Morgunblaðið - 04.07.2019, Síða 1
F I M M T U D A G U R 4. J Ú L Í 2 0 1 9
Stofnað 1913 155. tölublað 107. árgangur
AMMA VAR
UPPRUNALEGI
JÓGINN
SÆNSKT
DRAUMAPOPP
Í HÖRPU
ATVINNU-
BLAÐ MORG-
UNBLAÐSINS
EFTIRSÓTT STJARNA 4 FINNA VINNU 4 SÍÐURJÓI KENNIR JÓGA 14
Repjan er nú í blóma á akrinum á Þorvaldseyri undir Eyja-
fjöllum. Skærgulu blómin standa þó stutt því jurtin fer að
mynda fræ. Úr fræinu er framleidd repjuolía til matar eða
sem eldsneyti, svokallað bíódísil. Ólafur Eggertsson, bóndi á
Þorvaldseyri, og fjölskylda hans hafa stundað tilraunaræktun
á repju í ellefu ár. Nú hyggjast þau staldra við vegna þess að
fræið og olían safnast upp. Segir hann nauðsynlegt að koma
upp verksmiðju til að framleiða bíódísil en nú þegar er tölu-
vert flutt inn af slíku eldsneyti til íblöndunar. »26
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Skærgulur akur í stuttan tíma undir Eyjafjöllum
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
„Þetta virkar eins og svona 20-30
prósent fækkun,“ segir Svavar Guð-
jónsson, eigandi Gullfosskaffis,
spurður hvort hann finni fyrir því að
ferðamönnum hafi fækkað á svæðinu.
Rúmlega 13% færri lögðu leið sína
um Gullna hringinn í maí og júní á
þessu ári en árið áður, samkvæmt
tölum frá Vegagerðinni.
Svavar segir að íslenskum ferða-
mönnum hafi þó fjölgað lítillega.
„Það er mjög ánægjulegt.“
Magnea Þórey Hjálmarsdóttir,
framkvæmdastjóri Icelandair Hotels
sem jafnframt starfrækja Hótel
Eddu og fleiri hótel, treystir einmitt
á að Íslendingar muni leggja land
undir fót í auknum mæli þetta sum-
arið.
Samdráttur hefur orðið í bókunum
hjá báðum keðjum, helst á lands-
byggðinni.
„Við vonumst auðvitað til þess að
allir noti tækifærið og heimsæki
landið eitthvað. Við tökum mið af
bæði veðurspá og nýtingu okkar hót-
ela á landsbyggðinni í verðlagningu
og erum dugleg við að setja út góð
verðtilboð á netið þegar svo ber und-
ir.“
Matthildur Philippusdóttir, eig-
andi ferðaskrifstofunnar Fjallabaks,
finnur einnig fyrir samdrætti.
„Það eru eitthvað færri bókanir og
ég held að ferðamönnum hafi fækkað
svolítið að Fjallabaki. Í Landmanna-
helli er til dæmis venjulega brjálæð-
islega margt fólk en þar er engin sér-
stök örtröð núna,“ segir hún.
Hjá ferðaþjónustunni á Jökulsár-
lóni hefur ferðamönnum fækkað að
meðaltali um 40 daglega en rekstr-
arstjóri fyrirtækisins segir að það sé
lítið í stóra samhenginu enda heim-
sæki um 1.100 manns ferðaþjón-
ustuna daglega.
Færri kjósa Ísland
13% færri keyra Gullna hringinn Samdráttur í bókunum
hjá Icelandair Hotels og ýmsum ferðaþjónustufyrirtækjum
M 13% færri aka um Gullna … »20
Fulltrúar VR í stjórn Lífeyrissjóðs
verzlunarmanna eru enn stjórnar-
menn LV og bera skyldur sem slík-
ir að því er fram kemur í bréfi Fjár-
málaeftirlitsins til LV þar sem
fjallað er um deilur vegna afturköll-
unar VR á umboði þeirra.
Í yfirlýsingu stjórnar LV í gær-
kvöldi, sem Ólafur Reimar Gunn-
arsson stjórnarformaður ritar und-
ir, segir að VR hafi verið óheimilt
að afturkalla umboð stjórnarmanna
í LV, en Ragnar Þór Ingólfsson,
formaður VR, segir fullnaðarsigur
VR felast í bréfi FME. Hann segir
að stjórnin sitji í óþökk VR og að
FME taki með ákvörðun sinni af
allan vafa um að VR geti aftur-
kallað umboð stjórnarmanna sinna í
LV.
FME tekur fram að ef ákvörðun
fulltrúaráðs VR um afturköllun á til-
nefningu stjórnarmanna lífeyris-
sjóðsins og skipun nýrra nái fram að
ganga megi líta svo á að um tilraun
til beinnar íhlutunar í stjórnina sé
að ræða og vegið sé að sjálfstæði
hennar og góðum stjórnarháttum.
Í áliti FME kemur fram að með
hliðsjón af þeirri óvissu, sem ein-
kenni málið, vilji FME beina því til
stjórnar lífeyrissjóðsins að taka
samþykktir sjóðsins til skoðunar
varðandi hvort og þá við hvaða að-
stæður tilnefningaraðilar geti aftur-
kallað umboð stjórnarmanna. »18
FME segir stjórnar-
menn LV enn sitja
Formaður VR fagnar niðurstöðu FME