Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.06.2019, Page 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.6. 2019
07.00 Strumparnir
07.25 Tindur
07.40 Heiða
08.05 Blíða og Blær
08.30 Mæja býfluga
08.40 Skoppa og Skrítla í
húsdýragarðinum
09.15 Tommi og Jenni
09.35 Víkingurinn Viggó
09.45 Ævintýri Tinna
10.10 Lukku láki
10.35 Ninja-skjaldbökurnar
10.55 Friends
11.20 Ellen
12.00 Nágrannar
12.20 Nágrannar
12.40 Nágrannar
13.00 Nágrannar
13.20 Nágrannar
13.45 Friends
14.05 Seinfeld
14.30 The Big Bang Theory
14.50 Ellen’s Game of Games
15.30 Splitting Up Together
15.50 I Feel Bad
16.10 Fósturbörn
16.30 Jamie’s Quick and
Easy Food
17.00 Atvinnumennirnir okkar
17.40 60 Minutes
18.30 Fréttir Stöðvar 2
18.50 Sportpakkinn
19.05 Britain’s Got Talent
20.15 Britain’s Got Talent
20.35 GYM
21.05 Big Little Lies
21.55 Absentia
22.35 Crashing
23.05 One Nation Under
Stress
ÚTVARP OG SJÓNVARP
Sjónvarp Símans
RÚV
Rás 1 92,4 93,5
Omega
N4
Stöð 2
Hringbraut
21.00 Nágrannar á norð-
urslóðum (e)
21.30 Eitt og annað (e)
endurt. allan sólarhr.
15.00 Joel Osteen
15.30 Charles Stanley
16.00 In Search of the Lords
Way
16.30 Kall arnarins
17.00 Times Square Church
18.00 Tónlist
20.00 Ísland og umheimur
20.30 Suðurnesja-magasín
Víkurfrétta
21.00 Saga flugsins í 100 ár
endurt. allan sólarhr.
14.15 Top Chef
15.00 90210
16.00 Malcolm in the Middle
16.20 Everybody Loves Ray-
mond
16.45 The King of Queens
17.05 How I Met Your Mother
17.30 Amazing Hotels: Life
Beyond the Lobby
18.30 Strúktúr
19.05 Lambið og miðin
19.45 Speechless
20.10 Madam Secretary
21.00 Law and Order: Special
Victims Unit
21.50 Jamestown
22.40 Pose
23.40 Spectre
07.00 Fréttir.
07.03 Tríó.
08.00 Morgunfréttir.
08.05 Á tónsviðinu.
09.00 Fréttir.
09.03 Samtal.
10.00 Fréttir.
10.05 Veðurfregnir.
10.15 Bók vikunnar.
11.00 Guðsþjónusta úr Lauf-
ásprestakalli í
Þingeyjarsýslu.
12.00 Hádegisútvarp.
12.20 Hádegisfréttir.
12.40 Veðurfregnir.
13.00 Sögur af landi.
14.00 Víðsjá.
15.00 Vinnandi fólk.
16.00 Síðdegisfréttir.
16.05 Reykjavík Midsummer
Music 2019.
17.25 Orð af orði.
18.00 Kvöldfréttir.
18.10 Blindfull á sólríkum
degi.
18.50 Veðurfregnir.
18.53 Dánarfregnir.
19.00 Óskastundin.
19.40 Orð um bækur.
20.35 Gestaboð.
21.30 Úr gullkistunni.
22.00 Fréttir.
22.05 Veðurfregnir.
22.10 Á reki með KK.
23.10 Frjálsar hendur.
24.00 Fréttir.
07.15 KrakkaRÚV
07.16 Begga og Fress
07.28 Minnsti maður í heimi
07.29 Sara og Önd
07.36 Húrra fyrir Kela
07.59 Hæ Sámur
08.06 Söguhúsið
08.14 Letibjörn og læmingj-
arnir
08.21 Hvolpasveitin
08.44 Alvinn og íkornarnir
08.55 Disneystundin
08.56 Tímon & Púmba
09.17 Sígildar teiknimyndir
09.24 Líló og Stitch
09.45 Reikningur
10.00 Skollaeyja
10.25 Drengjaskólinn
10.55 Joanna Lumley í Japan
11.45 Matur og vísindi
12.35 Menningin – samantekt
13.05 Tímamótauppgötvanir –
Vatnsragnarök
13.50 Stansað, dansað og
öskrað
15.05 Hið sæta sumarlíf
15.15 Akstur í óbyggðum
16.00 Á Æðruleysinu
16.50 Sagan bak við smellinn
– Take My Breath
Away
17.20 Á götunni
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 KrakkaRÚV
18.01 Stundin okkar
18.30 Skollaeyja
19.00 Fréttir
19.25 Íþróttir
19.35 Veður
19.45 Íslendingar
20.40 Löwander-fjölskyldan
21.40 Babýlon Berlín
22.30 Íslenskt bíósumar:
Okkar á milli
10 til 11 Þingvellir Páll Magnússon og Björt Ólafs-
dóttir stýra líflegum þjóðmálaþætti í beinni útsend-
ingu á K100 alla sunnudagsmorgna.
11 til 14 100% helgi á K100 Stefán Valmundar rifj-
ar upp það besta úr dagskrá K100 frá liðinni viku,
spilar góða tónlist og spjallar við hlustendur.
14 til 17 100% Tónlistinn Siggi Gunnars fer yfir 40
vinsælustu lög landsins. Tónlistinn er unninn upp úr
gögnum frá Félagi hljómplötuframleiðanda og er eini
opinberi vinsældalisti landsins..
17 til 00 K100 tónlist
Nicole Kidman er nú hætt
að leggja sér maura til
munns en segir að ástæð-
an sé að þeir séu ekki
bragðgóðir. Nicole sagði
frá því að hún hefði byrjað
að borða maura í viðtali
sem tekið var við hana ný-
lega. Hún sagði í viðtalinu
að hún væri opin fyrir því
að prufa flest og reyndi að
borða maura en fannst þeir alls ekki góðir á bragðið
og gafst því fljótt upp á því. Nicole segir að bragðið af
þeim sé súrt og bara skrítið. Hún sagði einnig frá því
að hún hefur prufað að borða lirfur, orma og allskonar
skordýr.
Nicole Kidman
hættir að borða maura
Fólk sem fer reglulega í sund lítur alltaf svo vel út; er svo heilsuhraust ogútitekið, enda er sund frábær hreyfing og ekki verra að anda að sérfersku lofti í leiðinni. Ég ákvað um áramótin að ég vildi tilheyra þessum
heilbrigða hópi sundfólks og skellti mér í laugina eftir tuttugu ára hlé. Ég byrj-
aði auðvitað á því að stofna sundklúbb á Facebook, svona eins og maður gerir
þegar maður nennir ekki einhverju einn. Klúbburinn fékk það fína nafn Kvöld-
s(t)und með Dísu og var völdum vinkonum bætt í grúppuna. Planið var að hitt-
ast á hverju þriðjudagskvöldi, synda og spjalla svo í pottinum. Janúar og febr-
úar liðu og þriðjudagskvöldin voru heilög í Garðabæjarlauginni. En þá fóru
undur og stórmerki að gerast. Sundbakterían lét á sér kræla og margar okkar
fóru að halda framhjá klúbbnum og fóru að mæta í tíma og ótíma í sund og þá í
ýmsar laugar bæjarins. Nú er svo komið að þegar ég leggst á koddann á kvöld-
in hugsa ég um sund; hvenær kemst
ég næst í sund? Ég sé fyrir mér
sundtökin og finn nánast þessa ein-
stöku tilfinningu sem fylgir því að
vera í vatninu. Skil ekkert í mér að
hafa ekki byrjað löngu fyrr!
Nú reyni ég að komast í sund við
hvert tækifæri. Ég er stundum mætt
um sjö á morgnana og syndi á meðan
gömlu karlarnir fylla pottinn. Ég
þræði ýmsar sundlaugar bæjarins og
fer ekki út á land án þess að synda.
Ég hef uppgötvað að sundlaugar eru
ansi misjafnar; vatnið í þeim mis-
munandi þótt ótrúlegt megi virðast
og sturturnar misgóðar. Sturtan í
Garðabæ er áberandi kraftmest en
þar er ekki verið að spara vatnið.
Hins vegar er sturtan í Álftaneslaug-
inni álíka glötuð og umferðarljósin
hjá Hörpu og varir bunan jafn lengi og ljósin, eða í sirka sjö sekúndur. Ég veit
ekki með ykkur, en ég næ ekki einu sinni að þvo á mér aðra öxlina á þeim tíma.
Maður er með hausinn fullan af sjampói þegar búmm, allt bú. Sjampó lekur
niður í augun og maður fálmar um allan vegginn til að reyna að ýta aftur, til að
fá aðra sjö sekúndna bunu. Mögulega þarf undirskriftasöfnum til að laga þetta.
Svo þarf að kenna sumu fólki „umferðarreglurnar“ í brautunum. Krakkar
mínir, það er synt í hring! Sumir halda að fram og til baka sé málið en það virk-
ar illa þegar margir eru um eina braut og verður þá mikið um árekstra. Ég
mætti einni í Laugardalslauginni sem átti brautina. Hún þóttist ekki sjá mínar
bendingar að færa sig á hinn helminginn og virtist bara alls ekki sjá þegar ég
nánast stímdi á hana. Hún virtist heldur ekki heyra þegar ég stoppaði á miðri
leið, stóð upp og sagði hátt og snjallt: „Kanntu ekki mannasiði?“ Kannski hefði
ég átt að spyrja hvort hún kynni ekki sundsiði en mér datt ekkert annað í hug á
þessum tíma. Hún var mögulega bæði blind og heyrnarlaus og þá er henni
fyrirgefið; annars ekki!
Annars er alltaf fyndið að hitta í sturtunni fólk sem maður þekkir.
„Hæ, þú hér, gaman að sjá þig!“ Og allir allsberir.
Oft er erfitt að þekkja fólk svona án klæða og ég tala nú ekki um þegar
undirrituð er gleraugnalaus og með sjampó í augunum. Þannig gerðist það í
vetur að ég hitti gamla leikfimikennarann minn úr MR í sturtunni. Ekki skil ég
hvernig henni tókst að þekkja mig aftur eftir 32 ár. Og það án fata. Ég nefni-
lega var líklega einn versti nemandi sem sögur fara af í þeim ágæta skóla,
þ.e.a.s. hvað leikfimi varðar. Hversu oft fór maður til hennar með arfaslakar af-
sakanir til að sleppa því að mæta. Til skiptis gleymdi maður leikfimifötunum
eða var að drepast úr túrverkjum. Og þegar kom að því að hlaupa í kringum
Tjörnina var nánast grátið; þetta var jú svo erfitt. Kannski er það ástæða þess
að ég er henni svona minnisstæð.
En nú þremur áratugum síðar hittumst við reglulega í sundi og sameinumst
loks í hreyfingu, enda hef ég sem betur fer þroskast eitthvað á þessum árum og
sé að hreyfing er lífsnauðsynleg öllu fólki. Ég þarf ekki annað en að horfa á
leikifimikennarann, sem er að nálgast áttrætt, til þess að vita að sund er allra
meina bót. Ég hef ákveðið að verða eins og hún á mínum efri árum; hávaxin,
grönn og spengileg. Veit reyndar ekki hvort ég hækka mikið við sundið en hver
veit, það teygist kannski eitthvað úr manni í skriðsundinu.
Sturturnar í sundlaugum bæjarins eru misgóðar. Ekki er gott að vera með
sjampó í augum þegar bunan hættir og þurfa þá að leita blindandi að takkanum.
Sjö sekúndna buna
dugar skammt
Allt og
ekkert
Ásdís Ásgeirsdóttir
asdis@mbl.is
’Hún þóttist ekki sjámínar bendingar aðfæra sig á hinn helming-inn og virtist bara alls ekki
sjá þegar ég nánast stímdi
á hana. Hún virtist heldur
ekki heyra þegar ég stopp-
aði á miðri leið, stóð upp
og sagði hátt og snjallt:
„Kanntu ekki mannasiði?“