Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.06.2019, Page 13
landi, og hið glænýja Day Drinking sem hún
gaf út ásamt breska plötusnúðaþríeykinu
Black Saint í síðustu viku.
Bríet segist ekki ætla að gefa út plötu í fullri
lengd á næstunni, þótt sögusagnir þess efnis
grasseri á hinum ýmsu tónlistarbloggum.
„Það er bara bull,“ svarar hún brosandi. Ég
er ekki að fara að gera plötu strax, ég sé bara
ekki ástæðu til þess.“
Bríet telur að streymisþjónustur og sam-
félagsmiðlar hafi minnkað eftirspurn eftir
plötum í fullri lengd. „Það er eiginlega ekki
þess virði að leggja alla þessa vinnu í að semja
heila plötu þegar það er bara eftirspurn eftir
einstökum lögum. Ég ætla klárlega að gefa út
plötu einhvern tíma, en ég vil að það verði sér-
stakt. Þangað til ætla ég að einbeita mér að því
að gefa bara út lög.“
Mér líður eins og tunglinu
Bríet hefur unnið að öllum lögum sínum í sam-
starfi við Pálma Ragnar.
„Þegar við hittumst og fórum upp í stúdíó í
fyrsta skipti fann ég strax að við værum ekki
að fara að vera vinir. Ég er svo mikil tilfinn-
ingavera en hann er það ekki. Hann þurfti
ekkert á því að halda. Mér leið eins og þetta
væri bara bisness fyrir honum, bara vinna,“
segir Bríet.
„Þegar við unnum að fyrsta laginu höfðum
við bæði mjög sterkar og ólíkar skoðanir um
hvernig þetta lag ætti að verða, en þetta varð
miklu, miklu, miklu betra og fallegra en við
héldum að það yrði.“
Pálmi og Bríet áttuðu sig fljótt á því að þótt
þau hafi komið að samstarfinu á mismunandi
forsendum, þá vinni þau vel saman. „Hann er
mjög rökfastur. Við erum kannski að semja
og ég segi að mér líði eins og tunglinu. Hann
spyr mig hvað ég meini með því, og ég segi að
mér líði bara eins og tunglinu. Hann spyr mig
aftur hvað ég sé að reyna að segja og ég
meina að mér líður eins og ég stækki og
minnki eins og tunglið. Já, segðu það þá.
Hann dregur fram það besta í mér og ég í
honum og það verður til einhver mögnuð vin-
átta.“
Pálmi tekur undir orð Bríetar.
„Þegar við hittumst var ég ekki að leita mér
að bestu vinkonu, en einhvern veginn gerist
það bara þegar fólk tengir á einhverju stigi og
er með sameiginlegt markmið, er að vinna í
einhverju saman og nær saman sem karakter-
ar. Já, auðvitað erum við samstarfsfélagar og
við tölum mjög mikið um það sem er að gerast
hverju sinni en við erum líka bara geggjaðir
vinir,“ segir Pálmi. Hann heldur áfram: „Við
erum með stór markmið og það er bara geggj-
að að gera það með einhverjum sem þér þykir
raunverulega vænt um og þykir vænt um þig á
móti.“
Bríet og Pálmi hafa undanfarið unnið sleitu-
laust í upptökum og stefna á að gefa út fjögur
ný lög á næstu mánuðum. Nóg er um að vera
hjá söngkonunni í sumar. Nýlega kom hún
fram á tónlistarhátíðinni Secret Solstice auk
fjölmargra tónleika á þjóðhátíðardaginn 17.
júní. Fyrr í mánuðinum hélt hún til Lundúna
til að taka upp tónlistarmyndband og til Ítalíu
að spila í brúðkaupi Gylfa Þórs Sigurðssonar.
Framhald sumars verður engu rólegra en
næst á dagskrá eru tónleikar í Þorlákshöfn
sem Bríet heldur sjálf, ásamt fjölmörgum fleiri
tónleikum um land allt.
Þótt Bríet hafi náð miklum árangri í tón-
listarheiminum má ekki gleyma að þegar öllu
er á botninn hvolft er hún enn tvítug mann-
eskja í þann mund að klára menntaskóla.
Rétt eins og flesta menntaskólanema hryllir
hana við spurningum um hvað taki við að
námi loknu.
„Ég er mjög spennt fyrir framtíðinni, en
hún er óráðin“ segir Bríet. „Ég er ótrúlega
þakklát fyrir allt sem er að gerast og fyrir
allt þetta dásamlega fólk sem ég hef í kring-
um mig. Ég vona bara að ég fái að halda
áfram að gera hluti sem ég hef ástríðu
fyrir.“Ljósmynd/Hlynur Hólm
Bríet er afar eftirsóttur
skemmtikraftur og mun
koma fram á fjölmörgum
tónleikum í sumar.
30.6. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13
Heyrnartækni | Glæsibæ | Álfheimum 74 | 104 Reykjavík | Landsbyggðaþjónusta | Sími 568 6880
Prófaðu nýju Opn S heyrnartækin í 7 daga
- Tímabókanir í síma 568 6880
Stærsta áskorun einstaklinga með skerta heyrn er að fylgjast með samtali í fjölmenni og klið. Nýju Opn S heyrnartækin frá Oticon skanna
allt hljóðumhverfið 100 sinnum á sekúndu og framkvæma 56.000 hljóðmælingar á sama tíma! Einstaklega hröð og nákvæm hljóðúrvinnsla
í Opn S heyrnartækjunum skilar þér margfalt betri talskilningi í krefjandi aðstæðum en fyrri kynslóð heyrnartækja. Hægt er að fá Opn S
með endurhlaðanlegum rafhlöðum!
Ertu einangraður
í margmenni og klið?