRN
SITUR FYRIR SVÖRUM
Kósí stemning
á Gljúfrasteini
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.6. 2019
Smáralind – Sími 517 0317 – www.plusminus.is
PLUSMINUS | OPTIC
ÚTSALA
20-80% afsláttur
Langar þig í ný gleraugu!
Áhyggjur er ekki nægilega metnaðarfullt orð. Það hljómar mein-laust, næstum krúttlegt. Allar áhyggjur eru þurrkaðar út, sunguTímón og Púmba. Hakúna matata. Þeir sem reynslu hafa af
áhyggjum, sem ég geri ráð fyrir að séu flestir, vita að fyrirbærið sem um
er rætt getur verið dramatískara en það. Þegar einstaklingur finnur sig í
þungamiðju mikilla áhyggja getur reynst eins auðvelt að þurrka þær út og
það er að þurrka út stormviðri.
Slík var tilfinning mín á leiðinni upp á Gatwick-flugvöll í síðustu viku.
Vegna bilunar hafði tveimur lestarferðum verið aflýst og samkvæmt út-
reikningum mínum þurfti allt að ganga upp til þess að ég kæmist um borð
í vélina til Keflavíkur áður en hliðið lokaðist. Ég hafði áhyggjur af að lest-
in myndi tefjast frekar, að ég
þyrfti að gista á flugvellinum yfir
nótt, að komast ekki í vinnuna dag-
inn eftir. Áhyggjurnar voru það
eina sem komst að. Í hvert skipti
sem rödd ómaði í hljóðkerfum lest-
arinnar var ég viss um að hún
myndi tilkynna mér að öll von væri
úti.
Ég fór að hafa áhyggjur af að
hafa of miklar áhyggjur. Fyrir-
sagnir fjölmiðla minna mig sífellt á
að of miklar áhyggjur séu slæmar
fyrir heilsuna. Það hlýtur að teljast
léleg leið til að minnka áhyggjur
áhyggjufulls fólks að minna það í
sífellu á að áhyggjur þess séu mik-
ið áhyggjuefni út af fyrir sig. Ég er sjálfur ekki saklaus í þessum málum,
ég hef skrifað margar greinar um áhrif svefnleysis og streitu og kvíða á
andlega og líkamlega heilsu. Ég hef áhyggjur af að ég sé hluti af vanda-
málinu.
Einnig hafði ég áhyggjur af að hafa ekki nægilega miklar áhyggjur.
Kannski, hugsaði ég, mun tiltölulegt áhyggjuleysi mitt valda því að ég
verði kærulaus og missi af vélinni. Áhyggjur eru, þrátt fyrir allt, ágætis
hvati til að gera ýmsa hluti; hlaupa aðeins hraðar, ýta sér aðeins lengra.
Ég náði vélinni. Þegar ég settist í sætið mitt kófsveittur og másandi,
sessunautum mínum til lítillar ánægju, fannst mér áhyggjur mínar nær
óþarfar. Úr fjarska virtust þær litlar og ómerkilegar. Ekki stormviðri,
heldur gola. Þegar vélin tók á loft leit ég út um gluggann. Lundúnaborg
blasti við mér. Eins og áhyggjurnar virðist borgin stór og jafnvel ógnvekj-
andi þegar þú ert í henni, en úr fjarlægð sérðu heildarmyndina. Þessi risa-
stóru hús eru í raun ekkert svo stór.
Áhyggjuefni
Pistill
Pétur
Magnússon
petur@mbl.is
’ Það hlýtur að teljastléleg leið til að minnkaáhyggjur áhyggjufullsfólks að minna það í
sífellu á að áhyggjur þess
séu mikið áhyggjuefni út
af fyrir sig.
Þórhildur Bogadóttir
Já, ég á 15 ára gamlan kött sem heit-
ir Friðrik eftir krónprinsinum.
SPURNING
DAGSINS
Áttu
gæludýr?
Martyn J.
Nei, en ég hef átt bæði hund og kött.
Birta Birgisdóttir
Já, ég á labradorhund sem heitir
Gutti.
Eyþór Gunnarsson
Já, ég á norskan skógarkött sem
heitir Taco.
Ritstjóri Davíð Oddsson
Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri og umsjón Karl Blöndal kbl@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Forsíðumyndina tók
Haraldur Jónasson
Tónlistarkonan Guðrún Ýr Eyfjörð, betur þekkt sem GDRN, spilar lög sín í
sérsniðinni útgáfu á stofutónleikum á Gljúfrasteini í dag, sunnudag. Þá hitar
hún upp fyrir sænsku tónlistarkonuna Lykke Li á fimmtudag.