Morgunblaðið - 04.07.2019, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ 2019
a.
595 1000
s
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
ánn
fyr
i
r
12. nóvember í 16 nætur
Frá kr.
234.995
Bir
tm
e
.
im
sfe
r
BarceloMargaritas
ALLT INNIFALIÐ
aaaa
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Töluverð snjóalög og skafla er enn að sjá á hálendinu
við Öskju eins og sjá má á þessari loftmynd ljósmynd-
ara Morgunblaðsins. Veðurspá gerir ráð fyrir skúrum
og líklega hellidembum í dag, einkum suðvestanlands
og á hálendinu. Á morgun er spáð bjartviðri sunnan- og
vestanlands og átta til 18 stiga hita á landinu.
Morgunblaðið/Eggert
Snjóalög umhverfis Öskju
Spáð er skúrum og jafnvel hellidembum suðvestanlands og á hálendinu í dag
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Fyrirhuguð afgreiðsla á nýju deili-
skipulagi fyrir Stekkjarbakka í dag
er að sögn Eyþórs Arnalds, oddvita
Sjálfstæðisflokks í Reykjavík, gerð í
skjóli þess að borgarstjórn er í fríi.
Eyþór segir deiliskipulagið stór-
mál fyrir alla borgarbúa, en fyrir-
huguð er uppbygging á um 43 þús-
und fermetra lóð þar sem meðal
annars stendur til að reisa 4.500 fer-
metra gróðurhús og 4.432 fermetra
bílastæði. Þá er fyrirhugað að um 18
þúsund fermetra verslunarrými rísi
á svæðinu sem er í jaðri Elliðaárdals.
„Á stærð við Kringluna“
„Þrátt fyrir verulegar athuga-
semdir bæði Umhverfisstofnunar og
íbúa á að samþykkja þetta, jafnvel
þótt borgarstjórn sé í fríi. Við erum á
því að það eigi að hlusta á íbúana og
að náttúran eigi líka að njóta vaf-
ans,“ segir Eyþór, en minnihlutinn í
borginni greiddi atkvæði gegn deili-
skipulaginu í umhverfis- og skipu-
lagsráði í síðustu viku. Eyþór segir
að málið komi „á hraðferð“ inn í
borgarráð. „Þetta er stórt svæði í
jaðri Elliðaárdalsins og er land-
fræðilegur hluti dalsins. Þarna er
verið að opna heimildir fyrir tugi
þúsunda fermetra af atvinnustarf-
semi. Okkur finnst það stílbrot að
fara af stað með það,“ segir hann.
Andstaða mikil í efri byggðum
Athugasemdir frá 56 aðilum bár-
ust vegna deiliskipulagsins, meðal
annars frá Hollvinasamtökum
Elliðaárdals. Halldór Páll Gíslason,
formaður samtakanna, undrast það
að málið eigi að „drífa í gegn“ meðan
sumarfrí standi yfir. „Það er auðvit-
að verið að keyra þetta í gegn og
engin umræða. Þau höfðu sex vikur
til að svara athugasemdum frá 4.
mars. Þá átti þetta að fara fyrir
borgarráð og svo borgarstjórn. Þeg-
ar borgarstjórn er óvirk af því hún er
í fríi, þá er þetta keyrt gegnum borg-
arráð án allrar umræðu,“ segir hann
og bendir á að aðrir en Sjálfstæðis-
flokkur eigi ekki fulltrúa í borgarráði
og muni því ekki eiga kost á að mót-
mæla.
Hollvinasamtökin hafa í hyggju að
kæra ákvörðun umhverfis- og skipu-
lagsráðs til Skipulagsstofnunar í
ljósi þess að aðeins hafi verið óskað
eftir afstöðu Umhverfisstofnunar
áður en ákveðið var að stækka gróð-
urhúshluta framkvæmdanna úr
1.500 í 4.500 fermetra. „Við munum
síðan fara í undirskriftasöfnun til að
kalla fram íbúakosningu. Miðað við
þau símtöl sem ég hef tekið á síðustu
vikum hef ég ekki miklar áhyggjur af
því að við náum þeim fjölda,“ segir
Halldór Páll, sem segir aðspurður að
mikil andstaða sé við áformin í jaðri
Elliðaárdalsins, sérstaklega í efri
byggðum borgarinnar. „Fólk vill
hafa þetta útivistarsvæði áfram,“
segir hann. Ekki náðist í borgar-
stjóra við vinnslu fréttarinnar.
Keyri málið áfram í skjóli sumarfrís
Deiliskipulag Stekkjarbakka rætt í borgarráði Fyrirhuguð atvinnustarfsemi í jaðri Elliðaárdals
Sjálfstæðismenn vilja „láta náttúruna njóta vafans“ Segir meirihlutann drífa deiliskipulagið áfram
Teikning/Landslag
Gróðurhús Fyrirhugað er að reisa gróðurhús í jaðri Elliðaárdals við Stekkjarbakka, en borgarráð fjallar í dag um
deiliskipulag fyrir svæðið. Eyþór Arnalds segir að til standi að afgreiða málið í skjóli sumarfrís borgarstjórnar.
Stéttarfélagið Efling og fyrirtækið
Eldum rétt deila um skipti hins síð-
arnefnda við starfsmannaleiguna
Menn í vinnu, en Efling hefur stefnt
starfsmannaleigunni og fyrirtækinu
fyrir meðferð á rúmenskum verka-
mönnum sem leigðir voru af starfs-
mannaleigunni.
Kristófer Júlíus Leifsson, fram-
kvæmdastjóri Eldum rétt, sagði í
samtali við mbl.is í gær að fyrirtækið
hefði hafnað því að gangast við kröfu
Eflingar um að ábyrgjast laun Rúm-
enanna. Sagði hann Eflingu krefjast
greiðslu fullra launa fyrir um tvær
vikur, en starfsmennirnir hefðu að-
eins starfað hjá Eldum rétt í rúma
fjóra daga. Sagði hann það „hræði-
lega ákvörðun“ að hafa leitað til leig-
unnar um starfskraft. Þá sagðist
hann ekkert hafa heyrt frá Eflingu
eftir að kröfubréf var sent fyrir-
tækinu og þar til því var stefnt.
Hafna skýringum Kristófers
Efling hafnaði málflutningi fram-
kvæmdastjórans í yfirlýsingu síð-
degis í gær og telur að hann hafi
brugðist við fregnum af málinu með
útúrsnúningi og rangfærslum.
„Fyrirtæki sem versla við starfs-
mannaleigur sleppa ekki með því
undan skyldum gagnvart starfsfólk-
inu. Þetta er gert ljóst í lögum um
starfsmannaleigur sem voru upp-
færð í fyrra til að herða á þeim skyld-
um,“ segir þar. „Kristófer hefur nú
ítrekað lýst því yfir að mennirnir hafi
unnið stutt hjá honum og þess vegna
séu kröfur þeirra ekki viðeigandi.
Þetta er málinu óviðkomandi,“ segir
Efling. Í lögum um keðjuábyrgð séu
tilgreindar undanþágur ef starfið
sem um ræðir eigi sér stað innan
ákveðins lágmarkstímabils, en þær
undanþágur eigi ekki við í tilfelli
Eldum rétt.
Þá segir að í ljósi þeirra aðstæðna
sem rúmensku verkamennirnir hafi
verið látnir lifa við veki það furðu að
harka hafi verið sett í málið af hálfu
Eldum rétt og að Kristófer geri Efl-
ingu ábyrga fyrir því að ekki hafi átt
sér stað samtal. „Kristófer segir að
Eldum rétt „hefðu viljað finna raun-
verulegan grundvöll“ fyrir kröfum
starfsmannanna, en þann vilja er
ekki að finna í þeirri eindregnu höfn-
un sem fyrirtækið lét senda lög-
mönnum Eflingar í maí.“ jbe@mbl.is
Hart deilt um þátt Eldum
rétt í máli Rúmenanna
Framkvæmdastjórinn snúi út úr og setji fram rangfærslur
Lögreglan á Vestfjörðum hefur birt
nöfn þeirra tveggja manna sem lét-
ust af slysförum í lok júnímánaðar.
Guðmundur S. Ásgeirsson lést þegar
veghefill fór út af Ingjaldsvegi í
Sandheiði í Gerðhamarsdal. Maður-
inn sem lést í vélhjólaslysi við Hrófá
skammt frá Hólmavík hét Guðmund-
ur Hreiðar Guðjónsson.
Guðmundur S. Ásgeirsson var 57
ára gamall ekkill. Hann lætur eftir
sig þrjá uppkomna syni, tvær
tengdadætur og þrjú barnabörn.
Synir hans vilja koma á framfæri
þökkum til samstarfsmanna hans
hjá Vegagerðinni sem og allra við-
bragðsaðila sem komu að atvikinu.
Guðmundur Hreiðar Guðjónsson
var 28 ára gamall. Hann lætur eftir
sig unnustu og sjö ára dóttur.
Létust af slysförum
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa-
dóttir dómsmálaráðherra segir á
facebooksíðu sinni að hún hafi lengi
talið að „fara þurfi sérstaklega yfir
framkvæmd“ útlendingalaganna
þegar börn eru annars vegar.
„Framkvæmdin þarf að fullu að
samræmast anda laganna – sem er
mannúð og að taka skuli sérstakt
tillit til barna,“ skrifar hún, en seg-
ir jafnframt að hún geti ekki tjáð
sig um málefni afgönsku fjölskyldn-
anna tveggja sem til stendur að
senda úr landi til Grikklands eftir
að umsókn þeirra um alþjóðlega
vernd hér á landi var hafnað.
Ráðherrann segir að til þess að
tryggja jafnræði hafi hún ekki
heimild til þess að „stíga inn í ein-
stök mál“.
Hún greinir frá því að í síðustu
viku hafi farið fram ráðherra-
fundur um útlendingamál. „Á þeim
fundi sátu, auk forsætisráðherra,
ég sem dómsmálaráðherra, félags-
og barnamálaráðherra, fulltrúi
heilbrigðisráðherra, menntamála-
ráðherra og sveitarstjórnar-
ráðherra. Þetta sýnir inn á hvaða
svið þessi mál fara og sýnir að við
verðum að taka með heildstæðari
hætti á þeim,“ skrifar hún m.a.
Dómsmálaráðherra segir að fara þurfi
yfir framkvæmd útlendingalaganna